Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR 1990.
Fréttir
Hafskips- og Útvegsbankamálið:
Askorun um fram-
lagningu reikninga
- sem þrotabúið greiddi vegna vinnu fyrir RLR
Guðmundur Ingvi Sigurðsson,
hæstaréttarlögmaöur og verjandi
Björgólfs Guðmundssonar, skoraöi í
gær á Valdimar Guðnason endur-
skoðanda aö leggja fram afrit af þeim
vinnureikningum sem þrotabú Haf-
skips greiddi vegna þeirrar vinnu
sem Valdimar vann fyrir Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
Eins og fram kom í DV í gær upp-
lýsti Valdimar, í yfirheyrslum fyrir
Sakadómi, að hann hefði þegi^ð laun
frá þrotabúi Hafskips vegna þeirrar
vinnu sem hann vann fyrir Rann-
sóknarlögreglu ríkisins við rann-
sókn Hafskipsmálsins.
Guðmundur Ingvi sagði að sig
grunaði að afskipti Valdimars vegna
Hafskipsmálsins, meðan málið var
hjá Rannsóknarlögreglu, væru meiri
en Valdimar hefði sagt til þessa.
eigna en Hafskipsmenn hafa haldið
hinu fram. Þá kom fram að Valdimar
vissi ekki, á sínum tíma, hvernig
bretti Hafskip átti. Gámar voru líka
talsvert umræðuefni - það er hvort
I dómsáLnum
Sigurjón M. Egilsson
Hafskip hefði haft gáma á venjulegri
leigu eða kaupleigu. Jón Steinar
benti á að 100 gámar heföu orðiö eft-
ir í eigu þrotabúsins og að það benti
til þess að um kaupleigu hefði veriö
aö ræða.
Mótmæli og mótmæli
Talsvert var um aö málsaðilar
mótmæltu við dómarana. Þegar Jón
Steinar vildi spyrja vitnið um vinnu-
brögð hans vegiia á'rsreikninga
Mjólkurfélags Reykjavíkur neitaði
Valdimar aö svara. Hann sagðist
ekki geta rætt mál einstakra við-
skiptavina sinna. Þá óskaði Jón
Steinar þess að réttarhaldinu yrði
lokað. Hann taldi nauðsynlegt að
Valdimar svaraði.þessu til að sýna
fram á að hann notaöi ekki alltaf
sömu reikningsskilaaðferðir.
Áður var búið að spyrja hann tals-
vert um reikningsgerð sína fyrir
Skagstrending. Þar eignfærði Valdi-
mar aðkeyptan kvóta. Hann mun
vera fyrstur endurskoðenda til að
gera slíkt. Eins bókfærði hann verð
skipa félagsins samkvæmt 90 pró-
sentum af vátryggingarverðmæti.
Reikningsskilanefnd Félags löggiltra
endurskoðenda gerði athugasemdir
við þá aðferð.
-sme
1990
Opið í dag frá ki. 13-17.
*Auto Motor und Sport
Fimm ár í röð
\Ju
m
JÖFUR HF
NÝBÝlAVEGi 2. KÖPAV0GI,
SfMi (91)42600
Ragnar Kjartansson, fyrrum stjórn-
arformaður Hafskips, í Sakadómi.
Þar mun hann verða tíður gestur
næstu vikurnar. DV-mynd GVA
Guðmundur Ingvi spurði í framhaldi
af því hvort Valdimar vildi breyta
framburði sínum. Valdimar sagðist
ekki vilja gera það. Því næst skoraði
Guömundur Ingvi á Valdimar aö
leggja fram afrit vinnureikninganna.
Því neitaði Valdimar.
Er þetta þín skrift?
Guðmundur Ingvi sýndi Valdimar
handskrifað blað, á bréfsefni frá
Endurskoðunarmiðstöðinni þar sem
Valdimar starfar, og spurði hann
hvort hans skrift væri á blaðinu.
Valdimar sagði svo ekki vera. Það
sem var skrifað á blaðið var upptaln-
ing á möppum sem hald var lagt á
við húsleit hjá Björgólfi Guðmunds-
syni.
Einn lögmannanna sagöist þekkja
skriftina og sagði að Markús Sigur-
björnsson væri eigandi hennar.
j
Gamlir skólabræður
Guðmundur Ingvi spurði Valdimar
hvort honum hefði verið kunnugt um
að handtaka ætti forráðamenn Haf-
skip- og fá þá úrskurðaða í gæslu-
varðhald. Valdimar sagði svo ekki
vera. Aðspurður sagðist Valdimar
hafa þekkt tvo ákærðu áður. Það eru
Helgi Magnússon og Björgólfur Gúð-
mundsson en þeir sátu saman þegar
þeir voru við nám í Verzlunarskól-
anum.
Veit ekki til þess
Jón Steinar Gunnlaugsson spurði
Valdimar mikið um hvernig hann
hefði hagað vinnubrögðum sínum
við úttekt á efnahag Hafskips eftir
að fyrirtækið varð gjaldþrota. Meðal
annars var rætt um verðmæti skipa-
stóls félagsins. í ljós kom að Valdi-
mar hafði meðal annars stuðst við
blaðagreinar í mati sínu. Um hvort
vörubretti gætu talist til eigna urðu
líka talsverðar umræður. Valdimar
taldi að bretti gætu ekki talist til
r
I
Hvíldu þig nú á
skammdeginu
Nú gefst einstakt tækifæri til
að hvíla sig dálítiö á íslenska
skammdeginu og bregða
sér í stutta ferð yfir pollinn.
Þú getur valið um tvær af
skemmtilegustu borgum
Evrópu tii að slappa af og
láta þér líða vel. Þetta tilboð
gildir fyrir janúar og febrúar
en athugaðu aö aóeins er
selt í þessar ferðir í janúar
þannig að þótt þú ætlir ekki
að leggja land undir fót fyrr
en í febrúar verður þú aö
tryggja þér miða fyrir mán-
aðamótin.
Útsölutíminn
í Amsterdam
Útsölurnar eru þegar hafnar
í Amsterdam. Þar er verðlag
að vísu hagstætt allt árið en
þó best á þessum tíma. Not-
aóu tækifærið. En jafnvel
þótt þig langi ekkert til aó
versla getur þú fundið þér
nóg að gera í Amsterdam.
Veturinn er sá tími sem
menningar- og skemmtana-
líf er í hvaö mestum blóma.
Heimsfrægar hljómsveitir,
bæöi popp- og sinfóníu-,
heilla hvorar sinn aðdáenda-
hópinn og Rembrandt og
van Gogh eru á næstu grös-
um. Og láttu endilega eftir
þér aó fara á indónesiskan
veitingastaó og fá þér 26
rétta „rijstaffel". Það kostar
ótrúlega lítið.
Hamborg allra
árstíða
Útsölumar í Hamborg hefjast
29. janúar og standa í tvær
vikur. Hamborg er fræg fyrir
að þar er hægt að fá mjög
„vönduð merki“ á sérlega
góðu veröi. En Hamborg er
ekki síður borg menningar,
lista og skemmtana. Þú átt
Hamborgar allt árið.
| erindi til Har
Amsterdam
eða
Hamborg
Kr. 18.300
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477, Austurstræti 22, sími 623060