Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990.
Fréttir
Hæstaréttardómurinn í máli Steingríms Njálssonar:
Ekki dæmdur fyrir
allt sem sannaðist
- komu mistök saksóknara í veg fyrir þyngri dóm?
Steingrimur Njálsson fluttur i Sakadóm fyrir helgina. Þar var hann úr-
skurðaður í gæsluvarðhald fram í apríl. DV-mynd KAE
Hæstiréttur gat ekki, þegar hann
felldi dóm yfir Steingrími Njálssyni
í febrúar 1988, dæmt hann fyrir öll
þau brot sem á hann sönnuðust.
Ástæða þess var sú að verknaðar-
lýsing í ákæru var svo ófullkomin
og ákæran þannig úr garði gerö að
dómurinn gat ekki dæmt Steingrím
nema fyrir lítinn hluta þess sem
þykir sannað að hann hafi brotið
af sér.
Hæstiréttur gat aðeins, vegna
þess hvernig ákæran var, dæmt
hann fyrir brot gegn ákvæðum
einnar hegningarlagagreinar, þó
sannast hafi, að mati Hæstaréttar,
að hann hafi gerst sekur við fleiri
og alvarlegri greinar hegningar-
laga.
Ekki dregið í efa
Steingrimur var aðeins dæmdur
fyrir brot gegn 209. grein almennra
hegningarlaga og gegn lögum um
vemd bama og ungmenna þrátt
fyrir að alvarlegri brot hafi sann-
ast. 209. grein almennra hegningar-
laga nær yfir það þegar einhver
með lostugu athæfi særir blygðun-
arsemi manna eða er til opinbers
hneykshs. Hámarksrefsing við
þessum brotum er þriggja ára varð-
hald. Hæstiréttur dæmdi Steingrím
í tveggja ára fangelsi, þar af átti
hann að vera 15 mánuði á viðeig-
andi hæU.
í niðurstöðu dómsins segir: „Þá
Fréttaljós
Sigurjón M. Egilsson
verður einnig að telja sannað með
vætti drengsins, vottorði Péturs
Lúðvíkssonar og öörum gögnum
málsins að ákærði hafi beitt dreng-
inn þvílíku ofbeldi sem hann hefur
lýst og ekki verður dregið í efa að
sé rétt.“
Þessi orð Hæstaréttar taka af aU-
an vafa um það að ríkissaksóknari
gerði mistök þegar hann gaf út
ákæra á hendur Steingrími Njáls-
syni. Undir þetta tóku löglærðir
embættismenn sem DV hafði sam-
band við. Mjög líklegt má telja að
hefði ákæran verið gallalaus sæti
Steingrímur enn í varðhaldi vegna
brotanna sem hann var ákærður
vegna í febrúar 1988. Mestu refsing-
ar fyrir þau brot, sem sönnuðust á
Steingrím en ekki var hægt aö
dæma vegna galla á ákærunni,
nema frá 12 áram til 16 ára eða
ævilangs fangelsis.
Hæstiréttur gat ekki dæmt sam-
kvæmt þeim ákæruUöum. Ástæð-
una segir Hæstiréttur vera þessa:
„Verknaðarlýsing í ákæruskjali er
hins vegar ófullkomin, en eins og
ákæra er úr garði gerð verður
ákærði aðeins sakfelldur fyrir brot
gegn ákvæðum 209. greinar al-
mennra hegnmgarlaga og 45. grein
laga um vemd bama og ung-
menna.“
Réttur Steingríms
Dómstólar geta ekki dæmt sak-
bominga fyrir annað en það sem
þeir era ákærðir fyrir. Ef verknað-
arlýsingu er áfátt, þannig að ein-
hver vafi er um í hverju brotið er
fólgið, er sú hætta til staðar að
dómstólar geti hreinlega ekki tekið
tilUt þess sem ákæran nær yfir. Sú
varð raunin í máU ákæravaldsins
gegn Steingrími Njálssyni.
Sakbomingar hafa þann grund-
vallarrétt að þurfa aöeins að veij-
ast því sem ákæran segir til um.
Þann rétt hafði Steingrímur í þessu
umrædda máli.
Hallvaröur Einvarðsson ríkis-
saksóknari fór með þetta mál fyrir
hönd ákæravaldsins. Til hans náð-
ist ekki þegar þessi grein var í
vinnslu.
Hvað segja hegningarlögin?
í hæstaréttardóminum segir að
háttsemi Steingríms varði við 202.
grein samanber 1. málsgrein 194.
grein, fyrstu málsgrein 200. grein
og fyrstu málsgrein 203. grein al-
mennra hegningarlaga. í almenn-
um hegningarlögum segir svo um
þessar greinar:
202. grein, samanber 1. málsgrein
194. greinar: „Ef kvenmanni er
þröngvað til holdlegs samræðis
með ofbeldi eða frelsissviptingu,
eða með því að vekja ótta um líf,
hefibrigði eða velferð hennar
sjálfrar eða náinna vandamanna
hennar, þá varðar það fangelsi ekki
skemur en 1 ár og allt aö 16 áram
eða ævilangt."
1. málsgrein 200. greinar: „Hver,
sem á samræði við barn, yngra en
14 ára, skal sæta fangelsi allt að 12
árum.“
1. málsgrein 203. greinar: „Það
varðar fangelsi aUt að 6 árum að
hafa kynferðismök viö persónu af
sama kyni, þegar atvik aö öðru
leyti svara fil þess, er í 194. grein
tU 198. grein og fyrri málsgrein 200.
greinar segir.“
-sme
Sigurður Rúnar með eins taeki og stolið var.
Innbrot 1 Stúdíó Stemmu:
Ómetanlegum hljóðupptökum
og verðmætum tækjum stolið
Verðmætum hljómflutningstækj-
um og 30-40 hljóðupptökusnældum,
sem búið var að leggja ómetanlega
vinnu í, var stoliö um helgina í
Stúdíó Stemmu í gamla ísbjarnar-
húsinu á Seltjarnarnesi. Innbrotið
uppgötvaðist ekki fyrr en í gærmorg-
un þegar Siguröur Rúnar Jónsson,
eigandi hljóðversins, kom til vinnu.
Að sögn Sigurðar Rúnars er taliö
að brotist hafi verið inn um gat á
loftræstikerfi hússins. Hann sagði í
samtali við DV að sonur hans hefði
komið að ólæstri hurð í hljóðverinu
á laugardag en þá höfðu hátalarar
verið færðir frá vegg aö útidyram.
Hélt hann þá að einhver sem hafði
lykil að húsinu hefði komiö og þurft
að fá tæki lánuð en verið að flýta sér.
Þegar Sigurður Rúnar kom til
vinnu í gærmorgun sá hann að
tveimur pöram af hátöluram og Den-
on kraftmagnara hafði verið stohð.
Einnig hvarf svokallað digitai upp-
tökutæki af gerðinni Sony DAT sem
Sigurður segir að séu aðeins til í
upptökustúdíóum á íslandi.
„Það hurfu líka 30-40 snældur með
áteknu efni sem eru ómetanlegar.
Þetta var meðal annars efni sem átti
eftir að klippa til fyrir plötuútgáfu
fyrir næstu jól. Þarna var upptaka
með Dómkórnum, Skólakór Garöa-
bæjar og frumútgáfunni af tónhst við
kvikmynd Þráins Bertelssonar,
Magnús. Einnig hurfu digital upp-
tökur sem unnar hafa verið í stúdíó-
inu á síðastliðnum tveimur árum og
upptökur tónlistarnemenda. Við-
komandi hefur því htiö gagn af þess-
um spólum. Sigurður segir að Stúdíó
Stemma heiti verðlaunum til þeirra
sem geta veitt upplýsingar sem leiða
til þess að málið upplýsist.
Fyrir um tveimur vikum var brot-
ist inn á heimili Sigurðar Rúnars og
þaðan stohð CD geislaplötum, pen-
ingum, áfengi og ýmsum smávarn-
ingi.
-ÓTT
Megn óánægja Tékka, búsettra hér, vegna heimsóknar forseta síns:
Ágreiningur um fjölda
tilnefndra í móttökuna
- forsetaritari segir aö tuttugu hafi verið tilnefndir en aðrir tíu
„Mikil óánægja hefur skapast hjá
Tékkum, búsettum á íslandi vegna
heimsóknar Vaclavs Havels forseta
hingað til lands. Óánægjan stafar af
því að þeir fáu Tékkar sem hér eru
búsettir fengu ekki nærri allir aö
hitta hinn nýja forseta sinn. Á ís-
landi búa um fimmtán Tékkar.
Ari Liebermann, sem var einn
þeirra sem þýddu leikskrána að leik-
ritinu Endurbyggingin fyrir Havel
forseta, var einn af þeim sem ekki
fengu að hitta hann þrátt fyrir að
hann óskaði eftir því með viku fyrir-
vara.
„Havel er fyrsti forsetinn í okkar
lífi sem viö erum stolt af og á honum
byggjum við okkar framtíð. Það hafði
því mikla þýðingu fyrir okkur að
hitta hann,“ sagði Ari við DV.
„Ég bað hka um aö fá aö fara á
fréttamannafundinn th þess að sjá
forsetann en því var hafnað þrátt
fyrir að ég sé handhafi skírteinis
Blaðamannafélags íslands. Þaö sem
mér finnst líka skrýtiö er aö ég er
sennilega eini Tékkinn á íslandi sem
skrifaði um andófshreyfingu Havels
á sínum tíma og tók því áhættu vegna
móður minnar og systur sem eru
búsettar í Tékkóslóvakíu," sagði Ari.
Anna Kristine Magnúsdóttir blaða-
maður, sem á tékkneskan fóður,
sagði við DV að sér hefði þótt hla
staðið að skipulagningu heimsóknar
Havels hingað th lands með tilliti th
tékkneskra borgara hér á landi.
„Davíð Oddsson bjargaði þessu þó
að hluta th fyrir horn. Þegar honum
bárast spumir af þessu máh með
skömmum fyrirvara þá brá hann
skjótt við bauö þeim átta Tékkum
sem hann gat haft uppi á til móttök-
unnar í Höfða - það fólk fékk þá
tækifæri th að hitta forsetann sinn.
Auk þess þótti frú Vigdísi Finnboga-
dóttur það leitt þegar hún frétti um
hvemig þessum málum var háttað.
Hún hringdi th fóöur míns th þess
að bjóða honum th móttökunnar á
Hótel Sögu á laugardagskvöldiö.
John Hasek, formaður félags
Tékka í Kanada, kom að máh við
mig. Hann átti ekki orð yfir það að
ekki væri hægt að leyfa öllum þeim
fáu Tékkum, búsettum hér á landi,
að hitta forsetann," sagði Anna
Kristine.
Komehus Sigmundsson forsetarit-
ari sagði viö DV að embættið hefði
sent Tékkneska/íslenska menning-
arsambandinu bréf þar sem þess var
óskað að tuttugu manns yrðu til-
nefndir úr félaginu sem bjóða átti th
móttöku forseta íslands á Hótel Sögu
á laugardagskvöldið. Kornelíus sagði
það samsvara' tíu prósent móttöku-
gesta en þeir voru tvö hundrað.
Jóhanna Þráinsdóttir, sem er í
stjórn félagsins, sagði hins vegar við
DV að í umræddu bréfi frá forseta-
embættinu hefði aðeins verið óskað
eftir því aö tíu yrðu thnefndir. Jó-
hanna sagði að viö val félagsins á
þeim sem áttu að fara í móttökuna
hefði verið stuöst við þá reglu að
þeir íslendingar sem hefðu veriö
búsettir í Tékkóslóvakíu í eitt ár eða
lengur myndu fara - auk Tékka bú-
settra hér á landi. Jóhanna sagði að
því heföu þrír íslendingar í félaginu
farið en sjö Tékkar. Hún sagðist ekki
kannast við að fleiri Tékkar, búsettir
á íslandi, hefðu verið í móttökunni á
Hótel Sögu. Jóhanna sagðist vita um
talsverð sárindi úr röðum Tékka
búsettra hér vegna málsins.
Kornehus forsetaritari sagði að for-
seti Tékkóslóvakíu heföi aðeins dval-
ið á íslandi í tuttugu klukkustundir.
Af þeim tíma heföi hann veriö um
níu klukkustundir á hótelherbergi
sínu - því hefði tíminn verið knappur
til að hitta alla sem þess óskuðu.
„Venjulega þegar forsetar koma í
heimsókn er vaninn að viðkomandi
þjóöhöföingi bjóöi í móttöku í við-
komandi sendiráð og hitti landa sína
þar. Embættinu þykir það afar leið-
inlegt ef upp hafa komið sárindi í
sambandi við þessa heimsókn," sagði
Kornelíus.
Ari Liebermann sagðist ætla að
skrifa persónulegt bréf til Vaclavs
Havel forseta þar sem hann mun
skýra honum frá því hvers vegna
hann og fleiri Tékkar búsettir á ís-
landi fengu ekki að hitta Havel þegar
hann heimsótti ísland
-ÓTT