Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1989, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjáist,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1989.
Katla:
Fjórir kippir
fundust á sama
sóiarhringnum
Rórir jarðskjálftakippir mældust
við Kötlu á einum og sama sólar-
hringnum. Það var skömmu eftir
miðnætti fjórða þessa mánaðar að
fyrsti kippurinn mældist. Hann var
frekar veikur. Annar álíka stór
mældist um klukkan hálfijögur um
nóttina. Klukkan 19.16 mældist
stæsti kippurinn, rúmir fjórir á Rich-
ter. Einni mínútu síðar mældist veik-
ur skjálfti.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni er nær árvisst að jarð-
skjálftakippir mælist við Mýrdals-
jökul á haustin. Kippirnir nú voru
það veikir að ólíklegt er að fólk hafi
orðið þeirra vart. Ekki þykir sérstök
ástæöa til að ætla að frekari jarð-
hræringarverðiáþessusvæði. -sme
Margeir
komst áfram
Bent Larsen sigraði Yrjola í síðustu
skákinni í aukakeppni þeirra tveggja
og Margeirs Péturssonar um sæti á
milhsvæðamóti. Þar með er ljóst að
Margeir teflir á mótinu en hann fékk
3 vinninga í keppninni. Yijola fékk 2
og Larsen 1. Asamt Margeiri mun
Jóhann Hjartarson tefla á mifli-
svæðamóti.
í áskorendaeinvígjimum er Karpov
með unna biðskák gegn Jusupov í
þriðju skákinni og Timman og Speel-
mangerðujafntefli. -SMJ
Hald lagt á 35 skrokka:
Heimaslátrað
var flutt með
báti að nóttu
Hald var lagt á 35 skrokka af
heimaslátruðu fé, sem flutt var til
Neskaupstaðar með báti um nótt.
Það var um klukkan eitt aðfaranótt
laugardagsins að báturinn kom til
Neskaupstaðar. Um borð voru meðal
annars skrokkamir þrjátíu og fimm.
Hald var lagt á kjötið og því eytt sam-
kvæmt ákvörðun heilbrigðisnefndar
Neskaupstaðar.
Kjötið kom frá bæ sem er í fá-
mennri sveit á Austfjörðum. Allt fé
af bænum var skorið niður vegna
riðuveiki. Féð á þessum viðkomandi
bæ mun ekki hafa verið sýkt.
Það munu hafa verið nágrannar
bóndans sem gerðu viðvart um kjöt-
flutningana.
-sme
Vel fór á með þeim Davíð Oddssyni og Þorsteini Pálssyni á landsfundinum í gær. Á myndinni má sjá Friðrik
Sophusson varaformann og Ólaf G. Einarsson þingflokksformann fylgjast með því þegar þeir heilsast. DV-mynd GVA
Halkion VE:
Tekinn í
landhelgi
Togarinn Halkion VE frá Vest-
mannaeyjum var tekinn í landhelgi
á mánudagskvöld. Skipið var á tog-
veiðum um hálfa sjómílu innan við
landhelgislínu - undan Vík í Mýrdal.
Skipinu var snúið til Vestmannaeyja.
Dómur var kveðinn upp yfir skip-
stjóranum í gær. Hann var dæmdur
til að greiða 250 þúsund króna sekt
og afli og veiðarfæri voru gerð upp-
tæk. Skipstjórinn hefur áfrýjað dóm-
inumtiIHæstaréttar. -sme
Sjálfstæðismenn á landsfimdi:
Liklegasta
hefur borið varafbrmannsífamboð sitt undir pólitíska samstarfsmenn
Nær öruggt er að Davlö Oddsson
borgarstjóri tilkynni i hádeginu, á
fundi meö landsfundarfulltrúum
úr Reykjavík á Hótel Sögu, að hann
muni bjóða sig fram til varafor-
manns Sjáifstæöisflokksins. Davið
hefur þegar borið framboð sitt und-
ir vini og pólitiska samstarfsraenn
i Reykjavík og fengið jákvætt svar
við þvi.
Þeir sjálfetæðismenn, sem DV
heftir rætt við, segja að ekki komi
til greina aö Davíð bjóði sig fram í
erabætti formanns en flestir eru
samraála ura að slík ákvörðun væri
alit of seint á ferðinni.
„Þessi landsfundur er ekki kom-
inn saman til að fella formann
flokksins, ef slíkt kæmi upp nú þá
myndi slfkt rót koma á menn aö
óvíst er hvernig sú kosning færi.
En menn vilja breytingar og þá er
ágætt að skipta um varaformann,"
sagði sjálfstæðismaður i Reykja-
vik.
Það vakti athygli þegar lands-
fundurinn var settur í gær aö Dav-
íð Oddsson sat á frerasta bekk og
var í sviösljósinu en hingaö til hef-
ur Davíð aldrei sinnt landsfundura
- setið aftarlega og látið litið á sér
bera. „Davíð er mættur til leiks á
fyrsta degi iandsfundar sem sýnir
aö hann ætlar firam,“ sagði lands-
fundarfulltrúi í morgun.
Davíð hefúr veriö undir miklum
þrýstingi undanfarið um að hann
bjóöi sig fram. Þar eru helstu
stuöningsraenn hans Eimreiöar-
kiíkan svonefnda en í henni eru
menn eins og Björo Bjarnason, aö-
stoðarritstjóri Morgunblaösins,
Geir H. Haarde þingmaður, Baldur
Guölaugsson lögfræöingur, Jón
Steinar Gunnlaugsson lögfræðing-
ur og raunar formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Þorsteinn Pálsson.
Aö sögn sjálfstæðisraanna eru
framboðshugleiðingar Davíðs
koranar svo langt að tahð er aö
hann geti ekki snúið viö þar sem
hann myndi setja mikið niöur ef
hann hætti viö á síöustu stundu.
Ekki eru menn á eitt sáttir um
hver viðbrögð Friðriks Sophusson-
ar verða. Sumir segja að hann
muni eklci gefa eftir varaformanns-
embættið átakalaust eftir átta ár f
embættinu og sera fyrsti þingmaö-
ur Reykvíkinga.
JGH/SMJ
Enginn bjór í
Hafnarfirði
„Þetta verður bara að bitna á bæj-
arbúum því það er alveg sama hvað
við gerum, við fáum engu fram-
gengt,“ sagði Sverrir Valdimarsson,
útsölustjóri Áfengisverslunarinnar í
Hafnarfirði.
Hann hefur nú ákveðið að hætta
að selja bjór og fækka þeim áfengis-
tegundum sem eru á boðstólum
vegna seinagangs hjá byggingar-
nefnd Hafnarfjarðar við að afgreiða
leyfi til að stækka verslunina.
„Ég lái honum ekkert þessa afstöðu
þó að ég voni að úr þessu verði ekki
alvara," sagði Höskuldur Jónsson,
forstjóri Áfengisverslunarinnar, um
ákvörðunútibússtjórans. -gse
I
t
í
i
t
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
LOKI
Stóð ekki á
bjórdósunum hvernig
ætti að opna þær?
Veðrið á morgun:
Skúrir
vestan-
lands
Á morgun verður suðvestan- og
vestanátt með skúrum sunnan-
og vestanlands, en hægari suð-
austan- og norðaustanátt og úr-
komulaust í öðrum landshlutum.
Hitinn verður 4-8 stig.
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5001
GOÐIR BILAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
Kentucky
Fried
Ghicken
Hjallahrauni ij, Hafnarfirði
Kjúklingarsembragð eraö.
Opið alla daga frá 11—22.
Í
i
t
i