Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989. Lesendur Hugleiðingar Alþingis um fasteignakaup: Mér blöskrar yfirgangurinn Reykyíkingur skrifar: Það vefst ekki fyrir forseta Sam- einaðs Alþingis, Guðrúnu Helga- dóttur, að boða trúna á fasteignir í miðborgarkjarnanum. í málílutn- ingi sínum hefur þessi þingkona hvaö eftir annað lýst vilja sínum og áformum um að Alþingi kaupi Hótel Borg til að bæta „aðstöðu- leysi" Alþingis, eins og hún orðar það. - Langflestir hafa þó líklega þá skoðun á málinu, að á Alþingi vanti eitthvað annað en meira rými fyrir þingmenn. - Fækkun þing- _ manna um svo sem 20-30 er það sem þjóðin biður um ef marka má mál manna. Enn á ný kemur Guðrún Helga- dóttir, forseti sameinaðs þings, að- spurð fram með þá hugmynd sína (í nýlegu viðtali við þingfrétta- mann sjónvarps) að Hótel Borg sé besti kosturinn í húsnæðismálum Alþingis. Og ekki nóg með það, hún vill nú jafnvel leggja til atíögu við hús það sem í daglegu tali er kallað Reykjavíkurapótek - og er ekkert frábitin því að kaupa raunar alla þessa húsalengju, frá Hótel Borg að Austurstrætí. En fyrst af öllu þurfi þó að endurbæta byggingar- stíl húss þess sem þarna er á milli (Gallerí Borg, o.fl.), því yfir Alþingi „verði að vera reisn“ jafnt í húsa- kosti sem öðru. - Þaö var og! Forsetí sameinaðs þings segir í viðtali við þingfréttamann að henni sýnist hún vera talin „vond mann- eskja“ eins og komi t.d. fram í les- endabréfum, vegna afstöðu sinnar um að kaupa Hótel Borg. - Þetta hef ég nú hvergi lesiö, enda kemur mannvonska ekki þessu máli við. Ekki bara Hótel Borg, nú er það öll lengjan, að Austurstræti - segir hér m.a. Þeir eru margir, einkum þingmenn og stjórnmálamenn hér á landi, sem finnst að verið sé að dæma þá ómanneskjulega eða illa innrætta ef að þeim er veist í greinaskrifum og ummælum úti í bæ. Þetta sýnir hve hæfileikalausir sumir þessara aðila eru til að gegna opinberum ábyrgðarstörfum fyrir landslýð. Þaö eru verkin sem verið er að dæma, ekki hvort viðkomandi er slæmur heimilisfaðir eöa mann- eskja yfirleitt. En viðkomandi húskaupaáráttu forseta sameinaðs þings, þá er ver- ið að hjakka á máli sem fæstir eru samþykkir og alfarið á móti þegar hann beinir athygli sinni að Hótel Borg. Þar yrði aldrei griðastaður fyrir almenning eftir hernám Al- þingis. Stööumælasjóður og Umferðarráð: Laugavegur á laugardegi Spumingin Hvað ætlarðu að borða á aðfangadagskvöld? Ólöf Guðfmnsdóttir: Ég ætla að boröa kalkún og hef hann alltaf af og til um jólin. Haukur Hilmarsson: Matinn sem pabbi býr til. mynd um það. Ætli það verði ekki þaö sem sett verður á borðið. Lilja Magnúsdóttir: Ég borða oftast svínahamborgarhrygg á aðfanga- dagskvöld. Guðrún Jónsdóttir: Ég veit það ekki því ég verð hjá mömmu. Lilja Pedersen: Ég hef alltaf ijúpur. Grimur hringdi: Mikil er rausn Umferðarráðs og Stöðumælasjóðs (veit ekki hvort hér er um aö ræða „Stöðumælasjóð ís- lands“ eöa „Stöðumælasjóð Reykja- víkur“ eða hvað - þeir eru orðnir svo margir sjóðirnir). - Þessi fyrirbæri auglýstu hins vegar sameiginlega í sl. viku að laugardginn 16. desember þyrftu menn ekki að greiöa í stöðu- mæla við Laugaveginn í Reykjavík! Nú er einfaldlega þannig í pottinn búið að aldrei hefur þurft að greiða í stöðumæla hér í borginni á laugar- dögum. Hver skýringin er veit ég ekki en líklega stafar það af því að viðkomandi stofnanir tíma ekki að hafa menn á launum við stöðumæla- sektir nema 5 virka daga vikunnar. - Kannski er skýringin önnur. En sem sé; aldrei sektað á laugardögum. Hvers vegna hins vegar Umferðar- ráð og „Stöðumæalsjóður" þessi eru að auglýsa aö ekki hafi þurft að greiða í stööumæla við Laugaveginn - eða annars staðar í borginni laugardag- inn 16. des. veit ég ekki. En þetta var Guðrún Halldórsdóttir hringdi: Ég er undrandi á því að í flestum tilvikum þegar deilt er um forræði barna er eins og faðirinn verði oftast undir og sjaldan er málstaöur hans mikils metinn. Þetta kemur fram þráfaldlega hér á landi í svona mál- um. Ég var einmitt að lesa frétt í DV um forræðislausan fóður sem segist aldrei hafa séð annað bamiö sitt en megi hitta hitt og þá aöeins á þriggja mánaða fresti hjá Félagsmálastofn- un. - Ef rökin fyrir svona meðferð eru þau að engin tilfinningaleg tengsl H.S. skrifar: Ef nokkur ein stétt á íslandi á hús- mæðrum mikið upp að inna er það sjómannastéttin. Margir hafa þess vegna vonað að forystumenn sjó- manna myndu beita sér fyrir því að húsmæður fengju lífeyrisréttindi, svo stór sem þáttur sjómannskon- unnar er í lífi þeirra. Húsmóðurstarf- ið var og er enn mjög erfitt og eigin- lega margfalt starf þegar annast á um mörg börn og ef til vill gamal- menni á heimilunum. Það er mjög brýnt að þetta mál dragist ekki á langinn því einmitt þær konur, sem nú eru að komast á eftirlaunaaldur, hafa margar hveijar einkar kjánaleg auglýsing og hafði engan tilgang annan en þann að flagga ímynduðum liðleigheitum op- inberra stofnana. - Það væri nær fyr- ir þessar stofnanir að afnema algjör- lega stöðumælagjöld í miðborginni og alveg inn að Hlemmi. Það þjónar eng- um tilgangi að klifa á laugardagsund- anþágu, um hana vita aliir. séu á milli föður og sonar er réttar- kerfið ekki það sem ég hefi ávallt haidið að það ætti að vera. Ég vil ekki dæma eða halda fram neinum ákveðnum skoðunum í þessu sérstaka máli sem fréttin flyt- ur um hinn forræðislausa föður. Hitt þykir mér miður hvernig oftar en ekki er talið að faðir barns sé óhæfur að sjá um og hafa forræði yfir því þegar hjón slíta samvistum. - Jafnvel þótt móðirin sé vel stæð og hafi góð- ar aöstæður til uppeldis hlýtur faðir- inn að hafa sama rétt og hún ef um jafnræði er að ræða í þeim efnum. helgað heimili og fjölskyldu alla krafta sína. Þess vegna hafa þær engin eftirlaun annars staðar frá. Það er furðulegt að konur sem hafa verið 40-50 ár í hjónabandi, átt mörg böm og ekki getað stundað aðra vinnu skuli aðeins eiga rétt á helm- ingi eftirlauna eiginmannsins falli hann frá og þótt þær hafi sannarlega gert honum kleift aö standa í stöðu sinni með því að annast algjörlega um heimiliö. Það er ótrúleg lítilsvírðing sem húsmæðrum er sýnd með þessu ákvæði og sannarlega tímabært að breyta því. Einungis íslensk lög! Ingibjörg Gisladóttir hringdi: Eg var að hlusta á aðra hvora útvarpsstöð Ríkisútvarpsins í vik- unni og hjó þá eftir því að þar var veriö að tilkynna að yfir jólin yrðu einungis leikin íslensk lög meö ís- lenskum fiytjendum. - Þetta er auðvitað mál Ríkisútvarpsins, en þó aðeins að hluta, því það eru nú einu sinni hlustendur þess sern greiða skylduafhotagjald til rikis- ins. Ég held nú að fremur veröi tón- listin fátækleg ef ekki á að leika önnur lög á báöum rásum útvarps- ins en íslensk. Mér er spum; á þá alveg aö úti- ioka hin guilfallegu erlendu jólalög sem hingað til hafa verið talin góð og gild, m.a. á þessum stöðvura? - Eða skyldi vera talið gott og gilt að leika þá tónlist ef flytjendur eru íslenskir? Mér finnst svona ákvarðanir vera hreint út í hött og sýna einhverja tiihneigingu til einangrunar og misskílinnar þjóðemisrembu, sem er löngu úrelt víðast hvar í menn- ingarlöndum. Mér er líka alveg ómögulegt að skilja hvers vegna þetta kemur upp einmitt nú. Maður hefði skilið svona nokkuð fyrr á árum, þegar við vorum að heimta sjáifstæði okkar. En árið 1989! Erum við að dragast aftur úr öðr- um þjóðum og festast í gamaldags hugsunarhætti á meðan aðrar þjóöir eru að bijóta af sér hlekk- ina? - Ég á nú bara eftir að heyra svona fáránlega ákvörðun fram- kvæmda og spái því að þetta verði nú einfaldlega orðin tóm eins og oft áður þegar steigurlætið er ann- ars vegar. Óvæntur glaðningur J.J. skrifar: Nú í jólaönnunum gildir aö gleyma ekki náunganum og týna inntakinu. í gærkvöldi fékk fjöl- skylda mín góða jólakveðju frá Sláturfélagi Suðurlands. Móðir okkar vann þar nokkur ár og fékk áhveiju árijólagjöfffá fyrirtækinu eins og títt er. Móðir okkar lést fyrir rúmu ári en áfram sendir Sláturfélagið ekkl- inum jólakveðju ásamt kjöti og konfekti. - Þetta var óvæntur glaðningur og hafi Sláturfélagið þökk fyrir. Fráskildir feður Lífeyrisréttindi húsmæöra: Sjómenn sýni frumkvæði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.