Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Síða 27
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989. 43 Afmæli Bjöm Matthíasson Björn Matthíasson hagfræðingur, Ingólfsstræti 21, ReyKjavík, er fimmtugurídag. Bjöm er fæddur í Leipzig í Þýska- landi og bj ó þar öll stríðsárin í for- eldrahúsum þar til snemma árs 1945, þegar Rússar höfðu gert innrás í Þýskaland og auðséð var hvert stefndi, en þá flutti fjölskyldan fyrst til Kaupmannahafnar og kom svo heim með Esjunni þá um sumarið. Sú ferð er fræg orðin fyrir það að með þvi skipi komu fyrstu íslend- ihgarnir heim eftir stríð. I Reykjavík bjó Bjöm til 12 ára aldurs en faðir hans var þá garð- prófastur á Gamla Garði. Gekk Björn í Melaskóla og lauk bama- skólaprófi 1952. Sama ár fluttist fjöl- skyldan í Kópavog og hafa foreldrar Björns ávallt búið þar síðan. Björn gekk í Flensborgarskóla í eitt ár, veturinn 1952-53, en síðan lá leiðin í Verslunarskólann þar sem hann var í sex ár, tók verslunarpróf 1957 og stúdentspróf 1959. Eftir það lá leiðin til Bandaríkjanna til hag- fræðináms en til þess hlaut hann svokallaðan Thomas E. Brittingham styrk. Gekk hann í Swarthmore College í Pennsylvaníufylki og lauk B.A. prófi í hagfræði árið 1961. Eftir það lá leiðin heim til íslands þar sem hann settist í viðskiptafræðideild Háskóla íslands og lauk þaðan prófi í viðskiptafræði eftir þrjú misseri í janúar 1963. Eftir að hafa unnið í Efnahagsstofnun í átta mánuði sigldi hann haustið 1963 aftur til náms, í þetta sinn til Yale háskóla í New Haven, Connecticut, þar sem hann nam enn hagfræði og lauk þaðan meistaraprófi vorið 1964. Að námi loknu 1964 var hann ráðinn hagfræðingur við Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn í Washington D.C. þar sem hann starfaði í nær fimm ár, til vorsins 1969. Þá fluttist hann heim og hóf störf við Seðlabanka f slands sem hagfræðingur. Þar starfaði hann til ársloka 1976 en fékk þá leyfi frá störfum til að ráðast til Fríversl- unarsamtaka Evrópu, EFTA, í Genf og starfaði hann þar í á fimmta ár, til haustsins 1981. Réðst hann þá aftur til Seðlabankans og starfaði þar til vorsins 1988 en fluttist þá yfir til Fjárlaga- og hagsýslustofn- unar þar sem hann starfar nú. Samhliða almenmun störfum hef- ur Björn verið stundakennari við Háskóla íslands um árabfi. Á árun- um 1972-76 var hann aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans þar sem hann kenndi íslenska hagsýslu ann- ars vegar og milliríkjaviðskipti hins vegar. Þá var hann einnig stunda- kennari við verkfræðideild Háskól- ans þar sem hann kenndi almenna hagfræði. Á árunum 1985-’88 var hann aftur stundakennari við verk- fræðideild og kenndi þá þjóðhag- fræði. Björn er höfundur bókarinnar Efnahagslífið og við sem er kennslu- bók í almennri þjóðhagfræði og hag- sýslu íslands. Auk þess hefur Björn ritað fjölda greina í blöð og tímarit innanlands og erlendis um almenn efnahagsmál. Björn sat í stjórn Íslensk-ameríska félagsins 1971-75 og var formaður þess á árunum 1973-75. Hann var einnig í stjóm Neytendasamta- kanna á árunum 1971-’75. Eiginkona Björns er Ema Bryndís Halldórsdóttir, löggiitur endurskoð- andi og framkvæmdastjóri endur- skoðunarfyrirtækisins Stoðar- endurskoðunar og reikningsskila hf., f. 3.8.1951. Hún er dóttir hjón- anna Halldórs Ásmundssonar múrarameistara og Sigrúnar Guð- mundsdóttur. Erna Bryndís og Bjöm gengu í hjónaband 19.6.1983 og eiga tvær dætur, þær Gabríelu Bryndísi, f. 14.5.1986, ogHelgu Bryndísi, f. 19.6.1989. Fyrri eiginkona Björns var Ólöf Benediktsdóttir, f. 11.12.1943. Þau gengu í hjónaband 25.8.1963. Ólöf lést þann 14.3.1981. Þau eignuðust fjögur böm. Elstur er Sigurður Freyr, f. 23.9.1965 í Washington D.C., hljóðupptökumaður við ís- lenska myndverið hf. Sambýhskona hans er Berghnd Björgúlfsdóttir, nemandi við Kennaraháskóla ís- lands. Þá koma Matthías, f. 31.5. 1967 í Washington D.C., nemandi í hagfræði vð Háskóla íslands; Lilja Björk, f. 6.3.1975 í Reykjavík; og Sturla Þór, f. 11.8.1977 í Genf. Faðir Bjöms er dr. Matthías Jón- asson, fyrrv. prófessor í uppeldis- fræði, f. 2.9.1902 að Reykjafirði við Arnarfjörð, sonur hjónanna Jónas- ar Ásmundssonar bónda og konu hans, Jónu Ásgeirsdóttur, hval- skutlara frá Holti í Önundarfirði, Ásgeirssonar, bróður Þórdísar Jónsdóttur, móður Jóns Sigurðs- sonarforseta. Móðir Björns er Gabriele Jónas- Björn Matthiasson. son (f. Graubner), f. 16.2.1912 í Berl- ín, dóttir Adolfs Graubner, ofursta í þýska hernum, og konu hans, Margarethe Graubner (f. Cramer). Foreldrar Björns voru gefin saman í hjónaband í Leipzig árið 1937 þar sem Matthías var við nám og kennslu við háskólann í Leipzig. Þar bjuggu þau fram í ársbyrjun 1945 semáðurgreinir. Systkini Björns eru Sigrún, f. 21.2. 1938 í Leipzig, starfar við Þjóðhags- stofnun og á hún eina dóttur; Margrét, f. 21.12.1949 í Reykjavík, kennari við Hagaskóla, eiginmaður hennar er Guðmundur Bjarnason og eiga þau tvær dætur; Dagbjört, skrifstofumaður, gift Jóni Þorleifi Jónssyni húsasmið og eiga þau eina dótturogeinnson. Hilmar Þórarinsson Hilmar Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Rafmagnsverktaka Keflavíkur, Brekkubyggð 30, Garðabæ, er sextugur í dag. Hilmar fæddist í Vestmannaeyj- um og ólst þar upp hjá fósturforeldr- um til sextán ára aldurs. Hann flutti þá th Njarðvíkur og ári síðar hóf hann nám í rafvirkjun hjá Júlíusi Steingrímssyni og síðan Geisla hf. í Keflavík. Hilmar stundaði nám við Iðnskóla Keflavíkur 1946-47. Hann lauk sveinsprófi í rafvirkjun 1951 og starfaði áfram hjá Geisla til 1957 en var verkstjóri hjá Raf- magnsvertökum Keflavíkur 1957-61 er hann varð þar framkvæmdastjóri sem hann er enn. Auk þess var Hilmar framkvæmdastjóri Glugga- verksmiðjunnarRammahf. 1969-72. Hilmar sat í hreppsnefnd og síðar bæjarstjórn Njarðvíkur 1966-82, var forseti bæjarstjórnar 1978-80 og for- maður bæjarráðs 1978-82. Hilmar hefur setið í fjölda nefnda á vegum Njarðvíkurbæjar, sat m.a. í raf- veitunefnd í tuttugu ár og í skipu- lagsnefnd Keflavíkur, Njarðvíkur og Keflavíkurflugvallar í átta ár. Þá sat hann í ríkisskipaðri nefnd er fjallaði um samninga um olíustöð- inaíHelguvík. Hilmar var formaður Rafverk- takafélags Suðurnesja 1968-71, for- maður Alþýöuflokksfélags Njarð- víkur 1968-75 og félagsformaður skátafélagsins Áfram (nú Víkverja) 1946-51. Hilmar kvæntist 26.12.1954 Val- gerði Guðrúnu Valdimarsdóttur, f. á Hellnum á Snæfellsnesi 29.8.1932, húsmóður. Foreldrar Valgerðar: Valdimar Kristófersson, b. að Helln- um, sem nú er látinn, og eftirlifandi kona hans, Guðmunda Kristín Júl- íusdóttir húsfreyja, sem nú er bú- sett í Seljahlíð í Reykjavík. Hilmar og Valgerður voru búsett í Njarðvík til 1982 er þau fluttu í Garðabæ þar sem þau búa enn. Hilmar og Valgerður eigafjögur börn. Þau eru: Árni Þór, f. 2.6.1954, sálfræðingur og félagsmálafulltr úi á Keflavíkurflugvelli, búsettur í Reykjavík og á hann fimm böm en kona hans er Ingunn Sigurgeirs- dóttir viðskiptafræðingur; Kristín, f. 7.7.1955, viðskiptafræðingur og íjármálastjóri Garðabæjar og á hún tvo syni en sambýlismaöur hennar er Einar Hjaltason stýrimaður; Hildur, f. 19.9.1958, heimilishag- fræðingur í Bandaríkjunum, gift Todt Thaler, arkitekt og grafiklista- manni, og eiga þau þrjá syni, og Hjördís, f. 17.1.1963, hárgreiðslu- meistari og á hún tvö börn en sam- býlismaður hennar er Valur Ketils- son, skrifstofumaður hjá Keflavík- urverktökum. Hilmar á íjögur hálfsystkini sem ölleruálífi. Foreldrar Hilmars: Þórarinn Ber- Hilmar Þórarinsson. nótusson, vélstjóri í Vestmannaeyj- um, f. í Vestmannaeyjum 1909, d. 1942, og Guðrún Rafnsdóttir hús- móðir, f. í Grundarfirði 1910. Þórarinn var sonur Bernótusar Sigurössonar, skipstjóra í Vest- mannaeyjum, ogkonu hans, Jó- hönnu Þórðardóttur. Bróðir Guðrúnar var Jón Rafns- son, verklýðsleiðtogi og starfsmað- ur Sósíahstaflokksins. Systir Guð- rúnar var Helga, kona ísleifs Högna- sonar alþingismanns. Foreidrar Guðrúnar voru Rafn Júlíus Símon- arson sjómaður og formaöur í Nesi í Norðfirði, síðar í Vestmannaeyj- um, og kona hans, Guðrún Gísla- dóttir. Hilmar verður erlendis á afmæhs- daginn. afmælið 8. desember RíignheiðurSigfúsdóttir, Austurbyggö 17, Akureyri. Hermann Jónasson. Flögusíðu 4, Akureyri. 50ára Friða Pálmars Þorvaldsdóttir, Vöröubrún, Hlíðarhreppi. Gylfí Sigurjónsson, fllugagötu 13A, Vestmannaeyjum. Sólveig Sigurðardóttir, Þingskálum.Hehu. Örn Gísli Haraldsson, 39663 LeslieStreet 354, Fremont CA.94538.USA. Sigurþór Sigurðsson Grettisgötu 46, Reykjavík. Svanhvít Bjarnadóttir, Aðalstræti 123, Patreksflrði. 40 ára Bjarni Andrésson, Staðarhrauni 11, Grindavík. Sigurjón Eysteinsson, Strýtuseli 10, Reykjavík, Særún Bjarnadóttir, Hraunstíg 1, Hafnarfirði. FELAGr ___ELDfH ^BORGARA FRÁ FÉLAGIELDRIBORGARA Einar G. Baldvinsson Einar G. Baldvinsson hstmálari, Kaplaskjólsvegi 9, Reykjavík, er sjö- tugurídag. Einar er fæddur í Reykjavík. Hann hóf fyrst nám í kvöldskóla þeirra Jóhanns Briem og Finns Jónssonar 1938-AO en síðan lá leiðin í Handíða- og myndhstarskólann áriö 1942 og nám stundað þar th stríðsloka. Árið 1946 hélt hann th Kaupmannahafn- ar og fékk inngöngu í Listaháskól- ann þar sem hann nam næstu fjögur árin. Einar lauk prófi frá Iðnskól- anum 1944 og úr teiknikennaradeild Handíðaskólans 1951. Jafnframt því aö vinna að hst sinni fékkst Einar um skeið við teiknikennslu og enn lengur við almenna verkamanna- vinnu. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum, m.a. í Sví- þjóð, Danmörku og Austur-Þýska- landi. Yfirhtssýning á verkum hans var haldin að Kjarvalsstöðum árið 1980. Einar hefur aha.tíö haldið tryggð við ákveðin viðfangsefni og þá helst frá sjávarsíðunni. Foreldrar Einars voru Baldvin Einarsson, f. 1875, d. 1961, söðla- og aktygjasmiður á Laugaveginum í Reykjavík, og kona hans, Kristine Karohne Heggen, f. 1883, d. 1947, húsmóðir. Einar G. Baldvinsson. Félag eldri borgara heldúr basar og happdrætti laug- ardaginn 9. desember í Goðheimum, Sigtúni 3, kl. 14. Heimabakaðar kökur og margir góðir munir. * DV HAFNIR Nýr umboðsmaður í Höfnum 1. des. '89: Eygló Einarsdóttir Djúpavogi 20 sími 92-16947 frá og með

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.