Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989. 5 Fréttir Alþýðubankinn og vaxtahækkunin: Tímabært að endurskoða viðskiptin við bankann segir Halldór Bjömsson, varaformaður Dagsbrúnar „Verkamannafélagið Dagsbrún og lífeyrlssjóður félagsins eru lang- stærstu viðskiptavinir Alþýðu- bankans. Það fé, sem lífeyrissjóð- urinn og félagið eiga inni í bankan- um, er ekkert smáræði. Dagsbrún á þarna 35 milljóna króna sjóð og lífeyrissjóðurinn yfir 100 miUjónir króna. Og viðskiptin við bankann skipta hundruðum milljóna á ári. Það hlýtur nú að vakna hjá manni sú spurning hvort ekki á að fara að losa félagið og lífeyrissjóðinn út úr þessum banka. Það sýnir sig að stjórnendur hans ætlast til þess að við beygjum okkur fyrir þeirra vilja hvenær sem er. Og ég er bara alls ekki tilbúinn til þess,“ sagði Halldór Bjömsson, varaformaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, í samtali við DV. Eins og skýrt var frá í DV í gær hafa HaUdór og Leifur Guðjónsson skrifað ASÍ bréf þar sem þeir segj- ast ekki munu sitja fleiri miðstjóm- arfundi ASÍ á þessu ári. Bréfið er skrifað í kjölfar mikils sprengju- fundar í miðstjóminni vegna til- lögu frá þeim tvímenningum þar sem vaxtahækkun einkabankanna, og ekki síst Alþýðubankans, var fordæmd. Þeir félagar fengu ekki hlýjar viðtökur á miðstjórnarfund- inum fyrir bragðið. „Það er fullkomlega óþolandi að forsvarsmenn Alþýðusambands ís- lands gangi fram fyrir skjöldu í að hækka vexti af óverðtryggðum lán- um. Og hverjir þurfa á endanum að greiða þessa vaxtahækkun? Auðvitað launþegar. Annaðhvort í lánum þeirra sjálfra eða þá í hærra vöruverði. Svo fara menn eins og 2. varaforseti Alþýðusambandsins að veija þessa vaxtahækkun á mið- stjórnarfundi. Þetta er eins og hundurinn hjá Bistrup sem skottið var skorið af svo hann gæti etið það,“ sagði Halldór. „Verkamannafélagið Dagsbrún og lífeyrissjóður Dagsbrúnar eiga 20 prósent í Alþýðubankanum. Eg var því andvígur að lífeyrissjóður Dagsbrúnar keypti aukið hlutafé í Alþýðubankanum fyrr á þessu ári. Forsvarsmenn bankans linntu hins vegar ekki látum fyrr en það hafði fengist fram. Samt sem áður vorum við ekki haíðir með í ráðum þegar skipað var í bankaráð íslands- banka. Það er ekkert leyndarmál að við vorum vægt sagt óhressir með það og gerðum uppsteit. Við vildum aðra menn frá Alþýðu- bankanum en raun varð á. Það er því ef til vill ekki að undra að mað- ur reiðist því að horfa upp á þessa menn veija opinberlega forgöngu sína fyrir vaxtahækkun í landinu," sagðiHalldórBjörnsson. -S.dór Hrafn Bachmann að leggja síðustu hönd á undirbúning fyrir opnun verslunar að Langholtsvegi 113. DV-mynd GVA Hrafn Bachmann kaupmaður: Það vill enginn ráða fimmtuga menn - er að opna enn eina búðina Hrafn Bachmann, sem í eina tíð var aðaleigandi Kjötmiðstöðvarinn- ar, mun innan skamms opna riýja kjötverslun á Langholtsvegi - þar sem Holtskjör var áður. Eftir að Kjöt- miðstöðin varð gjaldþrota, undir stjórn Hrafns, opnaði hann verslun í Glæsibæ. Sú verslun heitir Kjöt- stöðin. Kjötstöðin var rekin á nafni eiginkonu Hrafns og nýja verslunin verður rekin á nafni sonar hans, Þóris Bachmann. „Ég hætti í Glæsibæ vegna þess aö ég veiktist og gat ekki staðiö í versl- unarrekstri. Ég hef leitað mér að vinnu en það virðist enginn vilja ráða menn sem orðnir eru fimmtugir. Það var því ekki annað að gera en að opna verslun," sagði Hrafn Bach- mann. -GVA/sme Bréf HaUdórs Bjömssonar og Leifs Guðjónssonar til ASÍ: Ekki kosnir til að hafa ekki skoðun Þeir Halldór Bjömsson, varafor- maður Dagsbrúnar, og Leifur Guð- jónsson, varamaður Halldórs í mið- stjóm Alþýðusambandsins, sendu miðstjórri sambandsins í gær eftir- farandi bréf: „Við undirritaðir, aðal- og vara- maður í miðstjóm ASÍ, viljum hér með tilkynna aö við munum ekki sækja fundi miðstjómar það sem eft- ir er árs 1989. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun okkar er ekki sú aö við urðum undir í tillöguflutningi okkar um vaxtamál á fundi miðstjórnar 4. október sl. heldur hinar óskammfeilnu aðdrótt- anir 1. varaforseta, Amar Friðriks- sonar, um að við væram að ganga erinda ákveðinna aðila til að ófrægja forseta ASÍ. Ef miðstjórnarmenn halda að við höfum verið kosnir til að hafa ekki skoðun þá er það þeirra mál en ekki okkar. Hverjir verða boöaðir í stað okkar er áfram í höndum skrifstofu ASÍ en við óskum eftir því að þessi ákvörðun okkar sé virt.“ -S.dór Spamaður í tryggingakerfmu verður 200 milljómr: Tekjur yfir 150.000 eyða ellilífeyrinum Að sögn Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra er ætlunin að spara um 200 milljónir króna í tryggingakerfinu í ijárlögum ársins 1990 og verður það gert með tvenns konar hætti: Annars vegar verður sparað með því að miða grunnlífeyrinn við tekj- ur. Sagði Guðmundur að slíkar breytingar yrðu aö haldast í hendur við endurskoöun lífeyriskerfisins al- mennt sem væri í höndum fjármála- ráðherra. Um það væri ekki endan- legt samkomulag. Eins og sagt var frá í DV fyrir skömmu hefur frum- varp um lífeyrissjóði legið í skúffu fjármálaráðherra í tvö og hálft ár. Hinn þátturinn felst í því að breikka þann grundvöll tekna ein- staklinganna sem rniöað er við þegar tekjutryggingin er reiknuð ut. Þa verður miðað við lífeyristtkjur, launatekjur og fjármagnstekjur. Þetta myndi hins vegar einnig tengj- ast breytingum á skattalögum og þeim vangaveltum sem hafa verið um að skattleggja fjármagnstekjur. Sagði Guðmundur að það væri alveg ljóst að ekki yrðu teknar vaxtatekjur af öldruðum án þess að það hefði áhrif á greiðslur almannatrygginga. Guömundur sagði að ekki lægi fyr- ir ákvörðun um hve langt yrði geng- ið í tekjutengingu lífeyris en rætt væri um að hún kæmi á bilið 100.000 til 150.000 krónur og smáfélli út á því 'bili. Ellilífeyrir félh síðan algerlega út hjá einstaklingum með tekjur yfir 150.000. -SMJ Rætt um að greiðslukortavæða þóknun fyrir læknisþjónustu: Sjúklingar fái að sjá hve hár reikningurinn er „Við verðum að horfast í augu við það að þegar þjóðartekjur drag- ast saman verður öll opinber þjón- usta að taka mið af því. Við megum þó ekki bijóta niður það almanna- tryggingakerfi og velferðarþjóð- félag sem við höfum byggt upp og þess vegna verðum við að skoöa frekari jöfnuð innan keríisins, þ.e.a.s. að draga úr greiðslum til þeirra sem við höldum að hafí síður þörf fyrir þær til að geta betur tryggt aðstoð við þá sem á þurfa að halda," sagði Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra en unnið er að hugmyndum um hvemig koma má frekari sparnaði og aðhaldi fyrir í heilbrigðis- og tryggingakerfmu. Sagði ráðherra að það þyrfti aö gera einstaklingana betur meðvit- aða um hvað heilbrigðisþjónustan raunverulega kostaði og kalla á þann hátt fram aðhald hjá almenn- ingi. Ein af þeim hugmyndum sem ræddar eru felur í sér að tekin yrðu upp sjúklinga- eða sjúkrakort sem yrðu nokkurs konar greiðslukort. Það myndi þýða það að einstakling- urinn greiddi fyrir þá þjónustu sem hann væri að fá á hverjum tíma og gæti því séð hina raunverulegu upphæð reikningsins. „Það eitt ætti að auka þessa með- vitund en það ætti ekki endilega að þýða að einstakhngurinn borg- aði meira eða hærra hlutfah en hann gerir nú,“ sagði Guðmundur. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.