Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Síða 26
34
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990.
Fólk í fréttum dv
Höskuldur Ólafsson
Höskuldur Ólafsson er fram-
kvæmdastjóri Eignarhaldsfélags
Verslunarbankans. Höskuldurer
fæddur7. m?' °27 á Borðeyri og
lauk stúdenl prófi frá MR1947.
Hann var formaður Stúdentaráðs
1951-1952 og lauk lögfræðiprófi í HÍ
1953. Höskuldur var fulltrúi hjá
verktökum á Keflavíkurílugvelli
1953-1956, var sparisjóðsstjóri
Verslunarsparisjóðsins frá stofnun
hans, 1956, og bankastjóri Verslun-
arbanka íslands hf. frá stofnun
hans, 1961, til 1989. Hann var endur-
skoðandi bæjarreikninga Reykja-
víkur 1959-1961 og í stjórn fnn-
kaupastofnunar Reykjavíkur
1960-62. Höskuldur var formaður
landsmálafélagsins Varðar 1960-
1963 og í varnarmálanefnd frá 1961.
Hann var í nefnd til undirbúnings
þjóðhátíðar 1974 og framkvæmda-
stjóri Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankansfrál990.
Systkini Höskulds eru: Yngvi, f.
18. desember 1922, fyrrv. deildar-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu,
kvæntur Margréti Björk Kristins-
dóttur; Björgvin, f. 4. ágúst 1924,
verkstjóri í Kópavogi, kvæntur Þór-
dísi Lúðvíksdóttur; Sveinn, f. 4.
ágúst 1924, vélstjóri í Rvík, kvæntur
Elínu Davíðsdóttur; Þórey Hrefna,
f. 17. desember 1925, gift Magnúsi
Proppé, forstjóra Stálsmiðju Magn-
úsar; Jónas, f. 20. júlí 1929, sveitar-
stjóri á Þingeyri, kvæntur Nönnu
Magnúsdóttur; Sylvía, f. 20. febrúar
1931, gift Bjarna Einarssyni, útgerð-
arstjóra á Þingeyri; Ingibjörg, f. 21.
júní 1932, gift Jóhannesi Einarssyni,
forstjóra Cargolux í Lúxemborg;
Sigríður Ingibjörg, f. 3. apríl 1935,
verslunarmaður í Rvík; Ólöf, f. 21.
júní 1937, gift Guðmundi Ingvars-
syni, símstjóra á Þingeyri; María, f.
17. janúar 1939, gift Unnari Stefáns-
syni, ritstjóra Sveitarstjórnarmála,
og Guðrún, f. 10. apríl 1944, d. 10.
nóvember 1960. Systkini Höskulds,
samfeðra, eru: Kjartan, f. 16. febrúar
1918, Hrefna, lést barnung, og Þórir,
f. 6. október 1931, hagfræðingur í
Rvík, kvæntur Elvíru Ólafsson.
Höskuldur kvæntist 20. desember
1953 Þorgerði Þorvarðardóttur, f. 5.
nóvember 1925, d. 3. júlí 1981. For-
eldrar Þorgerðar voru Þorvarður
Þorvarðarson, verkstjóri í Hafnar-
firði, og kona hans, Geirþrúður
Þórðardóttir. Synir Höskulds og
Þorgerðar eru Þorvarður Geir, f. 15.
september 1954, verslunarmaður í
Rvík, Ólafur Yngvi, f. 18. mars 1958,
verslunarmaður, og Höskuldur Þór,
f. 20. apríl 1965, verslunarmaður í
Rvík.
Sambýliskona Höskulds er Ingi-
björg Eyþórsdóttir, f. 13. nóvember
1925, skrifstofumaður. Foreldrar
Ingibjargar voru Eyþór Jörgensson,
verkamaður í Rvík, og kona hans,
Jóhanna Sigurðardóttir.
Foreldrar Höskulds voru Ólafur
Jónsson, f. 12. maí 1892, d. 30. des-
ember 1967, trésmiður, síöar póstaf-
greiðslumaöur á Þingeyri, og kona
hans, Elínborg Sveinsdóttir, f. 12.
október 1897, d. 11. maí 1955, símrit-
ari á Þingeyri. Ólafur var sonur
Jóns, b. í Dalkoti á Vatnsnesi,
Jósefssonar, og konu hans, Sigríðar
Ólafsdóttur, b. á Gnýsstöðum, Jóns-
sonar, bróður Jóns, afa Hannibals
Valdimarssonar. Móðir Sigríðar
Ingibjargar var Sesselja, systir Sig-
urðar, fóður Jóhannesar, afa Agn-
ars og Sverris Norlands. Systir Jó-
hannesar var Ástríður, amma Er-
lends Eysteinssonar, b. á Stóru-
Giljá, og langamma Sigurjóns Lár-
ussonar, oddvita á Tindum. Sesselja
var dóttir Jóns B. Sigurðssonar og
konu hans, Margrétar Jóhannes-
dóttur, systur Maríu, móður Jóns
Hallssonar, prófasts í Glaumbæ, afa
Jóns Sigurðssonar, alþingismanns á
Reynistað, Jóns Stefánssonar list-
málara og langafa Önnu, móður
Jónasar Kristjánssonar ritstjóra.
Elínborg var systir læknanna Jón-
asar og Kristjáns og Jóns, íöður
Sveins, formanns KR. Elínborg var
dóttir Sveins, prests í Árnesi, Guð-
mundssonar, og konu hans, Ingi-
bjargar, systur Margrétar, móður
Jónasar skálds og Kristjáns, rit-
stjóra Vísis, Guðlaugssona. Ingi-
björg var dóttir Jónasar, prests í
Hítardal, Guðmundssonar, b. í Þver-
árdal, Einarssonar, b. í Þverárdal,
Jónssonar, b. á Skeggsstöðum,
Jónssonar, ættfóður Skeggsstaða-
ættarinnar. Móðir Jónasar var
Margrét Jónasdóttir, b. á Gili í
Svartárdal, Jónssonar. Móðir Jón-
asar var Ingibjörg Jónsdóttir harða-
bónda, b. í Mörk í Laxárdal, Jóns-
sonar, ættfóður harðabóndaættar-
innar. Móðir Margrétar var Ingi-
björg Jónsdóttir, systir Einars í
Þverárdal. Móðir Ingibjargar Jónas-
dóttur var Elínborg Kristjánsdóttir,
sýslumanns á Skarði á Skarðs-
strönd, Skúlasonar, sýslumanns á
Skarði, Magnússonar, sýslumanns
á Skarði, Ketilssonar. Móðir Magn-
úsar var Guðrún Magnúsdóttir,
Höskuldur Ólafsson.
systir Skúla fógeta. Móðir Kristjáns
var Kristín Bogadóttir, b. í Hrapps-
ey, Benediktssonar, og konu hans,
Sigríðar Jónsdóttur. Móðir Sigríðar
var Ragnheiður Gísladóttir, systir
Magnúsar amtmanns, íoður Sigríð-
ar, konu Ólafs Stefánssonar stift-
amtmanns, ættforeldra Stephensen-
ættarinnar. Móðir Elínborgar var
Ingibjörg Ebenezersdóttir, sýslu-
manns í Hjaröardal, Þorsteinsson-
ar, og konu hans, Guðrúnar Þórðar-
dóttur, prests í Skarðsþingum, Ól-
afssonar. Móðir Guðrúnar var
Kristín Bogadóttir, móðir Kristjáns
Skúlasonar.
Afmæli
Anton Benedikt Kröyer
Anton Benedikt Kröyer verslunar-
maður, Arahólum 2, Reykjavík, er
fertugurídag.
Anton fæddist í Reykjavík. Hann
lauk kennaraprófi frá Kennara-
skóla íslands 1972 og síðan stúdents-
prófi frá sama skóla. Anton hefur
kennt við Álftamýrarskólann, Hér-
aðsskólann í Reykjanesi, Breið-
holtsskólann og Fossvogsskólann
en þó lengst af við Vogaskólann í
Reykjavík. Hann stundaði verslun-
arstörf á árunum 1976-82 og rekur
nú ásamt konu sinni hljóðfæra-
verslunina Gítarinn hf. á Lauga-
vegi. Þá hefur Anton Benedikt spil-
að með danshljómsveitum um ára-
bil.
Börn Antons Benedikts eru Ásgeir
Kröyer, f. 17.1.1972, og Heiðdís
Helga Antonsdóttir, f. 14.4.1980.
Kona Antons er Sigurbjörg
Steindórsdóttir, f. 26.5.1958, en syn-
ir hennar eru Óskar Frímannsson
og Steindór Frímannsson.
Foreldrar Antons Benedikts: Ás-
geir Kröyer, f. 24.2.1914, fyrrv. póst-
fulltrúi, og Helga Þorgeirsdóttir
Kröyer, f. 21.5.1917, d. 31.7.1985.
Ásgeir var sonur Benedikts Kröy-
er, b. og smiðs á Stórabakka á Fljóts-
dalshéraði, Kristjánssonar Kröyer,
b. á Hvanná, Jóhannssonar.
Móðir Benedikts var Elín Margrét
Þorgrímsdóttir, prestsí Þingmúla
og á Hofteigi, Arnórssonar, prests á
Bergsstöðum, Árnasonar, biskups á
Hólum, Þórarinssonar, prófasts í
Hjarðarholti í Dölum, Jónssonar.
Móðir Árna biskups var Ástríður
Magnúsdóttir, prófasts í Hvammi í
Hvammssveit, bróður Árna, próf-
essors og handrit^safnara. Magnús
var sonur Magnúsar, sýslumanns í
Dalasýslu, Jónssonar og Guðrúnar
Ketilsdóttur. Móðir Ástríöar var
Sigriður, systir Páls Vídalín lög-
manns. Móðir Arnórs á Bergsstöð-
um var Steinunn Arnórsdóttir,
sýslumanns, Jónssonar, en hún og
Árni biskup, maður hennar, voru
systkinabörn. Móðir Þorgríms var
Margrét Björnsdóttir, prests í Ból-
staðarhlíð, Jónssonar, ættföður Ból-
staðarhlíðarættarinnar, langafa
Þorvalds, afa Vigdísar Finnboga-
dóttur forseta. Móðir Elínar Margr-
étar var Guðrún Pétursdóttur, syst-
ir Guðrúnar yngri, langömmu
Bj arna Benediktssonar forsætisráð-
herra. Önnur systir Guðrúnar var
Guöfinna, amma Bjarna Jónssonar
vígslubiskups.
Móðir Ásgeirs Kröyer var Anton-
ína, dóttir Jóns, b. á Svínabökkum
í Vopnafirði, Jónssonar. Móðir Jóns
var Vilborg Pálsdóttir, b. í Vatns-
dalsgerði í Vopnafirði, Björnssonar.
Anton Benedikt Kröyer.
Móðir Páls var Guðrún Sigurðar-
dóttir „tuggu“, b. á Fossi, Sveins-
sonar, langafa Metúsalems, langafa
Ragnars Halldórssonar, stjórnar-
formanns ísal.
Bragi Einarsson
Bragi Einarsson hugvitsmaöur, Óð-
insgötu20B, Reykjavík, er sextugur
ídag.
Bragi fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp. Hann lauk gagn-
fræðaprófi, iðnskólaprófi og sveins-
prófi í málaraiðn en meistararétt-
indi í greininni öðlaðist hann 1956.
Bragi starfaði síðan lengi við
verslunar- og málarastörf. Hann rak
ásamt fóður sínum verslun,
glerslípun og speglagerð í Eyjum frá
1952-60 en flutti þá til Reykjavíkur.
Þar stundaði hann einnig verslun-
arstörf og iðngrein sína og rak síðan
eigin heildsölu um skeið.
Bragi tók þátt í sýningunni „Hug-
vit’86“ og hefur sl. ár starfað nær
eingöngu aö málefnum Félags ís-
lenskra hugvitsmanna.
Bræður Braga: Lárus Sigurfmnur
Einarsson, f. 23.3.1923, d. 18.8.1980,
og Haraldur Amar Einarsson, f.
17.7.1924, kennari og teiknari í
Hveragerði.
Foreldrar Braga voru Einar Lár-
usson, f. 20.3.1893, d. 5.5.1963, mál-
arameistari og kaupmaður í Vest-
mannaeyjum, og Sigrún Vilhjálms-
dóttir, f. 29.9.1897, d. 19.1.1956, hús-
móðir.
Einar var spnur Lárusar Pálma
Mikaels, b. í Álftagróf, Finnssonar,
b. í Keldudal, Þorsteinssonar, b. á
Vatnsskarðshólum, Eyjólfssonar, b.
á Hvoli, Jónssonar.
Móðir Þorsteins og fyrri kona Ey-
jólfs var Þórunn Sigurðardóttir.
Móðir Finns var Margrét Guð-
mundsdóttir, b. á Skaganesi í Mýr-
dal, Ámasonar, b. í Jórvík, í Bakka-
koti og á Grímsstöðum í Skamma-
dal, Björnssonar. Móðir G'uðmund-
ar var Guðrún Jónsdóttir. Móðir
MargrétarvarGuðrúnBjarnadótt- .
ir, b. í Engigerði og síðar Reynis-
holti, Eiríkssonar, b. í Engigerði,
Einarssonar, b. þar, Eiríkssonar.
Móðir Guðrúnar Bjarnadóttur var
Margrét Eiríksdóttir, b. í Suðurvík,
Jónssonar, b. í Suðurvík, Jónssonar
„gamla“ í Syðri-Steinsmýri, Eiríks-
sonar.
Móðir Lárusar Pálma var Guörún,
dóttir Sigmundar Jónssonar snikk-
ara og Birgittu Halldórsdóttur.
Móðir Einars Lárussonar var
Amlaug Einarsdóttir, b. á Steinum
og síðar í Neðri-Dal, Einarssonar,
b. í Ysta-Skála, Sighvatssonar, b. og
galdramanns í Skálakoti, Einars-
sonar, b. í Skálakoti, Einarssonar.
Móðir Sighvats var Steinunn Gísla-
dóttir, b. í Gerðakoti, Jónssonar.
Móðir Steinunnar var Björg, dóttir
Einars Jónssonar í Syðri Brennu og
Steinunnar Magnúsdóttur. Móðir
Einars Sighvatssonar var Kristín,
Bragi Einarsson.
dóttir Guðna Sveinssonar og Guð-
rúnar Lafranzdóttur. Móðir Einars
á Steinum var Arnlaug Sveinsdóttir
ljósmóðir. Móðir Arnlaugar í Álfta-
gróf var Guðfinna Vigfúsdóttir, b. í
Stakkagerði í Vestmannaeyjum,
Bergssonar Brynjólfssonar.
Sigrún, móðir Braga, var dóttir Vil-
hjálms Theodórssonar, gullsmiðs í
Reykjavík, Jónassonar.
Til hamingju með afmælið 27. apríl
85 ára 60ára
Jónas Viggó Sigurjónsson, Sæmundargötu 11, Sauðárkróki. Jóhanna Pálsdóttir, Brúarholti, Ytri-Torfustaöahreppi.
80ára 50ára
Margrét Jónsdóttir, Sigtúni32, Selfossi. Ámi Kristinn Þorgilsson, Miklaholtsseli I, Miklaholtshreppi, Birgir Eyjólfsson, Erluhrauni 4, Hafnarfirði. Eiríkur Gunnþórsson, Hafbliki, Borgarfjarðarhreppi. Sigurjón Gislason, Lagarfelli 10, Fellahreppi. Sævar- Þórjónsson, Ennishlíð2, Ólafsvík. Erlingur Guðmundsson, Melási 4, Garðabæ
75ára
Benedikt Stefánsson, Minni-Brekku, Fljótahreppi. Kolbeinn Bjarnason, Stóru-Mástungu ÍA, Gnúpverja- hreppi.
70ára 40 ára
Jónínu Sigtryggsdóttir, Seijavegi3A, Reykjavik. Nikólína Þorkelsdóttir, Einilundi 2E, Akureyri. Þorsteinn Blandon, Karlagötu 13, Reykjavik. Jakob Björnsson, Tjarnarlundi 12E, Akureyri. Kristján Árnason, Heiðarlundi 6H, Akureyri. Guðjón Smári Valgeirsson, Kleppsvegil38, Reykjavík.