Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990. Fréttir____________________________________ Kaupmenn kaupa í Stöð 2: Þetta eru ekki björgunaraðgerðir segir Haraldur Haraldsson „Þaö eru hrein viöskiptaleg sjónar- miö sem ráða því aö viö kaupum þennan hlut í Stöð 2. Viö lítum á stöð- ina sem góöan kost til fjárfestinga. Þess vegna eru þetta ekki neinar björgunaraðgerðir verslunarinnar fyrir Verslunarbankann," sagöi Har- aldur Haraldsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, í morgun en hann er einn þeirra sem keypti 150 milljóna hlut Eignarhaldsfélags Verslunarbankans í Stöö 2 í gær. Eignarhaldsfélag Verslunarbank- ans hf. seldi í gær Kortum hf. hlutafé fyrir 50 milljónir en Haraldur er full- trúi Korta hlf., Guðjóni Oddssyni, for- manni Kaupmannasamtakanna, og Jóhanni J. Ólafssyni, formanni Verslunarráös, hlutafe fyrir 50 millj- ónir svo og Jóni Ólafssyni, forstjóra Skífunnar, 50 milljóna hlutafé. Sam- tals hlutafé fyrir 150 milljónir af 250 milljóna hlutafé Eignarhaldsfélags- ins í Stöö 2. Jafnframt ákvað félagið að eiga 100 milljónir til frambúðar í Stöðinni. „Það eru fyrst og fremst einstakl- ingar sem standa á bak við þessi kaup en ekki samtökin í versluninni þó það hittist þannig á þrír okkar erum formenn þessara samtaka,“ segirHaraldur. -JGH Ragnar S. Halldórsson um Andra BA: Ráðuneyta- vandamál í Bandaríkjunum - kostar 100 þúsund Bandaríkjadali á dag „Staðan er óbreytt frá því ég hitti sendiherra Bandaríkjanna í gær. Þetta er víst eitthvert ráðuneyta- vandamál i Bandaríkjunum, milli utanríkis- og viðskiptaráðuneytis. Utanríkisráðuneytið vill að málið verði afgreitt okkur í vil en það hefur ekki fengist samþykkt í viðskipta- ráðuneytinu sem þarf að afgreiða máhð formlega. Nú bíðum við átekta en utanríkisráðuneytið hér heima er með máhð í sínum höndum,“ sagði Ragnar S. Halldórsson, fram- kvæmdastjóri íslenska úthafsútgerð- arfélagsins hf„ sem á fiskvinnslu- skipiö Andra. Andri BA er staddur við strönd Alaska þar sem ætlunin var að vinna 30 þúsund tonn af þorski, á grund- velli samkomulags milh íslenskra og bandarískra stjórnvalda frá 1983. Andri var skyndilega sviptur leyfi til að vinna þorsk á gamlársdag og hef- ur staðiö í stappi síðan. - En nú hafið þið ekki greitt umsam- ið leyfisgjald. „Við sóttum um að vinna þorsk og leyfisgjaldið er gagnslaust þegar viö höfum ekki kvóta. Við megum vinna þarna einhvers konar sandkola sem er á lágu verði og dugar okkur ahs ekki fyrir rekstrinum.“ Ragnar segir að miöað við núver- andi fiskverð kosti þetta útgerðina í kringum 100 þúsund Bandarikjadah á dag. Helmingur þeirrar upphæðar sé til greiðslu hráefnis en hinn helm- ingurinn falli í hlut útgerðarinnar, þó ekki sem hreinn hagnaður. -hlh Sjö tonna bátur slitnaði upp og dró akkerið með sér i miklum vindi í Eiösvik í gær. Björgunarbáturinn Henrý Hálfdanarson og menn frá Slysavarnafé- lagi íslands unnu við að bjarga bátnum þar til kom í Ijós að stjórnborðs- síða hans er nánast ónýt. Skemmdir verða nánar kannaðar í dag. DV-mynd S Skuldir Amarflugs: Hin póli- tíska ákvörð- un stendur - segir samgönguráðherra „Ég hef aldrei reiknað með aö neitt annaö kæmi til greina en að við það samkomulag verði staðið 1 tengslum við það sam- hengi sem þar var upp sett. Sem sagt að við sölu vélarinnar og endurskipulagningu væri ríkið tilbúið aö feha niður til viöbótar 150 mihjónir króna. Ég hef aldrei skihð fármálaráðherra á neinn annan hátt. Hin póhtíska ákvörð- un ríkisstjómarinnar stendur," sagði Steingrímur J. Sigfússon samgónguráðherra þegar hann var spurður að því hvemig hann telji aö beri að standa að niður- fellingu á 150 milljón króna skuld Amarflugs. Á fjölmennum hluthafafundi Amarflugs í gær kom fram að tap félagsins fyrstu 9 mánuöi síðasta árs var á mhli 70 og 80 milljóna króna, Geröi Kristinn Sigtryggs- son, framkvæmdastjóri félagsins, ráð fyrir að nokkrír tugir millj- óna til viðbótar hefðu tapast tíl ársloka. -SMJ Fiskeldi: Tjón í Eiðsvik Sjö tonna bátur shtnaði frá bólfæri við eldiskvíar íslenska fiskeldisfé- lagsins í Eiðsvík í gær. Báturinn var mannlaus og rak hann á land við Geldinganes. Henrý Hálfdanarson, björgunarbátur Slysavarnafélagsins, fór á staðinn og komu björgunar- sveitarmenn dráttartaug í bátínn. Var hann síðan dreginn frá en þá kom í ljós að sú síða bátsins sem sneri að landi er nánast ónýt. „Hann hefði bara sokkið ef við hefðum dregið hann út,“ sagði Ás- grímur Björnsson, bátsformaður á Henrý Hálfdanarsyni í samtah við DV. „Það er stórt gat á síðunni og því skhdum við hann eftír.“ Ás- grímur sagðist telja að akkeri bátsins hefði verið úti og hann hefði dregið það með sér þar tíl hann „fauk“ að landi við Geldinganes. Ein kví shtn- aði einnig upp frá Eiðsvík og unnu menn þaðan við aö bjarga fiskinum úr henni þar th í gærkvöld. -ÓTT Sambandið selur Samband íslenskra samvinnufé- laga hefur ákveðið að sfelja Sam- vinnubankann. Ekki gekk það harmkvælalaust enda eru Sam- bandsmenn þeirrar skoðunar að Landsbankinn hafi stiht þeim upp við vegg og þar að auki hafi erlend- ir bankamenn hópast til landsins og haft í hótunum við SÍS. Þetta er sem sagt allt saman öðrum og óskyldum bankamönnum aö kenna að Sambandið er að selja eigur sínar. Sambandinu hefði að öðrum kostí aldrei dottið í hug að selja nokkum skapaðan hlut nema vegna þessarar frekju frá óviökom- andi aðhum sem eru með nefið ofan í rekstri Sambandsins. Rekstur Sambandsins hefur gengið vel, að öðru leyti en því að það er tap á rekstrinum. Tapið í hittifyrra nam um átta hundruð mihjónum en er komið ofan í hálf- an mhljarð á síðasta ári og sjá menn af þessari þróun að rekstur- inn er í góðu lagi. Það sem gerir þeim lífið leitt er Landsbankinn sem hefur hamast í því að fá aö kaupa Samvinnubankann og svó erlendir lánardrottnar sem vhja fá lánin sín greidd. Sambandsmenn hafa hugsað mikið um það hvemig laga megi stöðuna. Þeir em ekki eins heppnir og eigendur Stöðvar tvö sem fundu konu, sem vinnur hjá Stöðinni, sem er gift manni sem á landareign og hefur gert Stöðvarmönnum þann greiða að selja þetta land sitt th að konan getí haldiö vinnunni. Hjá Sambandinu vinna margar konur en þær em flestar hla giftar og eiga enga menn sem vilja selja lönd sín th að bjarga SÍS. Samvinnubankinn ku vera rek- inn með hagnaði um þessar mund- ir. Þegar það kvisaðist gerði for- stjóri SÍS það að tillögu sinni að bankinn yrði seldur. Það passar ekki inn í rekstur SÍS á þessum síðustu og bestu tímum að eiga banka sem setur tapið úr skorðum. Um þessa thlögu varð ágreiningur. Um tíma leit út fyrir aö Sambandið hefði ákveðið að halda í Samvinnu- bankann og sleppa skuldunum lausum og einn af forstjórunum sagði upp starfi sínu í mótmæla- skyni við þá fyrirætlan Guðjóns B. Ólafssonar að grynnka á skuld- unum með þvi aö selja banka með hagnaði. Stjórnarmenn í SÍS- stjóminni voru sama sinnis og Guðjón þurftí að fresta fundi th að snúa andstæðinga sína niður. Mun Guðjón aðahega hafa beitt því ráði að hótá að halda áfram störfum hjá SÍS ef stjórnin legðist gegn thlögum hans. Brá mönnum svo í brún við þau tíðindi að meirihlutanum sner- ist hugur í fundarhléinu og sam- þykkti aö afhenda Samvinnuban- kann frekar en að sitja uppi meö Guðjón. Mun hann nú á fórum til annarra landa og frekari upphefð- ar, enda fer orð af svona mönnum sem þurfa ekki nema tvö ár tíl að koma stöndugum fyrirtækjum á kaldan klaka. Næsta skrefið mun vera sala á eignarhluta Sambandsins í Regin sem er dótturfyrirtæki SÍS og á þriðjunginn í íslenskum aðalverk- tökum. Islenskir aöalverktakar eru eitt af fáum fyrirtækjum hér á landi sem ennþá bera sig og þess vegna er nauðsynlegt fyrir SIS að losa sig hið fyrsta við öll tengsl við það fyr- irtæki. Þaö kemur auðvitað ekki th mála að Sambandið sé bendlað við fyrirtæki sem rekin eru með hagn- aði. Það sphlir fyrir orðstír þess og forstjórans sem hefur getið sér gott orð í útlöndum og er á fórum þang- að við fyrsta tækifæri eins og hann hefur lofað. Ef þessu heldur áfram mun Sam- bandið væntanlega ná þeim ár- angri á þessu ári að losa sig við allar eigur og öll þau fyrirtæki sem minnstí möguleiki er á að græða. Eftír standa þá kaupfélögin, skipa- deildin og verslunardehdin sem öll eru rekin með myndarlegu tapi og ef erlendir lánardrottnar halda áfram að koma hingað í heimsókn- ir til að reka á eftír skuldagreiðsl- um má allt eins búast við því að Sambandið hótí að loka þessum dehdum sömuleiðis og forstjórinn hótí því að halda áfram störfum sem forstjóri. Þeirri stöðu getur Landsbankinn ekki unað og mun því áreiðanlega halda áfram aö íjármagna rekstur SÍS af sama myndarskap og hingað th og sjá til þess að tapreksturinn gangi vel og snurðulaust fyrir sig. Það hefur enginn efni á því á ís- landi að láta Sambandið fara á hausinn. Th þess er tapreksturinn alltof þýðingarmikih fyrir'þjóðar- búið. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.