Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989.
7
Fréttir
Forsætisráðherra:
Ekki óskynsamlegt
að sveitarfélögin
annist löggæsluna
„Eg hef oft lýst þeirri skoðun
minni að ég tel ekki óskynsam-
legt að sveitarfélögin annist lög-
gæslu, eins og var áður í Reykja-
vík. Það yrðu þá að vera sveitar-
félögin í öllum landshiutum. Þá
er auðvitað spurningin hvernig
verðiir kostnaður við slíkt bor-
inn,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í
samtali við DV.
Borgarráð hefur óskað eftir að
viðræður heíjist eins fljótt og
auðið er við lögreglu- og dóms-
málayfirvöld um tafarlausar úr-
bætur í löggæslumálum höfuð-
borgarinnar. Davíð Oddsson
borgarstjóri sagði við DV að borg-
arráð teldi ekki óskynsamlegt að
borgin yfirtæki löggæslu í
Reykjavík að nýju eftir að þau
mál hefðu verið í höndum ríkis-
valdsins síðan 1973.
„Varðandi viðræður borgar-
ráðs við dómsmálaráðherra um
að löggæsla verði aftur í umsjá
borgarinnar þá hefur það mál
ekki borist til mín og ég er ekki
viss um að það veröi,“ sagöi
Steingrímur.
Forsætisráðherra sagði að-
spurður um seinvirkt réttarkerfi
og afbrotamenn sem ganga lausir
í langan tíma þar til þeir hijóta
dóm: „Það þarf eitthvað að gera
til að flýta fyrir í þeim málum.
Afgreiðsla í dómskerfinu tekur
allt of langan tíma. En ég bendi
hins vegar á samþykkt laga á
Alþingi í fyrra sem miðaði að því
að tilteknum málum yrði flýtt.
Þær breytingar áttu að taka gildi
á tveimur árum og hafa ekki
komist í framkvæmd ennþá,“
sagði Steingrímur.
Viðræður eðlilegar
„Það er fullkomlega eðlilegt að
dómsmálaráðuneyti ” ræði við
sveitarfélög um löggæsluþörf og
skiptingu á kostnaði - og kanni
hverjar óskir manna í viðkom-
andi sveitarfélagi eru,“ sagði
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, í samtali við DV.
„Kerfið_yar þannig þar til árið
1973 að ríki og sveitarfélög skiptu
kostnaði með sér,“ sagði Böðvar.
„En það er fyrst og fremst mál-
efni ríkis og sveitarfélaga að ræða
stefnumótanir vegna löggæslu.
Þess vegna eigum við ekki að
segja skoðun okkar á þessu. Hins
vegar er eðhlegt að álits verði leit-
að hjá lögreglunni um fjölda
starfsmanna með tilliti til starfs-
aðferða svo hægt verði að halda
uppi hæfilegri löggæslu," sagði
Böðvar Bragason.
-ÓTT
TILBOÐ
TRARINS
*”*$/»**..
\estvtf
Stö'
OIQITAL SYfJTHESl/En TUN6R TU-X701
15—20% jólaafsláttur.
í yfír tuttugu úr hafa liljómtækin frá Sansui þjónáð dyggilega
þúsundum Islendinga. Sansui tækin eru arináluð fyrir einstök
hljómgæði, ótrúlega endingu og glæsilega hönnun.
Sansui fjárfesting til framtíðár.
Vi
• SKIPHOLT 7 * SÍMI62 25 55 *