Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
27
Afmæli
Matthías Johannessen
Matthías Johannessen, skáld og rit-
stjóri Morgunblaðsins, Reynimel
25A, Reykjavík, er sextugur í dag.
Matthías fæddist 1 Reykjavík og
ólst upp í vesturbænum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR1950 og cand.
mag. prófi í íslenskum fræðum frá
HÍ1955. Þá stundaði hann fram-
haldsnám við Kaupmannahafnar-
háskóla veturinn 1956-57.
Matthias varð blaðamaður við
Morgunblaðið 1951 og hefur verið
ritstjóri Morgunblaðsins frá 1959.
Hann hefur setið í stjórn Hins ís-
lenska þjóðvinafélags; í mennta-
málaráði; í bókmenntaráði Al-
menna bókafélagsins; í stjórn Film-
íu; í stjóm SUS, verið ásamt öðmm
ritstjóri Stefnis og setið í stjórn
Krabbameinsfélags íslands. Matthí-
as hefur verið formaður Stúdenta-
ráðs HÍ; formaður Stúdentafélags
Reykjavíkur; formaður Blaða-
mannafélags íslands; Formaður Fé-
lags íslenskra rithöfunda; Rithöf-
undasambands íslands; Rithöfunda-
ráðs, og Norræna rithöfundaráðs-
ins. Hann hlaut verðlaun úr móður-
málssjóði Bjöms Jónssonar og hef-
ur skipað heiðurslaunaflokk lista-
manna um nokkurt skeið.
Ljóðabækur Matthíasar: Borgin
hló, 1959; Hólmgönguljóð, 1960; Jörð
úr ægi, 1961; Vor úr vetri, 1963; Fag-
ur er dalur, 1966; Vísur um vötn,
1971; Mörg eru dags augu, 1972; Dag-
ur ei meir, 1975; Morgun í maí, 1978;
Veður ræður akri, 1981; Flýgur öm
yfir, 1984, og Dagur af degi, 1988, en
sú bók var tilnefnd til bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs. Mörg
ljóða Matthíasar hafa verið þýdd og
gefin út á fjölmörgum tungumálum.
Meðal leikrita hans: Jón gamh;
Eins og þér sáið; Fjaðrafok; Sól-
myrkvi; Sókrates ogútvarpsleikrit-
iö Guðs reiði.
Samtalsbækur Matthíasar: í
kompaníi við allífið, viðtöl við Þór-
berg Þórðarson, 1959; Svo kvað
Tómas, viðtöl við Tómas Guð-
mundsson, 1960; Hundaþúfan og
hafið, viðtöl við Pál ísólfsson, 1961;
í dag skein sól, viðtöl viö Pál Isólfs-
son, 1964; Kjarvalskver, 1968, og
aukið 1974; Bókin um Ásmund, 1971;
Skeggræður gegnum tíðina, sam-
talsgreinar um Halldór Laxness,
1972; Gunnlaugur Scheving, 1974;
Sverrir Haraldsson, 1977, og í komp-
aníi við Þórberg. Þá komu út 1977-82
fjögur bindi af samtölum Matthías-
ar við ýmsar persónur.
Matthías sendi frá sér smásagna-
söfnin Nítján þættir, 1981, og Kon-
ungur af Aragon, 1986. Þá kom út
eftir hann skáldsagan Sól á heims-
enda, 1987. Hann samdi fræðiritið
Njála í íslenskum skáldskap, útg.
1958, Klofningur Sjálfstæðisflokks-
ins gamla 1915, útg. 1971, og skrifaði
ævi- og stjórnmálasögu Ólafs Thors,
sem út kom í tveimur bindum 1981.
Matthías kvæntist 26.6.1953, Jó-
hönnu Kristveigu Ingólfsdóttur, f.
28.11.1929, dóttur Ingólfs Kristjáns-
sonar, b. á Víðihóli á Hólsvöllum,
og konu hans Katrínar Magnús-
dóttur.
Matthías og Jóhanna eiga tvo syni.
Þeir eru Haraldur, f. 1954, lögfræð-
ingur og forstöðumaður Fangelsis-
málastofnunar ríkisins, og Ingólfur,
f. 1964, nemi í læknisfræði vdð HÍ.
Haraldur er kvæntur Brynhildi
Ingimundardóttur hjúkrunarfræð-
ingi og eiga þau tvo syni, Matthías
og Kristján.
Matthias á tvö systkini. Þau eru
Jósefína Norland, húsmóðir í
Reykjavík og Jóhannes Johanness-
en, lögfræðingur vdð Landsbanka
íslands.
Foreldrar Matthíasar: Haraldur
Johannessen, f. 5.4.1897, aðalgjald-
keri Landsbanka íslands, og kona
hans, Anna Jóhannesdóttir, f. 2.11.
1900, húsmóðir.
Föðursystir Matthíasar var Ellen,
móðir Louisu Matthíasdóttur list-
málara. Haraldur var sonur Matthí-
asar Johannessen kaupmanns, frá
Bergen í Noregi. Móöir Haraldar var
Helga Noröfjörð Jónsdóttir, Norð-
fjörð verslunarmanns í Reykjavík,
bróður Sigríðar, ömmu Jakobs
Möller ráðherra, fóður Baldurs,
fyrrv. ráðuneytisstjóra og skák-
meistara, föður Markúsar hagfræð-
ings. Önnur systir Jóns var Helga,
langamma Hans G. Andersen. Jón
var sonur Magnúsar Norðíjörö,
beykis í Reykjavík, Jónssonar,
beykis í Reykjafiröi, bróður Guð-
bjargar, langömmu Sigríðar, ömmu
Friðriks Ólafssonar stórmeistara,
og langömmu Jóhanns, afa Jóhanns
Hjálmarssonar skálds. Önnur systir
Jóns var Hallgerður, langamma
Ágústar H. Bjamasonar, heimspek-
ings og háskólarektors. Móðir Jóns
verslunarmanns var Helga Ingi-
mundardóttir, systir Ingigerðar,
langömmu Bjargar, ömmu Garðars
Cortes óperusöngvara. Bróðir Helgu
var Ólafur, langafi Valgerðar,
ömmu Einars Benediktssonar
sendiherra.
Móðursystkini Matthíasar: Lárus,
alþingismaður og hæstaréttardóm-
ari, og Elín, húsmóðir. Faðir Önnu
var Jóhannes, bæjarfógeti í Reykja-
vdk, Jóhannesson, sýslumanns,
Guðmundssonar, b. á Miklahóli í
Viðvíkursveit, bróður Halls, fóður
Sigurðar, langafa Páls á Höllustöð-
um. Annar bróðir Guðmundar var
Jóhannes, hreppstjóri í Hofsstaðas-
eli, afi Vilhjálms Stefánssonar land-
könnuðar. Guðmundurvar sonur
Jóns, b. á Bjarnastööum, Jónssonar,
fjórðungslæknis í Viðvdk, Péturs-
sonar. Móðir Jóns á Bjarnastöðum
var Guðrún Hallgrímsdóttir
(Djákna-Gunna), sú er Myrkár-
djákninn glettist vdð.
Móðir Jóhannesar bæjarfógeta
var Maren Ragnheiður Friðrika
Lárusdóttir, sýslumanns að Enni,
Thorarensen, Stefánssonar, amt-
manns á Möðruvöllum, Þórarins-
sonar, sýslumanns að Grund, ætt-
föður Thorarensenættarinnar,
Jónssonar. Móðir Lárusar var
Ragnheiður Vigfúsdóttir, sýslu-
manns á Víðivöllum, Schevdng.
Móðir Marenar var Elín Jakobs-
dóttir Hafstein, systir Péturs Haf-
stein amtmanns, föður Hannesar
ráðherra.
Matthías Johannessen.
Móðir Önnu var Jósefína Antón-
ína, systir Haraldar Blöndal ljós-
myndara, afa Benedikts hæstarétt-
ardómara, Halldórs alþingismanns
og Haraldar hrl. Jósefína var dóttir
Lárusar Blöndal, amtmanns á
Komsá, bróður Gunnlaugs sýslu-
manns, Magnúsar sýslumanns og
Jóns Auðuns alþingismanns. Lárus
var sonur Björns Blöndal, sýslu-
manns í Hvammi í Vatnsdal, ætt-
föður Blöndalsættarinnar, Auðuns-
sonar.
Móöir Jósefinu var Kristín, dóttir
Ásgeirs, dbrm og bókbindara á
Lambastöðum á Álftanesi, bróður
Jakobs, prests í Steinnesi, langafa
Vigdísar forseta, en móðir Kristín-
ar, Sigríður, var systir Þuríðar,
langömmu Vigdísar forseta. Sigríð-
ur var dóttir Þorvalds, prests og
skálds í Holti, Böðvarssonar, prests
í Holtaþingum, Högnasonar, presta-
föður á Breiðabólstað.
í tilefni afmælisins verður Al-
menna bókafélagið með dagskrá í
Súlnasal Hótel Sögu í dag, skáldinu
til heiðurs, en dagskráin hefst
Idukkan 17:30.
Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir, útibússtjóri
Landsbanka íslands á Hellissandi,
Klettsbúð 4, Heflissandi, er fertug í
dag.
Kolbrún fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Raufarhöfn. Hún stundaði
nám í Lundi í Öxarfirði, 1 Fjölbraut
í Breiðholti og í Verslunarskóla ís-
lands. Hún hefur gegnt ýmsum
störfum á Raufarhöfn, t.d. hefur
hún unnið við verslunarstörf,
kennslu við barnaskóla Raufar-
hafnar, verið gjaldkeri hjá útgerðar-
fyrirtækinu Jökli hf. en lengst af
hefur hún verið bankastarfsmaður.
Árið 1984 tók hún við afgreiðslu
Landsbankans á Raufarhöfn og
starfaði sem forstöðumaður af-
greiðslunnar í fimm ár eða þar til
hún gerðist útibússtjóri Lands-
bankans á Hellissandi þann 1.7.
1989. Kolbrún sinnti ýmsum félags-
málum á Raufarhöfn, m.a. var hún
kórfélagi í Kirkjukór Raufarhafnar
og í slysavamadeildinni um tvo ára-
tugi, og sat í sveitarstjórn Raufar-
hafnar frá 1982 þar til hún fluttist
burtámiðjuáril989.
Kolbrún giftist þann 31.12.1969
Björgólfi Björnssyni útgerðar-
manni, f. 8.7.1949. Hann er sonur
Bjöms Friðrikssonar frá Svein-
ungavdk og Hlaðgerðar Oddgeirs-
dóttur frá Grenivík.
Börn Kolbrúnar og Björgólfs eru:
Birgitta, f. 11.7.1969, bankastarfs-
maður; ogBrimrún, f. 4.7.1980.
Sysktini Kolbrúnar em: Særún, f.
26.6.1952 og er sonur hennar, Stefán
Jan, f. 14.2.1973; Guðrún, f. 8.10.
1957, gift Benedikt Valtýssyni og eru
börn þeirra, Daníel, f. 17.11.1981, og
Eva, f. 29.10.1984; Magnús, f. 17.6.
1959.
Foreldrar Kolbrúnar em Stefán
Magnússon, f. 17.11.1924, fyrrv. ut-
gerðarmaður og sjómaður á Raufar-
höfn, og Kristjana Ósk Kristins-
dóttir, f. 3.6.1921, fiskverkakona.
Stefán er sonur Magnúsar Stef-
Kolbrún Stefánsdóttir.
ánssonar, b. í Skinnalóni á Sléttu,
og Hólmfríðar Guðmundsdóttur.
Kristjana er dóttir Kristins Jóels
Magnússonar málarameistara og
Maríu Albertsdóttur.
Þorbjörg Gunnlaug
Halldórsdóttir
Þorbjörg Gunnlaug Halldórsdótt-
ir húsmóðir, Bakkavegi 1, Þórshöfn,
eráttatíuáraídag.
Þorbjörg er fædd í Svalbarðsseli í
Þistilfirði og ólst hún upp í Þistfl-
firðlnum. Hún gekk í barnaskóla í
fjóra mánuði á þremur árum og
vann öll almenn sveitastörf innan-
húss og utan. Hún hóf búskap ásamt
manni sínum á Fjallalækjaseli í
Þistilfirði árið 1930, en árið 1937
flytja þau í Fagranes á Langanesi.
Þar vom þau aðeins í tvö ár, en
flytja þá í Hlíð á Langanesi. Arið
1949 kaupa þau Ártún og búa þar í
25 ár. Þorbjörg flyst með syni sínum
í Hallgilsstaði og búa þar til 1984 að
þau flytjast til Þórshafnar.
Þorbjörg giftist þann 12.7.1930
Birni Jónssyni bónda, f. 14.5.1893,
d. 19.9.1978. Foreldrar hans voru
Jón Björnsson og Abigael Guð-
mundsdóttir.
Börn Þorbjargar og Bjöms eru:
Þórarinn Sigurður, f. 1.3.1932; og
Sigurveig Halldóra, f. 3.10.1933. En
auk þess áttu þau tvo fóstursyni:
Þorgrím Kjartansson og Óla Jó-
hannes Jónsson.
Þorbjörg eignaðist íjögur alsystk-
ini og eru þrjú enn á lífi.
Foreldrar Þorbjargar voru Halld-
ór Kristjánsson bóndi, f. 11.3.1878,
d. 24.12.1967, og Sigurveig Sigvalda-
dóttir húsmóðir, f. 23.6.1874, d. 4.2.
1953. Þau bj uggu lengst af í Sval-
barösseli í Þistilfirði.
Til hammgju með afmælið 3. janúar
80 ára 50ára
Kristján Ágúst Lárusson, Seljavegi 29, Reykjavík. Anna Maria Jóhannsdóttir, Norðurgötu 42, Akureyri. Jón Ragnar Bjömsson, Yrsufelli 5, Reykjavík. Ólafur Larsen,
75 ára
Kristín Jónsdót tir, Kotárgerði 1, Akureyri.
Draflastöðum, Hálshreppi. 40ára
70 ára
Áslaug Jóhannesdóttir,
Guðmundur Axelsson, Valdarási syðri, Þorkelshóls- hreppL Sigurður Sigurðsson, Aðalstræti 97, Patreksfirði. Skólavörðustíg 19, Reykjavík. Bergþóra Annasdóttir, Hrunastig 2, Þingeyri. Bergþóra Reynisdóttir, Mánahlíð 14, Akureyri. Halldór B. Kristjánsson,
60 ára Haukanesi 1, Garðabæ. Jón Stefánsson, Mariubakka 30, Reykjavdk. Magnús Þorsteinsson, Tunguheiöi 12, Kópavogi. Margrét Bjarnhéðinsdóttir, Hilmisgötu 5, Vestmannaeyjum. Sigrún B. F riðfinnsdóttir, Ásbraut 15, Kópavogi.
Árni Baldvin Hermannsson, Hátúni26, Keflavík. Elín Grímsdóttir, Húnabraut9, Blönduósi. Hugljúf Dagbj artsdóttir, Súluhólum4, Reykjavík. Þórður Sveinsson, Oddabraut 18, Þorlákshöfn.
Guðbjörg Svavarsdóttir
Guðbjörg Svavarsdóttir, Réttar- holti 5, Borgarnesi, er fimmtug í dag. Eiginmaður hennar er Karl Ágúst Ólafsson og á hún fjórar dætur. For- eldrar hennar eru Svavar Sigfinns- son bílstjóri og Sigurbjörg Magnús- dóttir sem nú er látin. Guðbjörg tekur á móti vinum og vandamönnum á heimili sinu á laugardaginn, 6. janúar, eftir kl. 20.
ER SMÁAUGLÝSINGA
BLADID
SIMINNER
ÆTTFRÆÐINAMSKEIÐ
I næstu og þarnæstu viku hefjast ný ættfræöinám-
skeið hjá Ættfræðiþjónustunni, bæði fyrir byrjendur
og lengra komna. Notið tækifærið og leggið grunn-
inn að skemmtilegri, fræðandi tómstundaiðju. Öll
undirstöðuatriði ættrakningar tekin fyrir. Þátttakend-
ur fá þjálfun og aðstöðu til ættarleitar með afnotum
af alhliða heimildasafni. Leiðbeinandi er Jón Valur
Jensson. Uppl. og innritun í síma 27101 kl. 10-19.30.
Höfum mikið úrval ættfræðibóka til sölu, m.a. mannt-
öl, niðjatöl, ættartölur, ábúendatöl, stéttartöl o.s.frv.
ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN - ÆTTFRÆÐIÚTGÁFAN
Sólvallagötu 32A, pósthólf 1014, 121 Rvík, sími 27101.