Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
7
Sandkom
Tómt helvítis rugl
íjólablaðl
Fróttaþeirra
Vestmannaey-
ingaerlangt
viðtalviöGarð-
arSigurðsson,
fyrrverandial-
þingismann Al-
þýðubanda-
lagsins. Garðar
lætur ýmislegt flakka að vanda og er
gaman að lesa einkunnir hans um
samferðamenn í pólitíkinni. Segir
Garðar á einum stað að hann hafi
misst allt álit á sjálfum sér í pólitflc
þegar Alþýðubandalagiö var með i
ríkísstjóm Gunnars Thoroddsens
sem var mynduð í ársbyrjun 1980.
„Þetta varnáttúrlega voðalega vit-
laus stjóm og var alveg rosaleg. Þetta
var ein martröðin enn. Hugsaöu
þér!...At»ningjaskapurinnímér,
Guðmundi J. og Ólafi Ragnari var sá
að segja ekki bara stopp. Viö gerðum
rangt að halda áfram þessaii stjóm.
Það var einmítt þá sem Hjörleifur
ætlaði að virkja í Búrfelli, í Blöndu
ogFljótsdalsvirkjun ogláta allt skar-
ast..En til hvers? Hvað átti að gera
við allt rafmagnið? Ekki mátti setj a
upp bræðslur, þaö átti bara að vera
ofanábrauð. Þetta var allt tómt hel-
vitisrugl."
Skýrslurá
skýrslur ofan
Garðargefur
Hjörleifiein-
kunn. „Hjör-
leifurerbráð-
skýrmaöurog
óskaplegadug-
legur.Égheld
hannsofialdrei
meiraentitíma
enégerekkert ;
viss um að það hafi komið mikið út
úr þessu." Svo segir hann eina sögu
af þingflokksfundi allaballa. „Svavar
kemur íyrstur með eitt blað úr sinu
ráðuneyti. Svo kemur Ragnar, þá
fjármálaráðherra, með tvö blöð um
ríkisfjármálin. Síðastur kom Hjör-
leifur með burðarkarl sem bar tvo
eða þtjó pappakassa fulla af skjölum.
Og pappirshaugurinn...Svona var
þetta, skýrslur á skýrslur ofan frá
Hjörleifi."
Mesti framsókn-
armaður í heimi
Hvaðfinnst
Garðariþámn: (
núverandifor-
yítu Alþýðu-
bandalagsins?::.
„Ólafurerson-
urGrimsrak-
ara.krataá
ísafiröi, sem
vannsvoá
Vellinum. Ólafur er af Hjartarætt-
inni, framsóknarættinni, og var auð-
vitað framsóknarmaður. Það eru hel-
viti margir framsóknarmenn á þingi,
miklu fleiri en eru í Framsóknar-
flokknum...Svo er nú Steíngrímur J.
Sigfússon. Hann er almesti fram-
sóknarmaður í heimi, orðinn eins og
sauðkindin sjálf. Hann hefur engar
áhyggjur af að henda hundruðum
milljóna eða milljarða i þetta hevítis
kjet. Þeir hafa aldrei þorað að taka á
þessu. Þetta er eins og herkostnaður.
Steingrímur er óneitanlega helvíti
frískur strákur, talar mikið. Ég man
eftír því þegar hann kom á þingið að
hann talaði í öllum málum. Hann
vissi afit um flugmál og öU mál, stökk
alskapaður út úr höföinu á Seifi."
Þorsteinnog
Davíð góður
Þaðerekki
hægtaðsegja
skiiið við Garð-
aránþessaö
segjafráum-
sögnhansum
ÞorsteinPáls-
son. „Égkunni
velviðÞor*
steín.Okkur
kom vel saman...Og í kjördæminu
var hann ekkert nema liðlegheitin.
Hann keyrði viö hiá mér og spuröi
hvort ég væri að fára austur og bauð
mér að koma með. En þetta meðríkis-
stjómina gekk ekki hjá honum. Það
var eidcert þægiiegt fyrir drenginn
að verða foisætisráöherra, þessir
gömlu vildu vera áfram...Nú horfa
menn til Davíðs en hann verður að
fara að passa á sér kjaftinn. En ég
kann ágætlega við Davið."
Umsjón: Haukur L Hauksson
FréttLr
Nýtt aílakvótatímabil er hafiö:
Þorskaflinn verði
300 þúsund tonn
en grálúðuaflinn fari niður 1 45 þúsund lestir
Nýtt aflakvótatímabil er hafið á
nýju ári. Sjávarútvegsráðuneytið
hefur sent frá sér þijár reglugerðir
vegna þessa sem byggðar eru á lög-
um um stjórn fiskveiöa en þau lög
renna út um áramótin 1990/1991.
Reglugerðirnar eru um botnfiskveið-
amar, úthafsrækjuveiðamar og
veiðar smábáta. í öllum meginatrið-
um eru reglur um veiðar þær sömu
í ár og í fyrra, aö öðru leyti en því
sem leiðir af breytingum á heildar-
afla einstakra fiskitegunda.
í reglugerð um botnfiskveiðar er
gert ráð fyrir að hámarksþorskaflinn
verði allt að 300 þúsund lestir. Við
úthlutun heimilda til botnfiskveiða
er gert ráð fyrir að miða þorskaflann
við 260 þúsund lestir. En vegna
sveigjanleika reglna um botnfisk-
veiðar getur heildarafli einstakra
tegunda vikið nokkuð frá viðmiðun-
artölunum. Veldur þar mestu reglur
um sóknarmark, veiðar smábáta og
heimildir til færslu milli tegunda og
ára. Þetta veldur því að heildar-
þorskaflinn getur orðiö allt að 300
þúsund lestir. Það er 10 prósent
minni þorskafli en á árinu 1989.
Grálúðuaflinn er einnig skertur frá
síðasta ári en hann varð þá um 60
þúsund lestir. Við úthlutun veiði-
heimilda fyrir þetta ár er gert ráð
fyrir að grálúðuaflinn verði 30 þús-
und lestir en vegna sveigjanleika
kerfisins getur hann farið í allt að
45 jiúsund lestir.
A þessu ári telst undirmálsflskur
að einum þriðja með í aflamarki og
aflahámarki og að fullu sá undir-
málsfiskur sem er umfram 10 pró-
sent af afla í veiðiferð. Afli, sem flutt-
ur er óunninn úr landi, skerðir afla-
kvóta viðkomandi skipa um 15 pró-
sent.
Breyting verður á sóknardögum
togara. Þeir voru 245 árið 1989 en
verða 230 í ár. Sóknardögum annarra
útgeröarflokka fækkar einnig frá því
í fyrra.
Gert er ráð fyrir að úthafsrækju-
kvótinn verði sá sami íár og í fyrra
en þá var viðmiðunaraflinn 23 þús-
und lestir. Aðeins þau skip, sem
höfðu rækjukvóta á síðasta ári, fá
úthlutað kvóta í ár. Undantekning
er þó sú að loðnuveiðiskip geta feng-
ið úthlutað rækjukvóta gegn því að
þau afsali sér botnfiskveiðiheimild-
um.
Reglur um veiðar smábáta eru þær
sömu í ár og í fyrra að öðru leyti en
því sem leiðir af lækkun heildarafla
íþorski. -S.dór
£?CI‘€.
Elding í mastrið risavaxna gerði senda lóranstöðvarinnar óvirka í tvo tíma.
DV-mynd ÁS
Lóranstööin á Qufuskálum:
Sendar óvirkir um tíma
eftir magnaða eldingu
Garðar Guöjónsson, DV, Akranea:
„Við fengum einhveija mögnuðustu
eldingu sem um getur hér í mastrið
og báðir sendarnir urðu óvirkir í
heila tvo tíma. Ég veit ekki til þess
að stöðin hafi verið óvirk svo lengi
áður,“ sagði Eysteinn Gunnarsson,
stöðvarstjóri lóranstöðvarinnar á
Gufuskálum, í samtali við DV. Mast-
ur stöðvarinnar var fyrir nokkrum
árum hæsta bygging í Evrópu, 412
metrar.
Eldingin var svo öflug að eldinga-
varar máttu sín einskis og sjómenn
uröu að komast af án merkja stöðv-
arinnar í tvo tíma. Mikið var hringt
í stöðina á meðan bilunin stóð yfir.
„Það er mjög sjaldgæft að bilanir
verði á báðum sendunum samtímis
en það er meiningin að setja upp
betri eldingavara sem fyrst og þá
ættum við að vera betur tryggðir
gegn svona löguðu," sagði Eysteinn
Gunnarsson.
Ákærður fyrir
skírlífsbrot
Hálffertugur maður hefur verið
ákærður fyrir skírlífsbrot. Mannin-
um er gefið að sök að hafa átt sam-
farir við konu án þess að hún gerði
sér grein fyrir hver hafði samfarir
við hana.
Verknaðurinn var framinn á gisti-
húsi í Reykjavík. Þar var hópur fólks
sem var í skemmtiferð í Reykjavík.
Þegar flestir höfðu gengið til náöa fór
maðurinn, sem nú hefur verið
ákærður, inn í herbergi þar sem kon-
an svaf við hlið eiginmanns síns.
Gesturinn gerði sér lítiö fyrir og
hóf samfarir við konuna. Sökum þess
í hversu þungum svefni konan var
og vegna áhrifa vegna áfengis-
drykkju, þegar samfarirnar byijuðu,
segist hún ekki hafa gert sér grein
fyrir hver var að hafa samfarir við
hana. Hún gerði sér ekki grein fyrir
því fyrr en maðurinn hafði fengiö
vilja sínum fullnægt.
Maöurinn, sem sætt hefur ákær-
unni, hefur játað að hafa hafið sam-
farirnar vitandi að konan hefði ekki
vilja til þess.
-sme
Ólafsvik:
Flugeldur sprakk í
höndum skipstjóra
Flugeldar báta og skipa eru end-
umýjaðir um áramótin. Var skip-
stjóri í Ólafsvík að skjóta upp einum
slíkum úr gömlu birgðunum þegar
það óhapp vildi til að flugeldurinn
sprakk áöur en hann skaust á loft.
Maðurinn brenndist nokkuð á báð-
um höndum og var gert að sárum
hans. Skipstjórinn tók síöan gleði
sína á ný og skellti sér reifaður um
hendurnar á áramótadansleikinn í
Ólafsvík.
Veður var þurrt og hlýtt um ára-
mótin í Ólafsvík og skemmtu íbúar
sér þar frameftir morgni eins og
margir landar þeirra. Lögreglan tel-
ur að ármamótin hafi farið frið-
samlega fram. -ÓTT
Tveir gripnir
við innbrot
Lögreglan í Grindavík handtók tvo
unga menn viö innbrotstilraun
snemma í gærmorgun.
Mennirnir höfðu brotið stóra rúðu
í húsnæði matvöruverslunar og voru
að gera sig líklega til að stela ýmsum
vamingi þegar lögreglan kom á stað-
inn. Innbrotsþjófarnir voru drukkn-
ir er þeir voru gripnir.
Til stendur að flytja verslunina í
annað húsnæði nú í ársbyrjun og
verður önnur starfsemi rekin á sama
stað.
-ÓTT
Á slysadeild eftir átök
Til átaka kom í íbúð í Breiðholti
að morgni nýársdags og var maöur
fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
Einn var handtekinn og fluttur í
fangageymslur lögreglunnar vegna
atburðarins og var talið að fíkniefni
hefðu verið höfð um hönd.
Sá sem slasaðist og var fluttur á
slysadeild lagði ekki fram kæru á
hendur hinum en málið er til frekari
rannsóknar hjá lögreglunni.
-ÓTT