Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1989, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1989.
Utlönd
Heita umbótum í
Hinn nýi leiðtogi Búlgaríu hefur
fullvissaö stjómvöld í Moskvu um
að hann muni kynna umbætur í
anda Gorbatsjovs Sovétforseta í
Búlgariu híö fyrsta.
Leiðtogi búlgarskra kommúnista,
Petar Mladenov, sem tók við af
Todor Zhivkov á föstudag eftir 35
ára stjóm þess síðaraefhda, sendi
Gorbatsjov símskeyti í gær þar sem
hann hét umbótum. Umbótatíl-
raunum í Búlgaríu hefur hingað til
veriö beint aö því að reisa við
staðnaðan eihahaginn. Miðstjóm
kommúnistaflokksins kemur sam-
an til fundar á næstunni og má
búast við einhverjum mannabreyt-
ingum í forystu flokksins á þeim
fundi að rnati fréttaskýrenda.
í gær vom ellefu menn, sem vísaö
var úr flokknum á valdatíma
Zhivkovs, teknir á ný í flokkínn.
Meðal þeirra em þekktir umbóta-
sinnar, stuðningsmenn perestroj-
ku Gorbatsjovs. Allir voru þeir
Hinn nýi Eeiðtogi bútgarskra
kommúnista, Petar Mladenov.
Simamynd Reuter
reknir burtu írá flokknum á sið-
ustu átján mánuðum, flestir vegna meints andófs.
Fréttaskýrendur segja að ákvörðunin um að taka mennina á ný í flokk-
inn gætí leitt til breyttra hátta. „Við teljum þessa atburði jákvæða og
merki um aö ef til vill séu breytingar á næsta leiti,“ sagði einn vestrænn
stjómarerindreki 1 samtali við Reuter-fréttastofuna i gær.
Metverð ffyrSr málverk
Olíumálverk eftir franska impressionistann Edouard Manet var í gær-
kvöldi selt á 26,4 milljónir dollara á uppboði hjá fyrirtækinu Christíe’s í
New York. Myndin er af særðum hermanni á götu í París.
Heildarverð myndarinnar var reyndar 24 milljónir en með umboðslaun-
um til uppboðshaldarans var það komið í rúmar 26 milljónir sem er
metverð fyrir verk eftír Manet. Áður haföi mynd eftir hann selst á 11
milljónir dollara. Þá er þetta verð einnig sjötta hæsta verð sem nokkurn
tíma hefúr fengist fyrir málverk. Manet-myndin, sem var í eign listasafn-
ara, var keypt af J. Paul Getty safninu í Kalifomíu í Bandaríkjunum og
verður hún þar tíl sýrds.
Tuttugu og einn fframbjóðandi
Stuöningsmenn Lionel Brizola, eins frambjóöanda í forsetakosningum
i Brasiliu. Simamynd Reuter
Tuttugu og einn frambjóðandi býður sig fram í forsetakosningunum
í Brasilíu sem fram fara í dag. Fái enginn af hinum íjölmörgu frambjóð-
endum meirihluta veröur kosiö milli þeirra tveggja atkvæðamestu þann
17. næsta xnánaðar. Þessar kosningar eru þær fyrstu frjálsu í rúm þijátíu
ár.
lega endurreisnarflokksins en því næst Luiz Inacio Luia da Silva, fram-
þjóðandi Verkamannaflokksins og fýrrum verkalýðsforingL
Gróðanum skipt
Gizur Helgason, DV, Kaiqjmannahöín;
Grænland og Danmörk munu skipta hluta af hagnaöinum milli sín,ef
það borgar sig að vinna gulliö sem ftmdist hefur á austurströnd Græn-
lands. Um 190 tonn af hreinu gulli er aö finna í berginu við ströndina.
Er fundurinn meðal þeírra stærstu sem sögur fara af.
Hinn göfugi málmur er vel varinn af hundrað milljónum bergtonna og
ekki sýnilegur hinu bera auga. Það era fýrirtækin Platinova frá Kanada
og Corona frá Bandaríkjunum sem hafa öll tilskilin leyfi til áframhald-
andi rannsóknar og þar með forgangsrétt til að nýta gulliö ef hægt er að
vinna þaö. Um er aö ræða 3 grömm af hreinu guíli á hvert bjargtonn og
því engan veginn öraggt að vinnsla borgi sig. Fram að þessu hefúr samt
aUt bent tíl að það muni borga sig.
Ef af vinnslu verður á verða fyrirtækin aö semja við heimastjómina á
Grænlandi og danska rQdð um vinnslona. Það er nefnUega hið opinbera
sem á sjálfán berggrunninn á Grænlandi.
I berginu er einnig að flnna Ueirí tegundir eðalmálma, svo sem platínu
og paUadíum.
Sumarið 1991 er fyrirhugað að gera göng niður í berggrunninn til að
kanna möguleika á námugreftri. Ef það borgar sig aö vinna gulUð munu
samt Uða Ijögur til fimm ár áður en sUk vinnsla hefst. Hingað til hafa
fyrirtækin tvö lagt um fiórar mUljónir dollara í forrannsóknir og á næstu
tveimur ámm munu þau verja átta mUljónum doUara tíl viöbótar tíl at-
hugana.
Austur-þýskir landamæraverðir á Berlínarmúrnum við Brandenborgarhliðið i gær. Símamynd Reuter
Beðið opnunar
Brandenborgar-
hliðsins á ný
Austur-Þjóðverja tóku að safnast
vestan megin við múrinn þegar
rökkva tók í gærkvöldi og vestur-
þýska lögreglan kallaði út varalið.
Snemma í morgun voru fjórir stór-
ir kranar fluttir að vesturhlið múrs-
ins og héldu menn fyrst að nota ætti
þá til að brjóta múrinn. Þeir voru
hins vegar leigðir af sjónvarpsstöðv-
um tíl að hægt væri að lyfta sjón-
varpstökumönnum hátt upp.
Vestur-þýskur lögreglumaður á
staðnum sagði að þar sem múrinn
væri þrír metrar á þykkt fyrir fram-
an Brandenborgarhliðið þyrfti mik-
Us undirbúnings við áður en hægt
yrði að byija að brjóta hann. Bætti
hann því við að verið gæti að hægt
yrði að fara gegnum múrinn á þess-
um stað á morgun. Yrðu hUðin í
múrnum þar með orðin tuttugu og
þrjú.
Orðrómur er á kreiki um að múr-
inn við Brandenborgarhliðið verði
rofinn þegar Douglas Hurd, nýi
breski utanríkisráðherrann, kemur
í heimsókn tU Vestur-Berlínar á
morgun.
Reuter
Ráðstafanir vestan megin við Ber-
Unarmúrinn við Brandenborgarhlið-
ið snemma í morgun gáfu til kynna
að þar yrði bráðum búið til nýtt hUð.
Hins vegar sáust þess engin merki
austan megin að framkvæmdir væru
að hefjast. Austur-þýskir lögreglu-
menn tjáðu vestur-þýskum kollegum
sínum að þeir skyldu ekki búast viö
að múrinn yrði rofinn á þessum stað
í dag.
í gærkvöldi voru gifurlegar örygg-
isráðstafanir beggja megin við múr-
inn. Hundmð Vestur-Beriínarbúa og
Þýskir hermenn i sigurför gegnum Brandenborgarhliðið þegar þeir sneru
heim frá vesturvígstöðvunum í júlí 1940. Símamynd Reuter
SQórnarmyndunarviðræður
í kjölfar mikftlar gagnrýni flokks-
félaga og stöðugra mótmæla almenn-
ings reynir austur-þýski kommún-
istaflokkurinn nú aö halda völdum
og ná tökum á hinu sviptingasama
pólitíska ástandi í landinu. Komm-
únistar reyna nú af mætti að tryggja
sér stuðning fjögurra smærri stjóm-
málaflokka, flokka sem allt í einu
standa frammi fyrir því að þeir geta
ef til vill fengið að njóta sjálfstæðis
þess sem þeir hingað til höföu aðeins
á pappímum einum.
Smærri flokkamir hafa meirihluta
á hinu íjögur hundmð sæta þingi, 208
sæti. í raun hafa kommúnistar ein-
göngu á aö skipa 127 sætum. Sú stað-
reynd gæti skipt miklu eins og mál
standa í dag.
Hinn nýi forsætisráðherra, Hans
Modrow, eða „Gorbatsjov A-Þýska-
lands“, eins og hann hefur verið kall-
aður, stendur nú frammi fyrir því
að reyna að mynda samsteypustjóm.
Maðurinn sem leiðtogar ílokksins
ýttu til hliðar vegna stuðnings hans
við perestrojku Gorbatsjovs Sovét-
forseta og umbótavilja er nú í for-
svari kommúnista í stjómarmynd-
unammræðum og er jafnvel talinn
líklegur arftaki Krenz flokksleiðtoga.
„Krenz gæti verið fallinn í gleyms-
kunnar dá fyrir jól,“ sagði einn vest-
rænn stjórnarerindreki.
„Við höföum vonast til aö Modrow
yrði kosinn forsætisráðherra,“ sagði
Amdt Haubold, prestur í Nikolai
kirkjunni í Leipzig, en þar er vagga
lýðræðisbaráttu A-Þýskalands.
Modrow hefur nú hafið samninga-
viðræður við íjóra stjómmálaflokka,
aðeins sólarhring eftir að hann var
kosinn í embætti.
Þrír af flokkunum fjórum krefjast
þess að kommúnistar láti af einræði
sínu. Leiðtogar eins þeirra, Frjáls-
lyndra demókrata, lýstu því yfir að
þeir væru ekki reiðubúnir til að taka
skilyrðislaust þátt í samsteypustjóm
forsætisráðherrans.
Síðan austur-þýsk yfirvöld ákváðu
aö opna upp á gátt landamæri sín til
vesturs hefur atburöarásin í Aust-
ur-Þýskalandi verið ákaflega hröð.
Um miðjan næsta mánuð, 15.-17. des-
ember, verður haldið flokksþing
kommúnista, æðsta samkunda
flokksins. Breytingar í forystuliði
kommúnistaflokksins geta aðeins
verið samþykktar á flokksþingi.
Fastlega er búist við miklum manna-
breytingum í forystunni á þessu
komandi þingi.
Kommúnistar hafa látiö undan síga
í mörgum mikilsverðum málefnum,
veitt þegnum sínum fulla ferðaheim-
ild og lofað fijálsum kosningum.
Næstu kosningar eiga að fara fram í
maí 1991 og í síðustu viku kvaöst
Krenz ekki sjá að þörf væri á að halda
kosningarnar fyrr. En aldrei er að
vita hverju austur-þýskur almenn-
ingur fær áorkað á þessum tímum
örra breytinga.
Reuter