Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Síða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
Spumingin
Lesendur
Hvers væntirðu
af nýja árinu?
Hafþór Sveinjónsson: Hafa þaö gott.
Gísli Þór Gíslason: Ég vænti mikils
uppgangs Rob Roy, þ.e.a.s. nýróm-
antískustefnunnar í listum.
Sigrún Guðný Markúsdóttir: Aö allt
verði við þaö sama, þ.e. mjög gott.
Finnur Þorláksson: Ég vænti góös
árs á öllum sviðum.
Jóhanna Valberg: Ég vænti þess aö
veðrið verði gott og að stjórnin hagi
sér betur.
Guðlaug Hrafnsdóttir: Ég vænti
bjartrar framtiðar og alls hins besta.
Skoðunarstöð fyrir bifreiðir:
Ekki líst mér á þá nýju
hækka enn
Ökumaður í 30 ár skrifar:
Nú er búið að vígja nýja skoðunar-
stöð Bifreiðaskoðunar íslands hf.,
eins og hún heitir „á frummálinu“.
Ekki vantar nú nafnið, maður! Ég sá
viðtal í sjónvarpinu við forstjórann
í tilefni atburðarins. Hann var m.a.
spurður um gjaldtöku. Hann svaraði
og sagði sem var að hún væri nú
1900 krónur en myndi svo bara
hækka eins og verðlag segði til um.
Svo mörg voru þau orð. Og áreiðan-
lega að sönnu, því það mun ekki
standa á að hækka skoðunargjald í
samræmi við verðhækkanir. Mér
finnst skoðunargjaldið, 1900 kr., nú
þegar vera okurverð.
Síðan var sýnt í sjónvarpinu
hvemig bíll, sem tekinn er til skoð-
unar, rennur inn - og út aftur. Fyrsti
bíUinn var forsetabílUnn og forsetinn
var sjálfur viðstaddur til að klippa.
Ekki mátti minna gagn gera! Og allir
horfðu á með velþóknun. Gleðin
skein úr hverju andliti. Nú er hægt
að skoða sex minni bíla samtímis og
einn vörubíl eða rútu. Sennilega er
nú hægt að hafa þarna aðra „blöndu"
eða samsetningu, t.d. tvær rútur og
fjóra meðalstóra bUa, eöa þrjár
drossíur og þrjá vörubíla...
í stöðinni er hægt að mæla útblást-
ursmengun, kanna hjólaútbúnaö,
bremsur, ljós og hváðeina hlýtur að
vera. Já, hvað með ljósin; skyldi
maður enn þurfa að fara á sérstök
„Og allir horfðu á með velþóknun." Ur nýju skoðunarstöðinni við Hestháls. - Skyldi hann fá skoðun, þessi?
verkstæði til að láta ljósaskoða? Það
væri nú kostur ef þarna væri hægt
að fá ljósaskoðun. - En það sem ég
er hræddastur um er að þarna verði
eins konar „safnstöð" fyrir bifreiða-
verkstæðin í borginni. - Það eiga ein-
hverjir eftir að njóta góðs af þeim
mörgu bUum sem renna frá Hest-
hálsinum með bréf upp á að fara
beint á verkstæði.
Hin nýja stöð kostaði líka 200 miUj-
ónir króna. Það væri nú annaðhvort
að eitthvað kæmi út úr henni annað
en forsetabUl og aðrir shkir með aUt
á hreinu! - Að hún verði atvinnu-
skapandi.
TryggingaiðgjöM
„Heillandi söngur og stílhreinn." -
sveitinni Gipsy Kings.
Nicolas Reyes sem syngur með hljóm-
Gipsy Kings
- frábær hljómsveit
Helgi Helgason hringdi:
í Sjónvarpinu var nýlega tónlistar-
þáttur með hljómsveit að nafni Gipsy
Kings og langar mig tU að þakka
Sjónvarpinu fyrir að ná í þennan ein-
staklega skemmtilega þátt. Tónlist
þessara ungu manna, sem ég held
að hljóti að vera Spánverjar, var ein-
staklega fáguð og skemmtileg.
Það er ekki oft sem maður sér stóra
gítarhljómsveit leika af fingrum
fram og það eins listavel og þama
var raunin. Lögin voru öll sérstak-
lega vel útsett og unun var að horfa
á hljómsveitarmennina sem sýndu
mjög þjálfaða sviösframkomu. Söng-
urinn var einnig heUlandi og stU-
hreinn, eins og gerist best á spönsk-
um lögum.
Það er þvi miður ekki oft sem fólk
á þess kost að horfa á svona hljóm-
sveitir, þrátt fyrir mikinn fjölda tón-
listarþátta á sjónvarpsstöðvunum.
Það væri ekki úr vegi að endursýna
þennan þátt með Gipsy Kings við
tækifæri því ég tel fuUvíst aö ein-
hverjir, jafnvel margir, hali misst af
þættinum - og þeir sem sáu hann
munu vafalaust horfa á hann aftur
verði hann sýndur.
Hvað varð um
megrunarklúbbinn?
A.H. hringdi:
Ég var innrituð sl. haust hjá Megr-
unarklúbbinum Línunni sem var við
Hverfisgötu 76. Þar greiddi ég fyrir
ákveðna meðferð kr. 2.700 og var
meðferðartíminn 6 vikur.
Ég kom aftur á staðinn eftir fyrstu
vikuna en þá brá svo við að þar voru
menn að bera út húsgögn og annan
búnað úr fyrirtækinu. Ég spurði
mennina hvort verið væri að flytja
starfsemina og þá hvert. Þeir gátu
engin svör gefið.
Þar sem ég hefi ekki séð neina til-
kynningu frá þessu fyrirtæki um það
hvert viðskiptavinimir eigi aö snúa
sér hef ég þaö eina ráð að spyrjast
fyrir um þetta fyrirtæki gegnum les-
endadálk DV og þá um leið hvort
fyrirtækið hafi sett upp starfsemi
sína annars staðar eða ætli að hefja
hana á ný yfirleitt.
Lesendasíðan hefur árangurslaust
leitað að samastað Megrunarklúbb-
ins Línunar en veitir að sjálfsögðu
rúm í þessum dálkum til að upplýsa
hvað varð af nefndri starfsemi.
Árni Árnason hringdi:
Nú er að koma í ljós að þrátt fyrir
fullyrðingar embættismanna innan
fjármálaráðuneytis og annarra sem
flalla um tengsl virðisaukaskatts við
þjónustuliði tryggingafélaganna um
að iðgjöld muni lækka er líklegra en
ekki að allar tryggingar hverju nafni
sem nefnast muni hækka verulega
strax á næsta ári.
Þannig hefur Samband íslenskra
tryggingafélaga látið frá sér fara yfir-
lýsingu um að í mörgum, ef ekki öll-
um, tilvikum muni virðisaukaskatt-
urinn leiða tíl hækkunar, enda þótt
iðgjöldin séu undanþegin virðis-
aukaskatti! - Þyngstar verða þessar
hækkanir á húseigendatryggingum
vegna svokaUaðs „tjónakostnaðar"
að sögn tryggingafélaganna!
Hvað stendur þá eftir af loforðum
ráðamanna um þessi mál? Nánast
stendur þar ekki steinn yfir steini.
Og aðallega vegna þess aö þeir eru
ekki menn tU aö grípa í taumana
gegn væntanlegum verðhækkunum
á iðgjöldum.
Jólahald
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Hátíð ljóss og friðar er senn að
baki. Flestir íslendingar áttu þá náð-
uga daga, margir í faðmi fjölskyldu
eða vinafólks. Víöa erlendis horfa
máUn þó öðruvísi við blessuðu fólk-
inu en hér tíðkast.
Sumt má eflaust þola hungur og
það að horfa á afkvæmi sín veslast
upp og jafnvel deyja drottni sínum,
án þess að fá að gert. Aðrir sjá ást-
vini faUa fyrir kúlum hermanna, ell-
egar lögreglu, samanber harmleik-
ina í Rúmeníu og Panama. - Og enn
aðrir dúsa á bak við lás og slá, sam-
bandslausir við sína nánustu, sökum
„rangra" stjórnmálaskoðana.
Já, jólahald heimsins þegna er með
Uku sniði og fyrr. Sorgarsögur af
mannavöldum gerast ennþá, þrátt
fyrir menntun og meiri menntun. -
Hvenær skyldi fólk læra að lifa í sátt
og samlyndi á plánetunni Jörð?
Ekki er laust við, er maður hugleið-
Upplýsingafulltrúi fjármálaráðu-
neytis virðist þó vera að reyna að
malda í móinn og segja sem svo að
ekki sé hægt að taka mark á stað-
hæfingum tryggingafélaganna án
þess að fyrir liggi sundurUðaðir
reikningar hækkununum til stað-
festngar. - Þetta er laukrétt hjá full-
trúanum og óskandi að ráðuneyti
hans standi við svona nokkuð.
Það er þó hætt við að þegar á hólm-
in er komið muni fjármálaráðuneyt-
ið eða tryggingaeftirUtið ekki fetta
marga fingur út í „rökstuðning"
tryggingafélaganna og láta hann yfir
sig ganga eins og endranær. - Það
er nefnilega Samband íslenskra
tryggingafélaga (sem meira réttnefni
væri þó „Samtrygging" íslenskra
tryggingafélaga) sem ræður ferðinni
en ekki ráðamenn þjóðarinnar. Þeir
eru löngu orðnir núll og nix. En
hvernig er þaö; er ekki nóg að hafa
bara eitt tryggingafélag, Ríkistrygg-
ingafélag, eins og Marteinn Mosdal
er alltaf að benda okkur á í ráðgjafar-
þáttum sínum á Stöð 2?
sem fyrr
ir þennan málaflokk, að maður öf-
undi dýrin. Þeim er mörgum hverj-
um hóað saman og rekin í stíur, þar
sem þau fá aö hírast mánuðum sam-
an, án þess að nokkurn tíma kastist
alvarlega í kekki milli þeirra, að því
er séð verður.
Árekstrar er leiða til dauða, innan
sömu tegundar, eru nánast óþekkt
fyrirbæri í ríki skynleysingjanna.
Þar er að vísu tekist á, en oftast nær
endar bardaginn með því að annað
kvikindið leggur á flótta. Innan tíðar
sjást þau svo nærast hhð við hUð
eins og ekkert hafi í skorist.
FerfætUngar hafa enda hvorki til
aö bera árásarhneigð nema tU veiða
né drottnunargirni þá sem hinni
„vitrænu" tegund er svo ríkulega
gefin og brúkar svo miskunnarlaust
í eigin þágu. - En vel að merkja; tU
heUla fyrir fjöldann, eins og það er
víst kallaö.