Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1989, Side 27
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989.
35
>v______________________________Fólk í fréttum
Jón Friðgeir Einarsson
Jón Friögeir Einarsson, verktaki
í Bolungarvík, hefur veriö í fréttum
DV vegna erfiðleika í samskiptum
við bæjarstjómina í Bolungarvík.
Jón Friðgeir er fæddur í Bolungar-
vík 16. j úlí 1931. Hann er húsasmíða-
meistari og hefur frá árinu 1956 rek-
ið Byggingaþjónustu Jóns Fr. Ein-
arssonar.
Hann er umsvifamesti bygginga-
verktakinn utan höfuðborgarsvæð-
isins og rekur alhhða byggingaþjón-
ustu auk plastverksmiðju og bygg-
ingavöruverslunar.
Jón Friðgeir er sonur Einars Guð-
fmnssonar, útgerðarmanns og for-
stjóra í Bolungarvík, sem fæddur
var var 17. maí 1898 og lést 29. októb-
er 1985, og konu hans Ehsabetar
Hjaltadóttur, f. 11. apríl 1900.
Systkini Jóns Friðgeirs ^
Systkini Jóns Friðgeirs eru:
Guðfinnur, forstjóri Einars Guð-
finnssonar hf. í Bolungarvík. Kona
hans er María Haraldsdóttir.
Hahdóra, húsmóðir í Reykjavík.
Maður hennar er Haraldur Ásgeirs-
son verkfræðingur.
Hjalti, framkvæmdastjóri hjá Sölu-
miðstöð hraöfrystihúsanna í
Reykjavík. Kona hans er Guðrún
Halldóra Jónsdóttir.
Hhdur, húsmóðir í Bolungarvík.
Maður hennar er Benedikt Bjöms-
son, kaupmaður og útgeröarmaður
í Bolungarvík.
Jónatan, forstjóri Einars Guðfinns-
sonar hf. í Bolungarvík. Kona hans
er Haha Kristjánsdóttir.
Guðmundur Páh, yfirverkstjóri hjá
Einari Guöfinnssyni hf. í Bolung-
arvík. Kona hans er Kristín Marsel-
íusdóttir, Bemharðssonar, skipa-
smiðsáísafirði.
Pétur Guðni Einarsson rekur flutn-
ingaþjónustu í Bolungarvík. Kona
hans er Helga Aspelund frá ísafirði.
Heimilishagir
Jón Friðgeir er tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Ásgerður Hauks-
dóttir, fædd 9. júní 1932, dáin 1972.
Hún var dóttir Hauks Einarssonar
frá Miðdal, bróður Guðmundar Ein-
arssonar, hstamanns frá Miðdal.
Böm Jóns Friðgeirs og Ásgerðar
em:
Margrét, húsmóðir í Bessastaða-
hreppi, fædd 7. mars 1957. Maður
hennar er Sigurður Siguijónsson,
framkvæmdastjóri Byggðaverks.
Einar Þór, meðferðaifuhtrúi hjá
Unglingaheimih ríkisins, fæddur 2.
nóvember 1959.
Ásgeir Þór, nemi í viðskiptafræðum
í Lundúnum, fæddur 21. apríl 1967.
Síðari kona Jóns Friðgeirs er
Margrét Kristjánsdóttir, fædd 9.
júní 1941, dóttir Kristjáns Þorvarð-
arsonar, læknis í Reykjavík, og
konu hans, Jóhönnu Elíasdóttur frá
Bolungarvík. Sonur Jóns Friðgeirs
og Margrétar er Kristján, fæddur
9. ágúst 1977.
Ættir Jóns Friðgeirs
Einar Guðfinnsson, faðir Jóns Frið-
geirs, var sonur Guðfinns Einars-
sonar, útvegsbónda við Djúp, og
konu hans Halldóru Jóhannsdóttur.
Guðfinnur var sonur Einars Hálf-
danarsonar, smiðs á Hvítanesi við
Djúp. Hann var bróðir séra Helga
Hálfdanarsonar sálmaskálds, foður
Jóns Helgasonar biskups. Þeir voru
synir Hálfdanar Einarssonar, pró-
fasts á Eyri í Skutulsfirði (ísafirði).
Kona Einars Hálfdanarsonar var
Kristín Ólafsdóttir Thorberg. Hún
var systir Bergs Thorberg, lands-
höfðingja yfir íslandi. Þau vom
börn séra Ólafs Thorberg, Hjalta-
sonar, Þorbergssonar en frá honum
er Thorbergættin komin.
Halldóra Jóhannsdóttir, móðir Ein-
ars Guðfinnsonar, var ættuö úr
Skagafirði, dóttir Ingibjargar Guð-
mundsdóttur og Jóhanns Þorvalds-
sonarfráRein.
Ehsabet Hjaltadóttir, móðir Jóns
Friðgeirs, var dóttir Hjalta Jónsson-
ar, sjómanns í Bolungarvík, og konu
hans, Hildar Elíasdóttur. Hjalti var
af svokahaðri Ármúlaætt, kenndri
viö Ármúla á Langadalsströnd við
Djúp, en Hildur af Eldjámsætt,
einnigfráDjúpi.
Jón Friðgeir Einarsson.
Systir Einars Guðfinnssonar í Bol-
ungarvík var Kristín Svanhvít Guð-
finnsdóttir. Synir hennar ogHah-
dórs Jónssonar, sjómanns á ísafirði,
eru Jón Páh Hahdórsson, fram-
kvæmdastjóri Noröurtangans á
ísafirði, Guðmundur, skipstjóri á
togaranum Guðbjarti ÍS, og Ólafur,
framkvæmdastjóri Sandfehs og ís-
fangsáísafirði.
Afmæli
Svavar Sigmundsson
Svavar Sigmundsson, dósent við
Háskóla íslands, Kehugranda 2 í
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Svavar er fæddur í Túni í Hraun-
gerðishreppi í Ámessýslu og ólst
þar upp og á Laugum og Hraungerði
í Flóa.
Svavar varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni 1958 og
cand. mag. í íslenskum fræðum frá
Háskóla Islands 1966. Á námsárun-
um kenndi hann við Héraðskólann
á Laugarvatni og að loknu námi
varð hann lektor í íslensku við há-
skólann og sendikennari í íslensku
í Danmörku og Finnlandi.
Hann var einnig starfsmaður
Orðabókar Árnanefndar í Kaup-
mannahöfn og Orðabókar háskól-
ans. Árið 1982 gaf hann út ásamt
Merði Árnasyni og Örnólfi Thorsyni
Orðabók um slangur og árið 1985
íslenska samheitaorðabók. Svavar
hefur skrifað fjölda greina í tímarit
og annast þýðingar og útgáfur á
bókum.
Foreldrar Svavars eru Sigmundur
Ámundason, bóndi í Túni, á Laug-
um og í Hrangerði, fæddur 12. mars
1906 og dáinn 8. október 1976, og
kona hans, Guðrún Guðmundsdótt-
ir frá Túni, fædd 28. desember 1910.
Hún býr nú í Reykjavík.
Sigmundur, faðir Svavars, var
sonur Ámunda Sigmundssonar
bónda á Kambi í Villingaholts-
hreppi, og Ingibjargar Pálsdóttur frá
Þingskálum á Rangárvöllum. Guð-
rún, móðir Svavars, er dóttir Guð-
mundar Bjamasonar í Túni í
Hraungerðishreppi.
Svavar á þrjú systkini. Þau eru:
Guðmundur, framkvæmdastjóri
Nýju teiknistofunnar í Reykjavík,
fæddur 4. júh 1935. Kona hans er
Ólafía Hjálmardóttir og eiga þau tvo
syni.
Ingibjörg, læknaritari á Landspít-
alanum, fædd 23. mars 1942. Maður
hennar er Albert H. N. Valdimars-
son kennari. Þau eiga einn fóstur-
son.
Ragnheiður, starfar á Elh- og
hjúkranarheimihnu Grund, fædd
23. apríl 1946.
Svavar kvæntist 22. mars 1975
Svavar Sigmundsson.
(Bjameyju) Brynju Svane, lektor
við Roskilde universitetscenter í
Danmörku, fæddri 30. júní 1947.
Hún er dóttir Hans Albert Svane,
yfirlæknis í Danmörku, og Áslaugar
Matthíasdóttur, ritara viö Árna-
stofnun í Kaupmannahöfn.
Brynja og Svavar skildu. Dóttir
þeirra er Guðrún María, fædd 31.
október 1974.
Svavar verður á Gotlandi á af-
mælisdaginn.
Albert Magnússon
Albert Magnússon, fyrrverandi
kaupmaður, Arnarhrauni 32 í Hafn-
Önnu Guðrúnar Aradóttur frá
arfirði, er sextugur í dag.
Albert, eða Ahi krati, er fæddur
að Miðhúsi í Norðfirði og ólst þar
upp. Hann veiktist ungur af berkl-
um og lá í þij ú og hálft ár á Vífils-
stöðum. Frá 18 ára aldri vann hann
við ýmis störf til sjós og lands og
var matsveinn á minni og stærri
fiskiskipum.
Árið 1967 gerðist hann kaupmaður
í Allabúð á Sauðárkróki og rak vesl-
unina þar til árisns 1972. Þá flutti
hann sig um set og keypti kaup-
félagsútibúið á Stokkseyri og rak
þar veslun th árins 1979. Eftir það
setti hann á stofn nýja Allabúð í
Hafnarfirði og rak hana th árins
1983. Þá hætti hann verslunar-
rekstri af heilsufarsástæðum.
Alli krati var formaður Félags
ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði
og í sambandsstjóm Ungra jafnað-
armanna um árabh. Hann sat í
flokkstjórn Alþýðuflokksins í fjögur
kjörtímabh og hefur verið fulltrúi á
flestum flokksþingum Alþýðu-
flokksins frá 1949. Hann hefur og
tekið þátt í ýmsum öðrum félags-
störfum.
Albert er sonur Magnúsar Guð-
mundssonar frá Fannadal í Norð-
firði, sem fæddur var 18. maí 1890
og lést árið 1946, og konu hans,
Naustahvammi í Norðfirði. Hún var
fædd 15. júní 1889 og lést 1970.
Anna var af Viðfjarðarætt, dóttir
Vilhelmínu Bjarnadóttur frá Við-
firði og Ara Marteinssonar.
Bróðir Vhhelmínu var Ármann
Bjarnason, faðir Guðjóns Ármanns-
sonar, föður Jónu Árman'n, konu
Júlíusar Þórðarsonar, bónda á
Skorrastað í Norðfirði. Þau systkini
frá Viðfirði voru börn Guðrúnar
Jónssonar og Bjarna Sveinssonar.
Albert átti átta systkini en af þeim
eru þrjú látin:
Guðmundur, sjómaður, fæddur
1916 og látinn 1962. Hann var
ókvæntur og barnlaus.
María, húsmóðir á Akureyri, fædd
1917. Maður hennar var Guðmund-
ur Halldórsson bifreiðastjóri en
hann er nú látinn. Þau áttu sjö böm.
Guðjón múrari, fæddur 1919, lát-
inn 1986. Kona hans var Erla Gunn-
ardóttir og áttu þau þrj ú börn.
Lukka, húsmóðir á Höfn í Horna-
firði, fædd 1920. Maður hennar var
Eymundur Sigurðsson, hafnsögu-
maður sem nú er látinn. Þau áttu
11 börn en eitt þeirra er látið.
Hjalti, netagerðamaður í Grinda-
vík, fæddur 1923. Kona hans er
Petra Stefánsdóttir og eiga þau eitt
barn saman og eitt barn hvort fyrir
hjónaband.
Albert Magnússon.
Fanney, húsmóðir í Hafnarfirði,
fædd 1924. Maður hennar er Ólafur
Brandsson, umsjónarmaður á Sól-
vangi, ættaður úr Fróðárhreppi.
Þau áttu fiögur börn en eitt er látið.
Ari, verkamaður í Neskaupstað,
fæddur 1927. Hann er ókvæntur og
barnlaus.
Albert, fæddur 1928 og dó sama ár.
Albert er kvæntur Valgerði Valdi-
marsdóttur og eiga þau tvo kjör-
syni. Þeir eru:
Tómas Vilhjálmur, verkamaður í
Hafnarfirði, fæddur 20. janúar 1960.
Albert Valur, nemi, fæddur 25.
ágúst 1972.
Albert tekur á móti ættingjum og-
vinum laugardaginn 9. september í
félagsheimhinu Garðaholti frá kl.
21 til 02.
Til hamingju með afmælið 7. september
Stefanía Grimsdóttir,
Fanntiorg 1, Kópavogi
Einar Magnússon,
Grenivöllum 24, Akureyri.
75 ára
Fanney Gunnlaugsdóttir,
Furugerði 1, Reykjavik.
Ingveldur Markúsdóttir,
Klapparstíg 9, Reykjavik.
Xngunn Einarsdóttir,
Aöalbóli, Jökuldal.
Andrés Koibeinsson,
Víðimel 39, Reykjavik.
Birna Guðbjörnsdóttir,
Reykjavíkurvegi 33, Hafharfirði.
60 ára
Ólafur Þorláksson,
Blómvallagötu 10, Reykjavík.
Regína Gunnarsdóttir,
Faimborg 7, Kópavogl
Ólafur Pálsson,
Blómvallagötu 10, Reykjavík.
Ingihjörg Tómasdóttir,
Skarðshlíö 38F, Akureyri.
50 ára
Elsa Lilja Eyjólfsdóttir,
Þverholti 21, Keflavik.
Marteinn Haraidsson,
Aðalgötu 9, Siglufiröi.
40 ára
Jónína Jóhannsdóttir,
Lynghaga 8, Reykjavík.
Lovisa Hermannsdóttir,
Giitbergi 8, Hafnarfirði.
Sigurbergur Friðriksson,
Fannafold 12, Reykjavik.
Kjartan Magnússon,
Miðbraut 27, Seltjarnamesi.
Rannua Leonsdóttir,
Brávallagötu 8, Reykjavik.
Brúðkaups- og starfsafmæli
Ákveðið hefur verið að birta á afmælis- og ættfræðisíðu DV grein-
ar um einstaklinga sem eiga merkis-, brúðkaups- eða starfsaf-
mæli.
Greinarnar verða með áþekku sniði og byggjast á sambærileg-
um upplýsingum og fram koma í afmælisgreinum blaðsins en
eyðublöð fyrir upplýsingar afmælisbarna liggja frammi á af-
greiðslu DV.
Upplýsingar varðandi brúðkaups- eða starfsafmæli verða að
berast ættfræðideild DV með minnst þriggja daga fyrirvara.
Það er einkar mikilvægt að skýrar, nýlegar andlitsmyndir fylgi
upplýsingunum.
Ættfræðinámskeið
I næstu og þar næstu viku hefjast ný ættfræðinámskeið hjá Ætt-
fræðiþjónustunni, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Notið
tækifærið og leggið grunninn að skemmtilegri, fræðandi tóm-
stundaiðju. Öll undirstöðuatriði ættrakningar tekin fyrir. Þátttak-
endur fá þjálfun og aðstöðu til ættarleitar með afnotum af alhliða
heimildasafni. Leiðbeinandi er Jón Valur Jensson. Uppl. og innrit-
un í síma 27101 kl. 9.30-19.30.
Höfum mikið úrval ættfræðibóka til sölu, m.a. manntöl, niðjatöl,
ættartölur, ábúendatöl, stéttartöl o.s.frv. Hringið eða skrifið og
fáið senda ókeypis nýútkomna bókaskrá.
Ættfræðiþjónustan
- Ættfræðiútgáfan
Sólvallagötu 32A, pósthólf 1014, 121 Rvík, sími 27101.