Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989. 25 íþróttir íslandsmótiö í 1. deild í handbolta hefst á laugardag: spáð sigri í 1. deild um deildarinnar. Vátryggingafélag íslands styöur handboltann 1 vetur Hlutur liðanna í kjölfar samningsins um 3 milljónir króna Samningur var undirritaður í fyrra- dag milli Samtaka fyrstu deildar fé- laga karla í handknattleik og Vá- tryggingafélags íslands. Samninginn handsöluðu þeir Kristján Öm Ingi- bergsson fyrir hönd fyrstu deildar félaganna og Öm Gústafsson fyrir hönd Vátryggingafélags íslands. „Samningurinn felur það í sér að Vátryggingafélag íslands tekur þátt í að styrkja og styðja við bakið á handknattleiknum í landinu, sér- staklega þó 1. deild karla,“ sagði Þórður Sigurðsson, einn forvígis- manna í Samtökum fyrstu deildar félaga. Þórður kvað hlut fyrstu deildar- innar vegna samningsins um 3 miUj- ónir króna og yrði stuðningurinn í margs konar formi. Á móti sagði hann aö fyrsta deildin yrði nefnd Fyrsta deildin - Vís keppnin, „en vit- anlega heldur íslandsmótið sínu nafni,“ sagði Þórður. „í auglýsingum okkar og öliu því sem við komum á framfæri við fjöl- miðla varðandi handknattleikinn i vetur munum við leitast við að halda nafni styrktaraðilans á lofti.“ Þórður sagði í samtalinu við blaðið að vátryggingafélagið myndi sjá um birtingu stöðutöflunnar í deildinni með auglýsingu og jafnframt auglýsa hverja umferð fyrir sig fyrirfram. Þórður sagði að mikið yrði um beinar útsendingar frá handnattleik í vetur. „Þaö verður mikið sýnt á báðum sjónvarpsstöðvum og í ríkissjón- varpinu verður sérstakur hður í íþróttaþættinum sem heita á íslenski handboltinn. Þar verða tekin fyrir margvísleg atriði sem varða fyrstu deildina og íslandsmótið í heild sinni,“ sagði Þórður. Jón Hjaltalín Magnússon, formað- ur HSÍ, lýsti yfir mikilli ánægju með samninginn sem 1. deildar félögin og VÍS hefðu náð. Jón Hjaltalín sagði ennfremur. „Ég hef trú á að íslands- mótið, sem hefst á morgun, verði það jafnasta í sögunni. Ekkert lið er af- gerandi og það á eftir að gera mótið spennandi í vetur. Ég vona einnig að gott samstarf takist á milli leik- manna og dómara því þessir þættir verða að fara saman," sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ. JKS/JÖG Samningur var í fyrradag handsalaður milli Vátryggingafélags íslands og Samtaka fyrstu deildar félaga karla í handknattleik. Verður Vátryggingafélagið stuðningsaðili fyrstu deildar karla í ár. DV-mynd S jn enska liðinu Hemel Royals í siðari leiknum læsilega í leiknum og tryggðu sér sæti í 2. :el fundið leið framhjá Russel Taylor, leik- nötturinn í körfunni. Símamynd Reuter Evrópiikeppnin í körfuknattleik: KR-inga bíður erfitt verkefni - drógust gegn fimasterku frönsku liði „Við þekkjum ekkert til franska hðsins en í fljótu bragði virðast möguleikar okkar gegn þessu hði vera litlir. Það getur vel farið svo að viö semjum um að leika báða leikina hér á landi en þetta mun skýrast þegar við setjum okkur í samband við franska hðið,“ sagði Þorsteinn Gunnarsson, formaður körfuknatt- leiksdehdar KR, í samtali við DV. KR-ingar, sem slógu enska liðið Hemel Royals út úr Evrópukeppni félagshða í körfuknattleik, drógust gegn franska hðinu Horens í 2. um- ferð. Búast má við að róðurinn verði erfiöur KR-ingum því þetta franska hð hefur tvisvar sinnum hreppt Evr- ópumeistaratitihnn í körfuknattleik. Fyrri leikurinn verður 25. október en sá síðari 1. nóvember. í blaðinu í gær var sagt að KR væri fyrst ís- lenskra hða til að komast í 2. um- ferð. Þetta er ekki rétt því ÍR komst í 2. umferð 1964 eftir sigur á írska höinu Glentoran. „Við komumst fjárhagslega vel frá leiknum við enska hðið og vonandi versnar það ekki þegar þessir frönsku snillingar koma til landsins. Við höfum á að skipa mjög góðu liði og ég er bjartsýnn á framhaldið. Á góðum degi getur aht gerst gegn franska liðinu, við þekkjum and- stæöingana htið sem ekkert og renn- um því blint í sjóinn,“ sagöi Þor- steinn Gunnarsson. -JKS Delkiarbikarinm Stórleikur í 3. umferð Stórleikur 3. umferðar í ensku deildarbikarkeppninni í knatt- spyrnu verður án efa viðureign Arsenal og Liverpool en dregið var tii þriðju umferðar í London 1 gær. Leikimir í umferðinni fara fram 23. október. Margir athygl- isverðir leikir eru á dagskrá og má þar nefna leik Manchester United og Tottenham á Old Traf- ford en drátturinn lítur annars þannig út: Tranmere - Millwali, Ever- ton - Luton, Aston-Villa - West Ham, Middlesbrough - Wimble- don, Sunderland - Bournemo- uth, Crystal Palace - Notting- ham Forest, Manchester Un- ited - Tottenham, Newcastle - West Bromwich Albion, Sout- hampton - Charlton, Manchest- er City - Norwich, Derby - Sheffield Wednesday, Exeter - Blackpool, Arsenal - Liverpool, Swindon - Bolton, Queen’s Park Rangers - Coventry, Oldham Scarborough. -JKS • Aad De Mos, þjálfari Anderlecht. Knattspyrna: De Mos í sjöunda himni Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Aad De Mos, þjálfari Anderlecht, er mjög ánægður með hvernig lið hans leikur þessa dagana og má vera það. Eftir sigurinn á St. Truiden síð- asta sunnudag sagðist hann ekki hafa séð fallegri knattspymu en þá sem Anderlecht hefði sýnt síðustu vikumar. De Mos sagði að sínir menn hefðu spilað stórkostiega í 60 mínútur í St. Truiden en nokkrir heföu ætlað að taka lífinu of létt síðasta hálftímann og þá hefði kæruleysi gripið um sig í liðinu. Þá kvaðst hann hafa velt vönginn yfir því hvort réttara væri að refsa leikmönnunum með auka- æfingu eða gefa þeim eins dags hvíld, og hann hefði vahð seinni kostinn! Sport- stúfar Nokkrir leikir voru í frönsku l. deildinni í knattspymu í fyrra- kvöld og urðu úrslit þeirra þessi: Bordeaux - Mulhouse.......1-0 Cannes - Lyon.............2-1 Monaco - Nantes...........0-0 Sochaux -Montpelher.......3-1 Brest - Auxerre...........2-1 Lille - Marseille.........2-0 Caen - St. Germain........2-0 St Etienne - Toulouse.....0-3 Toulon-Nice...,...........1-1 Staða efstu liða í 1. deiid: Bordeaux ..13 9 2 2 18-5 20 Marseille ...12 8 2 2 25-9 18 Sochaux...l3 8 2 3 20-12 18 Toulouse.,13 6 4 3 18-11 16 Germain.,13 6 4 3 18-17 16 Nantes ...13 4 5 4 16-13 13 Monaco....l2 3 7 2 9-7 13 Lyon.....13 6 1 6 18-20 13 Papin og Langers markahæstir Jean-Pierre Papin, Marseille, og Robby Langers, Nice, em markahæstir í 1. deild frönsku knattspymunnar með 10 mörk að loknum 13 umferðum. Thierry Fernier, Racing Club Paris, og Klaus Allofs koma næstir meö átta mörk, Guy Mengual er fimmti með sjö mörk og sjötti 1 rööinni er Mendy, St. Etienne, með 6 mörk. Úrsiit i Evrópu- keppninni í körfu Ursliti síðari leikjun- um á Evrópumótun- um í körftiknattleik uröu þessi: Pasabahce - Banyasz.....100-88 Efes-Wieden............111-47 Torpan-Tungsram.........74-70 Panionios - Pezoporikos ....119-77 Girona - Contera........93-52 Tel Aviv - Appolon.......93-59 Bellinzona - SpartaPrag..80-73 Zaragoza - Nyon..........116-76 Royals-KR............. 60-65 Monceau - flhavo.......106-83 Castors -Malaga.........65-67 Verlöse - Bratislava.....71-80 Bosna - Fenerbache......86-68 Zvezda - Iraklis........77-62 Zadar - Spartak........132-68 Olimpija - Hapoel.......79-81 Monaco - Oldham.........91-98 Zalaegerz - Montpellier........91-96 Panathinaikos - Holon...80-65 Caserta - Haifa.........S)-65 Benetton -Charlotteburg ....91-68 Cholet - Nicosia.......138-54 Arsenal dróst gegn Liverpool 1 gær var dregið í mjólkurbikarkeppn- inni í Englandi og í næstu rnnferö verður það hlutskipti leikmanna Li- verpool að leika gegn meistur- um Arsenal. Búist er við rosa- Iegum slag enda léku þessi hö til úrslita í 1. deild ensku knatt- spymunnar á síðasta keppnis- tímabili. Áfaii hjá Frökkum fyrir ieik gegn Skotum Markahæsti leik- maðurinn í frönsku knattspymunni það sem af er keppnis- tímabili þar í landi, Jean-Pierre Papin, sem leikur með Mar- seille, getur líklega ekki leikið meö landsliði Frakka þegar lið- ið raætir Skotum næsta mið- vikudag. Þetta er ekki eina vandamáhö sem Frakkar glíma því vamarleikmaðurinn Manuel Amoros er líka meidd- ur og líklegt aö hann geti ekki leikið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.