Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1989, Qupperneq 40
40
pqf t rft-* 'S' jnyn t rnn/ hiyf
MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 1989.
Smáauglýsingar
Nýjarplötur
Wagoneer '74 til sölu, 8 cyl., sjálfekipt-
ur, mjög góður og mikið endumýjaður
bíll. Verð 350.000. Uppl. i síma 666062
eftir kl. 17.
Chevrolet pickup S-10 ’85 til sölu, hvít-
ur, ekinn 48 þús., beinskiptur, vökva-
stýri, 4 cyl. Verð 680 þús. Uppl. í sím-
um 91-84927, 985-24202, 985-25005, 985-
21615 kl. 16-19.
■ Hjól
Honda VFR 750F ’87 til sölu, ekið 38
þús km. Verð 450 þús. staðgreitt.
Topphjól. Til sýnis á Kirkjuteigi 21
eða uppl. í síma 91-688207.
Kawasakí 600 R Ninja '86 til sölu, blátt
og hvítt, ekið 9.600, skemmt eftir um-
ferðaróhapp. Verðtilboð. Uppl. í sim-
um 91-84927, 985-24202, 985-25005, 985-
21615 kl. 16-19.
Yamaha 500 Virago ’83 til sölu, ekið
7.800, svart, 2 cyl., lítur mjög vel út.
Uppl. í símum 91-84927, 985-24202,
985-25005, 985-21615 kl. 16-19.
■ Líkamsrækt
Tilboð: GYM-4 sett. Öflugur pressu-
bekkur með fótatæki, lyftingasett, 70
kg, krómstangir og mittisbekkur, verð
stgr. 41.605, afb. 43.920. Vaxtarræktin,
frískandi verslun, Skeifunni 19, 108
Rvík, s. 681717. Sendum í póstkröfu.
■ Þjónusta
Gröfuþjónusta, sími 985-21901 og 91-
689112, Stefán. Tökum að okkur alla
gröfuvinnu, JCB grafa með opnan-
legri framskóflu, skotbómu og fram-
drifi.
Gröfuþjónusta, sími 985-20995 og
667637. Til leigu ný Cat 4x4 í öll verk,
stór og smá. Gerum tilboð og útvegum
einnig vörubíla. Vinnum á kvöldin og
um helgar.
Gröfuþjónusta. Til leigu JCB traktors-
grafa í öll verk. Uppl. í síma 44153.
■ Ymislegt
iþróttasalir til leigu við Gullinbrú. Við
bjóðum tíma fyrir knattspyrnu, hand-
knattleik, blak, badminton, körfu-
bolta, skallatennis o.fl. Gufúbað og
tækjasalur fylgja. Einnig er hægt að
fara í borðtennis og billjard (12 feta
nýtt borð) fyrir og eftir æfingatíma
eða tefla og spila. Upplagður klúbbur
fyrir starfefélaga eða kunningjahóp
að hittast 1-2 skipti í viku. Uppl. eftir
hádegi í síma 672270.
LAUCAVEGI 82 ‘E’ 2 27 18
Um nokkurt skeið verður eftirf. verð á
passamyndatökum: 4 myndir kr. 800,
8 myndir kr. 1.200, sv/hvítt, litur, til-
búnar á 3 mínútum.
___Slmple Minds - Street Fighting Years
Gáfumennskan uppmáluð
Hluta af vonbrigðum fólks með
Street Fighting Years má sjálfsagt
rekja til þess að reiknað var með svo
miklu. Ferill Simple Minds á ára-
tugnum hefur verið glæsilegur. Ný
plata hefur jafnan slegið hinum eldri
við. Nú virðist hljómsveitin ekki hafa
staöið undir allt of miklum vonum
fólks. Afleiðingin: Vonbrigði.
Eigi að síður er Street Fighting
Years ágætis plata. Það er meiri
breidd í lagasmíðum Charles Burc-
hills, Michaels MacNeils og Jims
Kerrs en á fyrri plötum. Allt her þess
merki að þremenningarnir og hjálp-
arkokkar þeirra hafa gefið sér betri
tíma en oft áður við að setja tónlist-
ina saman og útsetja hana sem vand-
virknislegast.
Samkvæmt textunxun á Street
Fighting Years eru piltamir í Simple
Minds betur meðvitaðir mn heimsó-
sóma hvers konar en nokkru sinni
-fyrr. Að því leytinu sveija Kerr og
félagar sig rækilega í fósthræðralag
með stéttarbræðrum sínum í U2,
R.E.M., Pretenders og fleiri sveitum.
Mannréttindabrot í Suður-Afríku
eru þremenningunum ofarlega í
huga. Þeir eru yfirlýstir stuðnings-
menn umhverfisvemdarsinna og
þannig mætti lengi telja. Reyndar em
þjóðfélagslega meðvitaðar hljóm-
sveitir orðnar svo alvörugefnar að
spyrja má hvort það fari ekki að
bitna á vinsældum þeirra fyrr eða
síðar. Rokk er nú einu sinni bara
skemmtimúsík þótt vissulega megi
nota það til að koma brýnum boð-
skap á framfæri. Hins vegar er best
að hafa hóf á slíkum hlutum eins og
öðm.
Street Fighting Years er vissulega
í hópi bestu platna sem gefnar hafa
verið út það sem af er árinu. Hún er
hins vegar nokkuð seinteknari en
fyrri plötur Simple Minds - sér í lagi
næsta stúdíóplata á undan, Once
Upon A Time. Hins vegar spyr maöur
sig að því hvort það fari rokkurum
eins og Kerr og félögum að gefa sér
allan tíma sem þeir þurfa til að senda
frá sér plötu. Hvort þeir hafi jafnvel
eldd vandáð um of til verka að þessu
sinni.
-ÁT-
Stuðmenn - listin að lifa
Iistin að lifa af
Fyrir margt löngu vom Stuömenn
frumlegt og leiðandi afl í íslenskri
popptónlist. Þetta er hðin tíð og Stuð-
menn famir að hjakka í sama farinu
ár eftir ár, þá er hreinlega að daga
uppi eins og hver önnur nátttröll.
Enginn neitar því að í röðum Stuð-
manna em margir af hæfileikarík-
ustu tónlistarmönnum landsins en
þeir em ekki ofurmenni og geta því
orðið þreyttir. Og það er kannski
fyrst og fremst þreyta sem einkennir
þessa nýju plötu Suðmanna.
Þó kveður við einn nýjan tón; ný-
gamlan eiginlega, en það er Sigurður
Bjóla sem var með Stuðmönnum á
upphafsárunum. Hann á eitt lag á
þessari plötu sem fyrir mína parta
er það besta á plötunni.
Ánnað kemur á óvart hér en það
er þáttur Þórðar Ámasonar gítar-
leikara. Hann stekkur hér fram á
sjónarsviðið með lög og texta en því
miður hefur hann hlustað of mikið á
þá félaga sína í Stuðmönnum í gegn-
um tíðina því lög hans bregða í engu
út frá Stuðmannaformúlunni. Og
hefði maður ekki skjalfestar sannan-
ir fyrir því að Þórður semur þessi lög
og texta gætu þau allt eins verið eftir
Egil, Valgeir eða Jakob.
Þáttur Valgeirs Guðjónssonar hef-
ur farið minnkandi á Stuðmanna-
plötum síðustu árin og nú er svo
komið að hann er ekki með nema að
nafninu til. Hann semur nokkur lög
og texta en kemur að öðru leyti eldd
nálægt þessu verki. Þar er skarð fyr-
ir skildi.
Þrátt fyrir þreytumerkin á þessari
plötu er ekki þar með sagt að hún
sé leiðinleg. Stuðmenn kunna öðrum
fremur að semja létt og skemmtileg
lög og þá ekki síður að klæða þau í
viðeigandi búning.
Allt er þetta pottþétt enda vanir
menn sem kunna á markaðinn. Mál-
iðeraðlifaaf. -SþS
Bandalög - Hinir & þessir
Klisjukenndir sumarsmellir
Allt frá þvi íslenska smáskífan dó
drottni sínum í lok sjöunda áratugar-
ins hafa upprennandi hljómsveitir
átt í erfiðleikum með að koma verk-
um sínum á framfæri. Þetta vanda-
mál hafa hljómplötuútgefendur leyst
á síðustu árum með útgáfu svokall-
aðra safnplatna. Þar er safnað saman
lögum frá hinum og þessum hljóm-
sveitum á eina stóra plötu og hefur
þetta gefist þó nokkuð vel.
Ein plata af þessu tagi leit dagsins
ljós fyrir nokkru og nýtur ótvíræðra
vinsælda þessa dagana. Á þessari
plötu eru 14 lög í flutningi níu hljóm-
sveita. Þar er kannski helst að nefna
Bítlavinafélagið, Sálina hans Jóns
míns og Greifana en þessar hljóm-
sveitir hafa allar gefið út eigin plötur
áður.
Framtak eins og þetta er vissulega
virðingarvert en á þessu formi er þó
sá stóri galli að á svona plötu safnast
mjög einhliða lög yfirleitt. Þetta er
það sem nú um stundir er nefnt sum-
arsmellir; lauflétt popplög sem ekki
er ætlað að lifa af sumarið.
Sumt af þessu er ágætis lög en þar
sem þau eru meira og minna mótuð
í sama formið verður platan þreyt-
andi til lengdar.
Eina undantekningin frá þessu er
lag hljómsveitarinnar Todmobile,
Stelpurokk, en þar er þó reynt að
komast hjá helstu khsjugryfjunum.
-SþS-
ER SMAAUGLÝSINGA
BIAÐID
SÍMINN ER