Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1990, Qupperneq 28
28
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990.
Andlát
Guðmunda Guðmundsdóttir frá
Hurðarbaki, Skólavöllum 8, Selfossi,
lést aðfaranótt nýársdags í Sjúkra-
húsi Suðurlands, Selfossi.
Þórhildur Skaftadóttir, Sörlaskjóli
56, andaðist á gjörgæsludeild
Landspítalans að morgni gamlárs-
dags.
Valgerður Halldórsdóttir frá Hvann-
eyri, Selvogsgrunni 8, lést að Selja-
hlíð 1. janúar.
Guðbjörg Kristjana Guðjónsdóttir
frá Amamúpi, Glitvangi 23, Hafnar-
flrði, andaðist í Hrafnistu, Reykjavík,
að kvöldi gamlársdags, 31. desember.
Þórdís Magnúsdóttir, Haðarstíg 18,
lést 31. desember.
Hallfríður Gísladóttir lést í sjúkra-
deild Hrafnistu í Hafnarfirði að
kvöldi nýársdags.
Hjálmar Eyjólfsson, Tjörn viö Her-
jólfsgötu, lést í Borgarspítalanum á
nýársdag.
Andrés Guðmundsson frá Syðri-
Gróf, til heimilis að Háaleitisbraut
93, lést í Borgarspítalanum aðfara-
nótt 30. desember.
Gunnar Ásgeirsson, Krosseyrarvegi
11, Hafnarfirði, lést að morgni nýárs-
dags á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Jarðarfarir
Valgeir Þórður Guðlaugsson, Hörða-
landi 24, lést þann 26. desember sl.
Hann verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju í dag, 3. janúar, kl. 15.
Valgeir fæddist 18. júlí 1910 í Hafnar-
firði. Þar lærði hann prent og starf-
aði framan af ævi sem prentari. Þá
gerðist hann verslunarmaður og
stundaði verslun á eigin vegum og
annarra uns hann lét af störfum á
síöasta ári. Eftirlifandi eiginkona
hans er Hrefna Sigurðardóttir. Þau
hjónin eignuðust sjö böm sem öll em
' álífi.
Lára Magnúsdóttir lést í Borgar^.
spítalanum 25. desember. Jarðarför-
in fer fram í Dómkirkjunni miðviku-
daginn 10. janúar kl. 13.30.
Júlianna Hjaltadóttir lést í Sjúkra-
húsi Bolungarvíkur fóstudaginn 29.
desember. Jarðarfor hennar verður
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
yujraoAR
Andlát
Stefán A. Pálsson
Stefán A. Pálsson stórkaupmaður,
Stigahlíð 4, Reykjavík, lést 21.12. sl.
en hann verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í dag, miðvikudaginn
3.1., klukkan 13.30.
Stefán fæddist 2.2.1901 að Hrauni
á Djúpavogi í Suður-Múlasýslu en
flutti ungur til Reykjavíkur og bjó
þar síðan all tíð. Hann stundaði nám
við Verslunarskóla íslands 1917-
1919 og var síðan í framhaldsnámi
í verslunarfræðum í Edinborg í
Skotlandi.
Stefán stundaði heildverslun
1921-60 og var skrifstofumaöur hjá
Bæjarútgerð Reykjavíkur 1960-79.
Þá var hann umboðsmaður Happ-
drættis Háskóla íslands 1934^48.
Stefán sat í stjórn Landsmálafé-
lagsins Varðar 1934-38 og 1940-42
en formaður Varðar var hann
1942-43. Hann var varamaður í bæj-
arstjóm Reykjavíkur 1938-46 og sat
þá m.a. í framfærslunefnd. Þá var
Stefán forstöðumaður Vetrarhjálp-
arinnar í Reykjavík 1934-54. Hann
sat í stjórn Knattspyrnufélagsins
Fram og var um skeið formaður
þess, auk þess sem hann sat í stjóm
Frjálslynda safnaðarins 1941-45.
Stefán var kosningastjóri Sjálfstæð-
isflokksins fyrir sveitarstjórnar- og
alþingiskosningar frá 1932-74. Hann
var kjörinn heiöursfélagi Varðar
1971 og var sæmdur silfurkrossi
Fram 1943.
Eftirlifandi kona Stefáns er Hildur
E. Pálsson húsmóðir, f. að Borgar-
gerði á Reyðarfirði, 10.9.1912, en þau
giftu sig8.10.1932. Foreldrar hennar
vom Jóhannes Pétur Malmquist,
bóndi að Borgargerði, f. 26.10.1877,
og Kristrún Bóasdóttir ljósmóðir, f.
23.12.1882.
Stefán og Hildur eignuðust átta
böm en þrjú þeirra dóu í bemsku.
Uppkomin böm þeirra em: Stefanía,
f. 26.1.1935, skrifstofumaður hjá
Flugleiðum, gift Birni Valgeirssyiú,
arkitekt hjá Reykjavíkurborg og
eiga þau þijár dætur; Páll, f. 10.5.
1941, auglýsingastjóri DV, kvæntur
Önnu Guðnadóttur kaupmanni og
eiga þau tvö börn; Stefán, f. 25.11.
1943, forstöðumaður Húss verslun-
arinnar, kvæntur Jórunni Magnús-
dóttur húsmóður og eiga þau fjögur
börn; Kittý, f. 19.3.1945, húsmóðir í
Reykjavík, gift Ólafi Ólafssyni,
verslunarmanni hjá Fálkanum og
eiga þau tvö böm, og Hrafnhildur,
f. 12.12.1950, flugfreyja, gift Val Ás-
geirssyni, forstöðumanni hjá Flug-
leiðum og eiga þau saman eina dótt-
ur auk þess sem Hrafnhildur á son
frá fyrra hjónabandi. Auk þrettán
bamabama em langafabörn Stef-
áns nú orðin átta talsins.
Foreldrar Stefáns vom Páll Har-
aldur Gjslason, f. að Gmnd í Svarf-
aðardal, 22.12.1872, lengst af kaup-
maður að Kaupangi við Lindargötu
í Reykjavík, og kona hans, Stefanía
Andrea Vilhelmína Guðmundsdótt-
ir, f. að Torfastöðum í Vopnafirði,
28.3.1873, húsmóðir.
Föðursystir Stefáns var Sólveig,
móðir Einars Olgeirssonar, fyrrv.
alþingismanns og formanns Sósíal-
istaflokksins. Páll var sonur Gísla,
b. á Grund í Svarfaðardal, bróður
Einars, verslunarmanns á Akur-
eyri, fóður Matthíasar yfirlæknis,
fóður Louisu hstmálara. Systir
Matthíasar var Sólveig, móðir Ein-
ars Bjarnasonar ættfræðiprófess-
ors. Ánnar bróðir Gísla var Snorri,
verslunarstóri á Siglufirði, langafi
Gústavs Amars, yfirverkfræðings
hjá Landssímanum. Systir Gísla var
Kristín, móðir Páls Einarssonar,
fyrsta borgarstjóra Reykjavíkur, afa
Páls Theodórssonar eðlisfræðings.
Bróðir Páls borgarstjóra var Bessi,
afi Bessíar Jóhannsdóttur, fyrrv.
formanns Hvatar. Annar bróðir
Páls var Guðmundur, faðir Þor-
steins tannlæknis, föður Kristínar,
fréttamanns hjá ríkisjónvarpinu.
Systir Páls var Jómnn, amma Þu-
ríðar ópemsöngkonu og Einars
fræðimanns Pálsbarna. Þá var Jór-
unn móðir Katrínar Viðar, móður
Jórunnar Viöar tónskálds, móður
Katrínar Fjeldsted, læknis og borg-
arráðsmanns.
Gísli var sonur Páls, prests og
skálds á Völlum og í Viðvík í Skaga-
firði Jónssonar, b. í Sælingsdal,
Jónssonar. Móðir Páls var Sólveig
Gísladóttir, hreppstjóra í Hvítadal
Pálssonar.
Móðir Gísla á Grund var Kristín
eldri, systir Kristínar yngri,
langömmu Þorbjamar, föður Þórð-
ar borgarverkfræðings. Þá var
Kristín yngri amma Bjama Jóns-
sonar vígslubiskups, föður Ágústs
skrifstofustjóra, föður Guðrúnar,
aðstoðarmanns menntamálaráð-
herra. Bjami var einnig faðir Ólaf-
ar, móður Önnu Klemensdóttur
sagnfræðings. Bróðir séra Bjama
var Hafliði, afi Péturs Sigurðssonar,
formanns bankaráðs Landsbank-
ans. Systir Kristínar var Ragnheið-
ur, langamma Álfheiðar, móður
Guðmundar Emilssonar hljóm-
sveitarstjóra.
Kristín var dóttir Þorsteins Guð-
mundssonar, stúdents á Laxámesi,
bróður Guðríðar, langömmu Guð-
rúnar, ömmu Karls Steinars Guðna-
sonar.
Móðir Páls kaupmanns var Krist-
ín Sigríður Kristjánsdóttir, hrepp-
stjóra í Neðri-Vindheimum, Jóns-
soriar, og konu hans, Ambjargar,
systur Sigríðar, ömmu Bjöms, lang-
afa Péturs ættfræðings og Páls bún-
aðarmálastjóra Zophaníassona.
Stefán A. Pálsson.
Ambjörg var dóttir Jóns, b. á Hóli,
Rögnvaldssonar.
Móðurbróðir Stefáns var Emil
Guðmundur, prestur á Kvíabekk.
Annar móðurbróðir Stefáns var
Carl, kaupmaður á Stöðvarfirði, afi
Gunnlaugs Snædals yfirlæknis.
Þriöji móðurbróðir Stefáns var Stef-
án, verslunarstjóri á Djúpavogi, afi
Agnars, skipstjóra og framkvæmda-
stjóra, föður Guðrúnar alþingis-
manns.
Stefanía var dóttir Guðmundar,
hreppstjóra á Torfastöðum, bróður
Svanborgar, langömmu Halldórs,
föður Kristínar, fyrrv. alþingis-
manns. Guðmundur var sonur Stef-
áns, b. á Torfastööum Ólafssonar.
Móðir Stefáns var Sólveig, Bjöms-
dóttir. Móðir Sólveigar var Guðrún
Skaftadóttir, systir Arna, langafa
Magðalenu, ömmu Ellerts Schram,
ritstjóra DV.
Móðir Stefaníu var Juliane Jens-
ine Schou, dóttir Hermanns S.
Christian Schou, verslunarstjóra á
Vopnafirði, og konu hans, Sigríðar,
dóttur Jóns, b. á Búlandsnesi,
Ófeigssonar og Kristínar Ófeigs-
dóttur, b. á Hamri, Magnússonar.
Fréttir
Atök á Eskifirði:
Deilt um fiskverð
og uppsagnir
í frystihúsi
- lausn í sjónmáli eftir
Mikil átök hafa verið í stærsta
fyrirtækinu á Eskifirði. Sjómenn á
togurunum Hólmatindi og Hólma-
nesi hafa átt í deilu við Aöalstein
Jónsson, eiganda togaranna og
Hraðfrystihúss Eskiíjarðar, um
fiskverð. Sjómenn vilja fá fisk-
markaðsverð á 30 prósent af lönd-
uðum afla en fá það verð á um 20
prósent aflans. Þegar ekki gekk
saman neituðu sjómenn að mæta
um borð og róa.
Þá var gripiö til þess ráðs að segja
öllu starfsfólki frystihússins fyrir-
varalaust upp störfum í gær og það
fund starfsfólks og Aðalsteins Jónssonar í morgun
tekið af launaskrá.
Þetta er gert í skjóli laga um ófyr-
irsjáanlegan hráefnisskort. Þessi
ákvörðun er mjög umdeild þar sem
lagagreinin er sett til verndar fisk-
vinnslustöðvum ef einhvers konar
náttúruhamfarir eða annað óvið-
ráðanlegt veldur hráefnisskorti.
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Árvakurs, telur fyrirvaralausar
uppsagnir starfsfólks frystihússins
ólöglegar. Þess vegna var starfsfólk
hvatt til að mæta til vinnu í morg-
un, sem það og gerði. Þar var hald-
inn fundur með fólkinu, sem Aðal-
steinn Jónsson, eigandi fyrirtækis-
ins, mætti einnig á.
Þar lýsti hann yfir vilja sínum til
að setjast niður með sjómönnum
og finna lausn á deilunni. Sagðist
Hrafnkell A. Jónsson vonast til
þess að það yrði til að leysa deiluna.
Aðalsteinn Jónsson sagði í sam-
tali við DV áður en fundurinn hófst
að svona mál þyrfti að ræða í róleg-
heitum. Menn ættu ekki aö hlaupa
svona til, allt þyrfti sinn tíma.
-S.dór
Tórúeikar
gerð frá Hólskirkju, Bolungarvík,
laugardaginn 6. janúar kl. 14.
Daníel Vestmann, Álfhólsvegi 4,
Kópavogi, sem andaðist 22. desember
1989, verður jarðsunginn frá Kópa-
vogskirkju fóstudaginn 5. janúar kl.
13.30.
Eygerður Pétursdóttir, Sæbraut 10,
Seltjarnamesi, sem lést að morgni
27. desember, verður jarðsungin frá
Seltjamarneskirkju fimmtudaginn
4. janúar kl. 15.
Ólafur Ingi Jónsson prentsmiðju-
stjóri, Sefgörðum 22, Seltjamarnesi,
sem andaðist 25. desember sl., verður
jarðsunginn frá Neskirkju fimmtu-
daginn 4. janúar kl. 13.30.
Mary A. Friðriksdóttir frá Gröf, Vest-
mannaeyjum, verður jarðsungin frá
Landakirkju, Vestmannaeyjum,
fóstudaginn 5. janúar kl. 14.
Jón Ingjaldur Júlíusson, Grensás-
vegi 60, verður jarðsettur frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 4. janúar
kl. 10.30.
Grímur M. Helgason cand. mag.,
Kambsvegi 23, verður jarðsunginn
frá' Fossvogskirkju föstudaginn 5.
janúar kl. 13.30.
Kristján S. Guðjónsson, Dvalar-
heimilinu Hlíf, ísadfirði, verður jarð-
sunginn frá ísafjarðarkapellu
fimmtudaginn 4. janúar kl. 14.
Útför Steinunnar Sæmundsdóttur,
Hraunbraut 1, Kópavogi, verður gerð
frá Fossvogskapellu fóstudaginn 5.
janúar kl. 15.
Hólmfríður Ingimundardóttir, Rauð-
arárstíg 9, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. jan-
úar kl. 15.
Anna Guðmundsdóttir frá Amar-
stapa verður jarðsungin frá Ljósa-
vatnskirkju í dag, 3. janúar, kl. 13.30.
Fundir
ITC deildin Björkin
heldur opinn fund í kvöld kl. 20 að Síðu-
múla 17. Stef fundarins: Blindur er bók-
laus maður. Nánari upplýsingar gefur
Bergþóra í síma 83713.
Tapaðfundið
Kvenveski tapaðist
Svart kvenveski (hliðartaska) tapaðist á
nýárskvöld á bílastæði við Fífusel eða
nálægt Miklubraut 1. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 34207. Fundarlaun.
Perlufesti tapaðist
Perlufesti tapaðist í Hafnarfirði nýlega.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
38930 á daginn.
Dúótónleikar i Lista-
safni Sigurjóns
Nk. funmtudagskvöld 4. janúar verða
haldnir dúótónleikar í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar og eru það fyrstu tónleik-
ar ársins á vegum safnaðarins. Þá munu
þeir Christian Giger sellóleikari og Davíd
Tutt píanóleikari flytja sónötur fyrir selló
og píanó eftir Debussy og Rachmaninoff.
Þeir félagar David og Christian hafa áður
leikið á Islandi og komu m.a. fram á tón-
leikum í Norræna húsinu haustið 1988 á
vegum Háskólatónleika. Tónleikamir
hefjast kl. 20.30 og munu standa í um það
bil klukkustund.
Sýningar
Sýning á lokaverkefnum ný-
útskrifaðra arkitekta
Arkitektafélag íslands hefur opnað sýn-
ingu á lokaverkefnum nýútskrifaðra
arkitekta. Sýningin er opin alla daga kl.
14-18 og stendur hún til 14. janúar.