Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989. Iþróttir Sport- stúfar Skjótur bati hjá Bryan Robson Bryan Robson, fyr- irliði enska lands- liösins í knatt- spymu, hefur verið valinn í landsliðshópinn á nýjan leik en Englendingar mæta Pólverjum 1 undan- keppni HM í næstu viku. Rob- son varð fyrir því í leik gegn Portsmouth í deildabikam- um fyrir hálfum mánuöi að sprunga kom í fótlegg hans og reiknaö var með að hann gæti ekki leikið næstu fjórar vikumar. En við myndatöku í síöustu viku kom í ljós að beinið var þegar gróið og Rob- son gat leikið síðari leikinn gegn Portsmouth í fyrra- kvöld. Hann missti af síöasta HM-leik Englendinga, gegn Svíum í síðasta mánuði, en þá var hann með brákuö rif- bein. Ruud Gullit á batavegi Hollenski knatt- spymusnillingur- inn Ruud Gullit virðist vera á bata- vegi en hann hefur ekkert getað æft í fjóra mánuði vegna meiðsla. Hann hringdi í forráðamenn AC Milan frá Amsterdam nú í vikunni og sagðist viss um að fá jákvæö- an úrskurð hjá sérfiræðingum um að mega byrja að æfa inn- an skarams. Forseti AC Milan, SUvio Berlusconi, seg: ist vona að Gulht geti leikið gegn meisturum Inter Milano þann 19. nóvember en síðast spilaði Gullit þegar AC MUan sigraði Steaua frá Búkarest 1 úrslitaleik Evrópukeppni meistarahða siðasta vor. Læknirinn ekki jafnviss um batann Krisján Bemburg, DV, Belgíu: Fyrir skömmu var Gullit skorinn upp af dr. Martens, frægasta íþrótta- skurðlækni í Belgíu, sem meðal annars hefur gert margar aðgerðir á Arnóri Guöjohnsen. Martens er ekki jafhbjartsýnn og Gullit og sagði við belgískt blaö á dög- unum að 1 versta falli mundi Gullit aldrei leika knatt- spymu framar og hann gæti þurft aö bíða fram á næsta ár með að byija aö æfa og keppa á fuUu. Ajax dæmt í tveggja ára bann í Evrópukeppni Eins og menn muna varð að aflýsa leik hoUenska Uðsins Ajax og austurríska liðsins Austria Vín í UEFA-keppninni á dögunum vegna skrílsláta hollenskra áhorfenda. Nú hefúr UEFA tekið máUÖ fyrir og dæmt hoUenska Uöiö í tveggja ára leikbann í Evrópukeppni. Þá úrskurðaði UEFA austur- ríska Uðinu 3-0 sigur I leiknum og fer Austria Vin því í 2. um- ferð. Ajax hefur frest fram á mánudag til að áfrýja þessum dómi og má fastlega búast við aö forráðamenn hoUenska Uös- ins geri það. HoUenskir áhorf- endur eru orðnir að stóru vandamáli í hollenskri knatt- spyrnu. Ólæti á ieikjum í HoU- andi fara stöðugt vaxandi og eru hoUensklr „knattspyrnu- unnendur1' farnir aö Ukjast þeim ensku á mörgum sviðum. Evrópukeppni í körfuknattleik: Keflvíkingar börðust vel - en töpuðu fyrir Bracknell, 91-106 Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum: Keflvíkingar eru úr leik í Evrópu- keppni meistaraliða í körfuknattleik. í gærkvöldi léku Keflvíkingar síðari leik sinn gegn enska félaginu BrackneU Tigers í íþróttahúsinu í Keflavík. BrackneU Tigers sigruðu í leiknum með 106 stigum gegn 91 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 56-39, enska Uðinu í hag. Fyrri leik lið- • Guðjón Skúlason var stigahæstur Keflvikinga í gærkvöldi gegn Bracknell og skoraði 17 stig. anna, sem fram fór í Englandi, lauk með sigri BrackneU Tigers, 144-105. Leikurinn var mjög hraður og skemmtilegur og byrjunin lofaði góðu hjá Keflvíkingum. Þeir komust í 16-8 eftir fimm mínútna leikkafla. Síðan kom slæmur kafli og gengu Tigersmenn á lagið og skoruðu 16 stig í röð á þriggja mínútna kafla og breyttu stöðinni í 16-24. Eftir það var leikurinn í jafnvægi en þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks skoraði enska liðið sautján stig gegn átta stigum Keflvíkinga. í síðari hálfleik juku Bracknell Tig- ers muninn jafnt og þétt en á síðustu sjö mínútum leiksins var varalið Keflvíkinga komið inn á og náðu þeir að minnka muninn með stórleik, úr 26 stiga forskoti Tigers niður í níu stig. BrackneU var sterkara á loka- sprettinum og tryggði sér öruggan sigur. Keflvíkingar stóðu sig vel gegn þessu sterka liði og gáfust ekki upp fyrr en leikurinn var flautaður af. Ungur nýUði, Kristinn Friðriksson, átti mjög góðan leik og kom á óvart með frammistöðu sinni, gerði ellefu stig á sjö. mínútna kafla undir lok leiksins. Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 17, Fal- ur Harðarson 16, John Vergasson 16, Kristinn Friðriksson 11, Sigurður Ingimundarson 10, Albert Óskarsson 7, Magnús Guðfinnsson 4, Nökkvi Jónsson 4, Ingólfur Haraldsson 4, Einar Einarsson 2. Reykjavlkurmótið í blaki: Þróttur vann í kvennaflokki - eftir sigur á Stúdentum Reykjavíkurmótið í blaki hófst í síðustu viku með leikjum Víkings og Þróttar í kvennaflokki og Þróttar og HK í karlaflokki en KópavogsUðið er gestur i mótinu þar sem Fram gat ekki leikið með. Önnur lið í þessu móti eru kvenna- og karlaUð ÍS. í gærkvöldi var svo önnur umferð leikin og mættust þar karlalið ÍS og HK og kvennalið ÍS og Þróttar. Víkingur - Þróttur:2-3 Kvennalið Víkings og Þróttar þurftu fimm hrinur til aö gera út um leik- inn. í lið Víkinga vantaði tvo af lykil- mönnunum og einkenndist leikur þeirra af öryggisleysi. Þó sýndi nýlið- inn, Jóna Lind Sævarsdóttir, ágætan leik og var best í sínu Uði ásamt Björk Benediktsdóttur, sem átti ágætis spretti. Þróttarar hafa fengið gamlar kempur til Uðs við sig þær Lindu Jónsdóttur og Steinu Ólafsdóttur. Þær voru sterkar í sókninni og skópu að mikiu leyti sigur sinna manna í þessum leik sem varð fimm hrinur í aUt. Lokahrinan var spennandi og endaði 15-13. fannst Þrótturum hins vegar nóg komiö og mættu harðákveðnir til leiks í fimmtu hrinu og unnu fremur auðveldlega, 15-8. Bestir Þróttara voru félagamir Leifur Harðarson og Jón Ámason. ÍS - HK: 3-0 í fyrrakvöld mættust svo ÍS og HK í karlaflokki. HK-ingar voru ekki hálf- ir menn og voru Stúdentum lítil hindmn. Leikurinn varð aldrei nema þrjár hrinur, 15-6, 15-2 og 15-8, og tók ekki nema 47 mínútur. ÍS - Þróttur:1-3 ÍS- og Þróttar-stúlkur áttust við í seinni leik kvöldsins. Leikurinn var tilþrifalítill og hálfgert „laumuspil“. Fyrstu tvær hrinumar unnu Þrótt- arstúlkur (15-13 og 15-8) en í þeirri þriðju urðu þær að láta í minni pok- ann fyrir ÍS, sem vann, 15-10. Fjórða hrinan varð sú síðasta því Þróttar- stúlkur unnu hana, leikinn og jafn- framt mótið. Það er því kvennaUð Þróttar sem er Reykjavíkurmeistari 1989. Þróttur - HK: 3-2 KarlaUð Þróttar og HK kepptu sama kvöld. AUt útíit var fyrir stuttan Þróttarasigur því fyrstu tvær hrin- umar vom þeirra (15-12 og 15-13), en í þriðju hrinu fóm HK-ingar í góðan gang og unnu hana og þá næstu nokkuð ömgglega (15-7 og 15-8) bar þar mest á skemmtilegum tilþrifum Guðbergs Egjls Eyjólfsson- ar og Vignis Hlöðverssonar. Hér Enginn bikar Þó líkur hafi verið töluvert miklar á að Þróttarar tryggðu sér titilinn í þessum leik virðist frammámönnum Blaksambandsins ekki hafa virst mikil ástæða að hafa bikarinn og verðlaunapeninga tU taks. Þær verða því að bíða með að handleika bikar- inn þar til í næstu viku en þá verður seinasta umferð mótsins leikin. -gje • Marco Van Basten. Van Basten að braggast Knattspymumaður Evrópu, Holl- endingurinn Marco Van Basten hjá ítalska félaginu AC MUan, hefur náð sér eftir uppskurð sem hann gekkst undir í síðasta mánuði. í gær lék Basten sinn fyrsta leik eftir meiðslin og gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk. AC Milan lék æfingaleik gegn 3. deUdar liði og sigraði AC Milan í leiknum, 6-0. Basten lék aUan leikinn og nú er ljóst að hann leikur sinn fyrsta al- vöruleik gegn Cremonese í deUdar- keppninni á simnudag. Þetta eru gleðitíðindi í herbúðum AC Milan því Ruud Gullit á enn við meiðsU að stríða og hefur það komið niður á gengi AC Milan það sem af er keppni- tímabilinu. -JKS Gmavar Sveinbjönisso, DV, Englandi: Birmingham í vanda SStuðningsmenn Birmingham eiga yfir höfði sér langt bann í útileikjum fé- lagsins eftir að um 200 þeirra ruddust inn á heimavöll Black- pool um helgina. Þeir höfðu enga miða meðferðis enda ekki taldir æskilegir á þennan leik vegna óláta sem þeir stóðu fyr- ir á Selhurst Park, heimavelli Crystal Palace, í lok seinasta keppnistímabils. Tvö vilja Worthington Nigel Worthington þjá Sheffield Wed- nesday er nú kominn á óskalistann, bæði þjá Tottenham og Manchester United. Þess má geta að Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, lót fylgjast með honum í leik gegn Coventry á laugardaginn. Chelsea leitar Chelsea er nú á hött- unum á eftir tveimur til þremur leikmönn- um til að styrkja hóp- inn. Bobby CampeU, stjórinn á Stamford Brldge, hefur látið fylgjasts með Gary Penrice, framheija Bristol Rovers, og ennfremur miövallarleik- manninum John Sheridan hjá Nottihgham Forest Sheridan kom tíl Nottingham frá Leeds fýrir 650 þúsund pund en hefur ekki náö að komast í liðið. - af leikmönn _ Á blaðamannafundi, sem efnt var tU í gær, var tUkynnt niðurstaða í skoðanakönnun meðal leikmanna á íslandsmótinu í handknattleik um hvaða lið muni hreppa íslandsmeist- aratitilinn þegar upp verður staðið í vor. 122 leikmenn tóku þátt í könnun- inni en tekið skal fram að aðeins n'áðist í leikmenn sjö liöa í deildinni af tíu. Niðurstaðan var sú að flestir spá því að FH standi uppi sem sigur- vegari á mótinu þegar því lýkur í vor. Stjarnan kemur í humátt á eftir en þessi tvö félög fengu nokkuð afger- andi kosningu. íslandsmeisturum Vals er spáð þriðja sætinu, Víkingi fjórða, KR fimmta, Gróttu sjötta sætinu, ÍBV því sjöunda en ÍR og HK er spáð því óheppilega hlutskipti að falla í 2. deild. Þessi félög komu upp úr 2. deild í vor. 1. deildar keppnin hefst á morgun og var í upphafi ætlunin aö leika þá heila umferð en af því getur ekki orð- ið vegna þátttöku íslensku liðanna í Evrópukeppninni um þessa helgi. Af þessum sökum fara á morgun fram tveir leikir, Grótta-ÍR og viðureign FH og HK. í vetur verða leiknar 16. umferðir á laugardögum og heíjast leikirnir kl. 16.30. Þetta er nýbreytni og vonast forvígismenn mótsins eftir því að þetta eigi eftir að gefa góða raun. • Axel Nikulásson átti mjög góðan lelk gej i London í fyrfakvöld. KR-ingar sigruöu g umferð keppninnar. Á myndinni hefur A> manni Hemel Royals, og stuttu síðar lá ki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.