Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989.
13
dv Útlönd
Tæknivæddir glæpamenn
Félagar glæpaflokkanna eru
flestir svartir unglingar á aldrinum
12-24 ára en foringjar þeirra eru
yfirleitt komnir undir þrítugt. ,JFá-
tækt er undirrót glæpaílokkanna,'1
segir í skýrslunni. „Glæpir eru
ekki aðeins leið til velgengni heldur
einnig til að iifa af.“
Glæpaflokkar í Los Angeles 1
Bandaríkjunum eru famir að taka
tæknina í þjónustu sína. Þeir nota
tölvur, faxtæki og bílasíma til að
selja krakk kókaín fyrir milljónir
dollara.
Ekki láta þeir sér þó það nægja
heldur ráða til sín lögfræðinga og
bókhaldara, stofna tryggingasjóði
til aö leysa félaga sína úr fangelsi
og kaupa fyrirtæki eins og bílasöl-
ur og gistihús til aö koma eitur-
lyíjagróðanum í umferð.
„Sú tíð er nú senn á enda þegar
glæpaflokkamir börðust innbyrðis
einungis um landsvæöi og ein-
kennisliti," segir í skýrslu frá fíkni-
efiialögreglunni bandarisku
(D.E.A.) sem heitir „Krakk kókaín
- yfirlit 1989' þar sem flallað er um
nýja siöi glæpaflokkanna. „Land-
svæði glæpaflokkanna, sem í Los
Angeles em enn merkt með veggja-
kroti, em ekki bara eitthvað til aö
stæra sig af heldur em þau mark-
aðssvæði," segir ennfremur í
skýrslunni.
Krakk kókaínið fer eins og eldur
í sinu um Los Angeles og nærliggj-
andi borgir. Glæpaflokkamir, sem
selja það, em mjög ofbeldissinnaðir
og víla það ekkert fyrir sér að drepa
saklausa vegfarendur og myrða
lögregluþjóna með köldu blóði.
Lögreglan áætlar að í Los Ange-
les einni starfi um 400 glæpaflokkar
og aö 1 þeim séu um 50 þúsund fé-
lagsmenn. Þijú þúsund manns hafa
látið lífiö í ofbeldisaðgerðum þeirra
síöan 1980 og fimmtán þúsund hafa
slasast alvarlega. Lögreglan telur
að um helmingur fómarlambanna
hafi veriö saklausir vegfarend-
ur.
Samuel Pierce, fyrrum húsnæðis-
málaráðherra Bandaríkjanna, veitti
flokksgæðingum repúblikana ýmsa
fyrirgreiðslu sem þykir á mörkum
siðleysis og lögleysu.
Þrálátt
hneykslismál
Birgir Þórisson, DV, New York:
Rannsókn bandarískra þingnefnda
á spillingu í húsnæðismálaráðuneyt-
inu hefur með reglulegu millibili í
sumar dregið fram í dagsljósið ný
hneykslunarefni. En mikið er talið
vanta á að öll kurl séu komin til graf-
ar í þessu máli sem talið er eitt hið
umfangsmesta þar í landi síðan Wat-
ergatehneykslið þvingaði Nixon til
að segja af sér. Dómsyfirvöld hafa
þegar til rannsóknar um 600 mál
tengd húsnæðismálaráðuneytis-
hneykslinu sem áætlað er að hafi
kostað ríkið tvo milljarða dollara á
stjómarárum Reagans.
Þingrannsóknin beinist aöallega að
þremur þáttum: hver hlutur Samuels
Pierce, húsnæðismálaráðherra Re-
agans, hafi verið, hvort embætt-
ismenn, verktakar og „ráðgjafar"
hafi brotiö lög og hvort tengsl séu á
milli fjáröflunarstarfsemi Repúbhk-
anaflokksins og styrkveitinga hús-
næðismálaráðuneytisins.
Ljóst þykir að hlutur Pierce er
meiri og verri en tahð var í fyrstu.
Pierce þóttist framan af ekki hafa
vitað hvað undirmenn hans höfðust
að. Eins og yfirmaður hans, Reagan,
hafi hann htið skipt sér af smáatrið-
um í rekstri ráðuneytisins og þess í
staö reitt sig á aðstoðarmenn sem
hafi brugðist trausti hans. En vitna-
leiðslur hafa leitt í ljós að þótt Pierce
hafi yfirleitt verið afskiptalaus þá
hafi hann nokkmm sinnum gripið
inn í til að tryggja vildarmönnum og
flokksgæðingum fyrirgreiðslu.
Pierce, eini blökkumaðurinn í Re-
aganstjórninni, átti glæsilegan feril
að baki og lokaþrepið, sem metnaður
hans stóð til, embætti hæstaréttar-
dómara, virtist innan seilingar. En í
Bandaríkjunum er það póhtískur
dauöadómur ef upp kemst um
meinta siðlausa hegðun, jafnvel þótt
lögleg sé.
Ekki þykir leika vafi á að atferli
undirmanna Pierce hafi verið siö-
laust en annað mál er hvort þeir
hafa brotið lög. Aftur á móti er óíjós-
ara hvort tengsl hafa verið milli fyr-
irgreiðslunnar og framlaga í kosn-
ingasjóði repúblikana.
TEPPI-DUKAR-PARKET-FLÍSAR-MOTTUR-DREGLAR-RENNINGAR-AFGANGAR
ALLT AÐ 50% VERÐLÆKKUN
ÞÚ GETUR SPARAÐ ÞÚSUNDIR Á ÚTSÖLUNNI HJÁ OKKUR
Gólfteppi í rúllum 1 10-30% Dæmi: Lykkjuteppi Milano aóeinskr. Stigateppi - Zeptyr aóeins kr. ! Stofuteppi - Medalion aóeins kr. 745 I.270 1.115
* TePPaaf~ 9°ngar t30-50% * Odýr skrifstofuteppi og teppaflísar Kjarakaup: County Fair - Ijósbrúnt áóur kr. 1.470,- pr. m2, nú-25% eóakr. 1.099,-pr. m2.
pr. rrf.
pr. m2.
pr. m2.
Bráóabirgöa
teppi
kr. 395,-
pr. m2
Boen parket lækkar um 250 kr. hver fermetri.
Þaö gefur þér 15.000 kr. ef þú ert meö 60 m2 flöt.
Lcskkun
15-20%
Amstrong gólfdúkar
4 mm soft-þykkur og mjúkur, kr. 1.150 pr. m2.
mm spectrum-þéttur og þolinn, kr. 999,- pr. m2.
2 mm Comfort-þœgilegur og þrifinn, kr.824,- pr. m2.
Dúkaafgangar og dúkabútar með stórafslætti
%>PQbúf0r
0/
I~bqo
fyrirlittu
börnin
VeQ9- og
Grfckurmarmarj j ítalskar og spœnskar flísar í fyrsta gceóaflokki
ásértnboói 15-25% verölœkkun
Stór teppi - mottur og dreglar 15-25% afslóttur
-W I | I I IV/ I I Ul V/V/ V/ I V/V/I\^l B / V 'w. . w. ^ .
K]l=URO rnanBEwSi „
!<mim [jgy \ vIsa \ Samkort
TEPPABUÐIN
GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S-91 681950