Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989. Spumingin Ferðast þú með strætó? Sigtryggur Jónsson skrifstofustjóri: Nei, þaö eru sextán ár síðan ég geröi það síðast. En mér finnst strætis- vagnakerfið til fyrirmyndar eins og reyndar allt hjá Davíð. Kolbrún Þórðardóttir afgreiðslu- stúlka: Já, tvisvar í viku á leiðinni í vinnuna. Björn Ægir Norðfjörð nemandi: Já, ég fer alltaf í skólann í strætó og svo við og við eitthvað annað. Stundum er ég svo keyrður. Kristberg Magnússon vélfræðingur: Þó ég noti strætó ekki mikið á ég alltaf strætómiða. Ef ég fer niður í bæ finnst mér oft betra að fara með strætisvagni en að lenda í vandræð- um með bílastæði. Hjalti Guðmundsson nemandi: Ég fer flestra minna ferða í strætó. en ég hreyki mér nú ekki af því. En ég vinn í Keflavík og þangað gengur enginn strætisvagn. Það eru tvö ár síðan ég ferðaðist síðast með almenn- ingsvagni. Lesendur_______________________________________________________pv Vamarmál í sjónvarpsþætti: Vantaði herþekkinguna J.R. skrifar: í þættinum Hringiðunni, sem var sjónvarpaö á Stöð 2 sl. mánudags- kvöld, var umsjónarmaður með her manns á sviði til að taka þátt í um- ræðum um það sem hann kallaði „Eru þeir komnir til að vera?“ og átti þá við varnarliðið á Keflavíkur- flugvelli. Ágætur þáttur sem slíkur og skemmtilegur en þar með er líka allt upp talið. Það má nefnilega til sanns vegar færa að þarna hafi verið samankom- in mestmegnis ein allsheijarskrípa- hjörð, flestir úr hópi svokallaðra her- stöðvarandstæðinga eða hálfvelgju- manna um skoðanir á veru varnar- liðsins hér á landi. Umræðan fór út um víðan völl eins og oft vill verða í svona þáttum. Það sem var þó verra var að þama vant- aði einhvern eða einhverja menn sem hafa eitthvert inngrip í her- fræðiþekkingu. Þarna hefði mátt kalla til þá tvo menn sem hafa þó a.m.k. verið á herskóla og tekiö þátt í æfingum alvöru herliðs. Menn eins Jón Sveinsson, menntaður sjóliðsforingi, og Arnór Sigurjónsson varnar- málaráðunautur. „Hefðu áreiðanlega getað tekið málefnalegar á efninu," segir hér m.a. ogt.d. JónSveinsson.menntaðursjó- sem er nú varnarmálaráðunautur liðsforingi, og Arnór Sigurjónsson, hjá utanrikisráðuneytinu. Þeirhefðu áreiðanlega getað tekið málefnalegar á efninu en þessi misliti hópur. Þarna var mest um útúrsnúninga stjómmálamanna að ræöa og gekk einn þeirra (þingkona Kvennalista) svo langt að nefna til vatnsveitu Suð- urnesja sem hún fann allt til foráttu. Senmiilega vegna þess að hún og margir aðrir þaðan hafa minnimátt- arkennd yfir því að hafa þurft að þiggja fría vatnsveitu af varnarliðinu og það vegna þrábeiðni ráöherranna Steingríms og Jóns Baldvins. Málið er einfaldlega það að við ís- lendingar verðum alltaf jafnkindar- legir þegar við ræðum varnarmál okkar af þeirri einfóldu ástæðu aö við berum ekkert skynbragð á her- mál og viljum ekki fyrir neinn mun taka þátt í slíkum störfum sem vörn- um lands okkar fylgja. - Þess vegna verða allir útvarps- og sjónvarps- þættir, sem snerta varnir og varnar- lið, að einum allsherjarskopleik, einkum þegar þátttakendur eru stjómmálamenn og kommakrakk- ar. Vasapeningar frá Félagsmálastofnun Vinnulúinn faðir skrifar: greiddartilaðkomastíogúrskóla. situr svo dóttir min sem ég hefi stofu! Það vekur furðu mína og reiði að Þessu síöartalda er ég ekki mót- ekki ráð á að láta hafa þvílíka íjár- Félagsmálastofiiun ráðstafar Félagsmáiastoftum í Reykjavík fallirmenégskilekkihvemighægt hæö vikulega til eigin nota. Á mán- þeim peningum sem henni em út- skuli geta greitt 16 ára ungúngi kr. er að réttlæta 5000 krónur í eyðslu- uði fær þessi ungiingur greiðslur hlutaðir af sköttum hins skattpínda 5000 á viku 1 vasapeninga. Þess ut- eyri á viku. - Peninga tekna af tekj- frá Félagsmálastofnun sem sam- almennings á íslandi. Það er svo an fær þessi sami unglingur föt, um hins almenna launamanns. svara mánaöarlaunum eiginkonu umhugsunarefni fyrir skattgreið- skólabækur og strætisvagnaferöir í sömu skólastofu og viðkomandi . minnar fyrir 1/2 dags vinnu á skrif- endur. Síldin „eitt mesta lostæti alls sjávarfangs" ætti að fara að sjást i verslunum innan skamms. H var fæst ný sfld? Kristín hringdi: Ég er ein þeirra mörgu sem finnst ný síld vera eitt mesta lostæti alls sjávarfangs. Undanfarin ár hefur verið afar erfitt að finna nýja síld hér í fiskverslunum. Þau svör sem ég hef fengið hjá fisksalanum mínum eru að mjög'fáir spyrji um síld hér og það taki því ekki að panta hana sérstak- lega fyrir örfáa viðskiptavini. Mér finnst það vera mikil afturfór í okkar þjóðfélagi, sem kennir sig við fiskveiðar og vinnslu, að ekki skuli vera hægt að kaupa nýja síld þegar nóg berst að landi yfir veiðitímann. Eg skora á fiskkaupmenn að bregða nú út af vananum og prófa að hafa nýja síld á boðstólum og jafn- framt að auglýsa hana svo aö maður viti hvar hún fæst. Lesendasíða DV leitaði upplýsinga um hvers vegna síld væri vandfund- in í fiskverslunum. Hjá Fiskhöllinni á Eyjarslóð í Reykjavík, þar sem m.a. var spurst fyrir um málið, var það svar gefið að sfld hefði ávallt veriö fáanleg hér yfir veiðitímann og svo myndi að líkindum verða áfram þegar bátar fara á síldveiðar innan skamms. - Við munum reyna að fylgjast með hvemig þessu máli reið- ir af. Launakjör opinberra starfsmanna: Hvað er svona gott við þau? Opinber starfsmaður hringdi: Ég vísa til lesendabréfs í DV í dag (2. okt.) frá Páli Guðmundssyni þar sem hann ræðir verkfall rafiðnaðar- manna og segir m.a. að starfsmenn hins opinbera séu mun betur settir með sín laun, að ekki sé nú talað um eftirlaunasjóðinn. Um það þurfi ekki að deila. Það ætla ég heldur ekki að gera. Ég myndi hins vegar gjarnan vilja fá að vita á hvern hátt ég, sem opinber starfsmaður, er betur sett með mín laun og minn eftirlaunasjóö því að ég hef þá hugsaö mér að fara að not- færa mér það! Lesendasíða DV náði sambandi við fyrrnefndan bréfritara og innti hann eftir því hvað hann hefði haft í huga sérstaklega er hann nefndi þetta tvennt; laun hinna opinberu starfs- manna og lífeyrissjóð þeirra. Páll sagðist ekki vilja heíja deilur um það sem væri á allra vitorði en nefndi til þá þætti að laun hjá hinu opinbera væru í mörgum ef ekki flestum tilvikum hærri nú orðið en á almennum vinnumarkaði og at- vinnuöryggi væri mun meira. Varðandi lífeyrissjóðinn nefndi hann að eftirlaun hinna opinberu starfsmanna væru mun betur tryggð en hjá hinum almennu lífeyrissjóð- um og einnig giltu þær reglur um eftirlaunaaldur að samanlagður starfsaldur og lífaldur opinbers starfsmanns gilti um töku eftirlauna sem væri einsdæmi í lífeyrissjóða- reglum hér á landi. Að öðru leyti vísaði Páll til reglna um lífeyrissjóð opinberra starfsmanna þar sem mætti fá frekari upplýsingar um það aðriði. Áfengiskaupamálið tekur nýja stefnu Sigurður Guðmundsson skrifar: Þrátt fyrir yfirlýsingar yfirskoðun- armanna ríkisreikninga vegna af- skipta sinna vegna áfengisúttektar utanríkisráðherra um að þeir telji ekki ástæðu til frekari afskipta af málinu er eins og málið sé nú að taka nýja stefnu og sé engan veginn lokið. Nú virðist sem málið ætli að draga miklu stærri dilk á eftir sér með því að nú er þess óskað að gagnskoðað verði, hvort áfengiskaupaheimildir hafi veriö misnotaðar í fleiri tilvikum á síðasta ári. Eftir því sem séð verður hefur a.m.k. einn fjölmiðill, Stöð 2, einsett sér að komast til botns í þessu viða- mikla máli, sem spannar ekki ein- vörðungu umsvif utanríkisráöherr- ans, heldur allra annarra ráðherra og ráðamanna, sem notfærðu sér vildarkjör í áfengiskaupum á árinu 1988 og jafnvel til þessa dags. Einn þáttur þessarar rannsóknar beinist að sjálfsögðu að því hvort víns hefur verið aflað tíl beinna einkanota eins og því miður virðist raunin í mörgum tilvikum - eða til að veita í opinberum boðum. Það er ekki víst að allir stjóm- málamenn athugi það að nú er öldin önnur og af þaö sem áður var að ráðherrar og menn í háum embætt- um ríkisins spurðu hvorki kóng né prest þegar þeir hugðust efna til gleð- skapar - og þaðan af síöur að þeir þyrftu að standa fjölmiðlum reikn- ingsskap gerða sinna. Nú hefur þetta snúist við að mörgu leyti. Nú krefjast íjölmiðlar og stjóm- málamenn svara, líkt og gerist hjá öðmm þjóðum. - Það er því ekki séð fyrir endann á viðamiklum áfengis- kaupum íslenskra ráðherra, dómara, stallara, og hvað þeir nú heita allir sem aðgang höfðu að hinu ódýra víni, sem margir hafa litið hým auga. Mér sýnist t.d. Stöð 2 vera einn þeirra fjölmiðla (kannski sá eini sem þorir) sem leggur áherslu á að hætta ekki umfjöllun um áfengiskaupamál- in, fyrr en þeim hluta ísjakans sem enn marar í kafi hefur verið lyft upp á yfirborðiö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.