Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990. 13 Lesendur Jarðgangagerð við Olafsfjarðarmúla. hér m.a. - „Engar forsendur fyrir göngum nema þar sem er stöðug umferð," segir Snjóþyngsli á Vestflörðum: Hefðu jarðgðng gagnað? Steinþór skrifar: Ekki er sopið kálið... segir mál- tækið. Nú er mikið rætt um jarðgöng sem eiga að bjarga hinum afskekktu héruðum víðs vegar um landið. Göngin gegnum Ólafsfjarðamúla eru að verða staðreynd. Skyldu margir nota þau? Koma þau í veg fyrir snjó- þyngsli á staðnum? Hvað skyldu þau íþyngja þjóðinni allri í vöxtum og áfóllnum kostnaði þegar allt er talið? Nú er talað um að fara að bora í fleiri fjöll og næst á Vestfjörðum. í vetur hefur verið mikiU snjóavetm- þar vestra. En hvað hefðu jarðgöng gagnað í ófærðinni innanbæjar á Isafirði eða Flateyri? Auðvitað ekki nokkum skapaðan hlut. Og ekki lenda flugvélar á Vestíjörðum þótt jarðgöng séu til staðar, ekki leggja rútu- eða flutnigabílar á fjallvegi þótt einhvers staðar finnist jarðgöng til að komast fyrir mestu tálmana. - Og að sjálfsögðu fennir fyrir gangaopin og þar þarf að ryðja snjó langan veg beggja vegna. Allt er þetta tal um jarðgöng hin mesta firra og hugmyndaflug. Það eru engar forsendur fyrir jarðganga- gerð nema þar sem stöðugur straum- ur umferðar er mestallan sólarhring- inn. Þetta er margsannað erlendis frá og eru jarðgöng ekki byggð neins staðar nema þar sem umferðin er mun meiri en hér er hægt að búast við. Jafnvel undirgöng undir Hvalfjörð eru óæskileg vegna hins gífurlega kostnaðar sem hggur í því að byggja þau og ná ekki inn þeim afrakstri sem tii þyrfti til að aö þau borgi sig. - Við Hvalfjörðinn er aðeins eitt að gera, það er að hafa þar bílaferju sem sinnir reglubvmdnum siglingum yfir fjörðinn með bíla svo sem á klukku- tímafresti að deginum til að full- nægja umferðarþörfinni sem þar er. Við eigum ekki að líða einstaka þingmanni eða ráðherra að slá sig til riddara með upphrópunum og lof- orðum um jarðgöng hér og þar án þess að nokkur von sé til þess að þau geri nokkurt gagn í raun. Við skulum því leggja þetta jarðgangatal af í bili og sjá hvort ekld verður annað uppi á teningnum eftir nokkur ár. Mér kæmi ekki á óvart þótt byggð hefði raskast svo í landinu að þeim tíma liðnum að hugmynd um jarðgöng væri úr sögunni á sumum stöðum þar sem nú er rætt um jarðganga- gerð. Siðferðisskortur ráðherrá Stefán Sigurðsson skrifar: Mér finnst nú nokkuð langt gengið þegar ráðherrar eru farnir að kveinka sér undan þeim lögum og reglum sejn m.a eru settar af þeim sjálfum. Bifreiðahlunnindi ráðherra sem nú eru efst á baugi í umræðu manna og viðbrögð helsta talsmanns þeirra, forsætisráðherra, eru ljóst dæmi um þann siðferðisskort sem ráðherrarnir eru haldnir. Ég hef ekki veriö spurður á förnum vegi um áht mitt á þessum hlunnind- um ráðherranna eða hvort mér finn- ist rétt að þeir greiði af þeim tilskil- inn skatt eins og aðrir. Eg myndi þó ekki hika við að lýsa þessari skoðun minni í eigin persónu frammi fyrir alþjóð. - Það voru ekki aliir sem það þorðu, t.d. í fréttaþætti Stöðvar 2 sl. miðvikudagskvöld, þar sem fólk var spurt um máhð. Flestir svöruðu og sögðu sem rétt er að þeir ætluðust til að ráðherrar byggju við sömu Kjör í skattlagningu og aðrir. Einn var þó svo hræddur eða undirgefinn að hann sagðist halda að ráðherrar hefðu einhvem sérrétt í þessum efnum. Það kom einnig fram í „Spurningu dagsins" í DV í vikunni, er fólk var spurt hvort það teldi að ráðherrar hefðu of há laun, þegar sumir voru að reyna að réttlæta þau með yfirklóri sem er svo einkennandi fyrir íslenskan almúga- mann sem er ahtaf tilbúinn til að verja „yfirvaldið" í orði þótt hann hugsi svo aht annað. En varðandi hlunnindi ráðherra, hvort sem þau eru í formi bílastyrkja eða dagpeninga, er það ekkert annað en skortur á siðferði ef þeir sjálfir ætla að hafa forgöngu um að koma sér undan skattlagningu. Óskandi er að ríkisskattstjóri láti ekki deigan síga þrátt fyrir „fáránlegt kjaftæði" forsætisráðherra. Orðbragð hans í þesu máli er auðvitað svo „fáránlegt að það tekur engu tali“, að mati flestra landsmanna. - En þetta er víst partur af því siðferði sem sumir ráðherrar í þessari ríkisstjórn hafa tileinkað sér. Það kemur tími á þá eins og aðra sem stunda það að skara eld að eigin köku. Það getur víðar skapast pólitískt Rúmeníuástand en þarna eystra. Barinn í höfuðið í Austurstræti Runólfur V. Sturluson skrifar: Mig langar til að koma á framfæri lítilsháttar athugasemd við lögreglu- frétt sem birtist í DV hinn 25. jan. sl. - Þar sem mér finnst þama vera hallað réttu máli og ég geti sjálfur (sem einn aðili að umræddum at- burði) gert myndina skýrari, vil ég gera það hér. Forsaga þessa máls er sú að mið- vikud. 24. jan. vomm við, tveir kunn- ingjar, á rölti í Austurstræti. Þar hitti ég kunningjann og urðu fagnaðar- fundir sem sennilega ohu því að ég sló á létta strengi og gerði smátilraun til að stöðva lögreglubíl sem renndi framhjá á dólferð. Bílhnn stöðvaðist ekki svo aö ég stökk á eftir honum og bankaði með flötum lófanum í bílsfjórarúðuna og bjó mig undir að eiga góðlátlegt spjah. Ekki var nein ástæða til annars fyrir lögregluna en að stoppa þar sem ég hefði eins getað verið að stoppa hana vegna einhvers sem gat skipt máh. En það vora ekki blíðar mót- tökurnar sem ég fékk. - Þar sem ég í mesta gríni bankaði á rúðu öku- mannsins mætti ég skyndilega stans- lausri barsmíð í höfuðið frá bílstjór- anum svo að sprakk fyrir. Ekki hugsa ég þá hugsun til enda ef mér- heðfi ekki tekist að standa þessa bar- smíð af mér. Þegar kunningi minn sá hvað verða vildi reyndi hann að sthla til friðar með orðum, en ekki í verki, var hann sleginn bylmingshögg í magann með kylfu og var nánast úr leik. Við vomm síðan nær mótþróa- laust færðir í 'jám og inn í bíl. Rétt í því renndi að annar lögreglubíh. Úr honum stukku tveir filefldir og tók annar þeirra til viö að hnoðast á mér bjargarlausum með hnéð á and- liti mér. Stefnan var tekin á fanga- geymslur og á meðan hélt maðurinn uppteknum hætti. í fangageymslunni fékk ég að dúsa í u.þ.b. klukkustund áður en hugað var að meiðslum mínum en ég var saumaður 6 spor í höfuðið. Mín ffásögn er talsvert frábrugðin frásögn lögreglunnar í DV hinn 25. janúar. Mér dettur í hug hvort ólætin sem átt hafa sér stað í miðbænum undanfarið megi rekja til nýrra manna sem vinna eitthvað í líkingu við þessar aðferðir. - Samskipti mín við lögregluna fram að þessu hafa bæði verið lítil og góð. Vonandi verð- ur svo áfram. - En þessar hnur hripa ég niður öömm th vamaðar og til þess að koma sannleikanum á fram- færi. Opinbert uppboð Eftir beiðni skiparáðandans í Reykjavík fer fram opinbert uppboð miðviku- daginn 21. febrúar 1990 kl. 14.00 (ekki þriðjudag eins og kom fram í DV sl. laugardag) að Súðarvogi 28-30. Seldar verða trésmíðavélar, eign db. Böðvars S. Bjarnasonar. 1. Þykktarhefill, tegund Lartigana. 2. Sög og fræsari, tegund Berevettalo. Vélar þessar eru seldar í því ástandi sem þær eru, að viðbættum virðisauka- skatti m.m. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Reykjavík 7. leikvika -17. feb. 1990 Vinningsröðin: X11-X21-X11:2XX 915.894- kr. 0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð 8 voru með 11 rétta - og fær hver: 34.345- kr. á röð Tvöfaldur pottur - um næstu helgi!! UM HEIMSENDINGU LYFJA Yfirlýsing frá Apótekarafélagi íslands Vegna auglýsingaherferðar Laugavegsapóteks á heimsendingu lyfja vill Apótekarafélag fslands taka eftirfarandi fram: Lyfsalar á Reykjavíkursvæðinu hafa um árabil sent lyf heim til sjúklinga í hverfum sínum þegar þörf hefur verið á. Þessi þjónusta hefur þó aldrei verið auglýst, enda samræmast slíkar auglýsingar ekki ís- lenskum lyfjalögum. Þá telur Apótekarafélagið að með afgreiðslumáta Laugavegsapóteks sé verið að brjóta reglur um meðferð lyfja og skapa hættu á mistökum. Virðingarfyllst, Stjórn Apótekarafélags íslands vk\ á( ; ELDEt BORGARA Frá félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Aðalfundur Félags eldri borgara verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu sunnud. 25. febr. nk. kl. 13.30. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram. 2. Lagabreytingar. 3. Ákvörðun um árgjald. 4. Kosning stjórnar og varastjórnar. 5. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara. 6. Önnur mál. Félagar, mætið vel. Stjórnin í myrkri gildir að sjást Notaðu endurskinsmerki! yUMFERÐAR RÁD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.