Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1989, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1989, Page 13
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1,989. pv________________________Lesendur Við erum líka fólk! Myndu vörur hækka í verði e< opið væri á sunnudögum? - Ekki er svo á laugardögum. Þóra Þorgeirsdóttir og Helga Jó- hannsdóttir skrifa: Við erum hér tvær vinkonur sem getum ekki orða bundist vegna skrifa M.J. í DV þann 15. þ.m., þar sem farið er fram á að allar versl- anir verði opnar á laugardögum og sunnudögum! - Það er auðheyrt að þú hefur, Margrét, aldrei unnið í verslun eða þekkir þar nokkuð tii. Þú segir að þú „nennir" ekki að rífa þig upp á laugardagsmorgnum til að versla. Hvað megum við verslunarfólk segja, sem rífum okkur upp hvern laugardagsmorg- un? - Og aldrei er talað um að við þurfum líka að versla! Við vinnum í matvöruverslun og fmnst nóg að vinna frá 9-6 virka daga, og 9-12 og stundum til kl. 4 á laugardögum. í flestum tilfellum eru það húsmæður sem stunda verslunarstörf og þær þurfa að hugsa um sitt heimili og fjölskyldu líka. Tökum dæmi um konu sem á þrjú lítil börn. Hún vinnur frá kl. 9-6 alla daga og er komin heim, í fyrsta lagi kl. 18.30. - Þá eru öll heimilisstörfin eftir. í desember er svo opið til kl. 6 og stundum til kl. 10 á kvöldin og á Þorláksmessu til kl. 23. Hvenær eigum við að und- irbúa.jólin? Viö, verslunarfólkið, erum ekki tilbúin tii að fórna okkar eina frí- degi, sunnudeginum, til að þjóna fólki sem ekki „nennir" að rífa sig upp. Hvað myndi breytast ef versl- anir hefðu opið um helgar? Vörur myndu hækka í verði. Og eitt er það, Margrét, sem þú hefur alveg gleymt, því, að við sem vinnum verslunarStörf erum líka fólk, sem langar til að vera með sínum fjöl- skyldum um helgar. Hér með leggjum við til að versl- anir verði einungis opnar virka daga frá kl. 9-6 og á laugardögum frá 9-12 - ekki mínútu lengur. - Þeir sem ekki „nenna“ að rífa sig upp, geta bara átt í skápnum hjá sér Cheerios til að borða á sunnu- dögum. Ósigur Alþýðubandalagsins Einar Árnason skrifar: Mér þótti vænt um að heyra að flokkurinn sem ég hefi lengstum stutt ætlaði að taka sér tak og nota tækifærið til aö finna sér þann farveg sem hann heföi átt að vera búinn að finna fyrir nokkrum árum, þegar séð var hvert stefndi. - Nú var ekki seinna vænna að taka af skarið. Ég hélt sem sé að landsfundur Al- þýöubandalagsins um sl. helgi myndi samhentur taka af skarið og sýna okkur stuðningsmönnum að flokk- urinn játaðist að fuilu og öllu undir þá stefnu jafnaðarmanna sem Al- þýðubandalagið hefur mestmegnis fylgt aUra síðustu árin. - Þar hefur ekki greint á við Alþýðuflokkinn svo neinu nemi. Það hefði því verið ákjósanlegur vettvangur að lands- fundur hefði haidið áfram á þeirri braut sem sjálfkrafa hefur verið mörkuð að undanförnu með breyttri forystu. En hér fór öðruvísi en flestir von- uðu. Einn harðasði fylgismaður ein- angrunar og stöðnunar í flokknum, núverandi samgöngu- og landbúnað- arráðherra, lét hafa sig til þess óynd- isúrræðis að bjóða sig fram til vara- formanns gegn ágætum félaga og veikja þar með alla möguleika á áframhaldandi sókn hinna frjáls- lyndari afla, sem þó eru í meirihluta Alþýðubandalagsins í dag. Eg get ekki séð að þetta frumhlaup samgöngu- og landbúnaðarráðherr- ans sé neitt annað en mistök og þau hrapalleg, bæði fyrir hann sjálfan og flokkinn í heild. Ég verð að harma þessa niðurstöðu og tel þetta mikinn ósigur fyrir Alþýðubandalagið. Ég vona hins vegar að varaformaðurinn sjái þó mistökin og snúi frá þeirri einangrunarstefnu sem hann hefur fylgt í atvinnumálum, m.a. uppbygg- ingu ýmissa þátta í byggðamálum og komi þar með ekki í veg fyrir áfram- haldandi skrið flokksins í lýðræðis- átt. - Á allra næstu dögum verður að koma í ljós hvert Alþýðubanda- lagið stefnir, hvort það rífur sig upp úr einangruninni eða dagar uppi sem nátttröll sakir íhaldssemi við úreltar kenningar. JOLAGJATAHANDBOK 1989 Fimmtudaginn 7. desember nk. mun hin árlega Jóla- gjafahandbók DV koma út í 9. sinn. Jólagjafahandbók DV hefur í sívaxandi mæli orðið ríkari þáttur í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar að fínna hundruð hugmynda að gjöfum fyrir jólin. Skilafrestur auglýsinga er til 28. nóvember nk. en með tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsend- um bent á að hafa samband við auglýsingadeild DV hið fyrsta í síma 27022 svo unnt reynist að veita öllum sem besta þjónustu. Auglýsingadeild Þverholti 11, sími 27022 NÝTT Á ÍSLANDI! ÓTRÚLEGAR ÞRÍVÍDDARMYNDIR, SKARTGRIPIR OG LEIKFÖNG. ALLT GERT MEÐ LEYSI-TÆKNI. ÖÐRUVÍSI JÓLAGJAFIR. RAUNMYND Skólavörðustíg 6B EÐJANDI OG BRAGÐGOTT LLAR MATARÁHYGGJUR ÚRSÖGUNNI MlHIÉIÍS Heildverslun, STiÍIbBS Þin9asel' 8, ~1 1111111 Sími 77311 Vahdaðurbæklingurmeðupp- * —^ lýsingum og leiðbeiningum á íslensku fylgir. FÆST Í APÓTEKUM OG BETRI MÖRKUÐUM, 5 dagamegrun,sem UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Wr'- s r/ W \ ;J V ÍSm W- Y i 1 1 \ : •;í«a^R ' C; k gia 1 :•? • .'JFZ'’ é v »• • •; •>«■-;• | ' 1» Ký '•***> ' ú, j/MM ~ip :• ■ f ■ t á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.