Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989. 9 Utlönd sendiráði V-Þýskalands í Varsjá, en Simamynd Reuter Einn rúmlega sex hundruð austur-þýskra flóttamanna, sem hafst hafa við komu til vesturs í morgun. A-Þýskaland: Spennan magnast Farþegalest með rúmlega sex hundruð austur-þýska flóttamenn innanborðs kom í morgun tíl Vest- ur-Þýskalands frá Varsjá í Póllandi, sama dag og von er á Gorbatsjov Sovétforseta til A-Þýskalands. í gær komu 7.600 flóttamenn til Vestur- Þýskalands frá Tékkóslóvakíu. Nú hafa afls 45 þúsund flóttamenn frá Austur-Þýskalandi komið til V- Þýskalands síðasta mánuðinn eða frá því aö Ungveijaland opnaði landa- mæri sín við Austurríki þann 11. september. Þetta er mesti flótti aust- ur-þýskra ríkisborgara vestur síðan árið 1961 þegar hundruð þúsunda ákváðu að yfirgefa landið. Fólksflóttinn kemur á versta tíma fyrir yfirvöld í A-Þýskalandi en á morgun eru liðin fiörutíu ár frá stofnun þýska alþýðulýðveldisins. í dag munu Honecker, leiðtogi A- Þýskalands, og Gorbatsjov, halda ræður í tilefni þess. Gorbatsjov kemur til A-Þýskalands aðeins um sólarhring eftir að óeirða- lögreglu lenti saman við óánægða A-Þjóðveija í borginni Dresden. Lög- regla beittí. vatnsdælum á stóran hóp manna sem safnast hafði saman á brautarstöð í borginni þar sem flótta- mannalestimar óku í gegn að ósk austur-þýskra stjórnvalda. Var það gert til aö þau gætu sagst hafa rekið flóttafólkið úr landi. Á brautarstöð- inni safhaðist saman hópur fólks, sumir til að freista þess að komast um borð í lestimar sem fluttu flótta- mennina til vesturs, aðrir til að mót- mæla stefnu stjómvalda. Þetta era mestu mótmæli gegn austur-þýskum stjórnvöldum í rúm þijátíu ár. Og í A-Berlín, fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna, lenti lögreglu saman við hóp Á-Þjóðverja sem reyndu að fá vegabréfsáritun vestur. Fréttaskýrendur búast við að spennan, sem nú ríkir í A-Þýska- landi, muni ná hámarki næstu daga á meðan á heimsókn Gorbatsjovs stendur. Þjóðveijar beggja vegna landamæranna líta á Sovétforsetann sem tákn breytinga og vonar. Yfir- völd í A-Þýskalandi munu reyna aö halda Gorabtsjov frá almenningi eins og hægt er til að reyna að koma í veg fyrir að þar komi upp „Gorba-æði“ eins og til dæmis í Vestur-Þýskalandi íjúní. Reuter Trump vill meira Bandaríski millj arðamæringurinn Donald Trump, sem keypti Eastem flugfélagið í maí, hefur hug á að færa út kvíamar. í gær bauð hann 120 dollara fyrir hvert hlutabréf í Amer- ican Airlines flugfélaginu. Myndu það verða stærstu viðskiptin í sögu bandarískra flugfélaga. Ef af kaupunum verður mun Trump ekki bara vera fasteigna- braskari sem lenti inn á flugvéla- og hlutabréfamarkaðinn heldur iðnjöf- ur, að því er sérfræðingar segja. Donal Trump, sem er 43 ára, á meðal annars stærsta spilavítið í Atlantic City, Trump Plaza Hotel and Casino. Þar fór fram í sumar hnefa- leikakeppnin milli Mike Tyson og Michael Spinks. Trump er fjármála- ráðgjafi Tysons. Reuter Olga í Póllandi - Walesa varar við borgarastyrjöld Fjármálaráðherra Póllands mun í dag ræða við fréttamenn og skýra þjóðinni frá efnahagsaðgerðum rík- isstjómarinnar aðeins sólarhring eftir að Lech Walesa, leiðtogi Sam- stöðu, hinna óháðu verkalýðssam- taka, varaði við borgarastyijöld vegna slæmrar stöðu efnahagsmála. Walesa sagði í gær að Pólverjar hefðu nú fengið sig fullsadda og krefðust þess að fá svör. „Fólkið bölvar forsætisráðherranum og Wa- lesa vegna þess að það veit ekki hvað er að gerast," sagði hann á fundi með fréttamönnum. „Ég endurtek enn á ný að hætta er á borgarastyijöld í Póllandi sem og í öllum löndum A- Evrópu.“ Blaðamannafundur ijármálaráð- herrans í dag verður sá fyrsti sem hann heldur síðan ríkisstjórn undir forsæti Samstöðu tók við völdum í Póllandi. Þetta verður og í fyrsta sinn sem ráðstafanir ríkisstjórnarinnar em kynntar íbúum Póllands en þær hafa áður verið kynntar ríkisstjórn- um Vesturlanda. Vestrænir embættismenn kveðast bæði hrifnir af fyrirhuguðum að- geröum ríkisstjómar Póllands sem og uggandi um að þær verði íbúun- um of þungar í skauti. Þá velta sum- ir fyrir sér hvort aðgerðimar séu framkvæmanlegar póhtískt séð. Efnahagsástandð í landinu versnar æ og mikil ólga er í landinu. Frétta- skýrendur telja að harkalegar ráð- stafanir stjómvalda muni ekki falla í góðan jarðveg hjá Pólveijum. Full- trúar 36 af 49 deildum kommúnista- flokksins víðs vegar um landið hafa skýrt frá megnri óánægju og óþolin- mæði almennings með gífurlegar verðhækkanir og skort á nauðsynja- vörum. Þetta kom fram í leynilegri skýrslu sem samin var fyrir mið- stjóm kommúnistaflokksins og Re- uter-fréttastofankomstyfir. Reuter Hermenn vakta sendíráð Costa Rica i E1 Saivador. Simamynd Reuter Hópur fólks hefur tekið um nítján manns gíslingu 1 sendiráði Costa Rica í E1 Salvador. Talið er aö meðal gíslanna séu þrír stjómarerandrekar og nokkrir blaðamenn. Hópurinn, sem í em m.a. nokkrar konur frá samtök- um ættingja horfinna, krefst þess að stjómvöld á Costa Rica leggi aö for- seta E1 Salvador, Alfredo Cristaiani, að binda enda á þá öldu mannrétt- indabrota sem hópurinn segir að tröllríði nú landinu. Hermenn hafa slegið hring um sendiráðið en snemma í morgun var haft eftir einum embættismanni í E1 Salvador að þeir hefðu ekki í hyggju að ráðast inn í sendiráöiö. Hann bætti því þó við að enn hefðu engar samningaumræður um lausn gíslanna hafist. FeHibylur skellur á Kína Hainan í Kína frá því á mánudag en þá skall fellibylurinn Brian á suöur- hluta landsins. Þetta kom fram í fréttum kínversku fréttastofunnar. Mikl- inu. sekur Jim Bakker, bandariski sjónvarpspredikarinn, var í gær fundinn sekur umfjárdrátt Símamynd Reuter Kviðdómur kvaö í gær upp úrskurð sinn í máli Jim Bakker, sjónvarps- predikarans bandaríska, en hann hefur veriö ákærður fyrir aö svíkja stuðningsmenn sína um 158 milljónir dollara ogþar af dregiö sér, til einka- nota, um fiórar milljómr. Úrskurður kviödóms var aö Bakker væri sekur um öll 24 ákæruatriðin sem lögð vom fram á hendur honum. Þann 24. þessa mánaðar mun dómari ákvaröa refsingu. Þegar úrskurður kviðdóms lá fyrir kvaðst Bakker mundu áfrýja. Hann getur hlotið allt aö 120 ára fangelsisdóm og fimm miljjón dollara sekt. Fimmtán ára gamail bandarískur drengur hélt bekkjarfélögum sínum í gíslingu i tæpa klukkustund í gær. Drengurinn, sem var vopnaöur hálf- sjátfvirkri hríðskotabyssu, skaut einn nemanda í andlitið áður en hann gaf sig fram við lögreglu. Sévardnadze á Kúbu Sévardnadze, utanríkisráðherru Sovétrikjanna, iauk i gaer heimsókn tlt KÚbU. Slmamynd Reuler Eduard Sévardnadze, sovéski utanríkisráðherrann, sagði i gær að við- ræöur þær sem hann átti við Fidel Castro, leiðtoga Kúbu, hefðu verið árangursríkar. Dvöl ráðherrans til Kúbu var síðasti áfangi vesturreisu hans, í henni ræddi hann meðal annars við Baker, bandarí ska utanríkis- ráðherrann, og Ortega, leiðtoga Nicaragua. Viðræöur Sévardnadze og Castros vom haldnar fyrir luktum dyrum í gær og ekki er Ijóst hvað þeim för á milli. En yfírvöld sögðu aö kúbanski leiötoglnn heföi lýst yfir stuðnlngi við tillögur ráöherrans frá i gær um að viöræður veröi haldnar um fækkun f herafla í ríkjum Mið-AmerQcu. UtanrDcisráöherrann sagði að stórveldin gætu tekið aö sér hlutverk ábyrgöarmanns tfl að sjá um aö sMkt samkomulag, næðist það, yrði haldið. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.