Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990. Fréttir Elstu Grindvlkingar muna ekki annað eins: „Þessar sjófyllur slógu alH annað út“ Að sögn Grindvíkinga muna elstu menn ekki eftir eins miklum sjógangi og sjófyllum þar í höfninni og í fyrri- nótt. Eru mönnum minnisstæð óveð- ur frá árunum 1925 og 1977 en elstu menn telja að fyllurnar í höfninni núna hafi slegið allt annað út. „Þetta var hreinlega allt á kafi hérna,“ sögðu sjónarvottar að feikn- armiklum sjógangi í Grindavíkur- höfn í fyrrinótt í samtali við DV í gær. Sjómenn, björgunarsveitar- menn, lögregla og aðrir Grindvíking- ar voru í óðaönn nær alla nóttina að huga aö verðmætum við höfnina. Þrátt fyrir að menn hafi undirbúið sig fyrir óveðrið eins og kostur var nam eignatjón tugum milljóna. Engin miilibil í bryggjuborðunum Kvíabryggja hafði liðast til eins og tyggigúmmí og eyðilagst eftir hol- skeflur sem gengu inn um hafnar- mynnið og yfir varnargarða. Töldu menn að orsökin fyrir því að bryggj- an lét undan og lyftist hafi verið sú að ekkert bil er á milli bryggjuborö- anna í „dekkinu". Fór því sem fór þegar fyllurnar gengu inn undir bryggjuna - sjórinn komst ekki upp í gegnum bryggjuborðin. Stórum og löngum rörum, sem not- uð eru til að dæla loðnu úr bátum, hafði skolað í sjóinn og unnu björg- unarmenn við að ná þeim upp úr höfninni fram eftir degi í gær. Nokk- ur hundruð metra langur grjótgarð- ur, sem lá ofan á klóakleiöslum á bak viö Kvíabryggju, var horfinn. Stór- sjórinn hafði rutt stórgrýti upp á land úr miklum varnargarði innar- lega í höfninni. Menn sögðu DV- mönnum að sjór hefði aldrei gengiö yfir þann garð áöur. „Aðalbryggjan var meira og minna á kafi um nóttina," sögöu sjómaður og bryggjukarl við DV í gær. „Tveir bátar, sem stóðu á þurru, snerust og úr öðrum þeirra brotnaði lunningin. Sjóskaflarnir voru mannhæðarháir sem fóru yfir brimgarðana og í gegn- um innsiglinguna og upp á bryggj- una. Fjórir bílar fóru á kaf nálægt aðalbryggjunni og einn skemmdist vestar í bænum. Brimgarðar skemmdust einnig vestarlega í bæn- um og fóru tún þar á kaf. Sjór flæddi inn í eitt húsið á þessum stað í bæn- um. „Ég veit ekki hvar byggðin væri stödd núna vestarlega í bænum ef brimgarðarnir heföu ekki verið til staðar," sagði Sigurður Ágústsson, varðstjóri á lögreglustöðinni. Sigurði hafði ekki komið dúr á auga í rúman sólarhring þegar DV-menn hittu hann í gær. Golfvöllurinn skemmdist Litlu munaði að mikið tjón yrði í Fiskeldisstöð Grindavíkur sem Kviabryggja lyftist öll upp og skemmdist þegar sjófyllurnar ruddust inn í höfnina í óveðrinu. Töldu Grindvíkingar viö bryggjuna í gær að þar sem ekkert bil væri á milli borðanna i bryggjugólfinu hefði sjórinn ekki átt undan- komuleið og því lyft bryggjunni. DV-myndir BG „Ég var kominn hingað þegar sjófyllan hreif mig með sér. Mér skolaði svo á land þarna hinum megin við slippinn eftir um tíu minútna volk í sjónum. Það vissi enginn af mér fyrr en mér tókst að stöðva lögregluna hinum megin i höfninni. Þá var ég orðinn helkaldur," sagði Ólafur Ágústsson, vélstjóri á Reyni GK 47. stendur við sjávarkambinn, rétt vestan við bæinn. Starfsmaður þar sagöi við DV aö litlu hefði munaö að stórtjón yrði eftir að dæluhús fylltist af sjó um nóttina. Þurfti því að gefa súrefni úr flöskum. Starfsmaöurinn sagði að ástandiö væri orðið slæmt á staðnum. Sjávarkamburinn hér fyrir framan eyöist sem nemur mörgum metrum á ári þrátt fyrir aö reynt hafi verið að keyra í hann grjóti,“ sagði maðurinn. Golfvöllur Grindvíkinga skemmd- ist mikið í flóðunum og var hann að miklu leyti undir sjó í gær. Einnig hafði sjór flætt mörg hundruð metra leið yfir veginn sem liggur að Reykja- nesvita. Þar hafði gijótgarði skolað ofan af háspennulínum. Blöktu gulir endurskinsborðar á háspennulín- unni í storminum. Menn frá Vega- gerðinni náðu síðan að gera við veg- inn síðdegis í gær. -ÓTT Sjómenn í hrakningum í fyrrinótt: Tveir menn hætt komnir í Sandgerðishöfn Neyðarástand ríkti hjá mörgum íbú- um Sandgerðis í fyrrinótt. Tveir ung- ir menn komust í hann krappan við Sandgerðishöfn. í sannkölluðu að- gæsluveðri börðust tugir sjómanna við að halda bátum sínum við bryggju. Lokuðust margir þeirra inni við höfnina þegar sjólög lokuðu henni á tímabUi. Mennimir tveir sem komust í hættu voru að bæta við landfestum á bátnum Arney þegar mikið ólag reiö yflr bryggjuna. Hafði annar springurinn slitnað og voru menn- irnir að koma upp öörum enda. Tók annan manninn út af bryggjunni í mikilli fyllu en hann sogaðist aftur upp á þurrt á sömu öldu. Hinum tókst að halda sér á svokölluðu kant- tré á bryggjunni þar til honum barst hjálp. Að sögn Óskars Þórhallssonar skipstjóra sakaði hvorugan manninn þrátt fyrir þessa lífsreynslu. Stór plastbátur sem stóð á bryggj- unni við innanveröan varnargarðinn var að því kominn íjúka um koll í óveðrinu. Greip þá eigandinn til þess bragðs að keyra vörubílinn sinn upp að bátnum til að styðja við hann. En Ægir lætur ekki að sér hæða. Áður en langt um leið hafði stöðug ágjöf upp á bryggjuna skolað bátnum og vörubílnum um fimmtíu metra vega- lengd frá varnargarðinum. Þegar DV menn skoðuðu bátinn og bílinn í storminum í gær var þó ekki að sjá að um mjög miklar skemmdir væri að ræöa. Viö höfnina og víðar í Sandgerði hafði þangbingjum skolaö upp á bryggjur og fjörur. Að sögn heima- manna er þang í botni hafnarinnar og haföi veðurofsinn og stórsjór séð til þess að þangiö losnaði og því skol- aði á land. Einnig voru steinar og grjót á víð og dreif á götum og við sjávarsíðuna. -ÓTT Þeir héldu saman, báturinn og billlnn, þar til veðrinu slotaöi. Báturinn stóð upphaflega upp við grjótgarðinn að baki mannanna á myndinni. Sjórinn flutti bilinn og bátinn i einu lagi um fimmtíu metra vegalengd á bryggjunni. „Neistaflugiö lagði yfir allan bæinn, allt upp að Ásabraut sem er uppi í efri byggð. Þar þurfti að láta fólk vita ejida var þetta mikill eldsvoði. Menn frá þremur slökkvi- liðum á Suðumesjum börðust við eldinn - en það dugöi ekki neitt. Þeir gátu varla staöið í lappimar út af veðurofsanum," sagði Eirikur Benediktsson sem var viðstaddur þegar slökkvistarf stóð yfir í elds- voðanum í Sandgerði þegar tvö fiskverkunarfyrirtæki í sama hús- inu brunnu til kaldra kola í fyrri- nótt. „Slökkviiiðsmenn börðust viö eldinn i nær fimm klukkustundir. Björgunarsveilarmcnn reyndu að hemja plöturnar úr fiskverkunar- stöðvunum sem fuku út um allt,“ sagði Eiríkur. „Þarna stafaði stór- Báturinn stendur fáeina metra frá hætta af og þeir lögöu sig í mikla brunarústum fiskverkunarstöðv- hættu við björgunarstarf í öllu eld- anna í Sandgerði. Vindáttin var hafinu. hagstæð og slapp hann því ásamt Hér þurfti aö vekja upp íbúa í húsinu til hægri. stórum hluta bæjarins og þeim sagt að vera í viðbragösstöðu. Neistar báturinn og húsið sem standa núna gátu borist aö húsum og innan- við hliðina á brunarústunum stokksmunum. Auk þess barst sluppu alveg því vindáttin var þó mikill reykur um íbúðabyggðina hagstæð hvað það snerti,“ sagöi frá fiskverkunarstöðvunum. En Eiríkur. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.