Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritsiiórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Frjalst, oháð dagblað
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990
Brennu-
vargur
gengur laus
Slökkvilið og lögregla voru tvívegis
kölluðu út á fjórða tímanum í nótt
vegna íkveikjumála við Háberg og í
Jórufelli.
Klukkan 3.15 barst slökkviliði til-
kynning um eld í bifreið sem stóð við
Háberg 4. Þegar að var komið stóð
bíliinn í björtu báli. Eldtungurnar
náðu yfir í Trabantbíl sem stóð við
hliðina á bílastæðinu. Af verksum-
merkjum að dæma var talið greini-
legt að um íkveikju væri verið að
ræða. Bíllinn, sem kveikt var í, er
gjörónýtur en Trabantinn bráðnaði
að hluta.
* Klukkan 3.39 kom svo önnur til-
kynning um eld skammt frá, eða í
Jórufelli 4. Þar hafði verið kveikt í
sorpgeymslu. Brennuvargurinn lét
ekki þar við sitja heldur kveikti líka
í gardínum við dyr út á lóðina bak-
dyramegin. Hann kveikti því í á
tveimur stöðum í húsinu. Sami
slökkvihðsbíll og fór í brunann í bíln-
um skömmu áður fór einnig að hús-
inu við Háberg. Þegar þangað var
komið var íbúi aö reyna að ráða nið-
urlögum eldsins í sorpgeymslunni.
gpmavörðum tókst síðan að slökkva
eidinn. Nokkur reykur komst í stiga-
gang hússins. Að sögn varðstjóra er
tahð augljóst að um íkveikju var að
ræða.
Nokkuð hefur verið um íkveikjur
í bílum að undanfómu. Um helgina
var kveikt í nýlegri Volkswagen
Jettu sem stóð við Ármúla. Sá bíll
eyðilagðist. -ÓTT
Morðmálið:
Einn enn
í haldi
Einn maður var í vörslu Rann-
%i*iknarlögreglu ríkisins í morgun
sem grunur leikur á að hafi átt aðild
að morðinu á Þorsteini Guðnasyni
bensínsafgreiðslumanni í fyrradag.
Töluverður hópur manna hefur ver-
ið yfirheyrður vegna málsins.
Ekki lá ljóst fyrir í morgun hvort
hann eða aðrir yrðu úrskurðaðir í
gæsluvarðhald vegna rannsóknar-
innar. Rannsóknarlögregla vinnur
hörðum höndum við að vinna úr fiöl-
mörgum upplýsingum sem borist
hafa frá almenningi vegna morðsins.
Yfirlögregluþjónn hjá RLR segir að
upplýsingar almennings hafi leitt til
þess að grunur hafi beinst að ákveðn-
um mönnum. Nokkrir menn voru i
yfirheyrslum í gær en þeim var
^íeppt á mismunandi tímum. Yfir-
heyrslur drógust eitthvað þar sem
menn voru í misjöfnu ástandi, að
sögn Helga. qT1,
LOKI
Og þar með bráðnaði
skynsemin!
Lyfjafræðingur
IrmrAi iv fwviv
liwrl vm I Jf III
mikil fjársvik
málið kærl til Rannsóknarlögreglu ríkisins
Við skoðun semRíkisendurskoð-
un gerði kom i ljós að yfirlyfiafræð-
ing á Landakotsspítala hafði á und-
anfornu m árum dregiösér veruleg-
ar fiárhæðir með ýmsum ólögleg-
um hætti. Yfirlyfiafræðmgurinn
hefur starfað á spítalanum í um tiu
ar.
Rannsóknin er á frumstigi og að
sögn Ríkisendurskoöunar er ekki
komið fram hversu háum fiár-
hæðum maðurinn náöi til sín. Þá
er grunur um að hann hafi notfært
sér stofnanir og lækna án þess að
viðkomandi hefðu hugmynd um að
um refisvert athæfi væri að ræða.
Lyfiafræðingnum var vikið úr
starfi í bytjun vikunnar vegna
þessa máls. Samkvæmt heimildum
Haralds Ólafssonar, stjórnarform-
anns Landakotsspítala, hafa fleiri
starfsmenn ekkí verið reknir vegna
málsins.
Yfirlyfjafræðingurinn mun með-
al annars hafa notað niðurgreiðslu-
kerfi á lyf til fiárdráttarbrotanna.
Þá er hann grunaður um að hafa
falsað innkaup í apótek spítalans.
Grunur er um að fleiri menn og
stofnanir tengist þessu máli - þótt
yfirlyfjafræðingurinn á Landa-
kotsspítala sé sá sem stjómaði og
hafði mest fé út úr svikunum. Það
er ekki ljóst hvort einhver tók þátt
í svikunum vísvitandi.
„Ég sem aðrir bíð eftir því hvaö
kemur út úr rannsókninni. Það er
ómögulegt að segja til um hversu
háar fiárhæðir um er að ræða. Það
er eftir að fara yfir margar skýrslur
áður en það liggur fyrir,“ sagði
Haraldur Ólafsson. -sme
Veður næstu daga:
Umhleypingar
Um helgina er gert ráð fyrir 2-3
stiga hita. En í stórum dráttum verða
umhleypingar með slyddu. Á mánu-
dag er spáin þannig að engin átt verð-
ur ríkjandi, hægviðri og úrkomu-
laust.
í dag verður sunnan- og suðvestan-
átt á landinu, fyrst með snjókomu
og síðan með slyddu. Líklega verður
þó einhver rigning þegar líður á dag-
inn. Síðan snýst hann í suðvestanátt
undir kvöld og þá verða fyrst smá-
skúrir og síðan slydduél.
Eins og fram kemur á veðurkort-
inu hér á síðunni verður líklega á
morgun hvöss vestanátt með éljum.
Síðan verður minnkandi suðvestan-
átt. Einhver slydda eða skúrir verða
fram á mánudag en úrkoman minnk-
ar þegar líður á sunnudaginn. Vind-
styrkur fer minnkandi.
I morgun var rúmlega einnar
gráðu frost og snjókoma, en líklega
nær hitastigið þó að hækka síðdegis.
Á þssari spá að dæma er alveg eins
líklegt að menn þrammi í bomsunum
með trefihnn um hálsinn fyrsta mai
og kyrji „nallann“ ofan í hálsmálið.
-hlh
Kvótafrumvarpið í efri deild alþingis:
Virðist ætla að
sigla í gegn
Líklegt virðist að meirihluti styðji
kvótafrumvarpið þegar það kemur
til atkvæðagreiðslu í efri deild á
mánudaginn þrátt fyrir óróa í röðum
stjórnarliða. Stjórnarliðar eru með 5
manna meirihluta í deildinni, 13 gegn
8, og því mun það ekki hafa áhrif á
afgreiðslu málsins þó þeir Karvel
Pálmason og Skúh Alexandersson
greiði atkvæði á móti. Fullvíst er tal-
ið að Karvel greiði atkvæði gegn
frumvarpinu.
Guðmundur Ágústsson, þing-
flokksformaður Borgaraflokksins,
hefur lýst yfir óánægju sinni með
frumvarpið en mun líklega styðja
afgreiðslu þess.
Um afstöðu stjórnarandstöðu er
það að segja að Kvennalistinn mun
greiða atkvæði gegn frumvarpinu
þegar búið er að fella breytingatillög-
ur hans. Halldór Blöndál hefði stutt
frumvarpið óbreytt en sagði að eftir
að ákvæði um veiðileyfasölu voru
tengd Hagræðingarsjóðnum muni
hann greiða atkvæði á móti. Sama
munu aðrir sjálfstæðismenn gera.
-SMJ
Atján ára piltur fó
Hér má sjá helstu kvótamenn þingsins skrafa um afdrif frumvarpsins. Stand-
andi eru þeir Karvel Pálmason, Skúli Alexandersson og Ólafur G. Einars-
son. Aðrir á myndinni eru Þorsteinn Pálsson, Guðmundur Ágústsson, Alex-
ander Stefánsson, Jóhann Einvarðsson og Eggert Haukdal. DV-mynd GVA
Átján ára phtur drukknaði er hann
féll útbyrðis af netabátnum Hafliða
GK140 um hádegisbihð í gær. Bátur-
inn er tíu tonn og var hann á neta-
veiðum í góðu veðri um tvær sjómíl-
ur suður af Hofsnesi.
Á bátnum voru fiórir menn og var
verið að leggja trossu. Seinni drekinn
var nýfarinn út þegar pilturinn kast-
aðist út með færinu og hvarf sjónum
félaga sinna. Menn af fiölda báta
komu fljótlega til aðstoðar vegna leit-
ar að piltinum. Þyrla frá Landhelgis-
gæslunni og varnarhðinu á Keflavík-
urflugvelh komu skömmu síðar til
leitar úr úr lofti. Leit þyrlanna var
hætt síðdegis í gær en bátarnir héldu
leitáframenánárangurs. -ÓTT
Veðrið á morgun:
Nú spáir hann
vestankalda
Það blæs ekki byrlega fyrir
þeim sem ætla að leggja í ferðalög
um helgina. Veðurstofan spáir
vestan stinningséljum með all-
hvössum skúrum eöa slyddu um
sunnan- og vestanvert landið. í
öðrum landshlutum verður hann
af sömu átt en þar sleppa menn
þó við úrkomu að mestu. Hitinn
verður bærilegri en áður og er
vel yfir frostmarkinu um allt land
og gæti náð fimm stigum á Suð-
urlandi.
SKUIUIBÍIAR
25050
SENDIBILASrOÐIN Hf
opið um kvöld og helgar
BILALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00