Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990. 25 Iþróttir Sigurður Einarsson spjótkastari 1 samtali við DV: Ég gat ekki hugsað um spjðtkast í tvo mánuði“ - Sigurður „rosalega bjartsýnn“ á næsta keppnistímabíl r Vilhjáimsson en þeir félagarnir skipa spjótkasti. „Ég bjóst alveg eins viö því að ég yrði einhvers staðar fyrir ofan miðju. Ég var búinn að reikna þetta nokkurn veginn út en þriðja sætið kom mér samt nokkuð á óvart. Ég stóð mig vel á stórmótum á síðasta ári og það lagði grunninn Öðru fremur að þessu þriöja sseti,“ sagði Sigurður Einarsson spjótkastari í samtaii við DV í gær en hann dvel- ur nu við nám og æfingar í Ala- bama í Bandaríkjunum. Eins og skýrt var frá í DV á dögunum hafh- aði Sigurður í þriðja sæti á heims- lista hins virta bandaríska tímarits Track and Field News yfir bestu spjótkastara heims á síðasta ári. „Þetta sæti breytir miklu fyrir mig ,á næsta keppnistíraabili. í fyrra átti ég í mestu erfiðleikura raeð að fá að keppa á stærstu mót- unum. Ég varð að borga mikla pen- inga til að fá að vera með og þetta var mikil barátta. Það eru ekki margir spjótkastarar sem fá að keppa á hverju stórmóti, þetta tíu til iimmtán. Eg komst aðeins inn á fimm síðustu stórmótin á síðasta ári. Samkeppnin er mjög hörö. Með því að hafna í þriðja sæti á heims- » listanum hjá Track and Field News hef ég skipað mér sess meðal bestu spjótkastara heims. Það ætti því að verða auðvelt að komast að á stór- mótum í sumar en spjótkastið verð- ur þó ekki Grand Prix grein á þessn ári.“ „Gat ekki hugsað um spjótkast í 2 mánuði" - Hvernig gengur undirbúningur- inn fyrir næsta keppnistímabil. „Ég er kominn vel af stað og hef lagt aðaláhersluna á að byggja upp kraft og eins á alhliða uppbygg- ingu. Þaö skiptir miklu máli að maður geti komist sem fyrst í gott form líkamlega og síðan hafið tæknilegar æfmgai-. Það tók 'mig reyndar mjög langan tíma að fá áhugann aftur á spjótkastinu að loknu síðasta keppnistímabili. Tímabilið var mjög erfitt og gífur- leg ferðalög ekki hvaö síst. Það tók mig tvo mánuöi að fá löngunina aftur en í allan þann tíma gat ég ekki hugsað um spjótkast. I des- ember hóf ég síðan æfingar og í dag bíður maður spenntur eftir næsta keppnistímabili.“ „Mjög slæmtað hafa ekki þjálfara“ - Nú er þjálfarinn þinn, Stefán Jó- hannsson, hér á Islandi en þú í Bandaríkjunum. Gengur það upp. „Þetta er hiö versta mál. Ég þarf á honum að halda hér en peninga- skortur kemur í veg íyrir að hann geti komið til mín og aðstoðað raig. Stefán hefur hjálpað mér mjög mikið og hann á mikinn þátt í vel- gengni minni í spjókastinu. Það er þvi grátlegt að hann skuli ekki geta veriö hér. Það er draumurinn að einhver geti styrkt okkur íjárhags- lega og aðstoðað Stefán tfi að kom- ast hingað. - Færð þú einhverja styrki frá íþróttayfirvöldum á íslandi. „Ég fæ styrk úr afreksmanna- sjóði ÍSÍ en það eru um 40 þúsund í fimm mánuöi. Auðvitað er þetta ekki mikið en þaö munar samt mikið um þetta. Ert þú bjartsýnn á næsta keppn- istímabil og telur þú líkur á því aö þú getir bætt árangur þinn enn frekar. „Ég er rosalega bjartsýnn og mér hefur gengið mjög vel við æfin- gaundirbúning. Ég hef sett mér ákveðið takraark fyrir næsta keppnistímabil. Það er einfaldlega að halda þriðja sætinu á heimslista Track and Ffid News og kasta lengra en ég gerði á síðasta ári. Til þess að síðara markmiðið náist þarf ég að kasta lengra en 82,82 metra og ég er bjartsýnn á að það takist,“ sagði Sigurður Einarsson. -SK C Stúf ar frá Noregi Hermundur Sigmundsson, DV, Noregi: Norska landsliðið í handknattleik, sem lék hér á landi fyrir skömmu, undibýr sig nú að krafti fyrir C- heimsmeistarakeppnina sem fram fer í Finnlandi í apríl nk. Liðið tekur um þessar mundir þátt í Lottó Cup, handknattleiksmóti, ásamt landslið- um frá Finnlandi, Vestur-Þýska- landi, Austurríki og Danmörku. í fyrrakvöld sigraði norska landsliðið lið Austurríkis, 20-15. Norska lands- liðið hefur verið í mikilli sókn und- anfarið og þakka menn þeim þremur atvinnumönnum sem leika í Vestur- Þýskalandi þeim Roger Kjendalen, Rune Erland og Östyn Havang en þeir þremenningar hafa verið í mjög góðu formi í landsleikjum Norð- manna. Vildi fá Höllu í landsliðið Halla Geirsdótir, sem leikur með liði Junkeren í 2. deild í Noregi, hefur vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu í marki liðsins. Norski kvennalandsliðsþjálfarinn í hand- knattleik sá Höllu í leik með Junker- en fyrir skömmu og eftir leikinn hafði hann tal af þjálfara liðsins, ís- lendingnum Sveinbirni Sigurðssyni, og vildi hann fá Höllu tfi aö æfa með landsliðinu. Sveinbjörn þjálfari sagði „því miður, hún er íslendingur". Þjálfari Vestar, eins besta kvennaliðs í Noregi, hefur einnig hrifist af frammistöðu Höllu í marki Junkeren og sagði að hann gæti vel hugsað sér að fá hana til félagsins. Junkeren er í 5. sæti í 2. deildinni en liðiö lék í 3. deild á síðasta keppnistímabili. Þórir að gera góða hluti Þórir Hergeirsson, sem lék með Breiðabliki í handknattleik á síðasta keppnistímabili, er að gera góða hiuti sem þjálfari sem þjálfari 3. deildar liðs Elferun. Liðið, sem var eitt af bestu liðum Noregs fyrir nokkrum árum, áður en það féll í 3. deild. er nú í efsta sæti 3. deildar og hefur Þórir náð að byggja upp mjög sterkt lið. Bróðir Þóris, Grímur Hergeirs- son hefur leikið mjög vel fyrir liðið Lakers óstöðvandi - hefur enn bætt stöðu sína í NBA-deiIdinni • Otis Thorpe, leikmaður með Houston Rockets, er stöðvaður af Sedale Threatt og Xavier McDaniel hjá Seattle Supersonics í leik liðanna i vik- unni. Seattle vann sigur í hörkuleik, 105-101. Simamynd Reuter Los Angeles Lakers hefur enn bætt stöðu sína í bandarísku NBA-deild- inni í körfuknattleik með þremur sigrum undanfama daga. San An- tonio Spurs mátti hins vegar sætta sig við tvo ósigra um síðustu helgi en bætti það upp í fyrrakvöld með því að sigra New York Knicks. Lakers hefur unnið 27 leiki en tap- að 8, Knicks unnið 26 og tapað 11 en Spurs unnið 24 og tapað 10 og standa þessi þrjú lið best að vígi í deildinni. Úrslit undanfarna daga hafa orðið á þessa leið: Föstudagur: Boston-SA Spurs...........90-97 Indiana-New York..........96-101 76ers-Cleveland..........102-113 Charlotte-Chicago.........95-107 Detroit-Minnesota.........97-86 Milwaukee-LA Clippers.....94-95 Phoenix-Sacramento.......111-96 LA Lakers-Houston........107-98 Laugardagur: MiamiHeat-Boston..........96-105 Indiana-Milwaukee........111-109 New York-SA Spurs........107-101 Cleveland-New Jersey......98-96 Detroit-Portland.........111-106 Washington-76ers...........101-120 Chicago-LAClippers.......117-111 Dallas-Utah Jazz..........99-109 Denver-Phoenix...........111-119 Seattle-Atlanta..........113-106 Golden State-Orlando.....138-127 Sunnudagur: New Jersey-Portland.......90-99 Mánudagur: New York-Chicago..........109-106 Cleveland-SA Spurs........92-89 Denver-Dallas.............101-90 LA Lakers-Sacramento......111-91 Indiana-Golden State.....144-105 Washington-Miami Heat....105-111 Phoenix-Charlotte........118-108 Seattle-Houston..........105-101 Þriðjudagur: Milwaukee-Golden State....134-126 LA Clippers-Charlotte...:.106-98 Sacramento-Atlanta.......108-91 Portland-Denver...........120-115 Miðvikudagur: MiamiHeat-Indiana........121-111 New Jersey-Washington.....121-111 Orlando-Boston...........111-133 76ers-Detroit............112-108 SA Spurs-New York........101-97 Dallas-Phoenix............88-108 Houston-Cleveland.........107-98 Utah Jazz-Atlanta..........95-88 LA Lakers-Seattle.........100-90 -JKS/VS og á hann stóran þátt í velgengni fé- lagsins. Steinar farinn að spila á ný Steinar Birgisson sem leikur með 1. deildar liðinu Runar er nú byrjaður að leika með liði sínu á ný eftir meiðsli sem hrjáð hafa hann. Steinar missti af nokkrum leikjum liðsins og gekk þá liðinu ákaflega illa og tapaði hverjum leik á fætur öðmm. En eftir að Steinar hóf að leika á ný hefur liöið náð að rétta úr kútnum og hefur liðið unnið síðustu leiki sína og er í 4. sæti deildarinnar. Martyn Knipe Golfkennari H.S. 79321 Þann 22. jan. nk. verður opnaður nýr golfskóli í Skeifunni 11 B, kjallara, sími 689085. Bæði verður hægt að fá golf- kennslu og æfingatíma og einnig verður selt kaffi, gos og samlokur í setustofu. Opið verður á þessum tímum: Mánudaga-föstudaga frá kl. 12-14 og 16-23. Laugardaga frá kl. 10-17. Sunnudaga frá kl. 12-16. Verð á æfingatímum er kr. 350 pr. klst. og kr. 900 á kennslu- stund sem er hálf klst. Einnig hóptímar fyrir byrjendur og lengra komna. Sérstakt kynningartilboð verður á æfingatímum frá 19. jan. til 10. febr., kr. 1.800 fyrir 6 tíma. Verð einnig með viðgerðir á golfkylfum. Afsökunarbeiðni fá þeir sem fengu bréf þess efnis að golf- skólinn yrði opnaður 19. jan. Verið velkomin. MÁNAÐ rftÆKJ ARKORT ítöftWfi j—Jii J i ÍIUL |: !* j j ú í n—f rWTO HR.T5TO.. ; : 4 i! ! ji ! | |j |:=i| GULISPORT VIÐ GULUNBRI STÓRHÖFÐA 15 - SÍMI 672270 r J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.