Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Page 26
26
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
Sviðsljós
Þaö var mikið um aö vera á
hinum árlega nýársfagnaði á
Hótel íslandi. Meöal skemmti-
atriöa um kvöldið og nóttina
voru valin atriði úr nýrri,
rammíslenskri óperu, Allt á
huldu. Helstu persónur í óper-
unni eru Hulda, sem leikin var
af Flosa Ólafssyni, Gilda, leikin
af Ragnhildi Gísladóttur, soö-
greifmn, sem Egill Ólafsson lék,
og Ása krypplingur, leikin af
Ladda. Ragnhildur Gísladóttir I hlutverki Gildu og Gosi, nei, hvaða vitleysa, þetta er Egill Ólafsson i hlutverki soðgreifans.
Fjörá
Hótel
íslandi
Þjóðleikhúsið:
Fmmsýning Heimilis
Vemhörðu Alba
Leikritiö Heimili Vemhörðu
Alba eftir Federico Garcia Lorca
er verk mikiUa tilfinninga, brenn-
andi lífsþorsta og þjáningar sem
hlýst af valdbeitingu. Leikritið ger-
ist innan húss á brennheitum sum-
arvikum á Spáni. Vernharða Alba
heldur dætrum sínum fimm í jám-
greipum, enginn andblær má kom-
ast inn á heimilið þau átta ár sem
sorg skal ríkja eftir andlát heimil-
isföðurins. Állt er bundið í viðjar
hefða og venja.
Elsta dóttirin á þó biðil, ungan
mann sem dæturnar gimast allar,
einkum sú yngsta. Vernharða
reynir að stjórna rás viðburðanna
án tillits til þeirrar tilfinningaólgu
er býr í brjóstum dætranna. Yngsta
dóttirin býður þó móðurinni birg-
inn með framferði sínu. Hún vill
ekki deila hlutskipti systranna,
hún vill verða frjáls.
Að kvöldi annars dags jóla frum-
sýndi Þjóðleikhúsið þetta stór-
brotna verk og var því ágætlega
tekið meðal áhorfenda. Mikill fjöldi
fólks var viðstaddur frumsýning-
una.
Valur Gíslason leikari og eiginkona hans, Lauf-
ey Árnadóttur, komu á frumsýninguna ásamt
syni sínum, Val Valssyni bankastjóra, og eigin-
konu hans, Guðrúnu Sigurjónsdóttur.
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup og eiginkona
hans, frú Sólveig Ásgeirsdóttir, virtust
skemmta sér hið besta.
Böðvar Bragason, lögreglustjóri i Reykjavík,
ásamt eiginkonu sinni, Gígju Haraldsdóttur.
DV-myndir S.
jllíiVurimnííif!:
i .vn-iivsá
Gylfi Már Guðjónsson afhendir hér Davið Axelssyni viðurkenningu Trésmiðafélags Reykjavíkur fyrir góðan að-
búnað á vinnustað sínum.
Viður-
kenning
Trésmiða-
félags
Reykja-
víkur
Trésmiðafélag Reykjavíkur
veitti skömmu fyrir áramót
vinnustað Davíðs Axelssonar
byggingameistara, Þverholti 11,
Mosfellsbæ, sérstaka viður-
kenningu félagsins fyrir góðan
aðbúnað á vinnusvaeðinu,
Þetta er í fimmta sinn sem
Trésmiðafélagið veitir viður-
kenningu fyrir góðan aðbúnað
á vinnustöðum. Það var á árinu
1985 sem félagið tók upp þessa
nýbreytni í starfi sínu en vinnu-
staður Davíðs Axelssonar er
sjöunda fyrirtækið sem hlýtur
viðurkenningu félagsins.
Þau giftu sig
árið 1989
Það vakti mikla athygli í Dan-
mörku þegar sóknarpresturinn í
Nörrebro, Ivan Larsen, giftist vini
sínum, Ove Larsen. Á liðnu ári
voru sett lög í Danmörku sem
heimila samkynhneigðu fólki að
giftast. Hjónabönd samkyn-
hneigðra lúta sömu lögum i Dan-
mörku og hjónabönd fólks af
karl- og kvenkyni nema að því
leyti að samkynhneigðir mega
ekki ættleiða börn.
Rollingurinn Bill Wyman, sem
orðinn er 52 ára, giftist hinni 19
ára gömlu kærustu sinni, henni
Mandy Smith, en þau hafa þekkst
í fimm ár, eða síðan Mandy var
13 ára.
Hinn heimsfrægi fótboltaspilari,
Diego Maradonna, gekk einnig í
það heilaga á liðnu ári í Buenos
Aires og giftist hinni fögru Clau-
dia Villanafane. Sumum þótti
heldur betur kominn tími til að
þau létu pússa sig saman því
þau áttu saman tvær dætur.
Blaðakóngurinn Hugh Hefner, sá
sem á Playboy, giftist fyrirsæt-
unni Kimberly Conrad en hún
var á síðasta ári kosin sin af
stúlkum mánaðarins hjá Play-
boy. Það er hins vegar óvíst að
hún striplist oftar á síðum blaðs-
ins.
Hlaupadrottningin Zola Budd var
ein af þeim sem fann hamingj-
una árið 1989. Hún giftist kaup-
sýslumanninum Mike Pietese og
eru hjónakornin að hugsa um
að búa í Englandi í framtíðinni.