Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989. Fréttir Svavar og árveitinganefnd deila um Þjóðleikhúsið: Nef ndin vill loka í tvö ár og ódýrari viðgerð - stefndi í kostnað upp á 1,5 til 2 milljarða Fjárveitinganefnd Alþingis hefur lýst því yfir að hún taki ekki undir fyrirætlanir um allsherjarviðgerð á Þjóðleikhúsinu. Að sögn Sighvats Björgvinssonar, formanns nefndar- innar, þá leit út fyrir að framkvæmd- in myndi kosta 1,5 til 2 milljarða króna. Þetta sagði Sighvatur að nefndin gæti ekki skrifað upp á. Sighvatur sagði að viögerðar- áformin hefðu breyst mikið síðan þau voru kynnt fyrir fjárveitinga- nefnd. Nú væri nánast ætlunin að byggja nýtt hús inn í því gamla. Sagði hann að þegar nefndin hefði komið að máhnu í haust hefðu birst miklar breytingar á þvi. Hefðu þá komið fram fyrirætlanir um miklu víð- tækari endurbætur en hafði verið kynnt fyrir fjárveitinganefnd á sín- um tíma. Sagði Sighvatur að fjárveitinga- nefnd hefði síðan fengið áætlanir um viðgerðirnar 18. desember þar sem komið hefði fram að kostnaður við 1. áfanga væri 540 milljónir. Sig- hvatur sagði að ekki kæmi til greina að tala um einhvem 1. áfanga í þessu sambandi því það þýddi að fleiri væru á leiðinni. Fjárveitinganefnd vill að húsið verði lokaö til haustsins 1991 og framkvæmdum því lokið á tveim árum. Tók Sighvatur fram að nefnd- in gerði sér grein fyrir að mennta- málaráðherra væri ekki á sömu skoðun. Sömuleiðis vék Sighvatur að end- urbótum á Bessastöðum sem einnig fara langt fram úr áætlun. Er ætlun- in að 202 milljónir fari til þess á næsta ári. -SMJ Fjárlagalok í dag: Afgreidd með 3,6 milljarða halla Fjárlög verða afgreidd frá Alþingi í dag og er ljóst að frumvarpið hefur ekki áður verið afgreitt með slíkum halla. Halhnn á frumvarpinu eins og það kom frá fjárveitinganefnd var 3.638 milljónir króna. Við 2. umræðu hækkaði frumvarpið um 1.182 millj- ónir en við 3. umræðu um 794 millj- ónir. Hækkun á gjöldum er því um 2,1% frá því frumvarpið var lagt fram en þá var það með tæplega þriggja milljarða halla. Tekjuhliðin breytist einnig en bein- ir skattar hækka um 1.180 milljónir, óbeinir lækka um 698 milljónir og aðrar tekjur eiga að hækka um 711 milljónir. Þá er rétt að geta þess að nokkrum hluta hækkunarinnar er komið fyrir á lánsfjárlögum þannig að það kemur ekki fram í auknum halla. Lán til B-hluta eru hækkuð um 840 milljónir. Innlend útgáfa verðbréfa hækkar um 625 milljónir og erlend lántaka á að hækka um 1.000 milljón- ir. Nú er gerð tillaga um 300 milljóna króna lækkun á launalið ríkissjóðs í A-hluta. Aðhaldsaðgerðimar verða á yfirvinnu og einnig á að draga úr nýráðningum og endurráðningum. Á með þessu að lækka heildarlaunaút- gjöld ríkisins um 1%. Þá er rétt að geta 230 milljóna krónahækkuntilvegamála. -SMJ lántökur hækkaðar um 2,5 milljarða Iþingi fer í jólafrí í dag og kemur ekki aftur saman fyrr en í lok janúar 1990. Eftir stormasama daga var meiri ró yfir störfum Alþingis í gær. Hér má sjá þingmennina Guðna Ágústsson, Johannes Geir Sigurgeirsson og Salome Þorkelsdóttur ásamt ráðherrunum Ólafi Ragnari Grímssyni, Svavari Gestssyni og Steingrimi Hermannssyni. DV-mynd KAE Guörún Helgadóttir: Ætlaði ekki að valda sárindum í upphafi fundar í sameinuðu þingi í gær las Guörún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, upp yfir- lýsingu frá Sér þar sem hún fjallar um deilur þær sem sprottið höfðu upp á milli hennar og stjómarand- stöðunnar. Sagði Guðrún að hún hefði reynt aö láta eitt yfir alla ganga í störfum þingsins. Hún sagði að ummæli sín hefðu valdið sjálfstæðismönnum sárindum sem ekki hefði verið ætl- unin. Þrátt fyrir að forseti drægi ekki orð sín tíJ baka eða bæði etfsökunar á þeim, eins og farið hafði verið fram á, tóku sjálfstæðismenn þessu sem afsökunarbeiðni og þingstörf héldu áfram undir sfjóm Guðrún- ar. Ef Guðrún hefði ekki lesið upp þessa yfirlýsingu hefðu sjálfstæðis- Guðrún Helgadóttir forseti sam- einaðs þings. menn hafið umræðu um þingsköp og þingstörf riðlast. Þeir neituðu því hins vegar að nokkum tímann hefði komið til tals að mæta ekki á þingfund. -SMJ Leigugjöld ríkisjarða: Tífölduð á Ein af þeim aðferðum sem fjár- málaráðherra ætlar aö nota til að stoppa i fjárlagagatið á næsta ári er að hækka leigu á ríkisjörðum. í fjár- lagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að tífalda eftirgjald ríkisjarða, eða úr 10 næsta ári milljónum upp í 100 milljónir króna, á næsta ári. Hingað til hefur verið innheimt lág leiga cif ríkisjörðum en nú verður greinilega breyting á því. -SMJ 17 fá heiðurslaun listamanna í breytingartillögu við fjárlaga- fmmvarpið er gert ráð fyrir að 17 listamenn fái heiðurslaun Alþingis. Það er óbreyttur fjöldi frá því í fyrra en hver unrsig fær 750.000 krónur. í heild er variö 12.750.000 krónum í heiðurslaun. Eftirfarandi Jistamenn fá laun: Árni Kristjánsson, Finnur Jónsson, Guðmundur Daníelsson, Halldór Laxness, Hannes Pétursson, Indriði G. Þorsteinsson, Jakobína Sigurðar- dóttir, Jóhann Briem, Jón Nordal, Jón úr Vör, Jórann Viðar, Kristján Davíðsson, María Markan, Matthías Johannessen, Stefán íslandi, Valur Gíslason ogÞorsteinn Ö. Stephensen. -SMJ Ríkisstjómin: Fordæmir fjöldamorðin í Rúmeníu Ríkisstjóm Islands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fjöldamorðin í Rúmeníu eru fordæmd. í tilkynn- ingunni segir: „Mótmælaaðgerðir í borginni Timisoara era andsvar al- mennings í Rúmeníu við þeim ásetn- ingi stjórnvalda að virða að vettugi þær lýðræðislegu umbætur sem ratt hafa sér til rúms í öðrum ríkjum Austur-Evrópu.“ Þá segir að ísland gagnrýni endur- tekin brot rúmenskra stjórnvalda á mannréttindaákvæðum Helsinki- sáttmálans. Um leið er skorað á stjórn Ceausescus að láta af ofbeldis- aðgerðum. -SMJ Viðtal Fíknin getur lagt lif fólks í rúst - ^ Nafn: Eysteinn Björnsson Aidur: 47 ára Staða: Kennari og rithöf- undur „Það hefúr alltaf blundaö í mér að skrifa bók en það var ekki fyrr en nú sem ég hafði kjark til að láta drauminn rætast. Það urðu miklar breytingar á lífi mínu fyr- ir fimm árum og eftir það þurfti ég að taka sjálfan mig til endur- skoöunar og breyta ýmsu í fari mínu,“ segir Eysteinn Bjömsson kennari. Nú fyrir jólin kom út fyrsta skáldsaga hans og ber hún nafnið Bergnuminn. „Það var mikil Iífsreynsla að skrifa bókina. Ég hófst handa við verkið í fyrrasumar og lauk því nú í sumar. Annars var þessi bók að mestu til í undirmeðvitund- inni og þegar ég var byrjaður að skrifa var eins og hún sprytti al- sköpuð fram. Bergnuminn ijallar um örlög nútímafólks í Reykjavík og aðal- persónan er maður sem hefur leiðst út í fjárhættuspil. Hann eyðir öllum tíma sínum í að spila póker og þaö er spilaö upp á háar upphæöir en maðurinn hefur engin efni tíl að sinna þessari fíkn sinni þó hann geri það. Bergnum- inn fjallar því um fíkn sem verður allsráðandi í lífi manns. Það eru margir sem kannast við eitthvað slíkt úr eigin lifi, sumir verða alkóhólistar og aörir verða vinnusjúklingar, og sumir verða söfnunarsjúklingar og fleiri ár- áttur mætti nefha. Og fíknin getur auðveldlega lagt líf fólks í rúst.“ Austfirðingur Ég er ættaöur austan af fjörð- um, nánar tiltekið frá Stöðvar- firði. Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri, þá hélt ég til Reykjavíkur og fór að lesa ensku og íslensku við Há- skólann og lauk BA prófi í þess- um greinum 1967. Ég ílentist svo í Reykjavík því þar hitti ég kon- una mína en hún heitir Anna Njálsdóttir og saman eigum viö þtjú börn, Hörpu 24 ára, Njál 19 ára og Þorbjörgu Rún 8 ára. Síðan ég lauk háskólanámi i ensku hef ég verið við kennslu og nú kenni ég ensku og enskar bókmenntir viö Fjölbrautaskól- ann í Breiðholti. Ég lagði þó ekki háskólanámið alveg á hilluna þvi fyrir nokkram misserum lauk ég cand. mag. prófi í enskum bók- menntum og í lokaritgerðinni bar ég saman verk Halldórs Kiljans Laxness skoska rithöfundarins Lewis Grassicgibbon. Mér finnst mjög gaman að kenna og bókmenntir eru það skemmtilégasta sem ég kenni." Ég hef sjálfur lesið mikið og haft mikið yndi af bókmenntum. Af öðru því sem ég tek mér fyrir hendur í frístundum má nefna líkamsrækt. Á veturna er ég í badminton og fer á gönguskiði en á sumrin spila ég tennis. Svo spila ég bridds einu sinni í viku en viö spilafélagamir spilum hins vegar ekki upp á peninga. Ég hef spilað síðan ég var unglingur, ég held ég hafi ekki verið nema 17 ára þegar ég byrjaði að spila bridds." -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.