Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Blaðsíða 28
40 MIÐVIKUDAGUR ;16. ÁGÚST 1989. Ertu að selja? - Viltu kaupa? - eöa viltu skipta? Bílamarkaður DV á laugardögum og smáauglýsingar daglega. Smáauglýsingar Fréttir Bflar til sölu Escort XR3i '83 til sölu, góður bíll, ekinn 78 þús. km. Uppl. í síma 91-673356 eftir kl. 19. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 740 GLE árg. ’84, sjálfskiptur, vökvastýri, bein innspýting, sóllúga, álfelgur o.fl. Glœsilegur bíll! Uppl. í síma 91-624945 eftir kl. 16. MMC Colt Turbo árg. '84, hagstætt verð. Uppl. í síma 624945 eftir kl. 16. Þjónusta Gröfuþjónusta, sími 985-20995 og 667637. Til leigu ný Cat 4x4 í öll verk, stór og smá. Gerum tilboð og útvegum einnig vörubíla. Vinnum á kvöldin og um helgar. Gröfuþjónusta, simi 985-21901 og 91-689112, Stefán. Tökum að okkur alla gröfuvinnu, JCB grafa með opn- anlegri framskóflu, skotbómu og framdrifi. Lflcamsrækt Sniglabandið til Sovétríkjanna: Taka mótorhjólin og hljoðfærin með - 5 þúsund maims í „Next Stop Sovét“ á leið austur fyrir jámtjald „Þetta er í fýrsta’skipti sem er- lendu mótorhjólagengi er hleypt inn í Sovétríkin. Við ætlum að keyra þar um og halda 10 tónieika og við ætlum engan söluskatt aö borga þar,“ sögöu meðlimir hljóm- sveítarinnar Sniglabandsins í sam- taii við DV í gær. „En við viljLun koma á framfæri sérstöku þakklæti til sovéska sendiráösins í Reykjavík fyrir ein- staklega lipur samskipti sem viö áttum við starfsfólk þar vegna ferö- arinnar," sagði Skúli Gautason git- arleikari. Á sunnudaginn hefst um 3 þús- imd kílómetra langt feröalag hljómsveitarinnar til Sovétrikj- anna. Ástæðan fyrir þessari „tón- leika- og mótorhjólaferð” þeirra er sú að bráðlega munu um 5 þúsund ungmenni frá Norðurlöndum, sem eru i Next Stop Sovét friðarsamtök- unum, heimsækja jafhaldra sína austan jámijalds. Tilgangurinn er aö vekja athygii á bættum sam- skiptum austurs og vesturs. Ferðin hefst á þvi að tveir með- limir hljóm8veitarinnar fara til V- Þýskalands þar sem keyptur verö- ur flutningabÖl fyrlr híjómflutn- ingstækin og fylgdariið sem m.a er skipað kvikmyndatökumönn- um. Að því loknu hittíst allur 11 manna hópurinn i Danmörku. Það- an verður haldið sem leið liggur á bíl og mótorhjólum um Svíþjóð, Finnland og yfir til Leningrad þar sem dvalist verður í nokkra daga Áö því loknu verða hljómieikar haldnir á 10 stöðum í Eistlandi, Lettlandi og Litháen - m.a. 1 Tallin, Riga, Vilna og Minsk. Lokaáfangi feröarinnar er svo að haldið verður til Moskvu og tekiö þátt i alþjóð- legri menningarhátíð sem þar fer fram. Kvikmynd verður gerö um ferðina og mun hún væntanlega verða sýnd hér á landi i vetur. -ÓTT ÞURRKUBLÖÐIN VERÐA AÐ VERA ÚSKEMMD og þau þarf aö hreinsa reglulega. Slitin þurrkublöö margfalda áhættu I umferðinnt y| UMFERÐAR 10 timar í Ijós kr. 2390. Frábærir ljósabekkir. f/öídi bílasala, bílaumboða og einstaklinga auglýsa (jölbreytt úrual bíla af öllum gerðum og í öllum uerðflokkum með góðum árangri. Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR á laugardögum þurfa að berast i síð- asta lagi fýrir kl. 17.00 á fimmtudögum. Smáauglýsingadeildin er hins uegar opin alla daga frá kl. 9-22 nema laugardaga kl. 9-14 og sunnudaga frá kl. 18-22. Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verður að berast fyrir kl. 17.00 á föstudögum. Auglýsingadeild iir^ai Sími 27022 Jón Baldvin og Bryndfs taka á móti danska utanrikisráðherranum, Uffe Ellemann-Jensen, við komu hans tii ísa- fjarðar. DV-mynd BB, ísafirði ísaflörður: Gagnlegur fundur ráðherranna Vilborg Davíðsdóttir, DV, ísafirði: Árlegum haustfundi utanríkisráö- herra Norðurlandanna, sem haldinn var í nýja Stjómsýsluhúsinu á ísafiröi, lauk í gær. Fundurinn var að sögn Jóns Baldvins hæði fróðlegur 9g gagnlegur. Jón Baldvin kom til ísafjarðar á mánudagskvöld með flugvél flugmálastjómar og skömmu síðar ráöherrar Noregs, Svíþjóöar og Finnlands ásamt fylgdarliöi með Fokker-vél Flugleiða. Uffe-Ellemann Jensen kom með einkaþotu frá Kaupmahnahöfn. Haraldur L. Haraldsson bæjar- stjóri og Kristján Jónasson, forseti bæjarstjómar, tóku á móti gestunum í flugstöðinni á ísafjarðarflugvelli og síðan hélt hópurinn, alls um 55 manns, til kvöldverðar á Hótel ísafirði í boöi bæjarstjómar. Um 80 manns sátu veisluna. Gestunum var ekiö frá flugveliin- um í öllum tiltækum Volvo-bifreið- um ísfirðinga og gömlu forsetabíl aö auki. Öryggisgæsla vegna fundarins var í höndum lögreglunnar á ísafirði og Bolungarvik og þeim til aöstoðar vom ellefu öryggisverðir, flestir sænskir. Á þriðjudagsmorgun lituðust ráö- herramir um í Neðstakaupstað á ísafirði, skoðuðu friðuöu húsin þar og héldu síðan í skoðunarferð til Bolungarvíkur. Þar var m.a. farið upp á Bolafjall og ný ratsjárstöð bandaríska hersins skoðuð. Hádegis- veður var snæddur í boði bæjar- stjómar Bolungarvíkur og síðan haldið til ísafjarðar á ný. Fundurinn hófst síðan kl. 14 á þriðjudag í Stjóm- sýsluhúsinu og stóð til kl. 18. Að honum loknum var boðið til blaða- mannafundar þar sem íjölmiölum var afhent tíu síðna yfirlýsing ráð- herranna um hin ýmsu umræðuefni fundarins. í gærkvöld bauð utanríkisráðu- neytið íslenska síðan til kvöldverðar á Hótel ísafirði. Ráðherrcimir hafa eflaust þurft að draga sig snemma í hlé því kl. 5.30 í morgun héldu þeir í veiðiferð frá ísafirði á skakbátum. Fjórir ráðherrar og Bryndís Schram vom meðal þeirra sem fóm. Bræla var á miðunum og lítil veiði og var komið aftur í land um áttaleytið. Gjaldþrot vélsmiðju 01. Ólsen: Njarðvíkurbær veitti ein- falda ábyrgð fyrir háu láni Stefán Jónsson, bæjarritari Njarðvíkurbæjar, segir að hann eigi von á því aö eignir Vélsmiðju Ól. Ólsen, sem lýst var gjaldþrota fyrir helgi, muni seijast. Njarövík- urbær veitti fyrir nokkmm misser- um einfalda ábyrgð fyrir 11,5 milij- ón króna láni á öðrum veðrétti eignarinnar. Lánið var tekið hjá Útvegsbankanum. „Það er ekkert farið aö eiga við þetta mál ennþá enda stutt frá því að fyrirtækið var lýst gjaldþrota," sagði Stefán í samtali við DV í morgun. „Eignimar em á góðum stað og við eigum ekki von á öðm en að þær seljist með þessum áhvfl- andi skuldum. Það hefði ekki verið farið út í bæjarábyrgð nema að full- nægjandi veð fengist fyrir láninu. Við munum fylgjast með fram- vindu þessara mála. Hér er um að ræða sérhæfða vélsmiðju - verð á slíkum eignum lýtur markaðslög- málum og veit maður því ekki hvort verðið hefur hækkað eða lækkað frá þeim tíma sem lánið var tekið,“ sagði Stefán. - Hve margir missa vinnu vegna gjaldþrots fyrirtækisins? „Gjaldþrotiö er áfall fyrir at- vinnulíf bæjarins. Þama hefur ver- ið töluverð starfsemi á síðastliðn- um árum og það er því ljóst að tölu- verður fjöldi manna hefur orðið undir í hinum harða heimi við- skiptanna. Við vonumst til þess að það takist að koma starfseminni í samtlagaftur. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.