Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Síða 2
 Fréttir FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989. Opinberir starfsmenn og Alþýöusambandið: Mun meiri skattahækkun en ráðuneytið viðurkennir - launþegasamtökin taka undir fréttir DV af skattahækkununum Aukin skattabyrði Miðað er við 150.000 kr. tekjur á mánuði 8000 6000 4000 2000 0 * Mióad er vió hjón meó trii hörn þar sem annaó hurnió er yngra en sjö ára. Einstaklingar Einstættforeldri Hjón* Bæði Alþýöusamband íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hafa sent frá sér athugasemdir vegna kynningar fjármálaráðuneytisins á skattahækkunum um áramótin. Bæði þessi samtök launþega telja hækkun tekjuskatts mun meiri en ráðuneytiö vill vera láta. Hagdeild Alþýðusambandsins tek- ur undir þá gagnrýni á framsetningu fjármálaráðuneytisins, sem birst hefur í DV, í fyrsta lagi vegna þess að ráðuneytið notar skattbyrði í des- ember sem viömiðun frá núgildandi tekjuskatti en persónuafsláttur des- embermánaöar hefur lágmarksverð- gildi. Þá gagnrýnir hagdeildin ráðu- neytið fyrir að halda fram að ekki sé raunhæft að hækka persónuaf- slátt og bamabætur í takt viö láns- kjaravísitölu. Hagdeildin heldur því þvert á móti fram að um slíkt hafi verið samið þegar staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp. 40 prósent hærri skattar Hagfræðingar Alþýðusambandsins taka síðan nokkur dæmi og kemur skýrt fram í þeim hversu lítið fjár- málaráðuneytið hefur gert úr skatta- hækkununum. Þannig segir ráðu- neytið að einstaklingur með 150 þús- und krónur á mánuði fái 1.500 króna skattahækkun en Alþýðusambandið metur hana á 2.400. Skattgreiðslur þessa manns hækka um 9,6 prósent en ekki um 5,6 prósent eins og ráöu- neytiö hélt fram. Ef miðað er við að persónuafslátturinn héldi í við láns- kjaravísitölu yrði skattahækkunin enn meiri eða 14,1 prósent. Munurinn verður enn meiri ef mið- að er við hjón með tvö börn með sömu tekjur. Samkvæmt mati ráðu- neytisins yrði skattahækkunin 2.600 krónur á mánuði en 4.500 krónur samkvæmt mati Alþýðusambands- ins. Skattgreiöslur hjónanna hækka því um 10,4 prósent en ekki 5,6 pró- sent. Ef miðað er við lánskjaravísi- töluna hækka skattgreiðslumar um . 17,1 prósent. Hækkunin er hins vegar hlutfaUs- lega mest hjá einstæðum foreldrum. Samkvæmt útreikningum ráðuneyt- isins hækka skattar einstæðs for- eldris með tvö börn og 150 þúsund krónur á mánuði um 500 krónur en Alþýðusambandsins um 1.950 krón- ur. Þetta þýðir að skattgreiðslumar hækka um 16,7 prósent en ekki 3,8 prósent eins og ráðuneytið hefur haldið fram. Miðað við lánskjaravísi- tölu er hækkunin enn meiri eða 39,6 prósent. Enginn jöfnuður Bandalag starfsmanna ríkis og bæjar gagnrýnir ráðuneytið út frá öðrum forsendum. Hagfræðingar bandalagsins telja þær forsendur, sem liggja að baki útreikningum ráðuneytisins, einfaldlega rangar. Þeir búa því til sínar eigin forsendur. i Ef gert er ráð fyrir aö kaupmáttur haldi sér-á næsta ári verður skatta- hækkun á opinberan starfsmann með meðallaun um 2.730 krónur á mánuði. Það jafhgildir því að skattar hans hækki *tun 18,7 prósent. Ef kaupmátturinn verður hins vegar lægri, eða eins og á seinni hluta þessa árs, verður skattahækkunin um 16,9 prósent en ef kaupmátturinn rýmar Skattahækkanir einstaklings. 12-21 % Fjármála- BSRB ráðuneyti Miðað við tæplega 90 þús. kr. mánaðartekjur. um 4 prósent hækka skattgreiöslurn- ar hjá þessum meðalmanni um 12,6 prósent. „Ef tekjuskattshækkunin á að koma verulega betur út fyrir lág- tekjufólk en aðra verða kauphækk- anir að vera mjög litlar. Líklega mun tekjuskattsbreytingin hafa svipuð áhrif á ráðstöfunartekjur allra hópa,“ er niðurstaða hagfræðinga opinberra starfsmanna um jöfnunar- áhrifskattahækkananna. -gse Slappað af i stofunni. Sæmundur hefur það náðugt heima í stofu og les fréttir i DV. DV-mynd GVA Sæmundur Sigmundsson sérleyfishafi: Með T-Ford í stofunni - þetta er hægt þar sem ég er einhleypur „Ég keypti bílinn fyrir um tveimur árum. Það hefur fariö mikill tími í að koma honum í upprunalegt ástand. Ég gæti trúaö að hann hefði kostaö mig um tvær milljónir," sagði Sæmundur Sigmundsson, sérleyfis- hafi í Borgamesi. Sæmundur hefur sett T-Ford, ár- gerð 1927, inn í stofu í einbýlishúsi sínu í Borgamesi. Að sjálfsögðu er bíllinn ökufær. Hann er á skrá og því greiðir Sæmundur tryggingar af honum sem hverjum öðmm bíl. Sæmundur segir það meira vanda- mál að geyma gamla bíla en gera þá upp. „Þetta væri ekki hægt nema vegna þess aö ég er einhleypur. Ég hef sér- pantað talsvert í bílinn frá Banda- ríkjunum til að gera hann sem glæsi- legastan. Það em speglar undir hon- um svo hægt sé að skoða undirvagn- inn með góðu móti. Ég á eftir að setja meira af ljósum við bílinn svo hægt verði að lýsa hann upp,“ sagöi Sæ- mundur. Sæmundur er mikill bUamaður. Hann á yfir 20 bfia. Þar á meðal er T-Fordinn, Ford rúta frá árinu 1947 og óuppgerður Fordvörubíl, árgerð 1929. Sæmundur á margar rútur og hefur haft mest ellefu rútur við íbúð- arhús sitt. Hann er ekki viss um að hann geri vömbíhnn upp þar sem mikill tími og miklir peningar fara í þetta áhugamál hans. T-Fordinn hef- ur kostað um tvær milljónir króna. -sme/GVA Skuldir Kópavogsbæjar eru rúmur milljarður: Vaxtagreiðslur eru 15 Skuldastaða bæjarsjóðs Kópavogs er erfið. Nú skuldar bæjarsjóður 1100 milljónir króna. Bæjarfulltrúi minnihlutans segist reikna með aö skuldimar verði orönar 1200 til 1300 milljónir 1 árslok. Þetta kemur fram í kjallargrein Guðna Stefánssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, sem birtist í DV í dag. Guðni segir einnig að lántökur bæjarsjóðs á þessu ári séu orðnar 276,4 milljónir, þrátt fyrir að stefnt hafi verið að því að hafa þær 202,5 milljónir. Eins segir Guðni að meiri- hlutinn, sem samanstendur af full- trúum Alþýöubandalags og Alþýðu- flokks, hafi ætlað að minnka skuld- imar um 91 milljón króna. Það hafi ekki tekist heldur hafi þær hækkað um 215 milljónir króna það sem Er er þessu ári. „Það gefur auga leið að það er dýrt fyrir Kópavogskaupstað að vera svo háður fjármagnsmarkaðnum. Vextir verða vel á þriðja hundraö mfiljónir króna á þessu ári hjá bæjarfélaginu. Átta menn sig á að hér er verið að tala um vaxtagreiðslur og veröbætur sem nema nærri 15 þúsund krónum á hvem íbúa í Kópavogi, jafnt unga þúsund sem gamla? Em þessar greiðslur svo þungur baggi að þær em orönar þriöji hæsti útgjaldaliður bæjarins, skammt á eftir félagsmálum og fræðslumálum," segir meðal annars í kjallagrein Guöna. Hann segir að eftir standi sú stað- reynd að illa hafi verið staðið að fjár- málum Kópavogs á undanfómum ámm og aldrei sem nú. á íbúa „Það er töluverð skuldasöfnun. Það er mjö erfið innheimta á gjöldum og það hefur komið illa við okkur, eins og önnur sveitarfélög. Ég vil ekki svara þessum tölum Guðna Stefáns- sonar fyrr enn ég hef kýnnt mér þetta betur. Ég hef ekki allar þessar tölur í kolhnum. Eflaust verður þessu svarað,“ sagði Kristján Guðmunds- sonbæjarstjóriíKópavogi. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.