Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989.
41
Verðkönnun á jólatrjám:
30% verðhækkun milli ára
Jólatréssalar hafa sett sig í stell-
ingar því búist er viö að salan hefjist
um helgina. Úrval er að vanda mikið
en verðið hefur almennt hækkað um
30% milli ára.
DV kannaði verð á jólatrjám hjá
Qórum stærstu aðilum á markaðn-
um. Verðmunur er mestur í kringum
20% á milh staða og þaðan af minni
Neytendur
því hörð samkeppni ríkir í sölu jóla-
trjáa. Blómaval býður normannsþin
á tvenns konar verði eftir gæðum og
er lægra verðið almennt það lægsta
sem býðst.
Á heildina litið má segja að Alaska
sé með jólatré á hagstæðustu verði
og gildir það jafnt um rauðgreni,
stafafuru og normannsþin. í tveimur
fyrstnefndu ilokkunum er Aiaska
alls staðar með lægsta verð eins og
sést í töflunni hér að neðan.
Hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur
í Fossvogi fást lifandi jólatré í pott-
um. Hér er um að ræða sitkagreni,
Blómaval Alaska Land- græðslu- sjóður Skógræktar- félag Rvíkur
Normþinur
0-100 cm 1095-1295 1.150 1.380 1.295
100-125 cm 1465-1765 1.550 1.780 1.765
126-150 cm 1995 2390 2.250 2.400 2.390
151~175cm 2490-2995 2.850 2.950 2.995
176-200 cm 3265-3825 3.600 3.990 3.825
201-250 cm 3946-4670 4.500 4.600 4.670
Rauðgreni
0-100cm 570 550 570 570
101 -125 cm 935 800 930 930
126-150 cm 1.310 1.200 1.300 1.300
151-175cm 1.715 1.800 1.740 1.740
176-200 cm 2.300 2.200 2.310 2.310
201-250 cm 2.800 3.000 2.770 2.770
Stafafura
0-100cm 815 800 790 790
101 -125 cm 1.270 1.200 1.300 1.300 *
126-150 cm 1.820 1.800 1.820 1.820
151-175 cm 2.470 2.400 2.430 2.430 1
176-200 cm 3.300 3.000 3.240 3.240
201-250 cm 3.875 3.600 3.880 3.880
ræktað á staðnum. Hæðin er 80-130 5.700 krónur eftir stærð og gæðum
cm og veröiö frá 3.700 krónum upp í pottanna. Vinsælt er að hafa slík jóla-
tré úti við. Auðvelt er að halda M í
þeim og koma þeim í mold að vori.
í Alaska er boðið upp á rauðgreni
í pottinn. Þetta eru íslensk tré úr
Skorradal og kosta 1.590-2.550 krón-
ur. Ekki er mælt með því að halda
M í þeim en trén halda barrinu mun
betur í potti. Normannsþinur er að
vanda vinsælasta jólatréð enda með
afbrigðum barrheldið. Verðsam-
keppnin er sjáanlega mest í þeirri
tegund. Normannsþinur, 140 cm á
hasð, kostar minnst 1.995 í Blómavali
á lægra verðinu, en mest 2.400 krón-
ur hjá Landgræðslusjóði. Munurinn
er 20%. Veröhækkun milh ára er
27-30%.
Rétt meðferð á jólatrjám
Endann þarf að saga af trénu áður
en því er komið fyrir í fætinum.
Ávallt skal standa vatn í skáhnni
neðst í fætinum. Gott er að úða tréð
með vatni áður en því er komið fyrir
og gæta þess að þaö standi ekki ná-
lægt ofni eða öðrum hitagjafa.
-Pá
____________LífsstOI
Áðventu-
kransar
á 5.000
krónur
Aðventukransar, sem eru fast-
ur þáttur jólaundirbúnings á
flestum heimilum, fást tilbúnir i
blómabúðum á misjöfhu verði.
Mismikið er lagt í þá og eru þeir
ódýrustu fahr fyiir 1.295 krónur
í Blómavah. í Breiðholtsblómi
fást ódýrustu aöventukransarnir
á 1.520 krónur og í Alaska á 1.500
krónur.
Dýrustu aðventukransarnir
kosta um 5.000 krónur enda er
talsvert mikið lagt i þá. í öllum
blómaverslimum fæst efni til
kransageröar. Auövelt er að fá
efni í laglegan aðventukrans með
keiium og öllu saman fyrir um
1.000 krónur. Ánæaan viðaðbúa
hann til sjálfur er síðan ókeypis.
Suða eykur barrheldni rauðgrenis
Rauðgreni hefur verið og er vin-
sælt jólatré. Þó hefur það þótt halda
barrinu iha. Böðvar Guðmundsson,
skógarvörður á Selfossi, hafði sam-
band við neytendasíðuna og benti á
einfalt ráð til þess að auka barr-
heldni rauðgrenis.
Þegar búið er að taka tréð í hús og
þíða það og saga neðstu greinakrans-
ana af til þess að koma trénu í fótinn
er söguð 5 cm sneið neðan af stofnin-
um th þess að fá ferskt sár. Síðan er
trjáendanum dýft í sjóðandi vatn og
haldið þar í 10 mínútur. Notast má
við hraðsuðuketh eöa pott. Ekki er
þörf á að vatnið buhsjóði ahan tím-
ann.
Það sem gerist við suðuna er að
fjöldi vatnsæða opnast í stofninum
sem lokast þegar tréð er höggvið.
Eftir suðuna er tréð sett í jólatrés-
fótinn og mikhvægt er að það skorti
aldrei vatn. Búast má við að tréð
þurfi 3-7 htra af vatni yfir hátíðam-
ar, eftir stærð og hita í híbýlum. Sé
fylgst með vatnsnotkun er fujlyrt að
þessi aðferð tryggi að tréð beri sitt
barryfirhátíðarnar. -Pá
Mælt er með að halda trjáendanum i sjóðandi vatni í 10 mínútur til að auka barrheldni þess.
DV-mynd BG
Þaðgerasér
ekkiallirgrein
fyrir því, hvað
þaðerþýðingar-
mikið fyrir heils-
unaaðlátasér
ekkiverðakaft.
íslenska'ullin er mjög góð og er betri en altt annað, sérstaklega í miklum kulda
og vosbúð. En í dag ferðumst við á milli heimilis og vinnustaðar í bílum og förum
frá hlýjum heimilum okkar á hlýja vinnustaði. Þessar stuttu ferðir geta verið ansi
kaldar og jafnvel öriagarikar ef við verjum okkur ekki fyrir kuldanum. Hér kemur
silkið sem lausnin. Silkið er mjög hlýtt en aldrei óþægilega hlýtt; það bókstaflega
gælir við hörundið. Silkið er örþunnt og breytir því ekki útliti ykkar. Þið verðið áfram
jafn grönn þótt þið klæðist þvf sem vöm gegn kulda. Því er haldið fram í
indverskum, kínverskum og fræðum annarra Austurianda að silkiö vemdi likamann
í fleiri en einum skilningi.
• i 5 > ■■ s-: - rvi i ru « a m ú c* i t\j
PÓSTKRÖFUSALA - SMÁSALA - HEILDSALA. S 10263. LAUGAVEGI 25
Þekkir þú
einhvern sem heyrir illa
í sjónvarpi eða útvarpi?
Kíktu í smáauglýsinga-
dálkinn „TIL SÓLU“,
„Einkahlustarinn“.