Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990.
7
Sandkom
Fréttir
ífréttabréfi
Öryrkjabanda-
lagsinser
brandaraslða
þar M’inso.-'ber
saga afÁrna
Helgasyni,
bmdindisfröm-
uðiogMogga-
skribent úr
Stykkishólmi
MimArnihala
legiðásjúkra-
húsitilrann-
sóknar fyrír skömmu og kom góðvin-
ur hans að heimsækj a hann. Vinur-
inn er viðutan vel og fór villur vegar
á sjúkrahúsinu. Kemur hann inn á
deild eina og spyr þar konu h vort
Árna Helgason sé þar að finna. Kon-
an verður mj ög brosleit og svarar:
„Áttu nú helst von á honum hér?
Þetta er nú göngudeild fyrir áfengis-
sjúklinga.“
m» »x
Nu riður
á að þrasa
Mikilfunda-
höldfórufram
íÞjóðleikhús-
inu í vikunni
umframtíðar-
skipulaghúss-
ins Þarvar
mætturráð-
lierra mennta-
mála, sem
svndivist niiktl
tilþrifásvið-
inu, og aragrúi
leikaraogann-
arra sem starfa í þessu merka húsi.
Sýndist sitt h verjum utn brevting-
arnar sem standa fyrir dyrum og var
þráttað um þær lengi vel. Flosi mun
vera einn þeirra sem aðhyllast breyt-
ingar þær sem verið hafa kynntar og
var greiníiega farið að leiðast þófið
þegar liann mælti þessi orð: „Núrið-
ur á aö þrasa sagði kerlingin þegar
hún fékk happdrættisvinninginn.',
Flosi hefur þarna átt við að loksins
þegar Þjóðleikhúsfólk hafi fengið
„vinninginn'' með komandi breyting-
um riði mest á að þrasa sem mest og
láta helst ekki neitt verða úr neinu.
Gesturnokk-
ursatákaffi-
húsiíParísog
dreyptiávín-
glasiþegar
fanatískur
bindindismað-
urréðstaðhon-
um meðlátum.
„Wrskuluð
ekkidrekka
þennan
óþverra. Iáfr-
arsjúkdómar
eru fimm sinnum algengari í Frakk-
landien nokkru öðru landi, þökk sé
drykkjunni. Meðalaldurinn er sjö
sinnum laégri í Frakklandi en Vest-
ur-Þýskalandi, þökk sé drykkjunni.
Frakkar nota helraingi fleiri veik-
indadaga en Hollendingar, þökk sé
drykkjunni," sagði sáfanatíski og
þóttist aldeilis hafa sett kaffihúsa-
gestinn út af laginu. „Hvað varðar
mig um það, ég erislendingur," svar-
aði gesturinn þá og dreypti á.
Meðguðiáferð
Ogannarúr
blnöi Ör\rkja-
bandalagsins.
Prestureinn
varaöfaraað
hcimanogeig-
inkonanhafði
áhyggjuraf
honumþarsem
liann þurfliað
þvælasteinní
bíl i leiðinda-
veðriognátt-
myrkri.Vin-
kona prestsfrúarinnar var hiá henni
og reyndi að telja í hana kjark. Kvað
hún prestinn aldrei vera einan þ ví
guð væri alltaf með honum h vað sem
á gengi. EkM virtist vera mikil hugg-
un í þessura orðum vinkonunnar þvi
prestskonan svaraði með angíst í
röddinni: „Ja;þaðheldégségagní
þ ví og hvorugur kann svo mikið sem
skiptaumdekk.'*
Umsjón: Haukur L Hauksson
Kjarasamningamir:
Rætt um 3 prósent
kauphækkun á árinu
- öll launþegahreyfingin verður að vera með ef samningar eiga að takast
„Ef kjarasamningar eiga að takast
á þeim nótum, sem menn hafa verið
að ræða um að undanfórnu, þarf það
að gerast strax. Ekki seinna en í þess-
ari viku eða byijun þeirrar næstu.
Ég er aftur á móti hræddur um að
fiskverðsdeila sjómanna geti sett
strik í reikninginn, því miður,“ sagði
Guðmundur J. Guömundsson, for-
maður Verkamannasambandsins, í
samtali við DV.
Samkvæmt heimildum DV er í
þeim samningaviðræðum sem átt
hafa sér stað, rætt um 3 prósent
kauphækkun á þessu ári í tvennu
lagi. Þá er rætt um að við undir-
skrift kjarasamninga lækki banka-
vextir og loks að verð á landbúnaðar-
afurðum verði óbreytt út þetta ár.
Rætt er um að samningurinn gildi til
vorsins 1991 og að annaðhvort verði
í honum uppsagnarákvæði ef kaup-
máttur rýrnar eða svo kölluð rauð
strik.
Það sem þó skiptir höfuðmáli,
vaiðandi þessa kjarasamninga, sem
oft eru nefndir núll-lausnin, er að
allir aðilar á vinnumarkaðnum verði
með. Þá er verið að ræða um Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja,
Bandalag háskólamanna hjá ríkinu
og að sjálfsögðu Alþýðusamband ís-
lands. Enn liggur ekki fyrir hvort
opinberir starfsmenn verða með og
ólíklegt er talið að háskólamenn gefi
eftir þær kauphækkanir, sem þeir
fengu eftir 6 vikna verkfall í fyrra.
Einar Oddur, formaður Vinnuveit-
endasambandsins, hefur gefið í skyn
að nauðsynlegt sé að koma í veg fyr-
ir með einhverjum hætt að launa-
hækkanir háskólamanna nái fram
að ganga á árinu.
Einn af samningamönnum verka-
lýðshreyfingarinnar, sem DV ræddi
við, sagði að ef menn helltu sér út í
samningagerðina væri hægt að ljúka
henni um næstu helgi, ef allir eru
smmála um að fara þessa leiö.
Það sem á stæði væri að sumir
verkalýðsforingjar væru efins og
jafnvel hræddir við kjarasamninga
af þessari gerð. Þeir telja það alls
ekki öruggt að hægt sé að koma þess-
um samningum í gegn. Það séu litlar
líkur til að fólk samþykki þá eftir þá
kjaraskerðingu sem það hefur orðið
fyrir. Meðan þessi ótti væri fyrir
hendi myndi að sjálfsögðu ekkert
gerast í málinu.
Fyrirhugaður er miðstjórnarfund-
ur hjá Alþýðusambandinu, jafnvel í
dag, miðvikudag.
-S.dór
Pattstaða í fiskverðsdeilimni á AustQörðum:
Einhvers staðar var
kippt í spotta
- segir Hrafnkell A. Jónsson, formaður Árvakurs
„Það er alger pattstaða í fiskverðs-
deilunni hér eystra og ekkert hefur
gerst síðan fyrstu tvo dagana. Ég er
ekki í nokkrum vafa um að merkir
menn hafa kippt í spotta og ég er
heldur ekki í vafa um að það tengist
þeim kjarasamningaviðræðum sem
nú eru í gangi,“ sagði Hrafnkell A.
Jónsson, formaður Arvakurs á Eski-
firði, í samtali við DV.
Hann sagði að sjómenn væru ekki
tilbúnir til að taka við þeim kjara-
samningum sem nú væri verið að
tala um. Þeir hefðu dregist aftur úr
öllum öðrum og ætluðu sér að vinna
þann mun upp. Hann sagðist ekki sjá
að þaö skipti máli fyrir komandi
kjarasamninga aðila vinnumarkað-
arins hvort sjómenn næðu þessum
kjarabótum beint, eins og reynt er
nú á Austfjörðum, éða hvort það ger-
ist í gegnum Verðlagsráð sjávarút-
vegsins um næstu mánaðamót. Ann-
að hvort mundi gerast.
Sú hugmynd hefur verið nefnd að
fiskmarkaður, til að mynda fjar-
skiptamarkaður, gæti leyst fisk-
verðsdeiluna á Austfjörðum. Hrafn-
kell sagðist draga það í efa að þeir
aðilar sem bæði eiga skipin og fisk-
vinnsluna hefðu áhuga fyrir fisk-
markaði.
„Við könnuðum það á sínum tíma
hvort áhugi væri fyrir því að koma
upp fjarskiptamarkaði hér en þá var
enginn vilji fyrir því. Ég held hins-
vegar aö fiskmarkaður gæti orðið til
þess að leysa fiskverðsmálin hér til
frambúðar," sagði Hrafnkell.
Hann benti einnig á að hrein tilvilj-
un hefði ráðið því að fiskverðsdeilan
braust upp á yfirborðið á Eskifirði.
Hann sagði að allt frá Vestfjörðum
norður um til Austfjarða kraumaði
undir og aðeins tímaspursmál hve-
nær óánægjan brytist fram á öörum
stöðum með sama hætti og á Eski-
firöi. -S.dór
Hrafnkell A. Jónsson á Eskifirði segir að fiskverðsdeilan á Austfjörðum sé
komin í pattstöðu, merkir menn hafi kippt í spotta. Hann segir einnig að
kjör sjómanna verði annaðhvort leist í Verðlagsráði um næstu mánaðamót
eða með frjálsum samningum milli sjómanna og útgerðar. DV-mynd S
Fjölbreytt námskeiðahald fyrir alla hefst í næstu viku.
Hvaða hópur hentar þér?
Unnur Arngrímsdóttir,
framkvæmdastjóri.
1 Ungar konur á öllum aldri Snyrting Hárgreiðsla Framkoma Borðsiðir Fataval Hreinlæti Gestaboð Mannleg samskipti 2 Ungar stúlkur og 13-16 ára Snyrting Framkoma Fataval Hreinlæti Borðsiðir Mannleg samskipti Ganga 3 Bjóðum fyrirtækjum námskeið fyrir starfsfólk sitt Framkoma Kurteisi Símaþjónusta Hreinlæti Klæðnaður Snyrting Mannleg samskipti 4 Sérhópar Starfshópar Saumaklúbbar Snyrting Framkoma Borðsiðir Gestaboð Mannleg samskipti
5 Nýtt - Nýtt 1. Föt og förðun Litgreining Litakort 2. Andlitssnyrting Litakassar 6 Stutt snyrtinámskeið Handsnyrting Húðhreinsun Andlitssnyrting 7 Herrar á öllum aldri Framkoma Fataval Hreinlæti Snyrting Hárgreiðsla Borðsiðir Mannleg samskipti Ganga 8 Módelnámskeið fyrir verðandi sýningarfólk 1. Ganga Snúningar o.fl. Sviðsframkoma o.fl. 2. Upprifjun, framhald
Sif,
snyrtifræðingur
Karl,
hárgreiðslumeistari
Innritun alla daga í síma 36141 frá kl. 16-19. Unnur Arngrímsdóttir.
Þórunn,
snyrtifræðingur