Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
Útlönd
DV
Einhliða vopnahlé Hizbollah
Fýrsti varautanríkisraöherra írans, Ali Besharati, og íranskf sendiherr-
ann á Sýrlandi, Hassan Akhtery, tilkynntu milli jóia og nýárs um vopna-
hlé milli tveggja fylkinga shíta-múhameðstrúarmanna í Líbanon. Hiz-
bollah-hreyfingin hefur nú lýst yfir einhliða vopnahlé. Símamynd Reuter
Talsmenn Hizbollah-hreyfingarinnar, samtaka shíta-múhameðstrúar-
manna, lýstu í morgun yfir einhliöa vopnahléi í blóðugu striði því er
Hizbollah og Amalliöar hafa háð í Suður-Líbanon síðan á Þorláksmessu.
Amalshítar vildu ekki tjá sig um vopnahlésyfirlýsinguna í morgun. í gær
týndu að minnsta kosti tíu manns lífi og yfir þrjátíu særöust í bardögum
milli liðsmanna Hizbollah-hreyfingarinnar annars vegar og Amal-hreyf-
ingarinnar hins vegar í nágrenni þorpa í S-Líbanon. Heimildarmenn segja
að meðal hinna látnu séu fjórir liðsmenn Hizbollah, þar á meðal einn
klerkur og fiórir Amalhðar.
í höfúðborginni, Beirút, börðust liðsmenn Michel Aouns, hershöfðingja
og yfirmanns kristinna, og múhameðstrúarmenn. Bardagar geisuðu í
nágrenni grænu línunnar en hún skilur að borgarhluta kristinna og
múhameðstrúarmanna. Árið 1990 var vart hafið er fyrsta fómarlamb
bardaganna í Líbanon féll. Talið er að allt aö 1.640 hafi látiö lifiö á síð-
asta ári í bardögum í landinu. Msundir slösuðust.
Fólksflutningar frá Sovétríkjunum
Sjötíu þúsund gyðingar fengu fararleyfi frá Sovétríkjunum á síðasta ári
og er það tuttugu þúsund fleiri en metárið 1979 þegar mestu fólksflutning-
ar voru frá Sovétríkjunum aö því er samtök gyðinga skýrðu frá í gær.
Árið 1988 fluttu alls 18.965 gyðingar frá Sovétríkjunum. Æ fleiri gyöíngar
frá Sovétríkjunum hafa sest aö í ísrael. Af 8.690 sovéskum gyðingum, sem
fengu fararleyfi í desember síöastliönum, flutti fjörutíu og eitt prósent
þeirra til ísraels.
Bamahópur til suðurheimskautsins
Stjórnarkrepp-
unni í ísrael lokið
Endi hefur verið bundinn á stjórn-
arkreppuna sem varð í ísrael á
sunnudaginn þegar Yitzhak Shamir
forsætisráðherra rak Ezar Weizman,
ráðherra vísindamála, vegna
meintra samskipta hans við Frels-
issamtök Palestínumanna, PLO.
Kreppunni lauk í gær með málamiðl-
un þegar Weizman, sem er úr Verka-
mannaflokknum, féllst á að völd
hans yrðu minnkuð.
Skoðanakannanir sýna að flestir
ísraelar vilja að samsteypustjórn
Likudflokksins, flokks Shamirs, og
Verkamannaflokksins haldi áfram.
Fall stjórnarinnar hefði tafið tilraun-
ir til að koma á friði en þær eru nú
komnar í sjálfheldu vegna tillögu um
viðræður milh ísraela og Palestínu-
manna í Kaíró.
Shamir, sem reynt hefur að halda
PLO utan við viðræðurnar, sakaði
Weizman um aö hafa hitt embætt-
ismann PLO í Genf. Samkvæmt ísra-
elskum lögum er bannaö að hafa
samband við samtökin á þeirri for-
sendu að þau séu hryðjuverkasam-
tök. Vamarmálaráðherra ísraels,
Yitzhak Rabin, gerðist milligöngu-
maður í því að koma á málamiðlun-
arsamkomulagi í gær en hann og
Shamir hafa unnið að gerð áætlunar
um kosningar á herteknu svæðun-
um. Samkvæmt málamiðlunarsam-
Ezer Weizman sagði af sér embætti ráðherra visindamála í innri stjórninni
í ísrael í gær. Simamynd Reuter
komulaginu verður Weizman áfram
í ríkisstjórninni en hann verður ekki
lengur í innri sljóminni sem myndar
stefnuna. Bæði ráðherrar Likud-
flokksins og Verkamannaflokksins
lýstu yfir sigri í Weizman-máhnu í
gær.
Reuter
Jacques Cousteau sýnir fréttamönnum fána sem ætlunin er að setja
niður á suðurheimskautinu. Þaö er hópur bama sem mun sjá um það.
Stmamynd Reuter
Franski hafíræðingurinn og umhverfisvemdarsinninn Jacques-Yves
Cousteau leggur í dag af stað í táknrænt ferðalag til Suðurskautslandsins
ásamt hópi bama. Ferðalagið er fariö til að minna jarðarbúa á nauðsyn
þess að varðveita síðustu ósnertu álfu heimsins fyrir komandi kynslóðir.
Vih hann vekja heiminn til umhugsunar um hættuna fyrir vistfræöí suö-
urheimskautsins er fylgir fyrirhuguöu leyfi Suðurheimskautssamnings-
ins svokahaða sem heimhar námuvinnslu á svæðinu.
Með í fórinni era sex börn sem hvert um sig er fullírúi einnar heims-
álfu. Á tíu daga ferðalagi munu börnin m.a. byggja snjóhús og heim-
sækja vísindaleiðangra vísindamanna ffá Bandaríkjunum og Chile.
Lögreglumaður atendur vakt á gotu elnni i bænum Trea Arroyos þar
sem áttu sér stað mlklar róstur um nýárið. Simamynd Reuter
Tuttugu og fimm slösuðust í tveggja daga róstum í Argentínu um
nýárið. Róstumar hófust þegar hópur fólks réðst að lögreglustöö í bænum
Tres Arroyos, um 600 kílómetra suður af Buenos Aires, höfuöborg Argent-
ínu. Aö því er skýrt var frá í fréttum í Argentínu reiddist fólkiö lögreglu-
mönnunum sem voru of uppteknir viö að fagna nýju áfi til aö leita að
ungri telpu sem hafi týnst. Fólkið réðgt að slöðinni eftir að lík stúlkunn-
ar, Nair Mustafa, nlu ára, fannst hla leikið á sunnudag. Lögreglan greip
til vopna er árásin hófst en fólkið lét það ekki aftra sér og bar eld aö
nærfiggjandi bifreiðum sagði í firéttinni. Reuter
Grænland:
Bróðir morðingjans
lifði af skotárásina
Tvær lifshættulega særðar kon-
ur, 18 og 29 ára, létust í gærmorgun
á sjúkrahúsinu í Narsaq á Græn-
landi í kjölfar skotárásar sem þær
urðu fyrir á nýársdagsmorgun í
klúbbi í bænum. Þar hafði 18 ára
maður skotið á átta manns og létu
fimm þegar lífiö. Aöeins einn
þeirra sem skotnir vora lifði af ár-
ásina og var það bróðir morðingj-
ans. Hann er nú á batavegi.
Það var vegna byls í Narsaq og
nágrenni sem ekki reyndist hægt
aö fá sérfræðinga konunum th
hjálpar og það var heldur ekki
hægt að flytja þær th sjúkrahúss-
insins í Nuuk. Önnur konan haíði
verið skotin gegnum augað en hin
fékk skot í sig bak viö eyrað.
Þegar lögreglan fann hina særðu
á nýársdag upplýsti 23 ára gamall
maður að bróðir sinn væri morð-
inginn. Hafði hann lent í rifrhdi við
fólkið, farið heim og sótt riffil, snú-
ið aftur og hleypt af. Lögreglan,
sem fann morðingjann sofandi
heima hjá móður sinni, vhdi í gær
ekki greina frá ástæðunni fyrir
moröunum.
í kjölfar þeirra hefur landsstjórn-
in á Grænlandi ákveðið að stöðva
alla áfengissölu í Narsaq í einn
mánuð. Ritzau
Helmsókn Havels til þýsku ríkjanna:
Múrinn verður rifinn
Vaclav Havel, fyrsti forseti Tékkó-
slóvakíu í fjóra áratugi sem ekki er
kommúnisti, fór í gær í sögulega
heimsókn th þýsku ríkjanna, fimm-
tíu árum eftir að nasistar hemámu
land hans. Þetta er í fyrsta sinn sem
tékkneskur þjóðhöfðingi sækir bæði
löndin heim í einu.
Það vakti athygli að Havel, sem sór
embættiseið fyrri fimm dögum, fór
sína fyrstu heimsókn erlendis til
Austur- og Vestur-Þýskalands en
ekki Sovétríkjanna eins og hefð er
þó fyrir í ríkjum Austur-Evrópu.
Hann sagði þaö vera ósköp einfalt,
þýskir ráðamenn hefðu boðið hon-
um. Havel ræddi við Hans Modrow,
forsætisráðherra Austur-Þýska-
lands, og Manfred Gerlach, starfandi
forseta, í A-Berlín áður en hann hélt
th fundar viö Helmut Kohl, kanslara
Vestur-Þýskalands, og Richard von
Weizsácker, forseta í Múnchen.
Að loknum viðræðum sínum við
austur-þýska ráðamenn sagði Havel
að Evrópubúar þyrftu ekki að óttast
sameinað Þýskaland svo fremi það
starfaði samkvæmt lýðræðislegum
stjómarháttum. En hann sagði einn-
ig að Austur- og Vestur-Þjóðverjar
skyldu bíða með að skipuleggja fram-
tíð sína því Þjóðveijar væra enn í
gleðivímu í kjölfar opnunar Berlín-
armúrsins. Þá verður að skipuleggja
framtíð þýsku ríkjanna í samráði við
aðrar þjóðir Evrópu sagöi hann.
„Lýðraeðislegt skipulag í Þýskalandi
er mikhvægara en möguleikinn á að
ríkin sameinist í eina þjóð sextíu eða
áttatíu mhljón manna,“ sagði Havel.
Tékkneski forsetinn fór í óvænta
ferð að Berlínarmúmum í gær. „Ég
er hissa á að múrinn stendur enn,“
sagði hann. Havel sagði að forseti
Austur-Þýskalands hefði fuhvissað
sig um að múrinn yrði rifinn og stað-
festi Gerlach síðar að múrinn yrði
rifinn. Ekki er ljóst hvenær það verö-
ur. Berlínarmúrinn, sem staðið hef-
ur í tuttugu og átta ár, „féll“ í nóv-
ember, þ.e. hann var opnaður fyrir
umferð og eru landmæri ríkjanna
nú opin.
Reuter
1 m " f $
U ■ ^ I-
’É&éLt9 'J ,
mt '
í |§L ''
i . ■ ', V '
1 . -- • Vi
R; - : ' ,
Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakiu,
fór í óvænta ferð að Berlinarmúrn-
um i gær. Simamynd Reuter