Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990. 11 Utlönd Framtíðarhorfur rikja Rómönsku Ameríku hafa sjaldan eða aldrei verið eins ömurlegar að mati bandarískra sér- fræðinga og segir jafnvel einn þeirra að nú sé svo komið að Bandaríkin hafi gefist upp á þessum heimshluta. Teikning Lurie Vonlítil framtíð Rómönsku Ameríku Framtíðarhorfur ríkja Rómönsku Ameríku hafa aldrei verið eins öm- urlegar að mati bandarískra sér- fræðinga. Áratugur lýðræðis þar hef- ur reynst áratugur tálvonanna. Nú er svo komið, þrátt fyrir nokkra framför í lýðræðisátt síöustu ár, að bandarískir sérfræðingar í ríkjum Rómönsku Ameríku eru famir að spá þessum heimshluta heldur von- lítilli framtíð. Endalok kalda stríðsins og söguleg- ar breytingar í Austur-Evrópu eiga sinn þátt í að Rómanska Ameríka er að verða algert aukaatriði að mati sérfræðinga. Þetta mun hraða efna- hagslegri hnignun á þessu lands- svæði en slíkt ógnar svo aftur lýð- ræðinu. Lýðræðisleg afturför „Svo virðist sem stefni í lýðræðis- lega afturför hjá stórum hluta Róm- önsku Ameríku, í myrkur miðalda á ný,“ sagði David Rondfeldt, sérfræð- ingur við Rand-stofnunina. Sumir helstu sérfræðingar Bandaríkjanna í málefnum ríkja Rómönsku Ameríku hafa látið í ljósi sams konar álit, þó að merkja megi að íhaldsmenn séu svartsýnni en fijálslyndir. „Ég hef aldrei sé framtíðiná svo svarta," sagði Howard Wiarda, stjórnmála- prófessor við Massachusetts- háskóla, en hann hefur lengi rann- sakað málefni Rómönsku Ameríku. Ein helsta ástæðan fyrir þessari svartsýni sérfræðinganna er hversu illa mörgum lýðræðislegum stjórn- um í þessum heimshluta hefur tekist til við að bæta slæma stöðu efnahags landanna og uppfylla þær óskir sem almenningur bindur viö lýðræðisleg- ar kosningar. „Áratugur lýöræðis hefur reynst áratugur tálvona," segir Douglas Payne, einn sérfræðinganna. „Sigur- inn við kjörborðið hefur enn ekki haft í för með sér bætt lífskjör." Þegar Bandaríkin og Sovétríkin draga sig í hlé, bæði á efnahagssvið- inu og því pólitíska, mun það einung- is auka á vandkvæði þessara ríkja - að Mexíkó og örfáum öðrum undan- skildum - að mati sérfræðinga. At- hygli stórveldanna, sem og aðstoð þeirra, beinist nú að efnahag ríkja Austur-Evrópu og segja sumir að það muni leiða til þess aö aðstoð viö Róm- önsku Ameríku veröi hætt og það aftur á móti auki enn á erfiðleikana. „Ef iðnríkin snúa baki sínu við ríkjum Rómönsku Ameríku mun þeim síðamefndu hraka og ofbeldi fortíðarinnar gera vart við sig á nýj- an leik,“ sagði Larry Birns, yfirmað- ur bandarísku stofnunarinnar Coun- cil on Hemispheric Affairs. „Lýðræði er víða í Rómönsku Ameríku en það er grunnt á því og herinn bíður átekta. í ttiörgum ríkjum er almenn- ingur farinn aö hugsa til fyrrum her- stjórna með söknuði." Bandaríkin gefist upp? Wiarda staðhæflr að Bandaríkja- stjórn hafi svo til gefist upp á Róm- önsku Ameríku. „Sú skoðun að Ró- manska Ameríka sé... vonlaust landsvæði sem... sé ekki ofarlega á forgangslista Bandaríkjanna... er algeng meðal háttsettra bandarískra embættismanna,“ segir hann. Susan Kaufman Purcell hjá Amer- icas Society stofnuninni í New York telur að eitt það sem sé í veginum fyrir bættum samskiptum Banda- ríkjanna og ríkja Rómönsku Amer- íku sé að „bandarískur almenningur tengir slæma hluti viö Rómönsku Ameríku - eiturlyf, flóttamenn og umhverfisspjöir. Erfiðir tímar framundan Ekki eru alhr eins svartsýnir. Peter Hakim, yfirmaður Inter-American Dialogue stofnunarinnar, er ekki sammála þessu svartsýnistali þó að hann viðurkenni að stór hluti Róm- önsku Ameríku eigi erfiða tíma fyrir höndum. Hann nefnir Argentínu sem dæmi um þjóð þar sem hverri ríkis- stjórninni á fætur annarri hafi ekki tekist að innleiöa efnahagslegar um- bætur. Hann segir að stjórn Carlosar Menem sé nú óðum að missa traust almennings. „Sumum þjóðum mun takast vel upp en öðrum ekki,“ segir Hakim. Meðal þeirra sem hann telur að muni ganga vel eru Mexíkó, Chile, Uru- guay og Costa Rica. Bandarískir sér- fræðingar segja að framtíðarhorfur Perú, Kólumbíu, Argentínu og E1 Salvadoor séu ekki góðar. Reuter ^AIternatorar Startarar Ótalgerðirog tilheyrandi varahlutir. Hagstætt verð. 12 mán.ábyrgð. G ” SKEIFUNNI 5A, SÍMI:’91 - 8 47 88 BLÓÐGJAFAFELAG ISLANDS é Aðalfundur Blóðgjafafélags íslands verður haldinn mánudaginn 26. febrúar nk. kl. 20.30 á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Blóðgjöfum veittar viðurkenningar. 3. Fræðsluerindi: Glasafrjóvgun, dr. med. Jón Hilmar Alfreðsson flytur. 4. Kaffiveitingar. Fundurinn er öllum opinn. STJÓRNIN Vinningstölur laugardaginn 17. febr. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 2 1.284.217 2. ,stm 55.679 3. 4af 5 173 4.441 4. 3af5 5.671 316 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.574.195 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 vió flytjum-sendum-sækjum 25050 S£NDIBILASTOÐM HF opið um kvöld og helgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.