Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Blaðsíða 26
Sviðsljós ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990. Ólyginn sagði... Madonna og Warren Beatty: Ást jaínt á hvíta tjaldinu sem og í raunveruleikanum Steven Spielberg - sem hvað frægastur er fyrir gerð rándýrra og vinsælla kvik- mynda - hefur nú hug á því að ráðast í gerð kvikmyndar sem „aðeins" á að kosta 300 milljónir. Myndin á að fjalla um æsku hans og systur hans, Annie Spielberg, og semur hún einmitt handritiö. Að sögn Spielbergs verður mynd- in gamanmynd og aðalpersónur hennar verða, eins og áður sagði, hann, Annie og móðir þeirra systkina. Mun myndin verða tek- in í Cincinnati. Eddie Murphy á ekki upp á pallborðið hjá einum helsta kvikmyndagagnrýnanda Bandaríkjanna þessa dagana. Roger Ebert, en svo heitir gagn- rýnandinn, var alls ekki skemmt yfir sóðalegu orðbragði í nýjustu mynd Eddie, Harlem Nights, og sagði að þeir sem hefðu rekið næturklúbbana í Harlem á sínum tíma hefðu haft andstyggð á sora- kjaftinum á Eddie. En hann sér myndinni fleira til foráttu, m.a. að það sé greinilegt að Eddie hafi lítið álit á kvenfólki. Eddie gæti gert hvað sem hann vildi, og það væri það sem hann væri að gera, en svo kæmi að því að sápukúlan spryngi. I nokkurn tíma hafa helstu slúður- blöð heims, bresk jafnt sem banda- rísk, velt sér upp úr sambandi Ma- donnu og piparsveinsins og kvenna- gullsins Warren Beatty. Svo virðist, samkvæmt nýjustu fréttum, að ekk- ert hafi slegið enn í ástina og hún sé jafnheit sem áður. Madonna og Warren leika nú sam- an í nýrri kvikmynd, gerðri eftir teiknimyndapersónunni og spæjar- anum Dick Tracy. Eru það ekki ómerkilegri leikarar en Dustin Hoff- man og A1 Pacino sem einnig ljá myndinni nafn sitt en samkvæmt heimildum ber þó minna á þeim við tökur niyndarinnar en turtildúfun- um Madonnu og Warren. En það er einmitt Warren sem leikur Dick Tracy. Madonna fer með hlutverk Breathless Mahoney sem er söng- kona á næturklúbbi og reynir með öllum brögðum að draga Dick Tracy á tálar. Svo virðist sem Madonna hafi ef til vill tekið hlutverk sitt ein- um of alvarlega. Hinn 52 ára gamli Warren og hin 21 ári yngri Madonna gera vart ann- aö en að kela, knúsa og kyssast, að sögn þeirra sem vinna við upptökur á myndinni. Virðist það ekki skipta þau máli hvaða tími dags er, né held- ur hvort þau eru í miðjum upptök- um. Það sem Warren finnst svo heill- andi við Madonnu er að hún er fram- hleypin, þorir að eiga upptökin og síðast en ekki síst, á hærri upphæðir inni á bankabók. Þau hjúin ku eyða talsverðum tíma í aftursætum bíla Kynskiptingur í framboði Kynskiptingurinn Terri Pohram á atkvæðaveiðum á dvalarheimili aldraðra. Símamynd Reuter „Breyting til batnaðar" er kjörorð eins frambjóðanda til bæjarstjóra- embættisins í Yountville í Kaliforn- íu. Varla væri það í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að frambjóðandinn, sem er kona, var einu sinni karlmaöur. Terri Pohram heitir hún, er 37 ára gömul og selur skartgripi dags dag- lega. En á áttunda áratugnum gekkst hann/hún undir aðgerð og breytti um kyn. Áður hafði hann/hún unnið við að líkja eftir kvenfólki. Terri flutti til Yountville fyrir tveimur árum og er nú í framboði, eins og áður segir. Hefur hún lofað því að láta bæjar- stjóralaunin, sem eru 180 dalir á mánuði, renna til góðgerðarmála. Terri tekur framboðið mjög alvar- lega og leitar stuðnings meðal eldri borgara sem er stór hluti íbúa þessa 3.200 manna bæjar. Fyrir nokkrum dögum birtist hún í teiti á dvalarheimili aldraðra, þar sem meirihluti bæjarbúa býr, klædd þröngum kjól óg á rúlluskautum. Ekki fór miklum sögum af viðtökun- um en mörgum mun hafa þótt hún heldur glysgjörn og skrautleg fyrir þetta litla bæjarfélög þótt allt geti gengið í San Francisco. Það liður ekkert ár svo að morgunhrafnarnir í sundlauginni í Laugardal haldi ekki þorrablót. Hér sjáum við Steingrím Hermannsson forsætisráð- herra skála í bjór með félögum sínum. DV-mynd GVA Rocky I, Rocky II, Rocky III, Rocky IV, Rocky V, Rocky VI, Rocky VII... Hvar tekur þetta enda? spyrja sjálfsagt margir. En það er staðreynd, Rocky V er á leiðinni. Geta nú aðdáendur myndanna glaðst en aðrir hrist hausinn. Meðfylgjandi mynd sýnir Rocky, Sylvester Stallone, sýna þungavigarhnefa- leikamanninum Tommy Morrison hvernig hann vill að hann hreyfi sig í myndinni. Var verið að vinna við upptökur á aðalbardagaatriði myndarinn- ar. Og nú er bara að bíða og sjá. Simamynd Reuter John Goodman - hinn nýkvænti - sér nú rautt þessa dagana vegna umfjöllunar kjaftasögublaðanna um hann og eiginkonu hans. Goodman, sem gekk að eiga Annabeth Hartzog í október sl„ kvaðst m.a. hafa séð stærðar fyrirsögn sem hljóðaði eitthvað á þessa leið: „Hið yndis- lega og kolruglaða brúðkaup mitt“. Goodman vill þó halda því fram að ástæðan fyrir vinsældum hans í kjaftasögublöðunum sé sprottin af vinsældum þáttanna um Roseanne en hann leikur ein- mitt annað aðalhlutverkið í þeim. Svona að lokum skal þess getið að Goodman leikur einmitt í nýj- ustu mynd Stevens Spielberg, Always. Ekki létt verk að verða prinsessa Það hefur sjálfsagt ófáa stúlkuna dreymt um að giftast prinsi. Hin 23 ára Kiko Kawasha var ein hinna heppnu og mun fljótlega ganga í hjónaband með Aya sem er japansk- ur prins og annar í röð arftaka krún- unnar. Það er þó ekkert létt verk aö verða prinsessa og nú má Kiko ganga í gegnum mánaðarnámskeið í kon- unglegum siðum áður en hún verður tekin inn í hina konunglegu fjöl- skyldu. Kiko verður að gjöra svo vel að mennta sig í konunglegum hefð- um og siðum, stjórnarskránni, sögu og öðrum fræðum sem þykir hæfa aö prinsessa kunni skil á. Þrauta- göngunni lýkur í lok mars. Kiko Kawasha verður prinsessa í mars. Simamynd Reuter sinna og þegar þau birtast aftur er Warren allur útataður í varalit sem samstarfsmenn hans kalla stríðs- málninguna. Það sem virðist sérstaklega halda sambandi þeirra gangandi er að þau hafa þörf hvort fyrir annað. Ma- donna er engin Meryl Streep en hún syngur öll lög myndarinnar og þykir gera það mjög vel. Warren gæti á hinn bóginn hugsanlega gert hana að leikkonu. Hann er ávallt við hlið hennar, reiðubúinn að gefa henni góð ráð. Miklar vangaveltur eru nú meöal fólks um hvort svo fari að hinn ill- ræmdi kvennabósi lendi uppi við altarið. Því eins og einn vinur Ma- donnu sagði: „Það sem Madonna vill, það fær hún.“ Þess má svo geta að lokum að myndinni um Dick Tracy er spáð meiri vinsældum en Batman og er þá mikið sagt. Endar Warren Beatty uppi við altarið?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.