Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1990, Page 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990.
Jarðarfarir
Guðfríður L. Benediktsdóttir lést 12.
febrúar. Hún fæddist á Hóli í
Hörðudal, Dalasýslu 26. maí 1902.
Foreldrar hennar voru Margrét
Steinunn Guðmundsdóttir og Bene-
dikt Bjarni Kristjánsson. Lilja lærði
karlmannafatasaum hjá Andrési
Andréssyni og starfaði þar í fjölda
ára. Hún giftist Siguröi Björnssyni
og ól upp tvo syni hans og Ásu systur
sinnar sem lést árið 1933. Sigurður
og Lilja eignuðust einn son saman.
Lijja rak vefnaðarvöruverslun um
langt skeið. Útfór hennar verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Guðmundur Hannesson línumaður,
áður til heimilis á Nönnugötu lOa,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 21.
febrúar kl. 13.30.
Björg Tómasdóttir frá Miðhóli, er
látin. Útfór hennar verpur gerð frá
Fossvogskapellu næsta mánudag kl.
15.
Ása Theodórs verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 22. fe-
brúar kl. 13.30.
Ólafía Sigurðardóttir, Hrafmstu í
Hafnarflrði, lést 9. febrúar. Útfórin
hefur farið fram i kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
TiJkyimingar
Þorrablót Félags
eldri borgara
verður haldið í Goðheimum nk. fóstudag,
23. febrúar. Upplýsingar og miðapantanir
i Goðheimum. Áðalfundur Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni verður
haldmn í Súlnasal Hótel Sögu sunnudag-
inn 25. febrúar nk. kl. 13.30. Dagskrá: 1.
skýrsla stjómar og reikningar lagðir
fram. 2. lagabreytingar. 3. ákvörðun um
árgjald. 4. kosning stjómar og varastjóm-
ar. 5. kosning tveggja endurskoðenda og
eins til vara. 6. önnur mál. Félagar, mæ-
tið vel.
Minningarkort Áskirkju .
Minningarkort Safnaðarfélags Áskirkju
hafa eftirtaldir aðilar til sölu: Þuríöur
Ágústsdóttir, Austurbrún 37, sími 681742,
Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími
82775, Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut
27, Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún
1, Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími
681984, Holtsapótek, Langholtsvegi 84,
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27.
Þá gefst þeim sem ekki eiga heimangengt
kostur á að hringja í Áskirkju, sími 84035,
milli kl. 17 og 19 á daginn og mun kirkju-
vörður annast sendingu minningarkorta
fyrir þá sem þess óska.
Andlát
Bára Arngrímsdóttir, Álftamýri 20,
lést í Borgarspítalanum 15. febrúar.
Bjarney Friðriksdóttir, Marargötu 1,
andaðist á öldrunardeild Landspítal-
ans, Hátúni lOb, 17. febrúar.
Ólafur Sigurjónsson, Austurbrún 25,
lést aðfaranótt 18. febrúar í Landa-
kotsspítala.
Lára Lárusdóttir Várnhed til heimil-
is í Sidney, Ástralíu, lést 17. febrúar.
Svava Þorsteinsdóttir, fyrrum kenn-
ari, áður til heimilis á Hringbraut 37,
andaðist á Hrafnistu sunnudaginn
18. febrúar.
Valgeir Kristófer Hauksson, Spóa-
rima 15, Selfossi, andaðist laugardag-
inn 17. febrúar.
Geir Marinó Jónsson, Goðatúni 15,
andaðist í Landspítalanum 18. febrú-
ar.
Skarphéðinn Jónsson, fyrrv. bif-
reiðastjóri, Hvassaleiti 28, lést á
heimili sínu 18. febrúar.
Fundir
Kvenfélag Kópavogs
mætum allar á fund fimmtudaginn 22.
febrúar í félagsheimilinu kl. 20.30. Erindi
flytur Anna Valdimarsdóttir sálfræðing-
ur, um sjálfsstyrkingu fyrir konur. Gest-
ir velkomnir.
Kvenfélagiö Seltjörn
heldur aðalfund sinn í kvöld, 20. febrúar,
kl. 20.30 í félagsheimilinu á Seltjamar-
nesi. Venjuleg aðalfundarstörf. Gestur
fundarins er Kristin Sigurðardóttir. Kafft
og kökur.
Kynning á forn-
grískri myndlist
Fomgrísk myndlist verður á dagskrá
fræðslufundar Grikklandsvinafélagsins
Hellas fimmtudaginn 22. febrúar kl. 20.30
í Risinu, Hverfisgötu 105,4.h. Fyrirlesar-
ar verða Hrafnhildur Schram og Þóra
Kristjánsdóttir. Hrafnhildur mun í erindi
sínu veita sögulegt yfirlit yfir myndlist
Fom-Grikkja og kynna ýmis meistara-
verk þeirra, jafnt á sviði húsagerðar sem
höggmynda, en Þóra síðan fræða fundar-
menn um afsteypur af grískum högg-
myndum sem gleðja augu vegfarenda í
Reykjavík. Báðar munu þær bregða upp
litskyggnum af umræddum listaverkum
og svara fyrirspumum. Öllum er heimill
aðgangur.
Hið íslenska Sjóréttarfélag
boðar til hádegisverðarfundar að Hótel
Loftleiðum, Víkingasal (vesturdyr),
fimmtudaginn 22. febrúar nk. og hefst
fundurinn kl. 12. Fundarefni: Reynslan
af björgunarsamningi L.Í.Ú., Landhelgis-
gæslunnar og tryggingafélaganna frá
1986. Frummælandi: Gunnar Felixsson
aðstoðarforstjóri. Fundurinn er opinn
öllum áhugamönnum um sjórétt.
ITC deildin Irpa
heldur fund í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30
að Brautarholti 30. Nánari upplýsingar
gefa Kristín í síma 74884 og Guðrún í síma
675781.
Fundur um atvinnumál
verk- og tæknifræðinga
Sameiginlegur fundur VFÍ og TFÍ um
atvinnumál tæknimanna verður haldinn
miðvikudaginn 21. febrúar 1990 kl. 20.15
í Verkfræðingahúsinu, Engjateigi 9. Á
fundinum verða kynntar niðurstöður
könnunar á atvinnuástandi og atvinnu-
horfum á ýmsum vinnustöðum, verk- og
tæknifræðinga. Megintilgangurinn með
könnuninni var að meta breytingar sem
hafa orðið á störfum tæknimanna á síð-
asta ári og horfumar á þessu ári. Fulltrú-
ar launþegahópanna innan Verkfræð-
ingafélagsins og Tækniff æðingafélagsins
gera einnig grein fyrir þvi hvemig at-
vinnumálin snúa að þeim.
Fréttir
Atvmnutryggingarsjóður:
Hefur úthlutað
7,3 milHörðum
Stjóm Atvinnutryggingarsjóðs af-
greiddi skuldbreytingalán til íjórtán
fyrirtækja í gær aö upphæð um 436
milljónir króna. Stærsti hlutinn rann
til fimm fiskeldisfyrirtækja eða um
270 milljónir en um 166 milljónir fóru
til sjö sjávarútvegsfyrirtækja og
tveggja iðnfyrirtæja. Stærstu lánin
fengu tvö af fiskeldisfyrirtækjunum
eða um 80 miUjónir hvort.
Með þessari úthlutun hefur At-
vinnutryggingarsjóður veitt um 7,3
milljarða að láni. Búist er við að
þegar yfir lýkur verði lánveitingar
sjóðsins um 8 milljarðar. Af þeirri
upphæð verða um 5 milljarðar
skuldabréf útgefin af sjóðnum en um
3milljarðarnýirfjármunir. -gse
Félagsvist
Starfsmannafélagið Sókn og
verkakvennafél. Framsókn
halda félagsvist miðvikudaginn 21. febrú-
ar kl. 20.30 í Sóknarsalnum, Skipholti 50.
Kvenfélag Kópavogs
SpUað í kvöld, 20. febrúar, í Félagsheim-
ili Kópavogs. Byrjað verður að spila kl.
20.30. Allir velkomnir.
Tapað-Fundið
Úrfannst
Úr með svartri ól fannst í Fellsmúla.
Upplýsingar í sima 33023.
Poodle hundur týndur
Svartur lítil poodle hundur með bláa ól
týndist í hádeginu í gær. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 44392.
Tórúeikar
Háskólatónleikar
Á háskólatónleikum miðvikudaginn 21.
febrúar flytja gitarleikaramir Símon H.
ívarsson og Thorvald Nilsson ýmis verk
fyrir tvo gitara. Flutt verða lög frá endur-
reisnartímanum, suðuramerísk lög og
verk eftir ýmis tónskáld gítarins, þ.á m.
Granados. Tónleikamir hefjast kl. 12.30
í Norræna húsinu og standa i u.þ.b. hálf-
tima.
Fækkun
alþingismanna
Hinn 6. febrúar sl. birtist á les-
endasíðum DV grein eftir Konráð
nokkurn Friðfmnsson, þar sem
hann gagnrýnir aðfinnslur þeirra
aðila er telja tölu þingmanna of
háa.
Hann segir: „Talsmenn „grisjun-
ar stofnsins“ telja töluna 40 vera
einkar heppilega í því samhengi".
Ennfremur: „Dvínandi virðing fyr-
ir Alþingi eru orð sem heyrast með
jöfnu millibili og ætíð er starfandi
ríkistjóm sú alversta er sögur fara
af. - Eg er þeirrar skoðunar að ein-
staklingar, er kjósa að bjóða sig
fram (og verða máske ráðherrar),
geri það af heilum hug og sökum
þess að þeir telji sig geta unnið þjóð
sinni heilt.“
Að endingu segir hann: „Látum
af hinum leiða sið að væna marg-
nefnda stétt um óheilindi og einnig
því að grafa undan velferðinni
leynt og ljóst. - En við skulum
gagnrýna verkin. Eftirlátum kján-
unum sleggjudómana."
Er það að vinna þjóð sinni
heilt?
Þá vitum við það. Það eru allir
sleggjudóma-kjánar sem ekki eru
samdóma Konráði Friðfinnssyni.
Ef þessi rithöfundur veit ekki að
núverandi ríkisstjóm er sú al-
versta allra tíma og nýtur ekki
stuönings nema 1/4 þjóðarinnar
hlýtur hann að ganga með lokuð
augu og hulin eyru.
Er það að vinna þjóð sinni heilt
að kaupa fyrir fé skattborgaranna
hvert flokksbrotið af öðru til að
halda lífinu í stjórnarrekaldinu?
Er það að vinna þjóð sinni heilt að
stofna ráðuneyti, sem ekki hefur
verið samþykkt af Alþingi, setja
viðkomandi einstakling á ráð-
herralaun og færa honum 3ja millj-
óna háfjalla-farartæki í morgun-
gjöf?
Svo kemur íjármálaráðherra og
segir enga peninga í ríkissjóði til
aö liðka fyrir samningum vinnu-
markaðarins, sem svo sannarlega
mörkuðu tímamót!
RÚV og Póstur og sími
Fjármálaráðherra ætti að vera
ljóst aö svo sannarlega em til leiðir
til að minnka umsvif ríkissjóðs
aðrar en auknar lántökur. Það em
KjáUaiiim
Þórður E. Halldórsson,
fyrrv. lögregluþjónn
ekki eingöngu verklegar fram-
kvæmdir sem þarf að skera niður
heldur ráöast að þeim ríkisfyrir-
tækjum sem eru yfirhlaðin ónauð-
synlegu starfsliði. Þar liggur bein-
ast.við að minnka umsvif Ríkisút-
varpsins.
Rás 2 er með öllu óþörf. Við eigum
nóg af frjálsum útvarpsstöðvum
sem útvarpa nákvæmlega sama
afþreyingarefni sem rás 2 en seilast
ekki til tekjuöflunar í vasa almenn-
ings.
Það er á vitorði allra sem vilja
vita að rás 2 var aldrei sett á stofn
til annars en drepa fijálsu stöðv-
amar. Það er þess vegna sem í dag
er greint frá því að hallarekstur
Ríkisútvarpsins nemi 200 milljón-
um króna, nema þeir fái að kafa
lengra ofan í hálftóma vasa þegn-
anna eftir hærra afnotagjaldi.
Póstur og sími er yfirhlaðinn
óþörfu starfsliði. Þar er m.a. að
finna eina toppfígúru sem kallast
póstmeistari en nóg til af starfs-
þjálfuðum deildarstjórum sem
vinna störf sín sjálfstætt.
Hvað um ríkisbankana sem hafa
ekki opið fyrir almenna þjónustu
nema 5-6 klt. á dag? - Svona má
lengi telja.
Fjármálaráðherra væri ekki
lengi að finna þessar 12-1300 millj-
ónir sem hann vantar til að greiða
vegna kjarasamninganna. Var ekki
einhver aö tala um að embætti
Húsameistara ríkisins væri óþarft?
Aukin umsvif
Það er ekki eingöngu vegna
þeirra launa, sem þarf að greiða
síauknum fjölda alþingismanna, að
full þörf er á að fækka þeim heldur
hitt að aukin tala þeirra kallar á
aukin umsvif í húsnæði fyrir Al-
þingi.
Alþingishúsið er 110 ára á næsta
ári. Það er ekki aðeins eitt fegursta
hús á íslandi, byggt af mikilh fram-
sýni, heldur þarf það minna við-
hald en 10 ára gömul hús sem byggð
eru með nútíma tækni.
Nú er svo komið að það er ekki
lengur nógu stórt fyrir þann þing-
mannafjölda sem nú er og öll þau
umsvif sem þeim fylgir. - Talaö er
jafnvel um nauðsyn þess að kaupa
Hótel Borg undir starfsemi Al-
þingis. Hveijum hefði dottið í hug
að það fagra hótel Jóhannesar Jó-
sefssonar yrði lagt undir skrifstof-
ur Alþingis?
Af framansögðu má ráða að þess-
ar eru orsakirnar fyrir því hvers
vegna svo margir æskja þess að
þingmönnum verði fækkað. Með
fækkun þingmanna vinnst einnig
það að þessum fáránlegu smáflokk-
um, sem orðið hafa til á síðari
árum, myndi fækka, sem eru hvort
eð er til óþurftar.
Þórður E. Halldórsson
„Með fækkun þingmanna vinnst einnig
það að þessum fáránlegu smáflokkum,
sem orðið hafa til á síðari árum, myndi
fækka... “
Fjölmiðlar
Fyndin sal
íslenska þjóðin viðrar sína sál alla
virka daga á rás 2, oft með geysi-
skemmtilegum tilþrifum. Efstjórn-
endurnir eru vel með á nótunum
getur Þjóðarsálin oröið bráöfyndið
útvarpsefni. Oft undrast maöur
hvemig þeir nenna yfirleitt að taka
þátt í umræðunni þegar hún er hvað
vitlausust. En miklu munar þegar
bitastætt umræðuefni rekur á íjörur
þeirra eins og nýtt sjónvarpsleikrit.
Stefán Jón Hafstein var í góðu
sambandi viö hlustendur í sina í gær
og vissi greinilega sitthvaö um
deíluefhlð. Enginn, sera hringdi inn
til að kvarta yfir eða hrósa sjón-
varpsleikriti Hrafns Gunnlaugsson-
ar, komst undan því að rökstyðja
skoðun sína. Úr þessu varö hin fróð-
legasta samsuða af kenningum um
það hvað höfundi hafi gengið til með
samninguverksins.
Þegar leið á þáttinn vor u flestir
komnir á þá skoðun að leikritið
hefði hvorki hentað börnum né
gömlu fólki. Einn gamall maður
hringdi og sagði að ennþá eldra fólk
mætti ekki við svonaósóma, þetta
væri aðeins fyrir unglinga sem
sæktu í klám og ofbeldi. Þá hringdi
unglingur inn sem vildi mótmæala
þvi sem gamli maðurinn sagði um
ofbeldisfulla unglinga. Kona sagði
að börn gætu ekki horft upp á aö
kveikt væri í englum og þau sem eru
í sunnudagaskóla. Sem sagt gaman,
gaman fyrir þá sem hlusta.
StjórnandaÞjóöarsálarinnar, sem
að þessu sinni var Stefán Jón, var
greinilega líka skemmt og hélt hann
dampi allan tímann án þess að verða
óþolinmóður enþað hendir stund-
um enda ekkert skritið þegar sálar-
rugl landans keyrir fram úr hófi.
Jóhaxma Á.H, Jóhannsdóttir