Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1989, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1989, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1989. ir „Yfirstéttin“ 1 Búlgaríu: Lúxusvillur og fjárhættuspil Yfirvöldum í Búlgaríu brá nokkuö í brún fyrr í mánuðinum þegar ljóst var aö tímarit á markaðnum birti upplýsingar um mikinn auö og vel- sæld „yfirstéttarinnar" í landinu. Það var tímaritið Obstevstvo sem upplýsti að í landinu væru fmuntán hundruð milljónamæringar. Þessar fréttir ollu ólgu og reiði meðal landsmanna. Almenningur vildi vita hverjir þessir menn væru sem áttu slíka fúlgu fjár á þeim tíma er venjulegir Búlgarar áttu vart pen- inga til að kaupa oststykki. Þessir fimmtán himdruð ónafn- greindu milljónamæringar teljast alhr til „heldri manna“ í Búlgaríu - hinnar svokölluðu „Zhivkov-khku“ fyrrum forseta sem var vikið úr emb- ætti fyrir örfáum vikum. Nú, eftir þrjátíu og fimm ára stjórnartíð Tod- ors Zhivkovs, fékk hinn almenni borgari grun sinn staðfestan; ráða- menn ríkisstjórnar Zhivkovs voru allir spUltir. Nútímaþægindi Efstir á Usta þeirra, sem sakaðir eru um misnotkun stöðu sinnar og valda, eru Zhivkov sjálfur og þijátíu og sjö ára sonur hans, Vladimir. Tod- or Zhivkov átti þrjátíu heimUi. Þau voru útbúin öUum hugsanlegum nú- tímaþægindum - þar á meðal gufu- böðum - og í eldhúsum var gnægð innfluttrar matvöru frá Vesturlönd- um. „Þetta fólk vanhagaöi ekki um neitt," sagði einn blaðamaður. „Það hafði ekki hugmynd um hvemig við hin bjuggum." í heimalandi sínu var Vladimir Zhivkov kunnur fyrir spUafíkn. Margir landa hans vUja gjarna vita hvaðan hann fékk um tvær mUljónir dollara sem hann hefur tapað í spUa- vítum og hvert þeir peningar fóru. Þá er einnig á huldu hvað varö um fjármagn sem lagt var í menningar- Útlönd Vladimir Zhivkov, sonur fyrrum leiðtoga Búlgaríu, var þekktur fyrir spilafikn í heimalandi sínu. Nú, þegar fjölskyldan er fallin i ónáð, vill almenningur vita hvaðan Vladimir fékk um tvær milljónir Bandaríkjadollara sem hann tapaði við rúllettuborðið. sjóð sem stofnaður var efitir lát dóttur Zhivkovs, LyudmUu. Búlgarskir blaöamenn segja að peningar á reikningum í Sviss hafl „horfið" eða þeim verið eytt í vitleysu á meðan verðmætum listmunum hafi verið smyglað úr landi. Hér fyrrum tók enginn í forystu landsins - hvað þá fjölmiðlar eða aðrir - á ásökunum um shka spiU- ingu. Blaðamaðurinn Georgi Tambi- tiuv var rekinn úr staríi og vikið úr flokknum fyrir tveimur árum fyrir að rannsaka meinta spillingu ráða- manna. Nú, eftir að Petar Mladenov tók við stjómartaumunum af Zhiv- kov hefur Tambitiuv aftur á móti verið tekinn í náðina fá ný. Financial Times SLAUM A DYRTIÐiriA Bcrbcr Iyklýuteppí i þremur lítum, brúnbeíge, grá og beíge, meðan bírgðír endast á aðeins Euro Visa raðgreiðslur: Engin útborgun 1. afborgun í janúar 1990 Útsölustaður í Keflavík: Járn og skip Dæmi um verð: /y(miðað við staðgreiðslu) kr. 5.950,- 30 m2 kr. 17.850 kr. 11.900,- 40 m2 kr. 23.800 BYGGINGAMARKAOUR VESTURBÆJAR Hringbraut 120, sími 28600. Teppadeild s. 28605 «J HUL Æ KIMINO AB Ú0 I IM PÓSTKRÖFUSALA - SMÁSALA - HEILDSALA. SÍMAR 10262 - 10263. LAUGAVEGI 25. Paul George, franskur veitahússeigandi, bragðar á fyrstu dropum nýja beaujolaisvínsins í ár. Simamynd Reuter Nýja beaujolaisvínið: 50 milljónir flaskna fluttar til 80 landa Le beaujolais nouveau, nýja beau- jolaisvínið, hefur runnið í stríðum straumum á börum víðs vegar um heiminn í heila viku. Fullyrt er að framleiðslan í ár sé besti árgangur- inn í mörg ár. En besta árið getur einnig orðið síðasta stóra árið. Beaujolaisvín árs- ins, sem reyndar þykir vera með þananaþragði, er einstakt að gæðum en þeirra verður ekki vart fyrr en eför nokkur ár. Og sums staðar eru menn farnir að velta því fyrir sér hvort sirkusinn með hið nýja vín sé ekki bara bruðl. Vegna þess hve árið í ár var gott vínár og hversu mikil eftirspurn er eftir víninu hafa ræktendur og heild- salar hækkað verð þess um 30 pró- sent. En ef gæðin í flöskunum stíga ekki í takt við verðið er hætta á að gamanið sé búið. Vínkaupmenn eru farnir að verða órólegir og sumir jafnvel ófúsir að birgja sig upp af miklu víni. Um 60 prósent af nýja beaujolaisvíninu, eða 50 milljónir flaskna að því er talið er, eru flutt til 80 landa með sérstök- um leiguflugvélum, í bátum og vöru- bílum en í Bretlandi hafa margir kaupmenn hikað við að panta jafn- mikið og venjulega. Vínræktendur eru farnir að velta því fyrir sér, kannski ekki í fullri alvöru, hvort þeir hafi ef til vill hlaupið á sig. Það gætu verið slæm viðskipti að flytja úr landi óþroskað vin um allan heim þegar flöskurnar góðu gætu í staðinn legið og vínið þroskast og orðið dýrara og dýrara. Góöa árið í Beaujolais gæti orðið árið þegar „alvöru" beaujolaisvínið upp- götvaðist á nýtt og vínræktendur fóru að hugsa sinn gang. Japanir hafa smitast af áhuganum á nýju víni og dagar beaujolais nouv- eau eru ekki taldir. Enn er nóg til af því en maður þarf kannski að grípa tækifæriðáðurentískanbreytist. TT ________m________m______ Þaðgerasér ekki allir grein fyrir því, hvað það er þýdingar- mikiðfyrir heils- unaaðlátasér ekki verða kaK. íslenska ullin er mjög góð og er betri en allt annað, sérstaklega í miklum kulda og vosbúð. En í dag feröumst við á milli heimilis og vinnustaðar í bilum og förum frá hlýjum heimilum okkar á hlýja vinnustaöi. Þessar stuttu ferðir geta verið ansi kaldar og jafnvel öriagarikar ef við verjum okkur ekki fyrir kuldanum. Hér kemur silkið sem lausnin. Silkið er mjög hlýtt en aldrei óþaegilega hlýtt; það bókstaflega gælir við hörundið. Silkið er örþunnt og breytir því ekki útliti ykkar. Þið verðið áfram jafn grönn þótt þið klæðist því sem vöm gegn kulda. Því er haldið fram í indverskum, kínverskum og fræðum annarra Austurtanda að silkiö vemdi likamann í fleiri en einum skilningi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.