Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Qupperneq 28
>36 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989. Andlát Unnur Ósk Ásmundsdóttir lést 20. desember sl. á Hrafnistu í Hafnar- firði. >Bergþóra Jónsdóttir, Reykjum, Vest- mannaeyjum, lést í sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 20. desember. Lovísa Júlíusdóttir, Skeiöarvogi 21, andaðist í Borgarspítalanum 21. des- ember. Jarðarfarir Kristin Guðmundsdóttir lést’ 16. des- "ember. Hún var fædd á Seljum í Helgafellssveit 29. mars 1926. For- eldrar hennar voru Petrína Sæ- mundsdóttir og Guðmundur Bjami Halldórsson. Kristín giftist Ágústi Jóhanni Alexanderssyni en hann lést árið 1970. Þau hjónin eignuðust fimm dætur en misstu eina áriö 1968. Eftir- lifandi sambýlismaður Kristínar er Þórólfur Sveinsson. Útfor Kristínar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Tilkyimingar Skólaslit Fjölbrauta- skólans í Breiðholti Fjölbrautaskólanum í Breiðholti var slit- ið 19. desember sl. í Fella- og Hólakirkju. Athöfnin hófst með því að Guðný Magn- úsdóttir, organisti Fella- og Hólakirkju, lék nokkur jólalög. Kristín Amalds skólameistari gerði grein fyrir starfi og prófum í dagskóla en Stefán Benedikts- son aðstoðarskólameistari í kvöldskóla. í '■æðuin þeirra kom fram að 1430 nem- endur hafa stundað nám í dagskóla og 963 í kvöldskóla og kennarar voru 138.1 dagskóla fengu 128 nemendur lokaprófs- skírteini en í kvöldskóla 35. Bestmn ár- angri á stúdentsprófi náði Hjördís Björg Gunnarsson, náttúrufræðibraut, en hún hlaut einkunnina A í 133 einingum. Krist- íin R. Sigurðardóttir, nýstúdent á tungu- málabraut, söng einsöng við undirleik Guðnýjar Magnúsdóttur. Kór Fjölbrauta- skólans í Breiðholti söng undir stjóm Friðriks S. Kristinssonar. Síðast flutti Kristin Amalds skólameistari skólaslita- raeðu, óskaði útskriftamemendum fil hamingju og öUum viðstöddum gleði- legra jóla. Læknafélag Reykjavíkur opnar leikskóla Þann 8. desember sl. var formleg opnun Leikskólans Mýri, að Skerplugötu 1, Reykjavík. LeikskóU þessi er stofnaður af Læknafélagi Reykjavíkur. LR réðst í þetta verk vegna brýnnar þarfar dagvist- unar fyrir böm félagsmanna. Ungir læknar inna oft og tíðum mikla vinnu af hendi og standa langar vaktir og góð dagvistun bama þeirra er því mjög mikfi- væg. Sl. vor var keypt af Reykjavíkur- borg hús það er áður stóð að Tjamargötu 11 en var flutt út í Litla-Skeijafjörð. Það hefur nú verið gert mjög vel upp og lagað að þörfum leikskóla. Húsið er kjaUari, tvær hæðir og ris. Heildarkostnaður er rúml. 32 mUlj. króna. Stofnkostnaður skiptist tíl helminga milU LR og ríkis- sjóðs skv. reglum þar að lútandi. Rekstur leikskólans er alfarið í höndum foreldra bamanna. Rými er fyrir um 40 böm á aldrinum 1-9 ára. Ráðið hefur verið áhugasamt starfsfólk tU að sjá um upp- eldisstarfið. Forstöðumenn era Unnur Jónsdóttir og Sólveig Ásgeirsdóttir fóstr- ur. Mánaðargjald fyrir heUan dag er nú 25 þús. kr. Foreldrafélagið þiggur einnig rekstrarstyrk frá Reykjavíkurborg, 4000 krónur á mánuði fyrir hvert bam. Sameining banka megin- efni Bankablaðsins 1989 Bankablaöið, 55. árg., er nýkomið út. Samband íslenskra bankamanna gefur blaðið út og ritstjóri er Einar Öm Stef- ánsson. Meginefni blaðsins aö þessu sinni snýst um sameiningu bankanna sem ver- ið hefur mál málanna í bankakerfmu á þessu ári. Meðal efnis má nefna forystu- grein Yngva Amar Kristinssonar, for-; mann SÍB, grein Helgu B. Bragadóttur um aðdraganda að stofnun íslandsbanka og grein Vals Valssonar um áhrif samein- ingar bankanna fjögurra. Þá skrifar Sig- tryggur Jónsson sálfræðingur um félags- sálfræðUeg áhrif sameiningar fyrirtækja á starfsmenn. Viðtöl era í blaðinu við yngri sem eldri bankamenn, fjallað um mötuneyti bankanna, norrænt samstarf bankamanna, ffæðslmnál, íþróttir, fé- lagslíf og margt fleira. Bóksöluskrá með yfir 2000 bókum nýkomin Bókvarðan, verslun í Reykjavik með gamlar og nýjar bækur, gefur reglulega út bóksöluskrár með hinu nýjasta sem borist hefur í verslunina. Að þessu sinni skiptist bókaskráin í marga kafla eftir efni: íslensk og norræn fræði, ævisögur, erlendar skáldsögur, íslenskar skáldsög- ur og smásögur, kvæði, ljóð, kvæðasöfn, sálmar, leirskáld, trúmál, andatrú, guö- speki, lífspeki og hvatningarrit og ótal aðrir flokkar bóka. Það er mikið af fágæt- um og merkUegum bókum í þessari skrá en þar era líka mörg hundrað bóka sem aðeins kosta 100-300 krónur - bækur sem era sambærilegar þeim sem era að koma út þessa dagana og kosta 2000-3000 kr. Bókaskrá þessi er send ókeypis tU allra sem þess óska utan höfuðborgarsvæðis- ins en afhent þeim sem þess óska í versl- uninni í Hafnarstræti 4. Barnið þitt-tímarit um börn og fleira fólk Bamið þitt - tímarit um böm og fleira fólk, er nýjung á tímaritamarkaði hér- lendis. í fyrsta sinn er nú ráðist í útgáfu tímarits sem fjaUar eingöngu um málefni bama, umönnun þeirra og uppeldi frá fæðingu fram á unglingsár. Einnig er athyglinni beint að hlutverki foreldr- anna, líðan þeirra og þeim fjölmörgu spumingum sem þeir standa frammi fyr- ir daglega í samskiptum við böm sín. Hið nýja tímarit verður gefið út 4-6 sinnum á ári og er fyrsta tölublað þegar komið á markaðinn. Útgefandi hins nýja tímarits er Fijáls markaður hf. sem einnig gefur út kynlifstímaritið Bleikt og blátt og fleiri blöð. Ritstjóri er Jóhanna Birgisdóttir. Pennavinir Boris Ferabontov, 125284 Begovaya, 6-3-210 Moscow, U.S.S.R. Hann er 27 ára og óskar eftir að skrifast á við stúlkur á svipuðum aldri. Áhuga- mál hans era klassísk tónlist. Þekkir þú einhvern sem heyrir illa í sjónvarpi eða útvarpi? Kíktu í smáauglýsinga- dálkinn „TIL SÖLU“, „Einkahlustarinn“. Fréttir Akranes: Tveir bæjarfull- trúar hætta Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi: Bæjarfulltrúarnir Guðjón Guð- mundsson, Sjálfstæðisflokki, og Jóhann Ársælsson, Alþýðubanda- lagi, hafa ákveðið að láta af setu í bæjarstjórn Akraness að loknu þessu kjörtímabiii. Guðjón er oddviti sjáifstæðis- manna á Akranesi og hefur setið í bæjarstjórn um langt skeið. Jó- hann er annar tveggja bæjarfull- trúa Alþýðubandalagsins á Akra- nesi og situr nú sitt þriðja kjörtíma- bil í bæjarstjóm. DV er með hörkuduglega blaðburðarstráka á Bíldudal, sem aðstoða hana Helgu Gísladóttur, umboðsmann DV á staðnum, við að koma blaðinu til áskrifenda og selja það. En strákarnir eru líka duglegir í fótboltanum. Þeir tóku þátt í pollamóti í sumar á Núpi og stóðu sig vel í fótboltaliði Bíldælinga í 6. aldursflokki. Þeir heita, talið frá vinstri í neðri röð: Aron, ívar, Bjarni, Ninni og Ingimar. Efri röð Úlli, Friðrik, Gísli, Ómar og Finnur. Þjálfari þeirra er Ása Fönn Friðbjarnardóttir. DV-mynd Helga Sótt í róna á Selfossi Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Að sögn skrifstofustjóra veitinga- hússins Inghóls á Selfossi hefur reksturinn gengið sæmilega á árinu. Nýir eigendur keyptu og breyttu og stækkuðu húsið strax eftir kaupin sl. vor og grillstaðurinn þar er alveg til sóma. Einnig ferðamannaþjónust- an. Mest er að gera í Inghóh um helgar en svo em þar einnig oft ráðstefnur og það í auknum mæli að báðum hótelunum hér. Oftast fólk frá Reykjavík sem vill vera hér í róleg- heitunum. í Inghóh er vínveitinga- leyfi og staðurinn er ósköp hlýlegur - heimilislegur. íbúar í nágrenninu hafa sagt mér - og ég á heima stutt frá staðnum - að það vakni aldrei við hávaða eða læti þó oft sé opið þar til tvö og þrjú um nætur. Það geta 200 manns borðað í Inghóh. Yfirmat- reiðslumaður er Guðjón Egilsson, mesti sómamaður, samviskusamur og kann vel til verka. Fjölmiðlar Eftir ijögurra ára dvöl í Bretlandi hélt ég, að ekki væri tíl tapsárari stjórnmálamaður en Ed ward Heath - „badlooser" á ensku. Hann sleppti aldrei tækifæri til aö hnýta í Mar- gréti Tatcher sem hafði velt honum úr leiðtogasessi íhaldsflokksins. Nú hef ég hins vegar komið auga á keppinaut Heaths i tapsæri. Hann er Olafur Ragnar Grímsson (sem hét raunar foröum á máh Matthildinga Ólafur Ragnar og Bölvar Gríms- son). Svo sem alþjóð veit, beið hann lægri hlut fyrir Davíð Oddssyni borgarstjóra í umræðum í Ríkis- sjónvapinu síðast hðinn laugardag. Hann hefur síðan verið aö reyna að •hefna þess á þingi, sem á hann hall- aði í héraði, meöal annars með því (að vísu árangurslaust) að banna stjórnarþingmönnum aö semja við stjórnarandstöðuna um afgreiðslu mála fyrirjól og leggja fram frum- varp um að ríkið sölsaði undir sig Borgarspítalann. Viö allt þetta brölt kemur í hugann forsögnin alkunna: Úti í kulda fiokkur frýs fána sviptur rauðum. Ólafur Ragnar Grímsson gris gekk af honum dauöum. Hannes Hómsteinn Gissurarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.