Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1989, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989.
7
__________________________________Fréttir
fslandsmeistarakeppnin í Ökuleikni ’89:
Fyrstu verðlaun á
Akureyri og Skagann
Sigurvegarar i Ökuleikni ’89 eru, taldir frá vinstri: Garðar Ólafsson, Jóhannes Brynleifsson, Þráinn Jensson, Ásdis
B. Pálsdóttir, Gíslina Ágústsdóttir og Þóra Vikingsdóttir.
dv Sandkom
Aðstoðarmenn
borgaraflokks-
ráðherra
Nústyttistóð-
umíþaðaðrík-
isstjóminnái
íúllntöluþegar
þeirJúMusSól-
nesogÓliÞ.
Guðbjartsson
fályklanasína.
Reyndarverð-
urerfitttyrir
Júlíusaðfá lykla því að bann hefúr
ekkert ráðuneyti. Annað vandamál,
sem komið hefúr upp, lýtur að ráð-
herrabílstjórunum. Júiius þarf að
sjálfsögöu ráðherrabíl og bílstjóra en
það getur hins vegar orðið vandi fyr-
ir bílstjórann að átta sig á þvi hvert
hann á að keyra Júiíus- hann hefur
ekkert ráðuneyti! Þá er eftir að ráða
í stööu aöstoðarmanna ráðherranna
nýju en samkvæmt reglunni þurfa
þeir alla vega einn til tvo aðstoðar-
menn hvor. Sjálfsagt verða margir
borgaraflokksmenn meira en tilbúnir
til að aðstoða þá félaga við að axla
hin nýju ábyrgðarstörf.
Nýr þingflokks-
formaður
Einnigeiga
borgaraflokks-
menn eftirað
veljanýjan
þingflokks-
formann,þvíað
ÓliÞ.munláta
af því embætti
þegarhannsest
iembætti
dóms- og kirkjumálaráðherra. Það
léttir hins vegar áhyggjum af borgur-
um að þeir skyldu spila embætti for-
seta neðri deildar út úr höndunum á
sér þannig aö þeir þurfa ekki að veija
mann í það embætti. Menn eru
reyndar núna að velta þ ví fyrir sér
hver átti að muna eftirþessu embætti
en engin skýring hefur fengist á því.
Kratar fa því að halda þessu emhætti
áfram en verða að finna mann í staö
Kjartans Jóhannssonar í embættið.
Ámi Gunnarsson hefúr verið nefnd-
urtilsögunnar.
Albertáleið
íslaginnáný
Þaöfórfyrir
brjóstiðáutan-
ríkisráðherra
aöAlbertGuö-
mundsson,
stoftiandi Borg-
araflokksins,
skyldihafatjáð
siguminn-
gönguflokks-
ins i ríkisstjómina. AJbert þótti það
vægast sagt dálítið miður að Borgara-
flokkurinn skyldi hafa gert þetta. Jón
Baldvin sagði að Albert ætti ekki að
skipta sér af pólitík, enda var þaö
ástæðan fyrir því að hann var skipað-
ur sendiherra í Paris. Nú, þegar ferið
er að hvessa á miUi þessara vinnufé-
laga, eru menn famir að velta því
fyrir sér að ef til viU sé Aibert farinn
að huga aö endurkomu sinni sem
hann hefúr áður nefht að sé hugsan-
leg. Það veröur án efa til að flýta því
ef Jón BaJdvin rekur Albert en þá
má segja að máUð sé komið í hring
frá því er Jón Baldvin bauð Albert
sendiherrastöðuna.
Uppskeruháfíð
FH-inga
Sem kunnugt
ereigaFH-
ingargóða
möguleikaáað
sigraíl.deild
knattspym-
unnarffyrsía
sMptiísög-
umn.Mikilá-
nægjaríkirað
sjálfsögðu í Firðinum en þó þykir
sumum að Hafiifirðingar séu famir
að gleðjast of snerama því að nú hef-
ur verið boöað til uppskeruhátíðar
hjá FH-ingum næsta sunnudag. Nú
er það venja víða um heim að halda
ekki uppskeruhátíðir fyrr cn upp-
skeran er komin í hús eri þ vi er aUs
ekki til aö dreifa í þessu til viki.
Reyndar hafa gárungarnir haldið því
fram að KA-mennogFramarar hafi
sett þessa auglýsingu í Fjaiðarpóst-
inn til að mgla Hafriftrðinga í ríminu.
Umsjón: Siguröur Mór Jonsson
Úrslitakeppnin í Ökuleikni ’89 fór
fram um síðustu helgi við Mazda-
umboðið, Bflaborg. Þátttökurétt áttu
sigurvegarar í karla- og kvennariðl-
um á þeim 37 stöðum sem keppt var
í sumar, svo og 10 efstu í nýliðariðb
sem var ætlaöur ökumönnum með
innan við ársgömul skírteini. Fimm-
tíu ökumenn mættu tfl leiks í úrsbt-
um.
Ekki viðraði alls kostar vel tfl úti-
veru þegar keppni hófst síðdegis á
laugardag. Hávaðarok var og rigning
svo að keppendur, dómarar og aðrir
nærstaddir Utu út eins og þeir hefðu
allir sem einn hent sér til sunds í
Faxaflóann en ekki verið viðstaddir
keppni í akstursleikni. Keppendur
virtust hins vegar ekki láta það neitt
á sig fá og lögðu allt kapp á að ná sem
bestum árangri.
Einn hluti keppninnar er fólginn í
því að svara laufléttum umferðar-
spumingum. Greinilegt var að ekki
höfðu allir tekið þann þátt jafnalvar-
lega því vfliumar drógu marga nið-
ur.
Aksturskeppnin sjálf var mjög jöfn
og spennandi. Eftir fyrri daginn
skfldu aðeins örfá stig efstu keppend-
ur í kvennariðh að en í karlariðli var
Þráinn Jensson frá Akranesi með
langfæst refsistig. Mikil spenna ríkti
því meðal keppenda á sunnudegin-
um og ekki laust við að taugaóstyrk-
ur gerði vart við sig. Sjálfsagt hefur
það átt sinn þátt í að sæti riðluðust
talsvert í seinni umferðinni.
Það var Þóra Víkingsdóttir sem
stóð uppi sem sigurvegari í kvenna-
flokki þegar keppni lauk. Þóra er frá
Akureyri og þetta er hennar fyrsti
íslandsnieistaratitill í ökuleikni. í
ööru sæti var Gíslína Ágústsdóttir
frá Reykjavík og í þriðja Ásdís B.
Pálsdóttir frá Seyðisfirði.
í karlariðh tókst Þráni Jenssyni að
halda 1. sætinu, annað sætið hlaut
Jóhannes Brynleifsson, Þorlákshöfn,
og þaö þriöja Garðar Ólafsson,
Hvolsvelh, en hann hefur verið ís-
landsmeistari síðastliöin þrjú ár. Þaö
em því Akureyringar og Akumes-
ingar sem státa af íslandsmeisturum
í Ókuleikni ’89.
Keppendur leystu alhr erfiðustu
þrautirnar en enginn komst villu-
laust í gegnum brautina. Þess vegna
varð enginn nýrri Mözdu 626 ríkari
en slíkum bíl hafði verið heitið þeim
sem færi brautina án þess aö gera
villur.
Þátttaka var góð í sumar og greini-
legt er aö áhuginn eykst með ári
hverju. Starfsmenn Ökuleikni ’89
vilja þakka keppendum og öllum
samstarfsaðilum fyrir skemmtilegt
sumar og drengilega keppni. Sjáumst
öll og miklu fleiri að ári.
NVI DANSXOLm
T akmarkaður
fjöldi nemenda í
hverjum tíma
HAFNARFJORÐUR
Kennum í nýju húsnæði
að Reykjavíkurvegi 72
Sími 65-22-85
Reykjavík
Kennum í Ármúla rya
Sími 38830
Raðgreiðslur
Innritun frá kl. 13—20
Kennsla hefst 18. september
V/S4 I
I
Félagar í FÍD og DÍ
Barnadanskennsla
Gömlu dansa kennsla
Samkvæmisdanskennsla
Standard
Suðuramerískir
Rokk/tjútt
Bjóðum einkatíma eftir samkomulagi
Lokaðir tímar fyrir félagasamtök og aðra hópa