Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Page 11
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989. 11 Sviðsljós Þeir frægu og ríku... Ber Don Johnson konuna sína? Þeir frægu og ríku... Frumsýningin á kvikmyndinni tmmediate Family var stór stund í lífi heiðursgestanna, hjónanna Paul Michael Glaser og Elísabet- ar eiginkonu hans. Ekki alls fyrir löngu misstu þau Elísabet og Paul dóttur sína af völdum eyönisjúkdómsins og El- ísabet og sonur þeirra hjóna hafa greinst með eyðniveir- una. Glaser hjónin hafa staðið I ströngu við aö safna fé til styrkt- ar eyðnisjúklingum og fjölskyld- um þeirra og allur ágóði af frum- sýningu myndarinnar rann til málefnisins. „Ég er dauðhrædd um. að Don Johnson eigi eftir að gera eitthvað hræðilegt við Melanie, konu sína, og Dakota htla, son sinn. Don er bæði grimmur og ofbeldishneigður og missir stjóm á sér við minnsta tæk- ifæri. Þá ber hann allt sem í kringum hann er,“ segir systir hans, Jamie Skylar, en hún er nú að gefa út bók um samband sitt við hinn fræga bróður sinn og þar kemur ýmislegt misjafnt fram. Ennfremur segist Jamie oft hafa þurft að stilla til friöar á milli Dons og fyrri eiginkonu hans, Patti. „Einhveiju sinni var ég í heimsókn hjá þeim. Eitthvert kvöldið fóru þau út og tóku bam sitt, Jeste, með sér. Þau komu ekki heim fyrr en klukkan sjö næsta morgun og þá var Jeste blautur og hágrátandi. Eg tók bamið og skipti á því og kom því í rúmið. Þegar Don vaknaði einhvem tímann eftir hádegið var hann afar reiður og hótaði að beija mig fyrir að vera að skipta mér af bamauppeldinu og einnig ætlaði hann að lemja Jamie fyrir að vera ekki nógu góð mamma.“ Og systir Dons heldur áfram og segir, „Sem bam var Don fullkominn sadisti, hann elskaði að kvelja mig og yngri bræður sína. Það leið varla sá dagur að hann berði okkur ekki eins og harðfisk. Ástandið skánaði ekki þegar foreldrar okkar skildu því þá fór hann einnig að leggja hendur á móður okkar. Skýringuna á ofbeldishneigð Dons má kannski rekja til þess að faðir hans lagði iðulega hendur á hann þegar hann var bam og unglingur. Hann var mjög taugaveiklaður vegna þessa og langt fram eftir aldri vætti hann rúnið. Mamma okkar barði okkur líka en ný bók væntanleg Don Johnson og Melanie, kona hans. hún gekk þó aldrei eins langt og fað- ir okkar," segir systirin. Því er svo við að bæta að þau systk- ini hafa ekki talast við í tvö ár og litiar líkur á aö þau muni gera það í framtíðinni. Frægð o<J frami eru ekki mikil- vægustu hlutirnir í lífi Mariel Hemmingway sem er barnabarn þess fræga rithöfundar Ernest Hemmingway. Það mikilvægasta í lifi hennar er fjölskylda hennar. Mariel er gift Steve Chrisman veitingamanni og saman eiga þau tveggja mánaða son. Það er ekki annað að sjá á myndinni en að Mariel sé afarhamingju- Leikkonan Jacqueline Bisset var ekkert yfir sig hrifin þegar Ijós- myndarar gómuðu hana á Heat- hrow-flugvelli í karlmannsfylgd. Leikkonan, sem oröin er 45 ára, var þar með Vincent Perez sem er 19 árum yngri en hún. „Við erum par en ykkur kemur það ekkert við,“ sagði Jacqueline við Ijósmyndarana. Skötuhjúin voru á leið til Los Angeles þar sem leikkonan býr. Ekki alls fyrir löngu slitnaði upp úr hjónabandi Jacqueline og rússneska ballett- dansarans Alexander Godunov en þau höfðu verð gift í sjö ár. SAGAN GLEVMIR ENGUM. Ásgeir Jakobsson. Ásgcir segir sögur af sjómönnum og fiskiskipstjórum, sem voru miklir aflamenn og sjósóknarar fyrr á árum, auk sögunnar af skipherra landhelgisgæslunnar, sem Englendingar létu íslenskan forsætisráðherra reka. LÆKNINGAMÁTTUR ÞINN. Harold Sherman. Sherman greinir hér frá tilraunum sínum á lækningamætti hugans og setur fram ráðleggingar fyrir þá, sem þarfnast lækningar. Hann er fullviss um það, að Guðs- krafturinn er til staðar i hverjum manni til að endurvekja hug og líkama. UNDIR HAMRINUM. Grétar Krístjónsson. Reynslusögur gjaldþrota einstaklinga. hér er fjallað um reynslu nokkurra einstaklinga, sem lent hafa í greiðsluerfið- leikum og gjaldþroti. Þetta eru áhrifaríkar frásagnir, þar sem þjáningin og reiðin koma berlega i Ijós. Oft er tekið sterkt tii orða og ýmsir fá kaldar kveðjur. DULRÆN REYNSLA. Guðný Þ. Magnúsdóttir. Frásagnir af dulskynjunum sjö islenskra kvenna. Áhugi á dulrænum fræðum hefur alltaf verið mikill. hér segja sjö íslenskar konur frá reynslu sinni í þessum efnum, greina frá því sem fyrir þær hefur borið í lífinu á þessu sviði og svara um leið ýmsum áleitnum spurningum. OG ENN MÆLTI HANN. Finnbogi Guðmundsson. 20 ræöur og greinar. hér fjallar finnbogi um hin margvislegustu efni, allt frá nýársdagshugleiðingu í hafnarfjarðarkirkju til handknattleiks á fimmta tugnum og frásagnar af ferð til Albaníu. Þá er erindi um Þingvelli og Þjóðarbókhlöðu og sitthvað fleira. SKIPTIR ÞAÐ MÁLI? Árni Grétar Finnsson. Þetta er önnur IjóðabókÁma Grétars. 1982 kom útLeikurað orðum, þar sem voru bæði frumort Ijóð og þýdd. héreru eingöngu frumort Ijóð, sem eru margbreytileg að efni og framsetningu og bera mörg með sér ákveðinn tón, sem sérkennir höf- undinn. Eiríkur Smith myndskreytti. SKUGGSJÁ - BÓKABVÐ OUVERS STEINS SF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.