Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Síða 30
46
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989.
Föstudagur 8. desember
SJÓNVARPIÐ
17.50 Gosi. (Pinocchio). Teikni-
myndaflokkur um ævintýri Gosa.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
Leikraddir Örn Árnason.
18.20 Pernilia og stjarnan. (Pernille
og stjernen). 2. þáttur - Það má
ekki stela stjörnunni. Norskt
barnaefni. Sögumaður Sigrún
Waage. Þýðandi Heiður Ey-
steinsdóttir. (Nordvision
Norska sjónvarpið).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismær (39). (Sinha Moa).
Brasiliskur framhaldsmynda-
flokkur. Þýðandi Sonja Diego.
19.20 Austurbæingar. (Eastenders).
Breskur framhaldsmyndaflokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Nætursigling. (Nattsejlere).
Fimmti þáttur. Norskur fram-
haldsmyndaflokkur i sex þáttum.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.25 Peter Strohm. (Peter Strohm).
Þýskur sakamálamyndaflokkur
með Klaus Löwitsch í titilhlut-
verki. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
22.15 Áöndinni. (Breathless). Banda-
rísk bíómynd frá árinu 1983.
Leikstjóri James McBride. Aðal-
hlutverk Richard Gere, Valerie
Kaprinsky og William Tepper.
Söguhetjan stelur bil i Las Vegas
og heldur áleiðis til strandarinn-
ar. Ung námskona slæst í för
með honum og heillast af þess-
um harðjaxli. Þýðandi Gunnar
Þorsteinsson.
23.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
15.25 Sameinuð stöndum við. Christ-
mas Eve. Vellauðug kona er dug-
leg við að láta þá sem minna
mega sín njóta auðsins með sér.
En syni hennar likar þetta fram-
ferði hennar illa og tekur til sinna
ráða. Aðalhlutverk: Loretta Yo-
ung, Trevor Howard, Arthur Hill
og Ron Leibman.
17.00 Santa Barbara.
17.45 Jólasveinasaga.
18.10 Sumo-glima.
18.35 Heimsmetabðk Guinness.
19.19 19:19. Frétta- og fréttaskýringa-
þáttur ásamt umfjöllun um þau
málefni sem ofarlega eru á baugi.
20.30 Geimálfurlnn. Alf
21.05 Sokkabönd i stil. Islenskur tón-
listarþáttur. Umsjón: Margrét
Hrafnsdóttir.
21.40 Þau hæfustu IHa. The World of
Sunrival. Dýralífsþættir í sex hlut-
um. Fimmti hluti.
22.10 Æðisgenginn akstur. Vanishing
Point. Ökumanni er úthlutað því
verkefni að aka bifreið frá Denver
til San Francisco. Af óútskýran-
legum ástæðum afræður hann
að fara leiðina á mettima eða
fimmtán klukkustundum. Aðal-
hlutverk: Barry Newman, Clea-
von Little, Dean Jagger og Vic-
toria Medlin.
23.55 Vélabrögð lögreglunnar. Shark-
y's Machine. Sharky er færður
úr morðdeildinni yfir í fíkniefna-
deildina. Þar fær hann það verk-
efni að hafa uppi á glæpafor-
ingja sem stjórnar neðanjarðar-
heimi Atlanta. Aðalhlutverk: Burt
Reynolds, Vittorio Gassman,
Brian Keith, Charles Durning og
Earl Holliman. Stranglega bönn-
uð börnum.'
1.50 Móðurást Love Child. Áhrifa-
mikil mynd byggð á sönnum at-
burðum. Ung stúlka er dæmd til
sjö ára fangelsisvistar fyrir þjófn-
að. I fangelsinu verður hún
þunguð. Aðalhlutverk: Amy
Madigan, Beau Bridges og
McKenzie Phillips. Stranglega
bönnuð börnum.
3.25 Dagskrárlok.
Rás I
FM 92,4/93,5
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál. Endurtekínn þáttur
frá morgni sem Ingólfur A. Þor-
kelsson skólameistari flytur.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir. Dánarfregnir.
Auglýsingar.
13.00 I dagsins önn - Á sjötta degi.
Umsjón: Óli Örn Andreassen.
13.30 Miðdegissagan: Turninn útá
heimsenda eftir William Heine-
sen. Þorgeir Þorgeirsson lýkur
lestri þýðingar sinnar (19.)
14.00 Fréttir.
14.03 LJúflingslög. Svanhildur Jak-
obsdóttir kynnir. (Einnig útvarp-
að aðfaranótt fimmtudags kl.
05.01.)
15.00 Fréttir.
15.03 Sjómannslíf. Þriðji þáttur af átta
um sjómenn i íslensku samfé-
lagi. Umsjón: Einar Kristjánsson.
(Endurtekinn þáttur frá 29. f.m.)
15.45 Pottaglamur gestakokksins.
Yoko Arai Þórðarson frá Japan
eldar. Umsjón: Sigriður Péturs-
dóttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.08 Þingfréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - Létt grín og
gaman. Meðal annars les Jakob
S. Jónsson úr þýðingu sinni á
framhaldssögunni Leifur, Narúa
og Apúlúk eftir Jörn Riel. (8)
Umsjón: Kristín Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á siðdegi - Debussy,
Francaix, Milhaud og Stravinsky.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni. (Einnig útvarpað að
loknum fréttum kl. 22.07.)
18.10 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heið-
ar Jónsson og Bjarni Sigtryggs-
son. (Einnig útvarpað aðfaranótt
mánudags kl. 4.40.)
18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánar-
fregnir.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá. Þáttur um menningu
og listir liðandi stundar.
02.00 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns. Fréttir kl. 7.00,
7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00,
11.00, 12.00, 12.20, 14.00,
15.00, 16.00, 17.00, 18.00,
19.00, 22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARP
02.00 Fréttir.
02.05 Rokk og nýbylgja. Skúli Helga-
son kynnir. (Endurtekið úrval frá
þriðjudagskvöldi.)
03.00 Blítt og létt....
04.00 Fréttir.
04.05 Undir værðarvoð. Veðurfregnir
kl. 4.30.
05.00 Fréttir af veöri, færð og flug-
samgöngum.
05.01 Áfram Island.
06.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum.
06.01 Blágresið bliða. Umsjón:
Halldór Halldórsson. (Endurtek-
inn þáttur frá laugardegi á Rás
2)
07.00 Ur smiðjunni. Sigurður Hrafn
Guðmundsson fjallar um saxó-
fónleikarann Gerry Mulligan.
Síðari þáttur (Endurtekinn þáttur
frá laugardagskvöldi.)
Sjónvarp kl. 21.25:
í kvöld verður sýndur síð- Strohm nokkuö að haki
asti þátturinn um emkalög- landa sínum Derrick hvað
reglumanninn Peter vinsældir snertir.
Strohm, í bili að minnsta Aðdáendur Derricks geta
kosti. Strohm, sem leikinn hugsað með tOhlökkun til
er af Klaus Löwitsch, hefur næsta föstudags þvi þá kem-
fengið misjafnar undirtektir ur kappinn aftur í þáttaröð
sjónvarpsáhorfenda. Aö sem mun ná eitthvað fram
minnsta kosti stendur ánæstaár. -HK
20.00 JólaalmanakÚtvarpsins1989.
Frú Pigalopp og jólapósturinn
eftir Björn Rönningen I þýðingu
Guðna Kolbeinssonar. Margrét
Ólafsdóttir flytur (8). Umsjón:
Gunnvör Braga. (Endurtekinnfrá
morgni.)
20.15 Gamlar glæður.
21.00 Kvöldvaka. a. Þjóðsögur á að-
ventu. Ágústa Björnsdóttir tók
saman. Lesarar: Ingibjörg Har-
aldsdóttir og Kristján Franklín
Magnús. b. Islensk tónlist. Sigr-
ún Valgerður Gestsdóttir og
Samkór Selfoss syngja. c.
Bernskudagar. Margrét Gests-
dóttir les úr minningum Guðnýj-
ar Jónsdóttur frá Galtafelli. Ann-
ar lestur. Umsjón: Gunnar Stef-
ánsson.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni. (Endurtekinn frá sama
degi.)
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Danslög.
23.00 Kvöldskuggar. Jónas Jónasson
sér um þáttinn.
24.00 Fréttir.
00.10 Ómur að utan - The Playboy
of the Western World eftir John
Millington Synge. Cyril Cusack,
Siobhan McKenna og fleiri leika
úr þessu frægasta gamanleikriti
Ira. Leikritið var leikrit mánaðar-
ins sl. laugardag og hét þá Kapp-
inn að vestan í nýrri þýðingu
Böðvars Guðmundssonar, en í
eldri þýðingu Jónasar Árnasonar
hét það Lukkuri. Umsjón: Signý
Pálsdóttir.
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu.
með Gesti Einari Jónassyni. (Frá
Akureyri)
14.03 Hvað er að gerast? Lísa Páls-
dóttir kynnir allt það helsta sem
er að gerast í menningu, félags-
lífi og fjölmiðlum.
14.06 Milii mála. Árni Magnússon
leikur nýju lögin. Stóra spurning-
in. Spurningakeppni vinnustaða,
stjómandi og dómari Dagur
Gunnarsson, kl. 15.03.
16.03 Dagskrá.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu sími 91 -38 500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Blítt og létt.... Gyða Dröfn
Tryggvadóttir rabbar við sjó-
menn og leikur óskalög. (Einnig
útvarpað kl. 3.00 næstu nótt á
nýrri vakt.)
20.30 Á djasstónleikum. Frá tónleik-
um á norrænu útvarpsdjass-
dögunum í Dalsbruk.
21.30 Fræðsluvarp: Enska. Siöundi
þáttur enskukennslunnar I góðu
lagi, á vegum Málaskólans Mím-
is. (Endurtekinn frá þriðjudags-
kvöldi.)
22.07 Kaldur og klár.
12.00 Hádegisfréttir.
12.15 Valdís Gunnarsdóttir. Haldið upp
á föstudaginn með trúlofun í
beinni útsendingu. Jólaskapið til
staðar enda líður að jólum.
15.00 Ágúst Héðinsson. Fylgst með
öllu því helsta sem er að gerast
um helgina. Polyglot-getraunin
og fleira skemmtilegt.
17.00 Borgarafundur i beinni útsend-
ingu. Fréttastjóri Bylgjunnar, Jón
Ásgeirsson, stýrir umræðum um
ofbeldi í miðbænum. Fundað
verður á Café Hressó og eru allir
velkomnir. Siðdegisútvarp með
Haraldi Gíslasyni.
19.00 Hafþór Freyr Sigmundsson
hjálpar til við uppvaskið og hitar
upp fyrir kvöldið með fínnni tón-
list.
22.00 Á næturrölti með Halla Gísla.
Næturvakt fyrir fólkið sem heima
situr og er farið að huga að jólun-
um.
2.00 Ljúf og létt næturtónlist undir
svefninn. Freymóður T. Sigurðs-
son.
Ath. Fréttir eru á klukkutímafresti frá
8-19.
FM 102 a.
11.00 Snorri Sturluson. Ný tónlist en
þessi gömlu góðu heyrast líka.
Hádegisverðarleikur Stjörnunnar
og VIVA-STRÆTÖ kl. 11.30.
Dregið í aukaleiknum.
15.00 Slgurður Helgi Hlöðversson.
Mikið af nýrrí tónlist. Útsalan á
sínum stað kl. 16.00. Þú vinnur
þér alltaf inn eitthvað hjá Sigga.
18.00 Þátturinn ykkar. Spjall-
þáttur á léttu nótunum þar sem
tekin eru fyrir málefni líðandi
stundar. Öll umfjöllun er miðuð
við að ungt fólk taki þátt i um-
ræðunni.
19.00 Kristófer Helgason. Kristó sér
þér fyrir réttu helagartónlistinni
og tekur á móti þínu símtali.
22.00 Þorsteinn Högni Gunnarsson.
24.00 Björn Slgurðsson. Bússi er með
allt á hreinu.
3.00 Amar Albertsson. Hann fer í Ijós
þrisvar i viku...
FM 104,8
16.00 Kvennó.
18.00 MH.
20.00 FG.
22.00 MR.
24.00 Næturvakt i umsjón Kvennó.
Óskalög & kveðjur, simi 680288.
4.00 Dagskráriok.
13.00 Sigurður Ragnarsson. Gæða-
tónlist er yfirskriftin hjá Sigurði.
16.00 Jóhann Jóhannsson. Hress, og
skemmtilegur í skammdeginu.
Pitsuleikurinn á sinum stað.
20.00 Kiddi Bigfoot. Tóniist og stíll sem
á sér engar hliðstæður.
23.00 Valgeir „Keilubani" Vilhjálms-
son. Að sjálfsögðu nýkominn úr
keilu, hress og kátur.
1.00 Næturdagskrá.
18.00-19.00 Hafnarfjörður í helgar-
byrjun. Fréttir, viðtöl og tónlist.
fmIbo-q
AÐALSTOÐIN
12.00 Að hætti hússins. Umsjónarmað-
ur Ölafur Reynisson. Úppskriftir,
viðtöl og fróðleikur til hlustenda
um matargerð. Opin lína fyrir
hlustendur, s. 626060.
12.30 Þorgeir Ástvaldsson.
16.00 Fréttir með Eiriki Jónssyni.
Lengsti fréttatími sem um getur.
18.00 íslensk tónlist að hætti Aðal-
stöðvarinnar.
19.00 Anna Björk Birgisdóttir. Létt tón-
list í helgarbyrjun.
22.00 Kertaljós og kaviar. Gestgjafi
Gunnlaugur Helgason.
2.00Næturdagskrá Aðalstöðvarinnar.
12.55 General Hospital.
13.50 As the Worlds Turns. Sápuóp-
era.
14.45 Loving.
15.15 Young Doctors.Framhaldsþátt-
ur.
15.45 Teiknimyndir.
16.00 Poppþáttur.
17.00 Sky Star Search. Hæfileika-
keppni.
18.00 The New Price is Right. Get-
raunaleikur.
18.30 Sale of the Century. Getrauna-
leikur.
19.00 Black Sheep Squadron.
Spennuflokkur.
20.00 Riptide. Spennumyndaflokkur.
21.00 Hunter.Spennumyndaflokkur.
22.00 All American Wrestling.
22.00 Fréttir.
23.30 The Deadly Earnes Horror
Show. Hryllingsþáttaröð.
MOVIES
14.00 No Means No
15.00 The Last of the Red Hot Drag-
ons.
16.00 Laprechaun’s Christmas Gold.
17.30 Noah’s Animal.
18.00 Mr. Mom.
20.00 Marie - A True Story.
22.00 The Morning After.
23.45 Zontar - Thing From Venus.
01.15 The Hitchhiker.
01.45 Link.
04.00 He’s My Girl.
EUROSPORT
★ ★
12.00 Badminton. Heimsmeistara-
keppnin i Kína.
13.00 Snóker. Rothman'sGrand Prix.
14.00 Listhlaup á skautum. Stórmót
i Japan.
15.00 Körfubolti. Evrópumeistararnir
Jugo Plastika leika gegn Barcel-
ona.
17.00 Hestaiþróttir. Þjóðabikarinn,
haldin i Berlgiu.
18.00 Kanadíski fótboltinn.
20.00 Listhlaup á skautum. Stórmót
i Japan.
21.00 Skíðaíþróttir i vetur. Sagt frá
komandi heimsmeistarakeppni á
skiðum.
22.00 Tennis. Nabisco Masters. Tví-
liðaleikur sem fram fer i Albert
Hall, London
SCREENSPORT
13.15 Fótbolti. Argentínska deildin.
15.00 Karate. Breska meistaramótið.
16.00 Ameríski fótboltinn. Highlights.
17.00 Powersport International.
18.00 Rugby. Franska deildin.
19.30 Íshokkí. Atvinnumannakeppni í
Bandarlkjunum.
21.30 Ameriski fótboltinn. Nortre
Dame-Louisville.
23.00 Golf. JC Penney Classic, haldið
á Broadmoor Florida.
24.00 Hnefaleikar.
Richard Gere og Valerie Kaprisky leika aðalhlutverkin í A
öndinni.
Sjónvarp kl. 22.15:
Á öndinni
Það var 1959 sem Jean Luc
Godard gerði eina af fræg-
ustu myndum sínum, A bo-
ut de soufíle, sem fjallaöi um
bandaríska stúlku sem
hreifst af frönskum smá-
krimma sem lifði kæruleys-
islegu lífi. Mynd þessi gerði
Godard frægan á sínum
tíma og er talið tímámóta-
verk í franskri kvikmynda-
gerð.
Á öndinni (Breathless) er
bandarísk endurgerð þess-
arar kvikmyndar. Dæminu
er snúið við. Nú er töffarinn
bandarískur en stúlkan
frönsk. Fjallar myndin um
ástarsambandþeirra. Stúlk-
an gerir sér smátt og smátt
grein fyrir því að elskhugi
hennar er eftirlýstur morð-
ingi.
I mynd Godards léku aðal-
hlutverkin Jean-Paul Belm-
ondo og Jean Seberg. í am-
erísku útgáfunni leikur Ric-
hard Gere aðalhlutverkið en
stúlkuna leikur franska
leikkonan Valerie Kaprisky
sem var alveg óþekkt er hún
lék í þessari kvikmynd.
Þrátt fyrir að Á öndinni sé
um margt ágæt skemmtun
fellur hún í skuggann af
meistarverki Godards og
sannast enn einu sinni
hversu hæpið er aö kvik-
mynda gömul meistaraverk
upp á nýtt. -HK
Rás 2 kl. 20.30:
í þættinum Á djasstón-
leikum fáum við að heyra í
fjórum lújómsveitum sem
léku á Norrænu útvarps-
djassdögunum sem haldnir
voru í Dalsbruk í Finnlandi.
Hot Club Trio of Helsinki
leikur eins og nafnið bendir
til i anda Heita pottsins
franska þar sem Django
Reinhard og Stephen Grap-
elli voru i fararbroddi. Hér
leika þeir ýmsar af perlum
Djangos.
Kvartett danska klarí-
nettuleikarans Jorgen Svar-
es er á sveifluslóðum og
sækir gjarnan efhivið sinn
til hins elleingtoníska tóna-
heims. Á árum áður var
Svare þekktastur sem klarí-
nettuleikari víkingadjass-
sveitar Paba Bue.
Kvartett norska tenór-
saxófónleikarans Bjarne
Nerem leikur sígilda stand-
arda. Bjarne hefur lengi
verið i fremstu röð nor-
rænna djassleikara og geta
má þess að Gunnar heitinn
Ormslev tók sæti hans í
hljómsveit Simons Brehms.
Síðasta norræna sveitin
sem leikur i þættinum er
tríó saxafónleikarans
sænska, Roland Keijser, og
eru þeir félagar nokkuð nú-
tímalegri en fyrrgreindar
hljómsveitir. Það er Vern-
harður Linnet sem sér um
þáttinn.
Stöð 2 kl. 23.55:
Vélabrögð
lögreglunnar
Burt Reynolds hefur ekki
átt upp á pallborðið hjá
áhorfendum í kvikmynda-
húsum á undanfornum
árum.
Þegar hann leikstýrði og
lék aðalhlutverkið í Véla-
brögð lögreglunnar var
hann aftur á móti á hátindi
ferils síns, enda ber myndin
það með sér. Reynolds er
frískur í hlutverki lögreglu-
mannsins Sharky sem fær
það verkefni að koma for-
ingja glæpaklíku í hendur
réttvísina. Til þess notar
hann þá aðferð að fylgjast
með gleðikonu einni í dýrari
kantinum sem hann veit að
glæpaforinginn hefur sam-
band við.
Vélabrögð lögreglunnar
er hin hressilegasta saka-
málamynd. Reynolds stend-
ur sig þokkalega sem leik-
stjóri og vel sem leikari.
Aukahlutverk eru sérlega
vel skipuð. Má þar nefna
Burt Reynolds er bæði að-
alleikari og leikstjóri í Véla-
brögð lögreglunnar.
þekkta karakterleikara á
borð við Vittorio Gassman,
Brian Keith, Charles Durn-
ing, Earl Holliman og Henry
Silva. Þá var það í þessari
kvikmynd sem Rachel Ward
sló fyrst í gegn. Leikur hún
gleðikonuna sem Sharky
fylgistmeð. -HK