Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989. Fréttír Guðmundur J. Guðmtmdsson, formaður Dagsbrúnar: Aðild Dagsbrúnar að Is- landsbanka endurskoðuð - samskiptin viö Alþýðusambandið komin á alvarlegt stig „Það er ljóst að samskipti Dags- brúnar og Alþýðusambandsins eru komin á alvarlegt stig. Það sem gerð- ist í gær er svipað og þegar sendi- herrar eru kaliaöir heim. Og ég efast um að fyrir því sé nú meirihluti í stjóm Dagsbrúnar að félagið verði aðili að íslandsbanka, þegar hann tekur til starfa,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dags- brúnar, í samtali við DV í morgun. í dag verður haldinn stjómarfund- ur í Dagsbrún vegna þess sem gerð- ist á miðstjómarfundi Alþýðusam- bandsins á miðvikudag, þegar tillaga um að fordæma vaxtahækkun einka- bankanna var felld og fuiltrúar Dags- brúnar sögöu sig úr miðstjórn sam- bandsins. „Ég hélt að það væri stefna verka- lýðssamtakanna að lækka vexti. Þvi er ég furðu lostinn að tillaga um að Alþýðusambandið beiti sér fyrir vaxtalækkun skuli kosta móðganir og offors innan miðstjómar sam- bandsins. Ég stóð í þeirri meiningu aö það væri ekki sakarefni í Ai- þýðusambandinu aö vilja lækka vexti. Það er það að minnsta kosti ekki í Dagsbrún. En ef það er sakar- efni innan miðstjórnar Aiþýðusam- bandsins er rétt að fá þaö fram. Þá líka verða viðbrögð Dagsbrúnar í samræmi við það. Þegar vaxtakostn- aður atvinnufyrirtækja er orðinn hærri en launakostnaður og það verðrn- aö segja upp starfsfólki vegna þess viljum við láta lækka vextina. Ef þetta er refsivert að hálfu Al- þýðusambandsins þá er það mál sambandsins en ekki Dagsbrúnar,“ sagði Guömundur J. Guðmundsson. -S.dór Hin nýja plata Sykurmolanna: 130.000 eintök seld á þremur dögum í Bandaríkjunum Hin nýja plata Sykurmolanna, Here Today Tomorrow Next Week, sem kom út í Bandaríkjunum og Bretlandi samtímis fyrir þremur dögum, virðist heldur betm- ætla að slá 1 gegn. Samkvæmt tölum frá Bandaríkj- unum höfðu selst 130.000 eintök á þremur dögum sem nægði til að koma þeim í 112. sæti á Billboard- listanum. Þetta er mun meiri sala en útgefendur áttu von á því aðeins var dreift 150.000 eintökum. í Bandaríkjunum hefur lag Sykur- molanna, Regína, sem gefið var út á lítilli plötu, einnig gert það gott. Sal- an á smáskífunni er komin yflr 150.000 eintök. í Bretlandi kemur ekki út almenn- ur sölulisti fyrr en á þriðjudaginn en Gallup birti í gær spá sem byggð er á sölu eftir þrjá daga og þar er plöt- unni spáð 8. sætinu á almennum sölulista sem er mun hærra en fyrsta plata þeirra komst. Hér á íslandi var plötunni dreift í gær og var um metdreifingu að ræða því dreift var í fyrstu umferð þrjú þúsund eintökum.. Þess má geta að íslenska útgáfa plötunnar kemur á markaðinn 16. október og hefur hún hlotiö nafnið Illur arfur. Sykurmol- amir eru nú á hljómleikaferð í Bret- landi. -HK Akranes: Mennirnir játuðu Mennimir tveir, sem lögreglan á kynning um innbrotið. Skömmu síö- Akranesi handtók í fyrrinótt, hafa ar vom mennimir handteknir. Þeim játað að hafa brotist inn í Áfengis- hafði tekist að bijóta rúðu í verslun- verslunina á Akranesi. Það var um inni og náð til sín einhverju magni klukkan hálffimm aðfaranótt af bjór. fimmtudags að lögreglunni barst til- -sme Rafiðnaðarmenn náðu í gær munnlegu samkomulagi við Markús Örn Atntonsson útvarpsstjóra um hvernig starf- semi Ríkisútvarpsins verður háttað, meðan á verkfalli rafiðnaðarmanna stendur. öll tæknimannavinna, bæði hjá Útvarpi og Sjónvarpi, verður mjög takmörkuö í verkfallinu. Á móti munu verkfallsmenn hætta verkfallsvörslu við húsnæði Útvarps og Sjónvarps. í dag verður samningafundur með rafiðnaðarmönnum og fulltrúum Reykjavíkur- borgar. Sáttafundur hjá sáttasemjara hefur ekki enn verið boðaöur. -S.dór/ DV-mynd BG Pétur Guðmundsson flugvaUarstjóri: Flugmálayfirvöld grípa inn í ef þörf krefur vegna Flying Tigers - Vamarmáladeild hefur ekki borist kvörtun Pétur Guðmundsson, flugvallar- stjóri á Keflavíkurílugvelli, segir að eins og kom fram í DV í gær þá ríki samkomulag á milli Flugmáiasljóm- ar á Keflavíkurflugvelli og Flugleiða um þjónustu vegna farþega- og vöra- flutninga um Keflavíkurflugvöll. Hann segir hins vegar að ef einhver telur sig hlunnfarinn þá sé flugmála- yfirvöldum skylt að grípa inn í. „Aðalreglan er sú að haft er fast gjald fyrir vélar sem ekki eru í áætl- unarflugi, t.d. vegna eldsneytistöku. Flying Tigers sitja því við sama borð og aörir. Hins vegar vandast máliö þegar um farþega- eða vöruflutninga er að ræða sem ekki eru í áætlunar- flugi. Þá verða Flugleiðir að gera sérstakt samkomulag um það. Þar er ekki hægt að miða viö neina verð- skrá hér á landi og er stuðst við Norðurlönd í því tilfelh," sagði Pétur í samtali við DV. „En það kom upp vandamál vegna smásendinga í sumar og ég vissi ekki til annars en að þau mál hefðu leyst á milli Flugleiða og Flugfax sem er umboðsaðili Flying Tigers. Það kom ósk frá Flying Tigers um að dýr vöru- lyfta fyrir breiðþotur yrði tfl staðar og ég mér var skýrt frá því í gær að búið væri að kaupa hana. Utanríkisráðuneytiö og flugvallar- yfirvöld hafa gert allt til að liðka fyr- ir í samningum og við erum tilbúnir til þess áfram ef þörf krefur. Ef ein- hver telur að verið sé að hlunnfara sig þá er okkur skylt að grípa inn í. Ég iít hins vegar á að það séu hags- munir Flugleiða og flugmálayfir- valda að fá viðskipti Flying Tigers. „Flugfax sendi erindi til utanríkis- ráðuneytisins í sumar þar sem fund- ið var að ýmsu varöandi afgreiðslu Flugleiða á flugvélum frá Flying Tig- ers. í ágústmánuði áttu ráðuneytis- menn síðan fund með fulltrúum Flugleiða þar sem málin voru rædd. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að Flugleiðir og Flugfaxmenn skyldu ræða málin sín á milli," sagði Guðni Bragason, sendirráðsritari í vamar- málanefnd utanríkisráðuneytisins, í samtali við DV. „Síðan hafa okkur ekki borist nein- ar kvartanir varðandi þetta mál - og menn grípa ekki til aðgerða fyrr en slíkt liggur fyrir,“ sagði Guðni. Guðmundur Eydal, hjá sjávaraf- urðadeild SÍS, sem er einn stærsti viðskiptaaðili Flying Tigers varðandi útflutning til Japan á sjávarafuröum, sagði við DV, að eins og stæði þá væri nægilegt framboð af flugi til Japans. „Það hefur verið nóg, en reyndar nauðsynlegt, að hafa þessa flutninga tvisvar í viku eins og verið hefur. Hins vegar var aðeins flogið einu sinni í þessari viku og mér skilst að það hafi verið vegna þess að ekki nægileg framboð af frakt hafi verið í annað flugið - þ.e.a.s. að ekki hefur borgað sig að senda lítið magn út í einu. Þaö sem veldur okkur áhyggj- um er að lendinga- og afgreiðslugjöld muni hækka það mikið að það gæti orðið til þess að framboð af flutning- mn til Japans myndu minnka eða hverfa. Flutningar Flying Tigers eru útflytjendimi mikil hjálp og lyfti- stöng fyrir íslenska fiskútflytjendur. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.