Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Qupperneq 12
12 Spumingm ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990. Eiga fegurðarsamkeppnir rétt á sér? Erna Valdimarsdóttir skrifstof- ustúlka: Já, mér finnst það. Bergþór Júliusson matreiðslunemi: Já, alveg endilega. Guðmundur Hallbjörnsson múrara- nemi: Já. Guðjón Erlendson dyravörður: Já, alveg hiklaust. Hafdis Ingimundardóttir: Já, já. Mér finnst þær allt í lagi. Lesendur Hver á að bjarga SÍS? Kristján Jónsson skrifar: Það er nú alltaf að koma betur og betur í ljós að Samband ísl. sam- vinnufélaga á í verulegum rekstrar- vandræðum. Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart. Þetta var stórt fyrir- tæki með mjög umfangsmikla starf- semi. í svona fámennu þjóðfélagi er það hreint ekki barnaleikur að ætla að halda uppi þvílíku bákni sem Sambandið er án þess að reikna með verulegum áfóllum hvenær sem er. - Þetta á ekki bara við Sambandið eitt. Öll stærri fyrirtæki hér eru í verulegri hættu í rekstri sínum ár hvert. Þar má engu skeika (í afla- brögðum og útflutningstekjum), þá segir það til sín í rekstri þeirra. En það er eins og sum fyrirtæki eigi alltaf greiðari aðgang að hinu opinbera en önnur. Þannig hefur það veriö með Sambandið, það hefur allt- af átt innhlaup hjá einúm eða fleiri ráöherrum, vegna tengsla sinna við Framsóknarflokkinn, sem lengst af hefur átt aðild að ríkisstjórn hér. Það hefur átt meiri og betri innhlaup í banka landsins en mörg önnur fyrir- tæki vegna þess hve starfsemi þess hefur spannað vítt svið. - En ekki bara þess vegna, heldur líka vegna þess að í bankastjórastöður þeirra banka sem Sambandið hefur mest skipt við eru ráðnir menn sem beint eða óbeint tengjast pólitísku flokkun- um og þar á Framsókn hlut að máli eins og aðrir flokkar. Og nú hefur árað illa hjá Samband- inu um nokkurt skeið eða allt frá því að fyrrverandi forstjóri þess lét af störfum. Það hafa því margir póli- tiskir erindrekar verið á ferð og flugi til að koma fyrirtækinu til hjálpar. - Og þar eru ekki eingöngu framsókn- armenn á ferð það þarf blandaöan hóp úr pólitíkinni til að reka erindi Sambandsins. í málum er nefnilega komið við kaun samtryggingar póli- tísku flokkanna allra. Er nú svo komið, eftir langan og erfiðan rekstrarkafla hjá SÍS, að hafa þarf hraðar hendur til að bjarga því sem bjargað verður - ef einhveiju verður þá bjargað yfirleitt. Farið er að kalla til fleiri banka en aðalvið- skiptabanka fyrirtækisins svo að að- stoðin geti orðið því myndarlegri, það er þyrlað upp moldroki í upplýs- ingamiðlun þegar skýrslur eru gerð- ar, það er beðið um „vaxtaleiðrétt- ingar“ og þær réttlættar með „töf- um“ á afgreiðslu mála og það er „valtað yfir“ almenna sparifjáreig- endur, t.d. í Landsbanka, til að geta orðið Samabandinu að liði með nógu stórmannlegum hætti. - Ekki tjóar að bjóða SÍS annað en það besta! En spurningin er hvers vegna er verið að bjarga SÍS? Þarf að bjarga SÍS? Er kannski þjóðargjaldþrot framundan ef SÍS fer á hausinn? Ef svo er er líka hægt að segja með réttu að Sambandið eigi þetta land og svara þá spurningu utanríkisráð- herra sem gjarnan hefur spurt þess- arar spurningar á ferðum sínum í kringum landið. - Það er þá þjóðin sem á aö bjarga Sambandinu. Þá má ljúka feluleiknum í Landsbankan- um. Allir gefi sig fram og kalli hátt og snjallt: Þjóðin verður að bjarga Sambandinu! Frammámenn sósíalista á íslandi: Geri upp fortíðina Þorlákur hringdi: inni, að þeir geri upp sin mál, pólit- Mér fmnst ekkert tiltökumál að ískt í það minnsta? þeir frammámenn í islenskum Það er vitað að hér hafa róttækir stjórnmálum sem tilheyröu sósialistar haft mikil áhrif á aðra Kommúnistaflokknum hér áður og stjórnmálamenn, einkum á þann svo þeir sem tilheyrðu og tilheyra hátt að setja þeim stólinn fyrir enn róttækum íslenskum sósíalist- dyrnar í ákvarðanatöku i utanrík- um geri upp fortíð sína þannig að ismálum svo sem stóriöjumálum, kjósendur hér í þessu lýðræðisríki peningamálum, vamarinálum o.fi. geti áttað sig betur á hvar þessir o.fl. - Það er lika ekkert íjarri lagi menn standa. - Þaö eru enn til að draga þá ályktun að vegna menn innan íslenskra sósíalista þeírraáhrifahafiekkiskapastskil- sem segja sem svo; hafi ég ein- yrði til aö undirbúa þá velsæld sem hverntíma verið marxisti, þá er ég aörar nálægar vestrænar þjóðir það ennþá. búa við. Það er kannski ekki nema von, Ogþaðerjafndapurtaðhugsatil aðslíkirmenneigiekkiuppápólit- þess að aðrir stjórnmálamenn, iskt pallborðiö hiá íslenskum kjós- óskyldir sósíalistum, skuli hafa lá- endum. Og er það einhver önnur tið fara þannig með sig. En það er og óraunhæfari krafa hér á landi aldrei of seint aö snúa við og það á en annars staöar þar sem komm- bæöi við um sósíalistana og þá ís- únistar og róttækir sósíalistar hafa lenska stjórnmálamenn sem þeim leikið stór hlutverk í landstjórn- tókst að kúga. Kynferðisglæpamenn framtíðarinnar? Faðir skrifar: Ég er faðir tveggja drengja, 6 og 8 ára gamalla og bý í austurbænum, ekki langt frá Miklatúni. Þar í ná- grenninu býr einnig kunnur kyn- ferðisafbrotamaður og margdæmdur bamanauðgari. - Samkvæmt blöðum fostudagsins 16. febr. er hann aftur tekinn til viö fyrri iðju og er nú ekki lengur spurt, hvort, heldur hvenær alvarlegur glæpur verði framinn. Á Stöð 2 var í vikunni þáttur um nauðgara og var þar staðfest það sem reyndar hefur lengi verið haldið fram að þeir sem nauðgi börnum séu yfirleitt fórnarlömb barnanauðgara í æsku. Ég get sem sé búist við því hvenær sem er að maður ráðist að sonum mínum eins og úlfur í sauð- argæru, lokki þá inn til sín og fremji þar á þeim sálarmorð sem verður þeim sem opin und alla ævina. Ég má í framhaldi af þessu búast við því að þegar þeir vaxa úr grasi muni þeir með sitt sundurkramda sálarlíf heija á sömu mið í „hefndar- skyni“ og þannig sjá til þess að hin viöbjóöslega og ómanneskjulega meðferð á saklausum bömum haldi áfram kynslóð eftir kynslóð. Auövitaö bið ég til guðs að þetta hendi ekki mína syni en mér finnst það fráleitt ef dómsvald vísar þessari ábyrgð algjörlega frá sér og treystir á guð og lukkuna í þessum efnum. - Viö getum ekki alltaf reiknað með því aö til staðar séu glöggskyggnar nágrannakonur sem afstýri óhæfu- verkum. E.S. Ég tel yfirleitt út í hött að skrifa undir dulnefni en nú verð ég að taka tillit til barna minna. Ráðamenn, lítið ykkur nær Anna Sigurðardóttir skrifar: Ég get ekki lengur orða bundist yfir því hvernig ráöamenn þjóðar- innar fara að ráði sínu. Þeir troða 600 tonnum af kjöti upp á fólk sem vill svo ekkert með það hafa. Hvers eigum við öryrkjar að gjalda svo og allt fátæka fólkið sem býr hér á ís- landi? - Eigum viö bara að halda áfram að svelta? Að vísu hafa þaö margir gott á ís- landi. En hvað kostar það? Þetta fólk verður að vinna myrkranna á milli og svo fer það sömu leið og við aö lokum það dettur niður sem hjarta- sjúklingar eða fær ýmsa aðra sjúk- dóma og kvilla af áreynslu. Það er ekkert gamanmál að vera öryrki hér og geta ekkert unnið. Maður hefur alls ekki ofan í sig að borða. Ég veit að ég skrifa fyrir hönd margara og nú er kominn tími til að ráðamenn hugsi málið og geri eitt- hvað af viti fyrir það fólk sem ekkert hefur. Ráðamenn, lítiö ykkur nær! Hættið að gefa ríkum þjóðum eins og Rúm- enum sem eru margfalt ríkari en ís- lendingar og látið hina njóta sem raunverulega þurfa á að halda. Afturför í barna- rétti árið 1990 B.A. skrifar: í DV hinn 12. þ.m. segir að nú hafi barnavemdarráö ákveðið að í fram- tíðinni verði dómsmálaráðuneytinu ekki treyst fyrir umsagnargögnum varðandi forsjármál skilnaðarbama. - Barnavemdaraðilar afla einmitt slíkra gagna að sérstakri beiöni dómsmálaráðuneytisins, sem fer með úrskurðarvald á þessu sviði, samkvæmt 38. gr. Bamalaganna. Sú þversögn að barnaverndaraðil- ar skuli ekki lengur treysta umsagn- arbeiðanda fyrir afurðum sínum í skýrsluformi á sér rætur í þeirri stefnubreytingu dómsmálaráðuneyt- isins, skv. ábendingum Umboðs- manns Alþingis frá í apríl 1989 - að röskstyðja eftirleiöis alla forsjárúr- skurði og aö virða aðildarrétt máls- aðila með því að leyfa þeim að kynn- ast forsendum stórra ákvarðana er böm varða. - Slíkt flokkast undir almenn mannréttindi og ver börn fyrir hugsanlegri valdamisnotkun opinberra aðila sem hættu skapar. Bamaverndarráð hefur sem kunn- ugt er snúist öndvert gegn umræddu áhti umboðsmanns Alþingis og um- bótastefnu dómsmálaráöuneytisins á sviði bamaréttar og ætlar einnig bamavemdarnefndum um allt land að taka upp slíka andstöðu. Tak- markið er að bamavemdaraöilar njóti áfram aðhaldsleysis um starfs- hætti sína og hefti aðildarrétt og önn- ur mannréttindi málsaðila sem kost- ur er gagnvart opinberum valdhöf- um. Þessi stefna barnavemdarráðs hef- ur nú tekið á sig öfgafulla mynd skrípaleiksins meö því að ráðið mun hér eftir neita sjálfu dómsmálaráðu- neytinu um aðgang aö þeim forsend- um umsagna ráðsins sem ráðuneytið þarfnast til að geta metiö gildi slíkra umsagna. Harðast bitnar þessi stefnubreyt- ing auðvitað á þeim skilnaðarbörn- um, sem í hlut eiga, enda standa þau nú berskjölduð gagnvart kerfinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.