Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990.
35
LífsstQI
4~
TÓMATAR
Hagkaup
Bónus
ll
410 585
SVEPPIR
Mlkllgaröur
Nóatun
I
489 747
VINBER
Mlkllgaröur
315 519
PAPRIKA
Mlkllgaröur
Bónus
450 621
DV kannar grænmetismarkaðinn:
íslenskir tóm-
atar komnir
í verslanir
- 20-30% dýrari en innfluttir
Markverðasta breytingin á græn-
metismarkaðnum að þessu sinni er
sú að nú eru íslenskir tómatar komn-
ir í nokkrar stórverslanir. Takmark-
að framboð veldur því að þeir eru
þó ekki til alls staðar enn. Verðið er
nokkru hærra en á innfluttum tóm-
ötum og hækkar meðalverð milli
vikna úr 418 krónum kílóið í 495.
Aimennt virðist hækkunin vera á
blinu 20-30%.
íslensku tómatarnir voru ódýrastir
í Bónus á 410 krónur kílóið en dýrast-
ir í Hagkaupi á 585 krónur. í báðum
tilfellum var um mjög fallega og
girnilega tómata að ræða. Verðmun-
urinn er 42% í þessu tilfelli.
Gúrkur hafa hækkað nokkuð í
verði eftir mjög lágt verð í kringum
páskana. Meðalverð hækkar úr 104
krónum í 122 krónur kílóið milli
vikna. Gúrkurnar voru ódýrastar í
Nóatúni á 77 krónur kílóið eða 35
krónur stykkið en dýrastar í Mikla-
garði við Sund á 164 krónur. Verð-
munurinn er 112% og voru kaup-
menn sammála um að framleiðendur
þrýstu mjög á hærra verð og mætti
búast við að verðið hækkaði á næst-
unni.
íslenskir sveppir eru sýnu ódýrari
en innfluttir en takmarkað framboð
gerir það að verkum að ekki geta
allar verslanir boðiö upp á íslenska
sveppi. Sveppirnir voru ódýrastir í
Nóatúni á 489 krónur kílóið, sem er
ágætis verð, og sveppirnir voru mjög
fallegir. Dýrastir voru sveppirnir í
Miklagarði við Sund á 747 krónur
kílóið. Verðmunurinn er 52% í þessu
tilfeffi.
Græn vínber voru að þessu sinni
ódýrust í Fjarðarkaupi á 315 krónur
kílóið. Vínberin litu þó ekki nema í
meðallagi vel út. Dýrustu vínberin
voru í Miklagarði við Sund á 519
krónur. Verðmunurinn er hér 64%.
Vínber í dýrari kantinum litu mun
betur og girnilegar út en þau ódýr-
ari. Meðalverð á vínberjum hækkar
milli vikna úr 371 krónu í 396 krónur
kílóið.
íslensk græn paprika er á svipuðu
Islenskir tómatar eru nú komnir á markaðinn og er verðið 20-30% hærra
en á innfluttum.
Sparigrís vikunnar:
Verslunin
NÓATÚN
verði og í síðustu viku. Ódýrust var
paprikan í Bónus, á 450 krónur kíló-
ið, en dýrust í Miklagarði við Sund,
621 króna kílóið. Verðmunurinn er
hér 38%.
Kartöflur og gæði þeirra eða skort-
ur á þeim eru vinsælt umræðuefni
þessa dagana. Ódýrustu kartöflurnar
eru sem fyrr í Bónus og Hagkaupi á
89 krónur kílóið en dýrastar í Grund-
arkjöri á 121,50 kílóið. Að mati neyt-
endasíðunnar er gæðum kartaflna
víða áfátt. Gullaugakartöflur frá
Ágæti eru útsteyptar í kláöa og lykt-
in ekki góð. í Miklagarði rákumst við
á eyfirskar kartöflur sem voru með
skemmdum blettum og þær sem virt-
ust heilar voru linar eins og svamp-
ur.
Sparigrís vikunnar fer til Nóa-
túnsbúðanna fyrir lægsta verð á góð-
um sveppum og lægsta verð á gúrk-
um.
. -Pá
Sértilboð og afsláttur:
Lífrænt ræktaðar gúrk-
ur og ódýrir kjúklingar
I vikunni var boðið upp á takmark-
að magn af lífrænt ræktuðum agúrk-
um í Hagkaupi í Kringlunni. Verðið
var talsvert hærra en á venjulegum
gúrkum, eða 225 krónur kílóið, en
engu að síður fengu færri en vildu.
Umræddar gúrkur eru ræktaðar á
Sólheimum í Grímsnesi og enginn
tilbúinn áburður né skordýraeitur
notað við ræktunina. Kolbeinn
Ágústsson, sölustjóri grænmetis í
Hagkaupi, sagði í samtali við DV að
ætlunin væri að bjóða upp á lifrænt
ræktaðar gúrkur, tómata og paprik-
ur eftir því sem takmarkað framboð
á þessum vörum leyfði.
Á tímum vaxandi mengunar fer
eftirspum eftir grænmeti, sem rækt-
að er á þennan hátt, mjög vaxandi
og erlendis er ræktun og búskapur
með lífrænum aðferðum í mikilli
sókn. Neytendur virðast margir vera
tilbúnir til að greiða mun hærra verð
fyrir þessar afurðir en aðrar enda
gefur ræktun með þessum hætti mun
minna af sér en hefðbui.Unar að-
ferðir.
í Bónus sáum við kjúklinga á sér-
stöku tilboðsverði, 521 krónu kílóið.
í Nóatúnsverslunum fæst taðreyktur
lax á 1098 krónur kílóið og í Bónus
fæst heildós af Ora fiskibollum á 187
krónur.
í Fjarðarkaupi er enn í gangi tilboð
á gosdrykkjum frá Vífilfelli og Hag-
kaup selur enn uppþvottalög á sér-
stöku afsláttarverði.
-Pá
Vínber
«