Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Page 9
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990.
9
Jarðskjálfti í Kina:
Rúmlega eitft
hundrað létust
gær. Að minnsta kosti eitt hundrað og fimmtán manns létu lifið.
Að minnsta kosti eitt hundrað og
fimmtán manns létust og eitt hundr-
að og sextíu slösuðust þegar öflugur
jaröskjálfti reið yfir Qinghai-hérað í
vesturhluta Kína síðdegis í gær. Eitt
hundrað og tuttugú voru fluttir á
sjúkrahús, að sögn kínverskra emb-
ættismanna. Þeir óttast að tala lát-
inna og slasaðra eigi eftir að hækka.
Jarðskjálftinn mældist 6,9 á Richter-
skala.
Jarðskálftinn olli mestum
skemmdum í bænum Tanggemu í
Qinhgai-héraði og voru flestir hinna
látnu bændur. Rúmlega eitt þúsund
hús eyöilögðust og eru fimm þúsund
íbúar þessar héraðs nú heimilislaus-
ir.
Jarðskjálftans varð vart í rúmlega
170 kílómetra fjarlægð. Fimm hundr-
uð og sjötíu minni skjálftar fylgdu í
kjölfar þess stóra og mældist sá
sterkasti þeirra 5,1 á Richter.
Tanggemu er að mestu byggt Tíbet-
um sem vinna að landbúnaðarstörf-
um. Þar eru einnig staðsettar fanga-
vinnubúðir, einar af mörgum í þessu
afskekkta og fámenna héraði sem
kallað hefur verið „Gúlag“ þeirra
Kínveija. Kínverskur embættismað-
ur sagöi í samtah við Reuter-frétta-
stofuna í morgun að fangavinnubúð-
ir hefðu skemmst illa í skjálftanum
og að í kjölfarið hafi tvö hundruð
fangar sloppið. Mikil leit stendur nú
yfir að föngunum að sögn embætt-
ismanna í Qinghai. Lögregluyfirvöld
í Peking vísa aftur á móti öllum frétt-
um um flótta fanga á bug og segja
að veggurinn sem umkringi fanga-
búðirnar sé óskaddaður.
Þetta er mesti jarðskjálfti í Kína frá
því í nóvember árið 1988 þegar rúm-
lega sjö hundruð manns létu lífið í
Yunnan-héraði. Reuter
Hætt við endurnýjun Lance
- segja heimildarmenn innan Nato
Aöildarríki Nato, Atlantshafs-
bandalagsins, hafa ákveðið að hætta
við umdeildar áætlanir um end-
urnýjun skammdrægra kjamorku-
flauga í Evrópu en eru samt sem
áður sammála um nauðsyn þess að
áfram verði kjarnorkuvopn á megin-
landinu. Þetta kom fram í máli
ónefndra heimildarmanna innan
bandalagsins í gær.
Þessi ákvörðun er liður í uppstokk-
un varnarmálastefnu Nato í kjölfar
endaloka kalda stríðsins. Formleg
ákvörðun um að hætta við endurnýj-
unina verður líklega ekki tekin fyrr
en á fundi varnarmálaráðherra aö-
ildarríkjanna í næsta mánuði og ekki
tilkynnt opinberlega fyrr en-á fyrir-
huguðum leiðtogafundi þjóðanna
sem halda á í sumar.
Heimildamennimir sögðu að án efa
yrði hætt við áætlanir um að end-
umýja hinar bandarísku Lance-
flaugar sem staðsettar hafa verið í
Vestur-Þýskalandi. Bandaríkin og
Bretland hafa verið fremst í flokki
þeirra Nato þjóða sem farið hafa
fram á endurnýjun Lance en nú virð-
ist hafa orðið breyting á afstöðu
þeirra. Bandaríkjastjórn er undir
vaxandi þrýstingi að skera niður
framlög til vamarmála og bresk
stjórnvöld hafa gefið til kynna að þau
muni ekki lengur krefjast endurnýj-
uníu: að því er heimildir herma.
Reuter
Fyrirhugaöur leiötogafundur EB:
Stjórnmálaleg eining
í brennidepli
Forsætisráðherra Bretlands,
Margaret Thatcher, mun leggja það
til á fundi leiðtoga Evrópubandalags-
ins í Dyflinni á laugardaginn að nán-
ar verði útskýrt hvað sé átt við með
stjórnmálalegri einingu, eftir því
sem breskir embættismenn segja.
Þeir bættu því við að Bretland myndi
ekki leggjast gegn því að um þetta
mál yrði rætt á hærri stigum.
Þeir sögðu að tillaga Frakklands
og Þýskalands um stjórnmálalega
einingu þegar í upphafi árs 1993 hefði
verið of snemma á ferðinni miðað
við allt það starf sem enn þyrfti að
vinna fyrir þann tíma þegar þjóðim-
ar tólf sameinast um einn markað.
Búist er við að Mitterand Frakk-
landsforseti og Kohl, kanslari Vest-
ur-Þýskalands, hefii umræður um
stjórnmálalega einingu við hádegis-
verð á fundinum á laugardaginn, en
Búist er við að Margaret Thatcher fari fram á nánari útskýringu á hvað sé upprunalega var stefnt til hans til
stjórnmálaleg eining á fundi leiðtoga Evrópubandalagsins á laugardaginn. að ræða sameiningu Þýskalands.
Símamynd Reuter Reuter
Útlönd
Hersveitír í höfuðborg Mongélíu
Hersveitir vom sendar inn í mið-
borg Ulan Bator, höfuðborgar
Mongólíu, í gær til að koma í veg
fyrir fund ólöglegra stjómarand-
stöðuhópa. Þetta mun vera í fyrsta
skipti síðan í desember að komm-
únistaflokkur Mongólíu beitir her-
num. Hermennirnir munu þó vera
óvopnaðir.
Það eru lýðræöissamtökin í
Mongólíu sem ætluöu aö standa að
fundinum ásamt öðrum samtök-
um. Leiðtogar samtakanna gengu
á fund forsetans, Punsalmaaaqiyn
Ochirbat, til aö leggja áherslu á
kröfur sínar en þeir voru ekki
ánægðir með viðtökumar. Sagt er
að yfirvöld i Mongólíu séu nú að
herða aðgerðir gegn stjórnarand-
stöðunni.
Hin nýja stjóm koramúnista í
Mongólíu, sem tók við völdum í
mars, hefur lofað lýðræðislegum
kosningum í júlí. En margir íbúar
landsins óttast aö ekki verði staðiö
við gefið loforö.
Hermenn hafa verið sendir inn í
höfuðborg Mongólíu, Ulan Bafor.
Símamynd Reuter
um verð tiK hænda
Landbúnaðarráðherrar landa Evrópubandalagsins, sem nú funda í
Brussel, hafa náð samkomulagi um verð tíi bænda landa sinna fyrir áríð
1990-91.
í samningnum er gert ráð fyrir þrengt veröi lítillega aö bændum og er
það í samræmi við alþjóðlegt samkomulag sem felur í sér að skera niöur
niðurgreiðslur til bænda. Enginn greiddi atkvæði gegn samningnum, en
lanbúnaðarráðherra Frakklands sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Oþekktur ættbálkur fannst í Kína
SUÐAUSTUR ASÍA
í lok 17. aldar
Óþekktur ættbálkur hefur fundist í Kína.
Nýlega fannst í Kína ættbálkur rúmlega tvö hundruð manna sem hefur
ekki haft neitt samband viö umheirninn I rúmar þrjár aldir. í fréttum
CNS, kínversku fréttastofunnar, var skýrt frá því að forfeður þessa ætt-
bálks hefði sest að í Taklemakan eyðimörkinni í Xirfiiang héraði iyrir 350
árum. Niðjar þeirra hafa ekki haft nein samskipti við umheiminn og vita
ekki hvað gerst hefur síðustu þrjár aldir, allt fram á okkar tíma. Þeir
lifa samkvæmt eigin reglum og lögum, reiða síg á sólina til aö tímasefia
hin daglegu störf sín og hafa hvorki ríkisstjóm né skóla. Bókmenntahefð
eiga þeir enga að því að taliö er.
Þaö voru menn í olíuleitarleiðangri sem fundu ættbálkinn. Fólkiö er
af Uygurs þjóðarbrotinu en það er einn margra minnihlutahópa sem
byggja Kína í Xinjiang hérað, langstærsta héraði Kina, eru flestir íbúarn-
ir af Uygur8-þjóðarbrotinu.
Milljónir handa fómariömbum Tsjernobyl
Milfiónir rúblna og dollara söfti-
uðust i QársÖfnun sem sovéska
sjónvarpið stóð að til styrktar
börnum sem fóru verst út úr
Tsjernobyl-kjarnorkuslysinu sem
varð fyrir flórum árum. Er talið að
verðmæti þess sem safnaðist sé um
105 miUjónir dollara, í peningum,
lyfiiun og öðram nauðsynjavörum.
Um tuttugu þjóðir gáfu í sjóöinn,
og voru framlög allt aö hálfri millj-
ón dollara sem fjölskylda i Ástralíu
gaf. Þýska flugfélagið Luftliansa
gaf 100 flugmiða til að þau börn sem
búa á þeim svæðum er urðu illa
úti komist í viðeigandi meðferð og
þýska varnarmálaráðuneytið bauð
10 fómarlömbum ókeypis meðferð
á þýskum spítölum.
Tsjernobyl-slyssins var einnig
minnst með messu undir berum
himiú og mótmælum í þeim lýö-
veldum sem urðu verst úti, Úkra-
ínu og Hvíta Rússlandi.
Tsjemobyl kjamorkuverið þar sem
sprenging varð 1986.
Sfmamynd Reuter