Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989. Fréttir Haust-loðnuvertíðin er fyrir bí: Tæpir tveir milljarðar flognir út um gluggann - veðurfarslegt kraftaverk þarf til að kvótinn náist á vetrarvertíðinni Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra skenkir kaffi í upphafi fundar með hagsmunaaðilum í gærmorgun. Þar var ákveðið að afturkalla ekki veiðileyfi loðnuveiðiskipanna. DV-mynd GVA Þegar 75 prósent þjóðarteknanna okkar eru fyrir sjávarfang er þaö ekki nema von að þjóðin standi á öndinni þegar ljóst er að haust- loðnuvertíðin er að bregðast. Það eru ekki nema 16 dagar til jóla og jafnvel þótt loðnan gæfi sig um helgina og það sem eftir lifir ársins er Ijóst aö vertíðin hefur brugðist. Reiknað var með að um 250 til 300 þúsund lestir myndu veiðast á haustvertíðinni af þeim 662 þúsund lestum sem heild- arkvóti loðnuvertíðarinnar er. Loðnuvertíðin stendur frá 1. ágúst til 'oka mars. Tveir miiijarðar farnir Ef við gerum ráð fyrir lægri tölunni, 250 þúsund lestum, er fram- leiðsluverðmæti þess magns 1,7 milljarðar króna. Það er því ljóst að tæpir tveir milljarðar króna eru flognir út um gluggann, ef svo má að orði komast. Útflutningsverðmæti sjávarafurða okkar á þessu ári er áætlað um 55 milljarðar króna, sem er um það bil 71 prósent af þjóðar- tekjunum. Því geta allir séð að þessir tveir milljarðar taka í svo um munar. Ekki má heldur gleyma því ógnar- tjóni sem þorskstofninn hér við land verður fyrir komi loðnan ekki. Loðna er uppistöðufæða þorsksins. Eflaust man fólk hvernig fór þegar loðnu- stofninn hrundi 1983 og 1984 og af- leiðingar þess. Annað eins högg gæt- um við fengið nú bregðist loðnan. Ýmsir spá því að mörg fyrirtæki verði gjaldþrota vegna þessa. Aðal- steinn Jónsson, útgerðarmaður Eskifirði, eða Alli ríki, eins og hann er kallaður, sagði í samtah við DV að hann hefði ekki trúi á því að loðnuverksmiðjur eða útgerðir yrðu gjaldþrota vegna þessa. Hann sagði bæði banka og ríkisvald vera hðleg og taka tillit til þess þegar svona ger- ist. Hann sagðist því ekki vera trúaö- ur á að þessir aðilar, einn eða fleiri, yrðu gjaldþrota, en þeir myndu standa mjög iha, margir hverjir. Samkvæmt heimildum DV eru það einkum minni útflytjendur loðnuaf- urða, sem gert hafa fyrirframsamn- inga, sem munu fara Ula út úr afla- leysinu. Sumir eru sagðir verða gjaldþrota vegna loðnubrestsins. Út- gerðir og loðnubræöslur munu allar lenda í einhveijum, en mismiklum, erfiðleikum á næstu mánuðina. Loðnan deyr eftir hrygningu Loðnan er að því leyti öðruvísi eri aðrir fiskar að hún deyr aö lokinni hrygningu. Þaö er því ekki hægt að veiða hana aUt árið um kring eins og annan fisk. Um það var lengi deUt hvort hún yrði kynþroska tveggja eða þriggja Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson árajafnvelfjögurraára. Númunþað sannað að loöan hrygnir þegar hún er þriggja ára, síðan deyr hún. Hrygningarstöðvar hennar eru fyrir Suðurlandi. Loðnan hrygnir siöari hluta mars og í byijun apríl. Þegar aUt er eölUegt kemur hún norðan úr höfum aö Vestfjörðum og gengur síðan austur með landinu, fyrir Austfirði og fyrir Suðurland, þar sem hún hrygnir. Það kemur einnig fyrir að eftir að hún kemur aö Vestfiörðum fari hún vesturleið- ina tU hrygningarstöðvana. Það er einmitt gangan frá Vest- fiörðum og austur með landinu sem nú hefur brugðist. Hvað varð af loðn- unni, hvert fór hún? Þetta er stóra spurningin í dag. Þetta veit enginn með vissu. Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, hefur verið með þá getgátu að hluti loðnunnar hafi hrakist með straumum suður með austurströnd Grænlands og geti því komið vesturleiðina svoköUuðu seinna í vetur. Einnig eru uppi get- gátur um að hún haldi sig enn í köld- um sjó út af Vestfiörðum, þar sem ekki hefur verið hægt að leita hennar vegna hafíss. Strandar á bræðslugetunni Það sem af er haustvertíð hafa um 37 þúsund lestir af loðnu veiöst. Það er þvi eftir að veiða um 623 þúsund lestir af heUdarkvótanum. Það eru ekki nema rétt um 100 dagar eftir áramótin sem skipin og loðnu- bræðslumar hafa til að ná þessum afla. Alls hafa 47 skip leyfi til loönuveiða og burðargeta flotans er á mUIi 37 og 38 þúsund lestir. Bræðslugeta allra loðnuverksmiðja landsins er aftur á móti ekki nema um 10 þúsund lestir á sólarhring. Miðað við að skip- in geti verið að aUa dagana í janúar fram í byijun apríl eru tölfræðUegir möguleikar á að ná kvótanum og það eru jafnvel tölfræðUegir möguleikar á að bræðslumar nái að vinna afl- ann. Ef tíminn, sem fer í að sigla til lands og á miðin afitur og hugsanleg lönd- uharbið, er tekinn með í reikninginn er varla von til þess að kvótinn ná- ist. Og svo verður að taka vetrarveðr- in með í reikninginn. Það væri rétt eins og að vinna milljón í happ- drætti ef ekki yrði landlega einhveija daga frá því í byrjun janúar og fram í byrjun apríl. Og aUt byggist þetta á því að loðnan láti yfirhöfuð sjá sig. Aðalsteinn Jónsson sagði að það væri aUs ekki útilokað aö loðnan yrði veiðanleg einhver næstu daga. Ef svo færi væri hægt aö rífa upp og bræða rúmlega 100 þúsund lestir fyr- ir áramót, miðað við að flotinn stoppi aðeins 3 daga um jól og 2 daga um áramót. Þetta er eflaust rétt, en bygg- ist þó á „ef að sé og ef að mundi“. Hrottalegt högg fyrir sjómenn Hér hefur veriö minnst á hve Ula það kemur við útgerðina, loðnu- bræðsluna og mjölseljendur ef loðn- an gefur sig ekki. Það kemur ekki síður Ula við sjómennina og fiöl- skyldur þeirra. Eins og áður segir má veiða loðnu frá 1. ágúst en venjulega veiðist hún ekki fyrr en undir lok september, byrjun október. Sjómenn á loðnu- skipunum geta-því ekki verið að nema 6 tU 7 mánuði á ári. Þeir verða velflestir að taka árstekjurnar sínar á loðnuvertiðinni. Þeir hafa og góðar tekjur þegar vel veiðist. Gera má ráð fyrir að stór hluti þeirra hafi gert fiárskuldbindingar fram í tímann og reiknað með venju- legum tekjum af þessari haustvertíð, sem nú hefur brugðist. Ofan á allt bætist að þeim verður öUum sagt upp með eins til þriggja vikna fyrirvara ef skipin sigla í land á næstu dögum. Fram tU þessa hafa þeir aðeins haft tekjutryggingu, sem nemur 60 þúsund krónum á mánuði. Því er ljóst að margt sjómannsheimilið mun líða fyrir dynti loðnunnar að þessu sinni. Það er nokkuð sama hvemig á máhð er litið. Tiónið, sem hlýst af loðnuleysinu, er mikið og á eftir að snerta okkur öll á næstunni, nema mUljónin, sem fyrr var minnst á, vinnist í happdrættinu. -S.dór Birgðir af laxi hlaðast upp í Japan Fiskur seldur úr gámum frá 27.11. til 1.12. Sundurliðun eftirtegundum: Selt magn kg Verð í erl. mynt Meðalv. pr. kg Söluv. isl. kr. Kr. pr.kg Þorskur 860.355,00 862.445,20 1,00 84.157.959,33 97,82 Ýsa 429.370,00 483.720,20 1,13 47.230.194,72 110,00 Ufsi 22.770,00 14.416,20 0,63 1.408.120,90 61,84 Karfi 20.710,00 12.384,50 0,60 1.209.421,41 58,40 Koli 80.702,50 85.956,60 1,07 8.401.443,01 104,10 Grálúða 13.950,00 11.561,80 0,83 1.127.736,79 80,84 Blandað 129.018,38 123.821,48 0,96 12.084.529,35 93,67 Samtals 1.556.875,88 1.594.305,88 1,02 155.619.395,76 99,96 England Mikið framboð hefur verið á ís- lenskum fiski að undanförnu og hef- ur meðalverðið jaðrað við 1 sterUngs- pund fyrir kUóið. Bv. Otto Wathne seldi í Hull 1. des- ember alls 89 lestir fyrir 9,528 miUj. kr. Meðalverð 106,28 kr. kg. Bv. Gjaf- ar seldi í Grimsby aUs 81,9 lestir fyr- ir 7,539 mUlj. kr. Meðalverð 91,78 kr. kg. Fisksölur úr gámum hafa verið aU- miklar að undanfömu. Selt var 4.12. 1989 aUs 445.891 tonn fyrir 46,111 miUj. kr., meðalverð 109,41 kr. kg. í þessari sölu voru 202 tonn af þorski sem seldist á 97,65 kr. kg. 154 tonn vom ýsa, meðalverð var 110,02 kr. kg. 46 tonn af kola seldust fyrir 113,08 kr. kg og 25 tonn af blönduðum flat- fiski seldust fyrir 114,69 kr. kg. Ann- ar fiskur fór á lægra verði. 5.12. voru seld alls 409,814 tonn úr gámum fyrir 39,730 mUlj. kr. Meðalverð %,95 krl kg. Meðalverð var svipað á flestum tegundum og daginn áður. Þýskaland Bv. Ottó N. Þorláksson seldi í Bremerhaven 30.11.1989 aUs 205 lest- ir fyrir 17,6 miUj. kr. Meðalverð 86,13 kr. kg. Bv. Engey seldi í Bremer- haven 5.12. aUs 302 tonn fyrir 25. milfi. kr. Meðalverð 82,71 kr. kg. Bv. Skafti seldi í Bremerhaven 6.12 1989 alls 157 lestir fyrir 12,775 mUfi. kr. Meðalverð 81,34 kr. kg. Evrópubandalagið Fiskveiðar í Norðursjó skornar verulega niður. Fiskimenn, sem stunda veiðar í Norðursjó, eru mjög uggandi um sinn hag. í seinustu þáttum hér í blaðinu hefur verið sagt frá því hvemig Hollendingar hafa brugðist við samdrætti í veiðum á heimamið- um. Einnig hefur verið sagt frá veið- um Englendinga við Falklandseyjar. Mjög bráölega mun Evrópubanda- lagið birta hveijar fiskveiðiheimildir Fiskmarkaöir Ingólfur Stefánsson í EB-löndunum verða á næsta ári. Fiskifræðingar hafa ráðlagt að minnka ýsuveiðar um 68.00 tonn og veiðin verði aðeins 50.000 tonn á næsta ári. Sjávarútvegsnefnd EB hefur miklar áhyggjur af alltof stór- um flota og mun nefndin skerða veiöiflotann verulega. í ár var þorskafli Skota skertur um 20% og ufsaafli um 60%. Ekki er búist við mikilli samúð hjá sjávarút- vegsnefndinni. Haft er eftir sjávarút- vegsráöherra Breta að hann geti ekki lagt á sig að tala um það sem ekki sé til. Sjávarútvegsráðherrarnir hafa komið sér saman um lágmarksverð á fiski á næsta ári og þegar þannig fer að ekki fæst lágmarksverð fyrir aflann verður mismunurinn bættur. Reglan hefur verið sú að fiskur, sem ekki selst á lágmarksverði, héfur far- ið í fiskimjölsframleiðslu. Japan Miklar birgðir eru riú í geymslum af flestum tegundum fisks í Tokýo. Birgðir af laxi jukust um 52,5% síð- ustu mánuði, ennfremur hafa aukist birgðir af smokkfiski en minnkað heldur af rækju. Nýlega hækkaði verð á ferskri rækju og var það vegna þess að veið- amar drógúst saman. Það hefur ekki enn sem komið er haft áhrif á verð á frystri rækju. Mikil umsetning er á mörkuðum í Japan og algengt að um 3000 tonn af alls konar fiski séu á markaðnum dag hvern. New York Jólastemmning er yfir öllu á mark- aðnum hjá Fulton nema verðinu. Markaðurinn er skreyttur jólatrjám og svo hefur snjóað og umhverfið orðið miklu jólalegra. Enn er verðið mjög lágt og ekki að sjá að úr rætist þvi mikið berst að af fiski, en annar fiskur en lax stend- ur þokkalega. Framleiðendur kenna Norðmönnum um þetta mikla verð- fall sem orðið hefur á laxi, en laxinn berst víöar að en frá Noregi, hann kemur frá Chile, Bresku Columbíu, Skotlandi og fleiri löndum, en eldis- mönnum ber saman um að Norð- menn hafi verið með mikil undirboð og nánast selt á hvaða verði sem er til að losna við laxinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.