Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990. Fréttir Kjarasamningagerðin hefst á sunnudag: Ekki eining innan verkalýðshreyfingar iðnaðarmannafélög og nokkur félög opinberra starfsmanna andvíg núll-lausninni Svarta hópnum svonefnda tókst aö knýja þaö í gegn á miðvikudaginn að vinnan viö gerö kjarasamninga á núll-lausnar hugmyndinni heíjist á sunnudaginn kemur. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusam- bandsins, haföi fram að því færst undan aö hefja samningagerðina. Hann bar fyrir sig aö kynna þyrfti samninga betur innan verkalýðs- hreyíingarinnar. Hið rétt er hins veg- ar að hann vissi að það ríkti ekki eining innan aðildarfélaga sam- bandsins aö ganga til núll-lausnar- samninga. Það voru nokkur iðnaðar- mannafélög, einkum innan málm- iðnaðarhópsins og rafiðnaðarhóps- ins, sem eru þessu andvig. Eins eru ákveðin félög innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja lítt hrifm af hugmyndinni. Aliir verði með Það er hins vegar algert skilyrði til þess aö samningar, af þeirri gerð sem menn eru að hugsa um, takist að öll launþegahreyfingin taki þátt í henni. Þess vegna er þessi óánægja, sem skotið hefur upp kollinum á allra síð- ustu dögum, mjög hættuleg samn- ingsgerðinni. Margir innan Verkamannasam- bandsins óttast að þessi andstaða geti hreinlega komið í veg fyrir að samningar takist. Komið var að samningum Fyrir um það bil 10 dögum var stað- an sú að komið var aö því að menn settust niður og gengju frá samning- um. Foringjar innan Verkamanna- sambandsins voru þá svo bjartsýnir að þeir sögðu nýja kjarasamninga vera í sjónmáli. Það var einmitt þá sem efasemdir og andstaða iðnaöarmanna kom upp á yfirborðið, en þó aöeins í þröngum hópi innan verkalýðshreyfmgarinn- ar. Foringjar í Verkamannasam- bandinu og Vinnuveitendasamband- inu urðu órólegir og töldu að menn myndu falla á tíma ef ekki yrði haf- ist handa við samningsgerðina. Og í raun var staðan orðin sú á miðviku- daginn að nálin á skákklukkunni var alveg að falla. Þá loks var fallist á að samningsgerðin hæfist á sunnu- daginn. Hugmynd svarta hópsins Svarta hópnum var að sjálfsögðu mikið í mun að samningar á þeim nótum, sem ákveðnar hafa verið, takist. Sannleikurinn er nefnilega sá að þeir fjórmenningar, Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka- mannasambandsins, Snær Karlsson frá Húsavík, Pétur Sigurðsson frá ísafirði og Bjöm Grétar Sveinsson frá Höfn eiga hugmyndina að samn- ingsgerðinni. I vor er leið, þegar þrefaö var í kjarasamningum, lögðu þeir til að gerðir yrðu kjarasamningar til stutts tíma, tveggja til þriggja mánaða. Þótt skoðanir þessara heiðursmanna, Guðmundar J. Guðmundssonar og Ásmundar Stefánssonar, fari ekki alltaf saman í verkalýðsmálapólitíkinni, eiga þeir nú fyrir höndum að leiða samningana fyrir verkalýðshreyfinguna næstu daga. Það getur orðið erfitt verkefni. DV-mynd BG Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson Tíminn yrði síðan notaður til að vinna að gerð samnings til langs tíma sem yröi mjög svipaður þeim sem nú er fyrirhugað að gera. Þessari hugmynd þeirra var þá hafnað og samið var til áramóta. Eftir á sáu menn aö það var rangt að hafna hug- myndinni. Þegar svo Einar Oddur Kristjáns- son, formaður Vinnuveitendasam- bandsins, endurvakti hugmyndina rétt fyrir áramótin var gleypt við henni. Nú er bara eftir að sjá hvort and- staðan gegn samningunum verður til þess að ekkert verður úr þeim. Það ætti að skýrast mjög fljótlega í byijun næstu viku. Um hvað á að semja? Mikil forvinna hefur farið fram hjá verkalýöshreyfingunni og vinnu- veitendum vegna kjarasamning- anna, miklu meiri en nokkru sinni áður. Aðilar vinnumarkaðarins hafa rætt við bankastjóra, ríkisstjóm, talsmenn bændasamtakanna og fleiri. Hugmyndin hjá þeim er að stöðva verðbólguna og raunar að koma henni niður í eins stafs tölu. Hugmyndin er aö verð á land- búnaðarafurðum hækki ekki á ár- inu. Talið var að til þess að þaö tæk- ist yrðu um það bil 400 milljónir króna að koma úr ríkissjóði í auknar niðurgreiðslur. Mjög þungt er fyrir fæti hjá ríkisstjóminni með það fé. En síðan kom ýmislegt skrýtið í ljós þegar farið var aö reikna upp land- búnaðardæmið. Til að mynda kom í ljós aö inni í verðlagsgrundvelli land- búnaðarafurða er reiknaö með áburðarnotkun bænda uppá 12.400 lestir. Heildarframleiösla Áburöar- verksmiðjunnar er aftur á móti um 11.000 lestir, sem fara til bænda, land- græðslunnar, garða og í aöra áburö- amotkun. Áburðarnotkun bænda var sum sé ofáætluð um 15 prósent í það minnsta. Fleira í þessum fræga verð- lagsgmndvelli þykir með þeim hætti að lækka megi verö landbúnaðar- vara stórlega án aukinnar niður- greiðslu. Vaxtadæmið Verkamannasambandið er með þá kröfu, meö fullum stuðningi Vinnu- veitendasambandsins, að vextir verði lækkaðir. Verkamannasam- bandið vill að það gerist sama dag og skrifað verður undir kjarasamn- inga. Vinnuveitendasambandiö vill að það gerist af sjálfu sér um leið og verðbólgan hjaönar. Ýmsir banka- stjórar em sama sinnis. Þetta gæti orðið nokkurt deilumál í samningun- um. Þá vilja samningsaðilar fá trygg- ingu fyrir því að opinber þjónusta hækki ekki á árinu, eða að henni verði haldiö í algeru lágmarki. Launahækkun verði ekki nema 3 prósent á árinu. í sambandi við það hafa komið fram hugmyndir um að breyta greiðslum launþega til lífeyr- issjóða, þannig að í stað þess að at- vinnurekendur greiða 6 prósent en launþegar 4 prósent, greiði atvinnu- rekendur 10 prósent. Af þeim 4 pró- sentum, sem launþegar hafa greitt, komi nú 3 prósnet í launaumslagið en eitt prósent fari til atvinnurek- enda. Innflutningur landbúnaðar- vara Unnið verði áfram aö því að fá leyfi til þess að flytja inn kjúklinga, kart- öflur og smjörlíki. Lagður verði 70 prósent tollur á þessar vörur og þeir peningar notaðir til að hjálpa bænd- um að minnka offramleiðsluna. Þrátt fyrir þennan toll mun verð þessara innfluttu vörutegunda lækka um- talsvert, miðað við innlenda fram- leiðslu. Menn vildu vinna að þessari hugmynd strax, en Vinnumálasam- band samvinnufélaga ljær ekki máls á því. Trygging kaupmáttar Eitt allra viðkvæmasta málið verð- ur með hvaða hætti kaupmáttur veröi tryggður. Uppi hafa veriö hug- /myndir um launanefnd, rauð strik, uppsagnarákvæði í samningum og vísitölubindingu launa. Á það síðast- nefnda mega vinnuveitendur ekki heyra minnst. Nær öruggt er tahð að skipan launanefndar verði niðurstaðan. Sú nefnd á að fylgjast með launaþróun- inni og gefa út aðvaranir ef eitthvað það er að gerast sem rýra mun kaup- mátt. Svipuð launanefnd var aö störfum fyrir fáum árum og þótti hún gefast nokkuð vel. Nú er bara að bíða og sjá hvað ger- ist í næstu viku þegar aðilar vinnu- markaðarins setjast niður og hefja samningagerð. -S.dór Selja silung til Frakklands ÞórhaBur Ásmundssan, DV, Sauðárkrókx Stefnt er að því í þessum mánuði að gera tilraun með útflutning á ferskri vatnableikju til Suður-Frakklands. Það eru um 30 veiöibændur, flestir þeirra 1 Skagafirði og Húnavatns- sýslum, sem standa að þessu í sam- vinnu við Sigmar B. Hauksson, sem sér um markaðsmálin, en afskipti hans af þessum málum hófust þegar hann skrifaði skýrslu um markaös- mál vatnasilungs fyrir Byggðastofn- un. Ef tilraunin tekst er hér um stórt mál að ræða þar sem talið er að veiða megi hátt í þúsund tonn árlega af silungi í íslenskum vötnum. Lögð verður megináhersla á í markaðs- setningunni aö hér sé um villibráð að ræða og talið að á þann hátt megi fá mun hærra verða fyrir vatnasil- unginn en eldisfisk sem er ráðandi á markaönum ytra en hefur fallið mjög í verði undanfarin ár. Ársneysla á sflungi í Frakklandi er um 25 þúsund tonn. Bjami Egilsson, bóndi á Hvalnesi í Skagafirði, hefur staðið fremstur í flokki veiöibænda í þessum málum. „Þetta ræðst algjörlega af því hvern- ig tekst með markaðsmálin. Til- raunasendingarnar skera úr um framhaldið," segir Bjarni og varar við of mikflli bjartsýni. Viötaliö dv Pólitík er til- viljunum háð Nafn: Guðmundur Gylfi Guðmundsson Aldur: 32 ára Slaða: hagfræðingur Alþýðusambands íslands „Hún litla dóttir mín, Arndís Jóna, fjögurra mánaða, er þaö sem lífið snýst um þessa dag- ana,“ segir Guðmundur Gylfi Guðmundsson, nýráðínn hag- fræðingur Alþýðusambands ís- lands. „Annars eyði ég mestu af frí- tima raínum í pólitík en ég sit í stjórn Sambands ungra fram- sóknarmanna. Það má eiginlega segja að ég sé uppalinn í pólitík því faðir minn, Guðmundur Magnússon, var mjög virkur í starfi Framsóknarflokksins aust- ur á Egilsstööum og sat í sveitar- stjórn fyrir flokkinn í þrjá ára- tugi. Frá árinu 1966 til 1971 var rekin kosningaskrifstofa fyrír allar kosningar í kjaflaranum heima og auk þess var mikil umræöa um sfjórnmál á heimil- inu. Ég komst því ekki hjá að fara snemma aö velta stjómmálum fyrir mér. Sjálfur stefni ég ekki aö neinum sérstökum framai pólitikinni. Ég hef kynnst henni það vel aö ég veit að það er allt meira og minna tflviljunum háö hvemig hin póli- tísku veður skipast á hveijum tíma. Markmið mitt í dag er ein- ungis aö starfa í pólitísku félagi og vera virkur í því sem þar er að gerast. Próf frá Lundi Guðmundur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1977. Aö þvi loknu stundaöi hann nám í þjóöhagfræði við háskól- ann í Lundi í Svíþjóð. Hann lauk þar prófi þjóðhagfræði og var síð- an við framhaldsnám i háskólan- um í Gautaborg. „Ég var í sex ár við nám í Svíþjóð. Árið 1981 fór ég að vinna hjá Framkvæmda- stofnun ríkisins og var þar einn vetur. Tvö sumur á meðan ég var í námi í Gautaborg vann ég hjá Seðlabankanum. Árið 1985 hóf ég svo störf hjá Fasteignamatí rikis- ins og vann þar uns ég var ráðinn tfl Alþýðusambandsins. Spila körfubolta Ég hef nú ekki verið neitt sér- staklega duglegur við aö stunda líkamsrækt á undanfómum áram. Þó spila ég körfubolta öðru hvora. Á menntaskólaárum mín- um æfði ég með Þór á Akureyri og á meðan ég var við nám í Sví- þjóð voram viö íslendingarnir með körfuboltalið. Við kepptum á háskólamótum og urðum nokkrum sinnum háskóla- og bikarmeistarar. Ég las mikið af bókmenntum á menntaskólaárum mínum en bóklestur hefúr orðið dálítið út undan hjá mér á undanfórnum árum. Laxness og Þórbergur eru alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér og ég hef lesiö nánast allt sem þeir hafa skrifaö. Af yngri höf- undum held ég mest upp á Guö- berg Bergsson,“ segir Guðmund- ur Gylfi. Eiginkona Guömundar er Anna Maria Ögmundsdóttir kennari. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.