Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990.
r>v Fréttir
Keflavik:
Unglingar
með röra-
sprengjur
Tveir íimmtán ára piltar og einn
átján ára hafa viðurkennt að hcifa
sprengt upp þrjá póstkassa á gamla
Reykjanesveginum á Vatnsleysu-
strönd um síðustu helgi. Póstkass-
amir stóðu á staurum við veginn og
sprengdu þremenningarnir þá með
rörasprengjum. Notuðu þeir stjörnu-
ljós fyrir kveikjuþráð.
Piltarnir voru handteknir um helg-
ina og játuðu þeir verknaðina eftir
yfirheyrslur sem stóðu langt fram á
nótt. Við leit heima hjá einum þeirra
fundust fleiri sprengjur.
Lögreglan í Kefiavík hefur einnig
til rannsóknar annað sprengjumál
þar sem rúða var sprengd á snyrti-
stofu við Hafnargötu. Þar var
sprengju einnig komið fyrir sem
sprakk þannig að rúða í glugganum
brotnaði ásamt glerborði sem stóð
fyrir innan. Rannsóknarlögreglan
hefur vitneskju um hverjir voru
þarna að verki og á eftir að færa þá
menn til yfirheyrslu. -ÓTT
Þrír dómarar
í klámmálinu
Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarps-
stjóri á Stöð 2, hefur verið ákærður
vegna sýninga á klámmyndum. Mál-
ið er til meðferðar í Sakadómi
Reykjavíkur. Helgi I. Jónsson saka-
dómari er með málið. Hann hefur
fengið tvo meðdómendur. Þau eru
Kristín Jóhannesdóttir kvikmynda-
gerðarmaður og Eiríkur Kjalar Em-
ilsson, lektor í heimspeki viö Háskóla
íslands. Eiríkur Kjalar kennir sið-
fræði.
Búið er að þingfesta málið. Dóms
er að væntan innan nokkurra vikna.
-sme
Hrísey:
Eyfellið
líka selt
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvík:
í lok síðasta árs seldi Útgerðarfélag
KEA hf. í Hrísey togarann Snæfell
til Grindavíkur og fékk í staðinn bát
sem hlaut nafnið Eyfell EA-540. Sá
bátur hefur nú verið seldur vestur á
Rif á Snæfellsnesi og er kaupandinn
Kristján Guðmundsson hf.
Kaupverð bátsins fékkst ekki upp-
geflð. Báturinn var seldur með
rækju- og síldarkvóta en án botn-
fiskskvóta, það er að segja að selj-
anda er tryggt ígildi botnfiskskvót-
ans sem er 650 tonn. Það magn mun
verða veitt af heimabátum að sögn
Jóhanns Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags KEA.
Vinna hófst að nýju í frystihúsinu í
Hrísey fyrir viku en afli hefur verið
fremur tregur.
Eyfellinu verður nú gefið nafnið
Kópanes SH og mun báturinn fara á
línu. Skipstjóri verður Jóhann Krist-
insson, áður skipstjóri á Tjaldi SH.
Austfirðir:
Engin eftír-
mál vegna
fiskverðsdeilu
Ýmis kæru- og klögumál gengu á
milli meðan á fiskverðsdeilu togara-
sjómanna á Austfjörðum stóð á dög-
unum. Meðal annars var talað um
að gera sjómenn ábyrga fyrir töfum
á útgerð togaranna og eins var hótað
kærum á sjómannafélögin.
Að sögn Emils Thorarensen, út-
gerðarstjóra Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, verða engin eftirmál af fisk-
verðsdeilunni. Þegar samkomulagið
náðist var ákveðið að allt slíkt skyldi
fallaniður. -S.dór
Teppi,
dúkur, parket og flísar
Stórglæsilegt úrval af gólfefnum á ótrúlega lágu verði.
Útsalan er á tveimur hæðum.
í kjallaranum er Dúkaland með gólfdúk, flísar,
parket og kork. En í Teppalandi, á fyrstu hæðinni, eru
gólfteppin og motturnar í glæsilegu úrvali.
Eitt glæsilegasta úrval teppa og búta á
útsölu til þessa. Margir gæðaflokkar og allir
verðflokkar. Bútar allt að 30 fermetrar að
stærð með 50% afslætti.
Dæmi:
Einlit uppúrklippt teppi, 100% polyester.
Óhreinindavörn. Fallegir litir.
Verð áður 2126-
AFSLÁTTUR 20% 1099“
Lykkjuteppi (Berber) úr gerviefni með viður-
kenndri óhreinindavörn. Fallegt og efnismikið
teppi í tveimur litum; Ijósgráu og „beige".
Einstakt tilboð.
Verð áður 1.785-
AFSLÁTTUR 25% 1.339—
Grimmsterkt teppi á skrifstofur, stofnanir og
stigahús. Fallegir litir.
Verð áður 1.495-
AFSLÁTTUR 20% 1.196-
Fallegt einlitt teppi með „velúr“áferð úr 80% ull
og 20% nælon.
Endingargott heimilisteppi í háum gæðaflokki.
Verð áður 2.732-
AFSLÁTTUR 22% 2.156-
AFSLÁTTUR AF GÓLFTEPPUM
ER 10-50%
Eitt glæsilegasta úrval landsins af stökum
teppum í mörgum stærðum úr bæði ull og
gerviefnum. Klassísk og nýtískuleg mynstur
við allra hæfi.
AFSLÁTTUR 10-25%
Fjölbreytt mynstur og margar þykktir.
Ýmsar breiddir. Bútar á heilu herbergin
með 50% afslætti.
Dæmi:
„Art design" 2ja metra breiður dúkur sem er 2
mm að þykkt.
Verð áður 914—
AFSLÁTTUR 47% 484“
„Strong super“ 2ja metra breiður dúkur
sem er 2,5 mm að þykkt.
Verð áður 1755-
AFSLÁTTUR 55% 790“
„Tricastle11 3ja metra breiður dúkur
sem er 1,8 mm að þykkt.
Verð áður 1.188-
AFSLÁTTUR 25% 891 “
Úrvalsparket frá ýmsum framleiðendum
á lækkuðu verði.
Mikið úrval af keramikflísum á gólf
og veggi á lágu verði.
Mikið af gólfteppum í fullri breidd í heilum
rúllum sem eru allt að 70-80 fermetrar.
Góðir gólfdúkabútar.
Hafðu málin með þér og þú getur gert
ótrúleg kaup fyrir heimilið eða vinnustaðinn.
Börnin una sér í Boltalandi meðan
foreldrarnir spara stórar upphæðir.
Staðgreiðsluafsláttur. Góðir greiðsluskilmálar. Greiðslukort. Euro og Visa afborgunarsamningar.
Teppaland • Dúkaland
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm mmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm öll verð eru uppgefin fermetrum
Grensásvegi 13, sími 83577, Rvík.