Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 19. JANÖAR 1990. 11 Sviðsljós Það fór vel á með þeim Scotty og Lindu enda gátu þau sagt hvort öðru ófáar hjónabandssögur. Hjónabönd: Drottning hittir kóng Hún heitir Linda Exess og hann heitir Scotty Wolfe. Hún á 21 hjóna- band að baki en hann er nú í sínu 27. hjónabandi og segist vera ham- ingjusamur. Þau hafa bæöi komist á síður Guinnessheimsmetabókarinnar þar sem enginn karl á jafnmörg hjóna- bönd að baki og Scotty og engin kona hefur gengið jafnoft í hjónaband og Linda. Þau hittust fyrir skömmu og fór vel á með þeim enda virðist það sam- eiginlegt áhugamál þeirra aö ganga sem oftast í hjónaband. Scotty er 81 árs gamall og giftist núverandi konu sinni, Daisy, fyrir fjórum árum þegar hún var aðeins 14 ára. Nú sér hún um gamla mann- inn og stundar jafnframt mennta- skólanám. Scotty segir aö þetta hjónaband hans verði það síðasta því í Daisy finni hann allt það sem hann hafi leitað að alla ævi, kærleik, góð- mennsku og fegurð. Ekki fylgir sög- unni hvort hin filippseyska Daisy sé Chuck Berry: Saurlífisseggur Sannast hefur að Cuck Berry er hinn versti saurlifisseggur. Rokkkóngurinn Chuck Berry hef- ur höfðað mál á hendur tímaritinu High Society og fer fram á tíu millj- ónir dollara í skaðabætur vegna nektarmynda sem tímaritið birti af honum. Á blaðamannafundi á miðvikudag, þar sem þeir voru mættir Berry og hinn frægi lögfræðingur hans, Mel- vin Belli, lýsti sá síðarnefndi því yfir að myndirnar, sem blaðið birti, hefðu verið á meðal 24 ljósmynda sem stol- ið hefði verið af skrifstofu Berrys í St. Louis á síðasta ári. Áður en myndirnar birtust opin- berlega reyndi Berry að koma í veg fyrir birtingu þeirra en óskum hans þar að lútandi var hafnað. Berry sagði blaðamönnum á áður- nefndum fundi að síðastliðin 30 ár heföi hann tekið nektarmyndir af sér og kvenkynsbólfélögum sínum til að eiga sem baktryggingu. Hann sagði að tilgangurinn með myndatökunum hefði verið að geta sannað að „þetta hefði allt verið í gamni gert“ ef þeim konum, sem hann hafði haft mök við, hefði dottið í hug að ærumeiða eða rógbera hann á einhvern hátt. jafnánægð í hjónabandinu. Linda er fráskilin um þessar mund- ir en er að leita sér að nýjum maka. Efhúnfinnureinhvernsem vill gift- ast henni verður það 22. hjónaband hennar. Carolyn Cummins ásamtfimm börn- um sínum sem öll eiga sama af- mælisdaginn. Nýtt heimsmet Cumminshjónin í Clintwood í Bandaríkjunum eiga fimm börn sem varla er í frásögur færandi nema fyr- ir þá sök að börnin eiga öll sama af- mælisdaginn. Þau eru öll fædd þann 22. febrúar. Það elsta er 37 ára en þaö yngsta 23 ára. Það er mjög sjaldgæft að svo mörg systkini eigi sama afmælisdaginn enda er fjölskyldan komin á síður Guinnessheimsmetabókarinnar. Talsmenn Guinness segja að líkurn- ar á því að fimm systkini eigi sama afmælisdaginn séu einn á móti átján milljörðum svo það eru litlar líkur á að þetta einstæða met verði slegið í bráð. Við þjófstörtum í Klúbbnum í kvöld með HAPPY HOUft eða GLEÐISTUND því að aðgangur og allar veitingar verða seldar á HÁLFVIRÐI frá 10.30 til 11.30. Glæsilegar billiardstofur á miðhæðunum og ölkráin opin í kjallaranum. Borgartúni 32 TIL LEIGU Tvær hæðir og rishæð í steinhúsi við Laugaveg eru til leigu. Grunnflötur hæðar er ca 170 ferm. Hæðirn- ar eru á 2. og 3. hæð og í risi er kaffistofa með fund- arherbergi. Uppl. í síma 15545. 5 daga megrun,sem . ITAEININGAR I L AGMARKI NGAR AUKAVERKANIR Vandaðurbæklingurmecyupp- lýsingum og leiöbeining'um á Islensku fylgir. FÆST í APÓTEKUM OG BETRI MÖRKUÐUM. DLILEGU TNGDARTAPI PEÐJANDI OG BRAGÐGOTT \LLAR MATARÁHYGGJUR ÚRSÖGUNNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.