Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989.
LífsstHL
Verðkönnun Verðiagsstofnunar
á riærfatnaði leiðír í [jós miklnn
verðmun á nærtatnaðí 'eða allt
að 170%
Verðkönnun:
Mest 170%
verðmunur
fötum
Verðlagsstöfnun kannaði ný-
unxim um land aUt. Mikill verð-
munur kom fram í könnuninni
og reyndist hann mestrn- á Vogue
sokkabuxum sem kostuðu mest
310 krónur í Olympiu á Lauga-
vegi en minnst 115 krónur í versl-
uninni Kjarabótá Húsavík. Mun-
uitnn er í þessu tUfelli 170%.
ar á miklum verömun er misjafn
aldur birgöa og mismikil smá-
söluálagning.
í tveim tUvikum var munur á
hæsta og lægsta verði í kringum
80%. Ein tegund af Triumph
kvennærbuxum kostaði minnst
361 krónu í Svarfdælabúö á Dal-
vík en mest 636 i Kaupfélagi Þing-
eyinga á Húsavík. Munurinn er
þama 76%.
Schiesser hlýrabolur fyrir kari-
menn kostaði minnst 464 krónur
í Kaupfélagi Vopnfirðinga en
mest mest 837 krónur í Kaup-
fólagi Þingeyinga á Húsavík.
Könnunin náði til 15 tegunda
af nærfatnaði í 49 verslunum.
Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík
var oftast meö hæst verð eða í
fimm tilvikuxn. Verslun Einars
Guðfinnssonar í Bolungarvík var
oftast með lægsta veröið eða í
þremurtilvikum. -Pá
Grænmeti
og ávextir
koma í
veg fýrir
krabbamein
Stöðugt fieira bendir tíl þess að
neysla á grænmeti og ávöxtum
getí komið i veg fyrir krabbamein
eða dregið veruiega úr lflcum á
J3VL
„Allt bendir til að tengsl séu
miili aukinnar neyslu grænmetis
og ávaxta og minni hættu á
krabbameini,“ sagöi Gladys
Block frá bandaríska krabba-
meinsfélaginu við setningu
þriggja daga ráðstefiiu um
krabbamein í London.
í skýrsfu, sem lögð var fram á
ráðstefnunni, er athygli manna
beint að litareMnu karótín og
áhriftim þess. Litarefni þetta
finnst í gulrótum og Qölda ann-
arra tegunda ávaxta og græn-
metis. Við rannsóknir á blóðsýn-
um þeirra sem fengið höfðu
lungnakrabbaraein kom í ijós aö
litareM þetta vantaöi í fæðu
þeirra.
Þessar niðurstöður, ásamt
rannsóknum sem gerðar voru á
26.000 blóðsýnum við John Hopk-
ins háskólann í Baltimore, þar
sem rannsökuö voru sýni allra
blóðgjafa sem fengið höföu
krabbamein frá árinu 1974, benda
til þess aö karótín getí dregið úr
líkum á lungnakrabbameini og
húðkrabbameini. -Pá
Neytendasamtökin:
Bjóða niðurstöður
neytendakannana
-150 uppsláttarorð
Neytendasamtökin bjóða neytend-
um þá þjónustu að hringja í síma
samtakanna, 21666 eða 21678, og fá
upplýsingar um niðurstöður neyt-
endakannana og álit samtakanna á
miklum fjölda hluta. Hægt er að fá
upplýsingar gegnum síma og einnig
hægt að fá ljósrit af viðkomandi nið-
urstöðum. Neytendasamtökin hafa
komið sér upp spjaldskrá með 150
Neytendur
uppsláttarorðum og eru í mörgum
tílfeUum fleiri en ein könnun á bak
við hvert uppsláttarorð.
Kannanir þessar eru flestar fengn-
ar úr neytendablöðum og frá neyt-
endasamtökum í nágrannalöndum
okkar. Sérstaklega eru neytendablöð
á Norðurlöndum og í Þýskalandi iðin
við gerð slíkra kannana sem taka
iðulega bæði til verðs og gæða. Neyt-
endablaðið íslenska hefur einnig gert
slíkar gæðakannanir ásamt könnun-
um á viðhorfi eigenda til ýmissa
vara. Þannig getur neytandi, sem
ætiar að festa kaup á þvottavél, svo
dæmi sé tekið, fengið ljósrit eða upp-
lýsingar um fiölda kannana sem
gerðar hafa verið á gæðum þvotta-
véla.
„Þetta flokkast undir jákvæða
þjónustu sem samtökin veita,“ sagði
Sigríður Guðmundsdóttir, starfs-
maður Neytendasamtakanna, í sam-
taii við DV. „Þetta er nokkurs konar
fyrirbyggjandi starf um leið því við
viljum að fólk íhugi vandlega sinn
gang áður en það leggur í stórar fjár-
festingar tíi þess að firra sig vand-
ræðum eftir á. Það getur þaö gert
með því að fá hjá okkur upplýsingar
um niðurstöður hlutlausra kannana
og úttekta á hlutnum sem það ætlar
að kaupa.“
Fjölbreytt viðfangsefni
Svo nefnd séu nokkur dæmi þá er
í spjaldskrá Neytendasamtakanna að
finna upplýsingar um bakaraofna,
burðarrúm, bílabón, bleiur, diskl
inga, dýnur, fatabti, ferðaútvörp
geislaspiiara, handfyksugur, hátal
ara, húðkrem, kaffivélar, ljósabekki
myndavélar, náttúrulækningalyf
píanó, rakvélar, regnföt, reiðhjól
saumavélar, skíðaskó, skordýraeit
Elva og Sesselja, starfsmenn Neytendasamtakanna, með spjaldskrána góðu.
ur, slípirokka, stranjám, svitakrem,
tannkrem, tennisspaða og sumar-
dekk. Þetta er aðeins brot af fjöl-
breyttri spjaldskrá samtakanna.
Skrifstofa samtakanna er á Hverf-
isgötu 59 og er opin frá kl. 9 til 16
alla daga nema þriðjudaga. Þar er
ávallt heitt á könnunni og starfsfólk
DV-mynd KAE
fust til skrafs og ráðagerða um hvað
eina sem lýtur að neytendamálum.
-Pá
Getur kostað hálft skoðunargjald aukalega
- að fara að leiðbeiningum Bifreiðaskoðunar íslands
Það getur kostað bíleigendur hálft
skoðunargjald aukalega að fara eftír
leiðbeMngum Bifreiðaskoðunar ís-
lands um ljósaskoðun. Þeim sem
mæta til skoðunar í færanlega skoð-
unarstöð er sagt að ekki þurfi að
vera með ljósaskoðun. í stöðinni er
athugað hvort ljós séu í lagi en ef þau
reynast ekki vera það fær bifreiðin
ekki fulla skoðun.
Bíleigandinn þarf því að mæta aft-
ur tíi skoðunar eftir að hafa farið
með bílinn í Ijósaskoðun og greiða
þá hálft skoðunargjald, 950 krónur.
Láti hann stilla Ijósin á verkstæði,
sem er viðurkennt af Bifreiðaskoðun
íslands, hefur verkstæðið heimiid til
að veita fulla skoðun og jafnframt
innheimta hálft skoðunargjald.
Þessum vandræðum er hægt að
komast hjá með því að fá einfalda,
Það borgar sig að vera með Ijósin f lagi þegar farið er í skoðun, ella get-
ur það kostað bileigendur hálft skoðunargjald aukalega.
venjulega ljósaskoðun á næsta verk-
stæði áður en farið er í skoðun og
greiða þannig 500 krónur í stað 950
aukalega.
„Þessar reglur verða í gildi í nýju
húsnæði Bifreiðaskoðunar sem flutt
verður í um áramót," sagöi Óskar
Eyjólfsson, íjármálastjóri Bifreiða-
skoöunar íslands, í samtali við DV.
„Við sjáum ekki ástæðu til þess að
breyta þeim. Það er rétt að benda á
að við setjum verkstæðum ekkv
gjaldskrá og því er þeim í sjálfsvald
sett hvort þau innheimta hálft skoð-
unargjald fyrir að laga ljósin,“ sagöi
Óskar.
Hann gagnrýndi einnig Bílgreina-
samband Islands fyrir að auglýsa
ekki hvaða verkstæði hefðu heimild
til að taka bíla í endurskoðun en þau
væru fiölmörg. -Pá«